Morgunblaðið - 16.02.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
I
I
I
)
>
>
>
>
>
I
>
I
>
>
FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1996 11
FRÉTTIR
Nýtt frumvarp til laga um helgidagafrið
Leyft að dansa að-
faranótt páskadags
HEIMILT verður að halda dansleiki
til klukkan 3 aðfaranótt páskadags
og hvítasunnudags, samkvæmt laga-
frumvarpi sem dómsmálaráðherra
hefur lagt fram á Alþingi. Nú eru
almennar skemmtanir bannaðar eftir
kl. 18 laugardaga fyrir páska og
hvítasunnu.
Jafnframt gerir frumvarpið ráð
fyrir að fella niður friðun laugardaga
fyrir páska og hvítasunnu eftir
klukkan 18 eins og núgildandi lög
kveða á um. Einnig verður felld nið-
ur friðun sunnudaga og ýmissa ann-
arra helgidaga. Nú er í gildi bann á
þessum dögum tii kl. 15 við tiltek-
inni starfsemi á veitingahúsum,
verslunarbann með undanþágum og
takmarkanir á vinnu.
Sjötug lög
Frumvarpið er samið af nefnd sem
dómsmálaráðherra skipaði sl. vor, en
núgildandi lög um almannafrið á
helgidögum þjóðkirkjunnar eru frá
1926. Drög að' lagafrumvarpi lágu
fyrir í haust og voru lögð fyrir kirkju-
þing sem gerði nokkrar athugasemd-
ir. Þar var m.a. lagt til bann við
skemmtanahaldi aðfaranótt páska-
dags en á það féllst nefndin ekki.
Samkvæmt frumvarpinu er fuliur
helgidagafriður á jóladag og föstu-
daginn langa til kl. 6 að morgni
næsta dag, á páskadag, hvítasunnu-
dag og aðfangadegi jóla eftir klukk-
an 18. Þessa daga er óheimilt að
halda skemmtanir sem almenningur
hefur aðgang að, opinberar sýningar
og skemmtanir þar sem happdrætti,
bingó eða svipuð spil fara fram. Einn-
ig eru markaðir og verslunarstarf-
semi óheimil á þessum dögum.
Undanþágur
Ymsar undanþágur eru þó frá
banninu, samkvæmt frumvarpinu.
Þær gilda m.a. um starfsemi lyfja-
búða, bensínstöðva, bifreiðastöðva,
verslana á flugvöllum og fríhafnar-
svæðum, blómaversiana, söluturna
og myndbandaleiga. Sama gildir um
gististarfsemi og tengda þjónustu.
Þá er íþrótta- og útivistarstarfsemi
heimil. Einnig er hægt að halda eða
veita aðgang að listsýningum, eða
samkomum sem hafa sígilt listrænt
gildi og samræmast helgidagafriði
eftir klukkan 15 umrædda daga.
Aðrir helgidagar þjóðkirkjunar eru
samkvæmt frumvarpinu sunnudag-
ar, annar dagur jóla, nýársdagur,
skírdagur, annar dagur páska, upp-
stigningardagur og annar dagur
hvítasunnu. Þessa daga er gert ráð
fyrir að almenn starfsemi sé heimil.
ASI um vaxtahækkanir bankanna
Eiga sér ekki stoð
í efnahagsástandi
MIÐSTJÓRN ASÍ mótmælir þeim
vaxtahækkunum sem dunið hafa
yfir að undanförnu í ályktun sem
Morgunblaðinu hefur borist. Segir
að þær eigi sér enga stoð í efnahags-
legum aðstæðum hér; þvert á móti
ættu vextir að fara lækkandi eins
og í nágrannalöndum okkar. Telur
miðstjórnin að bankar og sparisjóðir
hafi gengið á lagið eftir að Seðla-
bankinn hækkaði vexti í desember
af ótta við þenslu í hagkerfinu.
Bent er á að vextir af almennum
víxillánum séu nú álíka háir og fyrir
almenna lækkun vaxta haustið
1993. „Vextir af verðtryggðum
skuldabréfum banka og sparisjóða
hafa einnig farið hækkandi undan-
farna mánuði án þess að vextir á
ríkisskuldabréfum hafi hækkað. Nú
er svo komið að verðtryggðir vextir
banka og sparisjóða eru lítið lægri
en þeir voru fyrir vaxtalækkunina
haustið 1993. Miðstjórn vekur at-
hygli á því að meginþungi þessarar
vaxtahækkunar hefur komið fram í
skjóli frumskógar vaxtaálaga á
skuldabréfum sem bankarnir tóku
upp fyrir nokkru. Minna má á að
við gerð kjarasamninga í apríl 1992
var gert sérstakt samkomulag við
bankana um að vaxtamunur á
skuldabréfavöxtum og ríkisskulda-
bréfum yrði ekki meiri en sem nem-
ur 2%. Síðastliðin tvö ár hefur þessi
munur hins vegar verið um 3%.
Á sama tíma og þessar vaxta-
hækkanir dynja yfir hér á landi hafa
vextir erlendis farið lækkandi á und-
anförnum mánuðum og eru verulega
lægri en hér á landi. Því munu hækk-
andi vextir hér á landi draga úr
þeim hæga bata sem á sér stað í
efnahagslífinu og jafnframt skerða
samkeppnisstöðu okkar út á við.
Miðstjórn ASÍ krefst þess að ríkis-
stjórn og Seðlabanki grípi til allra
þeirra aðgerða sem duga til að ná
niður vöxtum, enda hafa bankar
sýnt fram á að fjármagnsmarkaður-
inn tekur vel við handaflsaðgerð-
um,“ segir í ályktuninni.
Hafnarhúsið á næsta fundi borgarráðs
Ymsar ástæður
fyrir seinkun
GUÐRÚN Ágústsdóttir forseti borg-
arráðs segir að tillögur samstarfs-
hóps um nýtingu Hafnarhúss, sem
fela í sér að þar fái Listasafn Reykja-
víkur 3.500 fermetra til umráða,
verði lagðar fram á næsta fundi
borgarráðs sem er á þriðjudag.
Samstarfshópurinn um nýtingu
Hafnarhúss skilaði af sér niðurstöð-
um seinasta mánudag og mun for-
maður nefndarinnar, Ámi Þór Sig-
fússon, gera grein fyrir störfum
hennar næst komandi þriðjudag, að
öllu forfallalausu, í stað seinasta
þriðjudags eins og ráð var fyrir gert.
Aðspurð kvaðst Guðrún ekki geta
gefið upplýsingar um hvers vegna
umfjöllun um málið var skotið á frest,
en ýmsar ástæður geti komið til
greina í tilvikum sem þessum. „Ekki
þarf annað en að fólk hafi lögmæt
forföll og biðji um að einhver mál
séu tekin fyrir, þá er orðið við þeirri
beiðni.
Mjög mörg mál eru líka lögð fram
og síðan biður einhver um frestun á
þeim og þá eru þau ekki endilega
bókuð inn. Þetta er eðlilegasta mál
í heimi. Það er ekkert tryggt í tilver-
unni í borgarkerfínu frekar en ann-
ars staðar fyrr en það hefur átt sér
stað. Þeir sem vilja taka forskot á
sæluna geta lent í vandræðum,“ seg-
ir Guðrún.
tSLENSKIR 3
m
_ -T,
BOÐIN
Verið hjartanlega velkomin í Ostabúðina að Skólavörðustig 8. Síminti er: 562 2772.
OSTA OG
SMIÖRSAIANSE
Opið virka daga kl. 10 -18,
laugardaga kl. 10 - 24 og
Janga laugardaga" kl. 10 -17.
d fteóta ótad ífkmum!
Velkomin í Ostabúðina okkar að Skólavörðustíg 8.
Við bjóðum fjölbreytt úrval gæðaosta ífallegu og
þægilegu umhverfi á besta stað í bænum.
Dýrindis ostar í miklu úrvali
Þú finnur örugglega ost að þínu skapi því úrvalið er ótrúlegt.
íslensku ostarnir í allri sinni fjölbreytni eru að sjálfsögðu í
hávegum hafðir. Einnig er á boðstólum úrval erlendra osta.
Þér er að sjálfsögðu velkomið að bragða á ostunum. Auk þess
bjóðum við gæsalifur, andalifur, frönsk paté og sósur, sérbakaðar
ostakökur og ostabökur, rjómaostaábæti o.fl.
Persónuleg þjónusta í notalegu umhverfi
Sérþjálfað starfsfólk er þér innan handar, boðið og búið að veita
þér allar þær ráðleggingar sem þú þarfnast.
Veisluþjónustan - alit sem til þarf
Veisluþjónustunni er gert hátt undir höfði hjá okkur enda nýtur
hún sívaxandi vinsælda meðal viðskiptavina. Þú getur komið
og ráðfært þig við okkur um magn osta, tegundir og meðlæti.
Ef þú vilt útbúa pinnana sjálf(ur), skerum við ostinn í teninga.
Hjá okkur færð þú allt sem þarf til pinnagerðar. Einnig færðu
alls kyns smávöru, gjafavöru, skreytingar, ostaáhöld,
uppskriftarbækur, bæklinga o.fl.
Ostabökur í hádeginu!
Líttu til okkar í hádeginu og gæddu þér á ostabökunum okkar,
heilum eða í sneiðum, heitum eða köldum.