Morgunblaðið - 16.02.1996, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Heildarkostnaður við flotkví Akur-
eyrarhafnar um 290 milljónir króna
Nýtingin á kvínni
farið fram úr
björtustu vonum
HEILDARKOSTNAÐUR við kaup á
flotkví til Akureyrar og byggingu
aðstöðu fyrir hana við Slippstöðina
Odda hf. er rétt rúmar 290 milljónir
króna, samkvæmt lokauppgjöri.
Flotkvíin kostaði um 207 milljónir
króna, bygging skjólgarðs tæpar 12
milljónir, kostnaður við dýpun var
um 45 milljónir króna og við festing-
ar rúmar 26 milljónir.
Flotkvíin varð mun dýrari en upp-
haflega var gert ráð fyrir enda þá
ráðgert að kaupa gamla kví á um
135 milljónir króna. Hins vegar var
kostnaður við dýpkun, skjólgarð og
festingar mjög nálægt upphaflegum
áætlunum.
Ný flotkví mun
vænlegri kostur
Guðmundur Sigurbjömsson, hafn-
arstjóri, segir að það sé ekki spurning
að mun vænlegri kostur hafi verið
að kaupa nýja flotkví á um 207 millj-
ónir heldur en 20-50 ára gamla kví
á um 135 milljónir. „Flotkvíin hefur
komið mjög vel út, skapað mörg verk-
efni fyrir Slippstöðina og gefíð aukn-
ar tekjur. Þá hefur nýtingin á henni
farið fram úr björtustu vonum,“ sagði
Guðmundur.
Skuld ríkissjóðs við Akureyrar-
höfn var áætluð um 135 milljónir
króna um síðustu áramót, vegna
framkvæmda síðasta árs. Gert er ráð
fyrir að höfnin fái um íjórðung
skuldar ríkissjóðs greidda á þessu
ári, ásamt framlagi til að ljúka fram-
kvæmdum í Krossanesi, samtals um
45 milljónir króna.
Aldrei verið framkvæmt
jafn mikið
Guðmundur segir að aldrei áður
hafí verið framkvæmt jafn mikið hjá
Akureyrarhöfn og á síðasta ári, eða
fyrir um 288 milljónir króna. Auk
framkvæmda við flotkví, var lokið
við að keyra út gijótgarð í Krossa-
nesi og byggja þar 80 m viðlegu-
kant sem tekinn verður í notkun á
þessu ári. Nýr dráttarbátur var
byggður hjá Slippstöðinni Odda og
afhentur höfninni í apríl sl. og til
viðbótar var unnið við Oddeyrar-
bryggju og skipulag hafnarsvæðis-
ins.
Við dýpkun fyrir flotkvínni voru
grafnir upp 143.500 m3 af efni og
var það notað í uppfyllingu annars
staðar. Um 116.000 m3 í Krossanes
og um 24.000 m3 í uppfyllingu við
Strandgötu. Þá fóru um 13.000 m3
af gijóti í skjólgarðinn við flotkvína.
Akureyrarbær,
Tækni- og umhverfissviö
Sala á tækjum og bílum í eigu
gatna- og umhverfisdeildar
Tæki gatnageröar:
Jaröýta Caterpillar D6C 120 hö, árgerö 1967.
Dg-720 Thames Trader vörubifreiö, árgerö 1963.
Fp-440 Ford B 1411 sérhæfö sorpbifreið, árgerö 1979.
Pallur af 12 tonna vörubifreiö.
Bílar og tæki eru til sýnis hjá áhaldahúsi Akureyrarbæjar
v/Tryggvabraut og eru upplýsingar veittar þar eöa í síma
462-1193.
Tæki umhverfisdeildar.
A-4783 Toyota sendibíll, árgerö 1987.
G-8067 Nissan Urvan sendibíll, árgerö 1985.
Fr-093 Chevrolet pallbíll, árgerö 1979.
Ad-681 Massey Ferguson, árgerö 1963.
Vagn, heimasmíðaður, stærö 1,6x4,2 m.
Vagn, heimasmíðaður meö fjöörum,
stærö 1,8x4,0 m.
Bílar og vagnar eru til sýnis hjá umhverfisdeild viö
Krókeyri og eru upplýsingar veittar þar eöa í síma
462-5600. Dráttarvélin er í láni hjá Skógræktar-
félagi Eyfiröinga (Hálsi, Eyjafjarðarsveit).
Óskaö er eftir verðtilboðum í viökomandi tæki, þar sem
gerö er grein fyrir tilboðsupphæð og greiöslufyrirkomulagi.
Tilboðin skulu hafa borist á skrifstofu bæjarverkfræöings
fyrir kl. 11.00 miðvikudaginn 28. febrúar 1996 og veröa
þau opnuð þar aö viðstöddum þeim bjóöendum sem þess
óska.
Heimilt er aö taka hvaöa tilboði sem er eöa hafna öllum.
Bæjarverkfræöingurinn á Akureyri.
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
HAfNARBÁTARNIR Mjölnir og Sleipnir drógu þýska togarann Dorado, sem er í eigu Mecklenbur-
ger Hochseefischerei, frá Torfunefsbryggju að slippkantinum, þar sem hann varður tekinn í yfir-
halningu hjá Slippstöðinni Odda hf. eins og þrír aðrir togarar fyrirtækisins. Sleipnir er nýr hafnar-
bátur, sem byggður var í Slippstöðinni Odda hf. og var afhentur höfninni í apríl á síðasta ári.
Ragnheiður Runólfsdóttir, sundþjálfari Óðins
Hef orðið vör við miklar
framfarir hjá sundfólkinu
MJÖG öflugt starf er rekið innan
Sundfélagsins Óðins og í vetur æfa
um 80 ungmenni á vegum félagsins,
á aldrinum 6-20 ára. Þar fyrir útan
æfir 25-30 manna hópur sundmanna
25 ára og eldri af krafti en sá hópur
kallar sig Garpana.
Skagakonan Ragnheiðiir Runólfs-
dóttir var ráðin þjálfari Óðins á síð-
asta ári en þar fer ein allra besta
sundkona landsins fyrr og síðar og
margreyndur þjálfari. Ragnheiður
var ráðin til tveggja ára en hún hóf
störf í september si.
Góður og áhugasamur hópur
Ragnheiður sagðist kunna vel við
sig á Akureyri, enda væri góður og
áhugasamur hópur að æfa sund hjá
Óðni. Hún sagðist hafa orðið vör við
miklar framfarir hjá sundfólkinu.
Hins vegar kæmi ekki í ljós fyrr en
á Innanhússmeistaramóti íslands í
næsta mánuði og á aldursflokkamót-
inu í sumar hversu framarlega aku-
reyrska sundfólkið stendur.
„Sundfólkið þarf að ná ákveðnu
lágmarki til að komast á Innanhúss-
meistaramótið sem fram fer í Vest-
mannaeyjum. Okkar fremsta sund-
fólk hefur þegar náð þar inn en ég
vonast til að komast með 10 manna
Málþing
um kjara- og
réttindamál
kennara
MÁLÞING um kjara- og réttindamál
kennara verður haldið í Lóni við
Hrísalund á Akureyri á morgun, laug-
ardaginn 17. febrúar, frá kl. 13 til 17.
Þar sem nú líður að endanlegum
flutningi grunnskólans til sveitarfé-
laga og í ljósi þess að kjarasamningur
kennara verður að öllum líkindum
framlengdur til áramóta þykir Banda-
lagi kennara á Norðurlandi eystra og
svæðafélagi Hins ísienska kennarafé-
lags ástæða til að efna til málþings
um kjara- og réttindamál kennara og
skólastjóra. Þar gefst þátttakendum
kostur á að leita svara við þeim spurn-
ingum sem á þeim brenna.
Sveinbjörn M. Njálsson formaður
BKNE flytur inngangserindi en fram-
sögu hafa m.a. Benedikt Bragason
frá HKÍ, Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands íslands, Elna
Katrín Jónsdóttir, formaður Hins ís-
lenska kennarafélags, og Valgaður
keppnishóp til Eyja,“
segir Ragnheiður.
Mikil þörf fyrir
innisundlaug
Sundfólkið æfir að
mestu ieyti í Sundlaug
Akureyrar, sem er úti-
laug en Ragnheiður
segir mikla þörf fyrir
yfirbyggða laug ekki
síst nú yfir háveturinn.
„Þá gætum við verið
útaf fyrir okkur á æf-
ingum og almenningur
þá einnig fengið frið
til að synda. Við erum
með hálfa laugina fyrir
æfingar 3-4 tíma dag
og það er oft erfitt að vera með allt
upp í 16 manns á æfmgu í einu á
aðeins tveimur brautum."
Sundfólkið hefur æft seinni part
dagsins en um þessar mundir er
Ragnheiður að fara af stað með
æfingar kl. 6.30 á morgnana og þá
í innilauginni, sem er aðeins 12,5 m
að lengd. Ragnheiður sagði að lengd
laugarinnar skipti ekki höfuðmáli
og sjálf hafi hún æft í 12,5 m iaug
fram til 16 ára aldurs. „Ef viljinn
er fyrir hendi er hægt að komast í
Hilmarsson, varaformaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga. Að loknum
umræðum verða pallborðsumræður.
MESSUR
LAUFÁSPRESTAKALL: Guðsþjón-
usta verður í Laufáskirkju næstkom-
andi sunnudag, 18. febrúar kl. 14.
Minnst verður aldarafmælis Þorvarð-
ar Þormars, fyrrum prests í Laufási.
Kyrrðar- og bænastund í Svalbarðs-
kirkju á sunnudagskvöld kl. 21.
Hlynur sýnir
í Gallerí+
HLYNUR Hallsson opnar sýningu
sína „Þijú herbergi" í Gallerí+
Brekkugötu 35 á Akureyri á morg-
un, laugardaginn 17. febrúar kl. 14.
Hann er fæddur á Akureyri árið
1968, en stundar nú framhaldsnám
í myndlist í Hannover í Þýskalandi.
Hlynur hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga hér á landi og í Noregi auk
þess sem hann hefur haldið einkasýn-
ingar á Akureyri, í Reykjavík, Þránd-
heimi og Hannover.
Samhliða sýningunni í Gallerí+
opnar hann sýningu á verkum sínum
fremstu röð og þá skipt-
ir laugarstærðin engu
máli,“ segir Ragnheiður.
Áheitasund um
síðustu helgi
Sundfélagið Óðinn
stóð fyrir áheitasundi í
Sundlaug Akureyrar um
sl. helgi og var tilgangur-
inn að safna peningum í
rekstur félagsins.
Áheitasundið stóð yfir i
sólarhring, frá kl. 16 á
föstudag og fram til
sama tíma á laugardag.
Um 60 sundmenn, bæði
byijendur, afreksfólk og
nokkrir foreldrar, tóku
sundsprett og eftir sólarhringinn
hafði hópurinn lagt 100,3 km að baki.
Félagsmenn söfnuðu áheitum áð-
ur en sundið hófst og var þeim vel
tekið en alls söfnuðust um 250 þús-
und krónur. Þeir sem lögðu þessu
máli lið áttu þess kost að giska á
hversu marga metra sundmennirnir
kæmust á einum sólarhring og kom-
ust forsvarsmenn Fiðlarans næst
þeirri tölu. Að sundinu loknu var
sundfólkinu og fleirum boðið upp á
veitingar á laugarbakkanum.
í Nýlistarsafninu og Mokka um aðra
helgi. Á þessari sýningu eru innsetn-
ingar, sjóndeildarhringur, hljóðverk-
ið útvörp og nýtt bókverk. Sýningin
stendur til 10. mars og er opið um
helgar frá kl. 14 til 18.
Glerárkirkja
Sýning á tilurð
Biblíunnar
SÝNINGIN „Biblían, hvemig varð
hún til?“ verður opnuð í Glerárkirkju
á Akureyri á sunnudag, 18. febrúar.
í tilefni af 180 ára afmæli Hins
íslenska Biblíufélags á þessu ári hefur
félagið útbúið þessa sýningu en þar
er að fínna kynningu á ritunarsögu
Biblíunnar í máli og myndum. Saga
Biblíuþýðinga er jafnframt kynnt
ásamt sögu Biblíunnar og Hins ís-
lenska Biblíufélags.
Við opnun sýningarinnar flytur
Sigurður Pálsson framkvæmdastjóri
Hins íslenska Biblíufélags fræðslu-
erindi í safnaðarsal og hefst það eftir
messu. Mun hann fjalla um tilurð,
sögu og mikilvægi Biblíunnar.
Sýningin verður opin í næstu viku,
frá mánudegi til sunnudagsins 25.
febrúar frá kl. 13 til 17.
Ragnheiður
Runólfsdóttir
i
I
f
'
i
i
v
i
t
I
s
V