Morgunblaðið - 16.02.1996, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIUT
FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1996 17
Reuter
BANDARISKIR hermenn á árlegri heræfingn í Suður-Kóreu,
nálægt hlutlausa svæðinu sem aðskilur kóresku rikin. Sérfræð-
ingar í málefnum Norður-Kóreu telja hungrið í iandinu og
ýmsa atburði til marks um mikla hættu á að ríkið sé að hrynja.
Atburðirnir í rússneska
sendiráðinu í Pyongyang
Stytti sér aldur
með byssukúlu
Moskvu. Reuter.
MAÐUR, sem braust inn í rússneska
sendiráðið í Pyongyang í Norður-
Kóreu í fyrradag, skaut sig tii bana
í gær. Aður hafði hann fellt þtjá n-
kóreska verði en hann fór fram á
pólitískt hæli í Rússlandi. N-kóreskir
fjölmiðlar sögðu frá hátíðarhöldum
víða um landið í gær vegna afmælis
leiðtogans, Kim Jong-ils, sem er í dag.
/nterfax-fréttastofan hafði eftir
rússneskum sendimanni í Pyongy-
ang, að maðurinn hefði skotið sig
með skammbyssunni, sem hann var
með þegar hann braust inn í hús-
næði rússnesku verslunarsendi-
nefndarinnar í borginni. „Taugarnar
brustu skyndilega," sagði hann og
bætti við, að rússnesk stjórnvöld litu
svo á, að málinu væri þar með lokið.
Liðþjálfi í öryggisverðinum
Fréttastofan Itar-Tass hafði eftir
Rússum í Pyongyang, að lík manns-
ins hefði verið flutt burt en áður
hafði hún sagt, að maðurinn hefði
fallið fyrir einni kúlu í höfuðið án
þess að greina nánar frá tildrögun-
um. Þó kom fram, að mönnum úr
sérsveitum n-kóreska hersins hefði
verið hleypt inn á sendiráðssvæðið.
Tass sagði, að maðurinn hefði
verið 25 ára gamall liðþjálfí í n-kór-
eska öryggisverðinum og hefur eftir
n-kóreskum sendimanni í Moskvu,
að hann hafi verið „geðsjúkur glæpa-
maður“. Hafi hann átt yfir höfði sér
harðan dóm og reynt að koma sér
hjá honum með því að leita hælis í
rússneska sendiráðinu. Ekki nefndi
sendifulltrúinn hvað maðurinn hefði
brotið af sér.
Hungur og upplausn
Um þennan atburð og flótta fyrr-
verandi eiginkonu landsföðurins,
Kim Jong-ils, hefur ekkert verið fjall-
að í n-kóreskum fjölmiðlum en þeir
eru hins vegar yfirfullir af fréttum
af fögnuði landsmanna vegna afmæl-
is leiðtogans í dag. Hefur verið sýnt
frá hátíðarhöldum í höfuðborginni
og víða um landið af þessu tilefni.
Sérfræðingar í málefnum Norður-
Kóreu segja, að atburðir síðustu daga
og hungrið í landinu sýni, að mikil
hætta sé á, að ríkið sé að hrynja.
Muni framhaldið ráðast af pólitískum
ákvörðunum Kims á þessu ári. Reyni
hann að halda í óbreytt ástand sé
upplausnin vís.
IRA staðfestir að vopnahléi sé lokið
Sprengja gerð
óvirk í Lundúnum
Belfast, Lundúnum. Reuter.
LEIÐTOGAR írska lýðveldishersins
(IRA) segja Breta eiga sök á því að
sautján mánaða vopnahlé á Norður-
írlandi hafi verið rofið. Heita þeir
því að hefja vopnaða baráttu gegn
Bretum á ný. Lögregla í Lundúnum
gerði í gær óvirka sprengju sem
fannst í miðborg borgarinnar.
I samtali við An Phoblacht, viku-
rit Sinn Fein, hins pólitíska arms
írska lýðveldishersins, segir talsmað-
ur helstu leiðtoga IRA að vopnahléið
sé á enda og að áfram verði barist
fyrir „írskum þjóðarréttindum“.
Sprengja sprakk í Docklands-
hverfinu í Lundúnum síðastliðinn
föstudag einungis klukkustund eftir
að tilkynnt hafði verið um að vopna-
hléð væri á enda.
Fordæmir Major
Talsmaður IRA fordæmdi John
Major, forsætisráðherra Bretlands,
fyrir að grípa ekki það tækifæri sem
bauðst með vopnahléinu og veita
Sinn Fein aðild að viðræðunum um
framtíð Norður-írlands. Astæða þess
að hryðjuverk hefðu verið tekin upp
á ný væri „misnotkun og svik“ Maj-
ors á þessu „sögulega tækfæri".
Hann sagði Major hafa sýnt óheil-
indi í viðræðum allan þann tíma sem
vopnahléið stóð og sett hvert skilyrð-
ið á fætur öðru til að þóknast fulltrú-
um mótmælenda á Norður-írlandi á
breska þinginu, en stjórnin er háð
stuðningi þeirra.
Breska stjórnin hefur neitað að
efna til viðræðna allra aðila og kraf-
ist þess að lýðveldisherinn afvopnist
fyrst.
IRA-talsmaðurinn sagði nauðsyn-
legt að koma á viðræðum. „Pólitískir
fulltrúar írsku þjóðarinnar eiga sér
einungis einn ákvörðunarstað og það
er samningaborðið". Hann vísaði á
bug fullyrðingum í fjölmiðlum um
að sprengjutilræðið væri til marks
um klofning innan IRA og sagði
samtökin vera sameinuð í aðgerðum
sínum.
Sprengja fannst
Lögregla í Lundúnum gerði í gær
óvirka sprengju sem fannst í grennd
við Shaftesbury Avenue í Ieikhús-
hverfi borgarinnar. Götur í miðborg-
inni, Shaftesbury Avenue og hluti
Piccadilly, voru girtar af í kjölfar
þess að nokkrar sprengjuhótanir á
dulmáli bárust lögreglunni. Notað
var sérstakt orð sem venjulega hef-
ur bent til að um aðgerð á vegum
Irska lýðveldishersins hafi verið að
ræða.
Öryggisgæsla hefur verið hert til
muna í bresku höfuðborginni eftir
að vopnahléi IRA lauk.
Kommúnistar bjóða fram Zjúganov
Jeltsín sagður gera
út af við ríkið
Moskvu. Reuter.
LEIÐTOGI kommúnistaflokks Rúss-
lands, hinn 51 árs gamli Gennadí
Zjúganov, var í gær kjörinn frambjóð-
andi flokksins í forsetakosningunum
16. júní. Hundruð fulltrúa á fundi
flokksins í Moskvu brugðu á loft rauð-
um skírteinum sínum og hljómar bar-
áttusöngsins Intemationale hvöttu
menn til dáða. Þótti mörgum sem
samkundan væri vandlega sviðsett
og minnti mjög á fyrri tíma er komm-
únistar réðu Sovétríkjunum gömlu.
Zjúganov sagðist ekki myndu gefa
loforð en hann ætlaði að grípa til
markvissra aðgerða til að öðlast
stuðning kjósenda og losa Rússa við
þau þungu örlög að Borís Jeltsín
væri við völd. „Sigri Jeltsín enn á ný
merkir það enn frekari eyðileggingu
og rotnun þessa lands,“ sagði hann.
Zjúganov sagði mikilvægt að sam-
eina þá sem vildu eiga hlut að öflugu,
skapandi starfi án þess að standa í
argaþrasi. „Slagorð okkar eru rétt-
læti, öryggi og sjálfstæði ... Við
munum gera sem minnst af því að
auglýsa okkur en aðstoða þá sem vilja
í einlægni taka þátt í að endurreisa
stórveldið".
Hver ræðumaðurinn á fætur öðrum
hvatti til einingar að baki Zjúganov
og var orðalag í ræðutexta þeirra
Reuter
GENNADÍJ Zjúganov ávarpar
fund kommúnista í Moskvu í
gær.
með svo líkum hætti að ljóst þótti að
um samræmingu hefði verið að ræða.
Rætt var um tjónið sem unnið hefði
verið í kjölfar hruns Sovétríkjanna,
þjófnað á auðlindum sem hefði verið
stoiið frá almenningi undir yfírskini
einkavæðingar og framleiðsluna sem
hefði stöðugt minnkað.
„Þetta er það sem umbætur Jelts-
íns hafa kostað," sagði Valentín
Kúptsov, fyrsti aðstoðarformaður
flokksins. „Landið er í reynd að deyja.
Eitt kjörtímabil í viðbót fyrir Borís
Níkolajevítsj [Jeltsín] myndi bókstaf-
lega gera út af við ríkið“. Kúptsov
gagnrýndi einnig harðlega aðgerðir
Jeltsíns í Tsjetsjníju þar sem mörg
þúsund manns hafa fallið í átökum
rússneskra hermanna við uppreisnar-
menn.
„Þrenns konar réttindi“
Ræðu Zjúganovs var vel tekið en
fátt í henni kom á óvart. Öðru hveiju
greip hann þó til kröftugra stíl-
bragða. „Almenningur í Rússlandi
hefur aðeins þrenns konar réttindi -
réttinn til að stela, réttinn til að
drekka sig fullan og réttinn til að
bera ekki virðingu fyrir nokkrum
sköpuðum hlut,“ sagði hann. Komm-
únistar minna oft á aukna fátækt sem
orðið hefur fylgifískur breytinga í átt
til markaðshyggju. Segja þeir að
mannréttindi hafa varla aukist frá
því í tíð Sovétríkjanna og aðeins ríkir
„glæpahundar" geti notið þessara
réttinda.
Jeltsín býður sig fram til endurkjörs
Segir ábyrgðarleysi
að ljúka ekki verkinu
Jekaterínborg. Reuter.
BORÍS N. Jeltsín Rússlandsforseti
skýrði frá því í gær í ræðu sem hann
flutti í heimaborg sinni, Jekaterín-
borg, að hann byði sig fram til endur-
kjörs í júní. Jeltsín, sem er 65 ára
gamall, sagði það ábyrgðarleysi af
sér að reyna ekki að fá stuðning til
fjögurra ára í viðbót, sér bæri skylda
til að tryggja að áfram yrði haldið á
þeirri braut umbóta sem hann hefði
markað.
„Þrátt fyrir að hart hafi verið að
mér lagt að draga mig í hlé með
sæmd hefði það verið ábyrgðarlaust
og alröng ákvörðun hjá mér að bjóða
mig ekki fram,“ sagði hann. Jeltsín
sagði kosningarnar geta ráðið úrslit-
um um framtíð Rússlands, hann
væri þess fullviss að hann gæti stýrt
þjóðinni fram hjá boðum „upplausn-
ar, óeirða og óvissu". Hann yrði að
ljúka verki sem hann hefði helgað
alla krafta sína.
Laun verða hækkuð
Hann sagði að róttækar efnahags-
umbætur hefðu verið gerðar og
minnti á að í stjórnartíð sinni hefði
ferðafrelsi verið aukið og sama væri
að segja um tjáningarfrelsi fjölmiðla.
Forsetinn hét launahækkunum og
Reuter
BORÍS Jeltsín skýrir frá því að
hann hyggist leita endurkjörs.
jafnframt að taka á vanda þeirra
mörgu sem ekki fá greidd laun fyrr
en eftir dúk og disk í ríkisfyrirtækj-
um og stofnunum.
Ræðan varði í nær klukkustund
og var forsetinn hraustlegur en mjög
hásróma, að eigin sögn vegna þess
að hann hefði rætt við svo margt
fólk í borginni um morguninn. Jelts-
ín kom víða við og brá oft út frá
textanum til að leggja þyngri áherslu
á orð sín.
Er forsetinn ræddi við fólk í Jek-
aterínborg gagnrýndi hann m.a. hve
illa gengi að koma á umbótum í hern-
um og virtist gera Pavel Gratsjov
varnarmálaráðherra ábyrgan fyrir
seinaganginum.
Jeltsín sagði mistök hafa verið
gerð í Tsjetsjníju en var harðorður
um helstu uppreisnarleiðtogana þar,
einkum Dzhokar Dúdajev og Salman
Basajev. „Það ætti að skjóta þá,“
sagði hann. Hann sakaði einnig Tyrki
og írana um að styðja við bakið á
uppreisnarmönnum.
Rússneskir hermenn hófu í gær
að rífa illa leikna forsetahöllina í
Grosní, höfuðstað Tsjetsjníju, þar
sem menn Dúdajevs vörðust rúss-
neska hernum í nokkrar vikur í fyrra.
Verður húsið fellt með sprengiefni,
að sögn Rússa og tsjetsjenskra emb-
ættismanna þeirra er byggingin
hættuleg og gæti hrunið í jarð-
skjálfta. íbúar í Grosní mótmæltu
ákaft þessum ráðagerðum.
Misheppnað geimskot truflar geimferðaáætlanir Kínverja
Peking. Rcutcr.
GEIMSKOT kínverskrar eldflaugar
með bandarískan Intelsat-gervihnött
innanborðs mistókst í gær og kann
atvikið að koma sér mjög illa fyrir
metnaðarfulla geimferðaáætlun Kín-
veija.
Flaugin var tæpast tekin að lyft-
ast er hún hallaðist með þeim afleið-
ingum að hún fór aldrei hátt á loft.
Flaug hún í lágum sveig og kom
niður í dreifbýlum dal 20 sekúndum
síðar. Gífurleg sprenging varð sem
heyrðist í 40 km fjarlægð.
Intelsat-708 hnötturinn hafði
verið leigður fjölmiðlasamsteypu
Bann lagt
við frétta-
flutningi
Ruperts Murdochs til afnota.
Hermt er að 10 manns a.m.k.
hafí slasast er flaugin kom niður
skammt frá Xichang-geimferða-
stofnuninni í Sichuan-héraði í suð-
vesturhluta Kína.
Kínverskir fjölmiðlar lúta strangri
ritskoðun og var strax lagt strangt
bann við fréttaflutningi af atvikinu
innanlands. Hvorki var minnst á
óhappið í innanlandsfréttum Xinhua-
fréttastofunnar, ríkisútvarpinu,
sjónvarpi eða blöðum. Embættis-
menn, bæði í héraði o'g hjá ríkinu,
vörðust sömuleiðis allra fregna. I
frétt, sem Xinhua sendi erlendum
fréttastofum, sagði frá atvikinu í
aðeins þremur stuttum málsgrein-
um.