Morgunblaðið - 16.02.1996, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1996 21
LISTIR
Hítnarí
kolunum
KVIKMYNDIR
Bíóborgin, B í 6 h öi1 i n
„HE AT“ ★ ★ ★ Vi
Leikstjóri og handritshöfundur Mic-
hael Mann .Kvikinyndatökustjóri
Dante Spinotti. Tónlist Elliot Gold-
enthal. Aðalleikendur A1 Pacino,
Rob.ert De Niro, Val Kilmer, Jon
Voight, Tom Sizemore, Diane Ve-
nora, Amy Brenneman, Ashley Judd,
Mykelti Williamson, Wes Studi, Ted
Levine, Dennis Haysbert, Natalie
Portman. Bandarísk. Regency/
Warner Bros. 1995.
„EKKI bindast neinum sem þú
getur ekki yfirgefið á hálfri mínútu
ef hitnar í kolunum“; eitthvað á
þessa leið eru einkunnarorð þjófsins
McCauleys (Robert De Niro). Hugs-
unarháttur Vincents Hanna (A1 Pac-
ino), lögreglumannsins sem eltir
hann uppi í Heat, er ekki ósvipað-
ur, enda furðu margt líkt með þeim
andstæðingum.
MacCauley er enginn venjulegur
bófi heldur stórtækur og snjall stór-
þjófur sem fæst einungis við flókin
verkefni sem færa mikið í aðra hönd.
Bófaflokkur hans er samvalinn hóp-
ur ískaldra náunga sem eru jafnfær-
ir á morðtólin og hátækniútbúnað-
inn sem þeir nota jöfnum höndum
við glæpina.
Eftir vel heppnað og ófyrirleitið
rán á peningaflutningabíl í Los
Angeles er Hanna settur í að rekja
slóð glæpahópsins og má segja að
þá hitti skrattinn ömmu sína. Hanna
kemst að því að McCauley er með
stórrán í uppsiglingu, enda á það
að verða síðasta verkefni bófanna.
McCauley er lengst af einum leik á
undan réttvísinni.
Þrátt fyrir óhóflega lengd er
Heat aldrei langdregin, heldur ein-
stök skemmtun, epísk glæpamynd
þar sem handritshöfundurinn og
leikstjórinn, Michael Mann, gefur
sér nægan tíma til að kynna til sög-
unnar fjölmargar aukapersónur,
sem margar hveijar eru óljósar, en
falla smám saman í réttar skorður
— líkt og mannhafið í Short Cuts.
Engu að síður eru það aðalpersón-
urnar tvær sem drottna yfir mynd-
inni, bornar uppi af tveimur stórleik-
urum samtímans. Þeir De Niro og
Pacino fara báðir hamförum og
túlka eftirminnilega andstæðing-
ana, bófann og löggæslumanninn,
sem eiga þó svo margt sammerkt.
Eru báðir svo uppteknir af starfi
sínu að það hefur sett óbætanlegt
márk á einkalíf þeirra. •
Sú þráskák sem fer fram á milli
þeirra er hjartsláttur myndarinnar,
sem er í flesta staði einstaklega vel
heppnuð. Ástamál þeirra löggunnar
og bófans eru engan veginn jafn
áhugaverð og samspil þeirra
tveggja. Einkum eru skyndiástir
McCauleys og afgreiðslustúlkunnar
ótrúverðugar, þó bæði séu einfarar
í útjaðri mannlífsflórunnar. For-
vitnilegra er bágborið einkalíf
Hanna, þó yfirborðslegt sé. Þar
koma líka við sögu tvær góðar leik-
konur, einkum Natalie Portman
(sem gerði svo góða hluti í Leorí) í
hlutverki stjúpdóttur Hanna. Mann
hefur valið til liðs við sig marga,
gamla samstarfsmenn eins og kvik-
myndatökustjórann Dante Spinotti,
leikarana Ted Levine, Nom Noonan
og Wes Studi og gefst það vel. Val
Kilmer er þéttur sem einn bófanna,
Jon Voight enn betri sem annar
þeirra og ánægjulegt að sjá þessa
fyrrum stórstjörnu á réttri leið.
Voight státar hér af frábæru gervi
og leggur til „heilanum" á bak við
stórglæpina yfirvegað, nánast geist-
legt yfirbragð. Pacino og De Niro
beijast um toppsætið eins og þeim
er einum lagið. Að þessu sinni hefur
De Niro vinninginn í baráttu
risanna, þar sem Pacino lætur eftir
sér fulimikinn ofleik á köflum.
Það þarf alltaf að gera betur en
í síðustu mynd og átökin í Heat eru
einhver þau hrikalegastu sem sést
hafa á hvíta tjaldinu. Framúrskar-
andi vel sviðsett og trúverðug þó
þau eigi vonandi lítið skylt við raun-
veruleikann. Kúlnaregnið í miðborg
Los Angeles minnir meira á blóðvöll-
inn í Víetnam en hefðbundinn löggu-
og-bófahasar og maður spyr sig
oftar en einu sinni, hveijir eru hvað?
Sæbjörn Valdimarsson
Hjörtu í
ilmandi
umslögum
FYRSTA ljóðabók Ingunnar Sig-
marsdóttur á Húsavík er komin út.
Ljóðabókin heitir Hjörtu í ilmandi
umslögum og hef-
ur að geyma 45
ljóð skáldkonunn-
ar.
í kynningu
kemur fram að
ljóðin séu um lífið
og litróf tilfinn-
inganna: „Hver
hefur ekki ein-
hvern tímann slit-
ingunn ið úr sér hjartað
Sigmarsdóttir 0g troðið því í ilm-
andi umslag í von um að viðtakandi
fyndist?"
Höfundur gefur bókina út sjálfur.
Um prentun sáu Svan Jörgensen og
Tröð prenthús. Ljósmyndir á bók-
arkápu eru eftir Þór Gíslason. Hjörtu
í ilmandi umslögum fæst í Bókaversi-
un Þ. Stefánssonar á Húsavík og hjá
höfundi.
♦ ♦ ♦-----
Síðasta sýn-
ingarhelgi
SÝNINGUM Hlyns Helgasonar,
Sigríðar Hrafnkelsdóttur, Lothar
Pöpperl og Gallerís Gúlps í Nýlista-
safninu lýkur á sunnudag. Hlynur
sýnir rýmisverk í efri sölum safnsins
og eitt utandyra. Sigríður sýnir þrív-
íð verk í neðsta sal safnsins, unnin
í blandaða tækni og þýski myndlist-
armaðurinn Lothar Pöpperl sýnir
málverk í forsal.
Gestur í setustofu safnsins er
Gallerí Gúlpur, en það er ferðagall-
erí í formi lítils jólaseríukassa úr
pappa. Galleríið er rekið af Hlín
Gylfadóttur og Særúnu Stefánsdótt-
ur. Sýningarnar eru opnar frá kl.
14-18.
------» ♦ »------
Sveinn Björns-
son í Galleríi
Regnbogans
NÚ STENDUR yfir myndlistasýning
Sveins Björnssonar í Galleríi Regn-
bogans.
Sveinn Björnsson fæddist að Skál-
um á Langanesi árið 1925. Hann
lauk prófi frá Stýrimannaskóla ís-
lands og síðar við Listaháskólann í
Kaupmannahöfn. Fyrsta einkasýning
hans var haldin í Hafnarfirði 1952
og síðan hefur hann haldið hátt í
fimmtíu einkasýningar hérlendis sem
erlendis. Þá hefur hann tekið þátt í
fjölda samsýninga.
Verkin sem Sveinn sýnir nú í Gall-
eríi Regnbogans vann hann í vinnu-
stofu sinni í Krísuvík á síðastliðnu
ári, en eitt verkanna er frá 1996.
Verkin hafa ekki áður verið sýnd
opinberlega.
Sjálfur telur Sveinn að í verkunum
kristallist nýr fijóangi sem hann
hefur hlúð að í listsköpun sinni á
síðustu ljórum árum.
Stórsýning í Perlunni
d ÍSLENSKUM DÖGUM 17. og 18. febrúar kl. 13-18
Oljölmörg innlend fyrirtæki
kynna vörur sínar og þjónustu.
Gestum og gangandi boðið
að smakka, prófa og skoða!
• Gönguferðir með Bylgjunni og MAX
: :
I
'
fym
MÉ
m
i-
1
• Litasamkeppni fyrir börnin
Freyjukötturinn
• Sunneva Design tískusýning
• Málverkasýningin ísland
• Tískusýning á sportfatnaði frá MAX
• Bylgjan í beinni frá Perlunni
• Krökkum boðið á hestbak með
hestaleigunni Laxnesi
A 1 l i r velkomnir\
ISLENSKIR DAGAR
@sm-£
i
á Stöð 2 og Bylgjunni
19. febrúar - 1. mars
-íslenskt, já takkl
989
BYLGJAN
;
míhHHHHHÍ