Morgunblaðið - 16.02.1996, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
Aframhald-
andi óánægja
eða ný forysta?
FYRIR dyrum
standa kosningar til
stjómar í Starfs-
mannafélagi Reykja-
víkur (St.Rv.). Kosið
er um formann og 5
stjórnarmenn til 2ja
ára. í framboði er listi
uppstillingarnefndar
með Grétar Jón Magn-
ússon sem formann og
í stjórn Helga Eiríks-
son, Jónas Engilberts-
son, Jakobínu Þórðar-
dóttur, Pétur Inga
Frantzson og Guðrún
Guðjónsdóttur. Auk
þess er Birni Amórs-
syni stillt upp til eins árs af sérstök-
um ástæðum. Ekki er mótframboð
gegn honum. Hins vegar hafa tveir
til viðbótar gefið kost á sér til
stjórnar og tveir til formanns, þau
Marías Sveinsson og Sjöfn Ingólfs-
dóttir, núverandi formaður.
Ég hef setið í stjórn St.Rv. und-
anfarin 4 ár en gef ekki kost á mér
áfram. Ég tel mig þekkja allvel til
málefna félagsins og fagnaði því
þegar ljóst var að félagið gæti átt
von á nýrri forystu. í eftirfarandi
samantekt ætla ég m.a. að íjalla
um nokkur atriði sem gætu skýrt
slakan árangur félagsins. En að
gefnu tilefni ætla ég fyrst að fjalla
örstutt um uppstillingamefnd, sem
er valin af fulltrúaráði félagsins.
Uppstillingarnefnd
Sjöfn Ingólfsdóttir segir í blaða-
viðtali að hlutverk nefndarinnar sé
að stilla upp þeim mönnum sem
fyrir em í stjórn og fylla upp með
nýjum mönnum gefi þeir sem fyrir
vom ekki kost á sér áfram. Ekkert
er fjallað um þetta í lögum félags-
ins sem ekki er von. Tökum dæmi:
Ef stjómarmaður glatar trausti
umbjóðenda sinna á uppstillingar-
nefnd þá að koma í veg fyrir að
um hann verði kosið, vilji hann sjálf-
ur gefa kost á sér
áfram? Verkefni upp-
stillingarnefndar er að
stilla upp hæfasta fólk-
inu sem kostur er á
hveiju sinni. Á undan-
fömum ámm hefur það
frekar verið regla en
undantekning að kosið
hafi verið milli manna
í nefndinni, bæði um
þá sem gefa kost á sér
til áfram og eins nýja.
Þegar verið var að
kanna undirtektir við
framboð Grétars var
haft samband við 10
af 15 fulltrúum upp-
stillingarnefndar. Og vom und-
irtektir slíkar að Grétar féllst á að
gefa kost á sér. Ekki var á nokk-
um hátt farið leynt með þetta. Það
er því vandamál núverandi for-
manns hafi hún ekkert vitað um
þessar þreifingar.
Sjöfn hefur gert atkvæðagreiðsl-
una í uppstillingarnefnd að miklu
máli og reynir að gera hana sem
tortryggilegasta. Þannig vonar hún
ef til vill að geta komist hjá að
ræða höfuðvanda félagsins, sem er
slakur árangur hennar í kjaramál-
um. Þetta kemur svo sem ekki á
óvart því að Sjöfn hefur að mínu
mati átt afar erfitt með að greina
á milli aðal- og aukaatriða. Þannig
hefur t.d. drjúgur tími stjórnarinnar
farið í að ræða fánasaum, jólafönd-
ur, skemmtanir o.s.frv. en minna
farið fyrir umræðu um kjaramál.
Kjaramál
Samkvæmt skýrslum Kjararann-
sóknarnefndar opinberra starfs-
manna (KOS) voru meðaldagvinnu-
laun borgarstarfsmanna í St.Rv. og
ríkisstarfsmanna í SFR svipuð árið
1987, um 41.000 kr./mán. Síðan
hefur St.Rv. dregist aftur úr. Á
meðfylgjandi línúritum, sem unnin
eru upp úr skýrslum KOS, eru bor-
in saman meðaldagvinnulaun fé-
laga í St.Rv. og a) ríkisstarfsmanna
í BSRB, b) leikskólakennara hjá
Reykjavíkurborg og c) bæjarstarfs-
manna utan Reykjavíkur. En það
er einmitt síðastnefndi hópurinn
sem félagar í St.Rv. hafa helst mið-
að sig við. Þar eru störf sambæri-
legust. Ég hef valið til samanburðar
tímabilið frá 1. janúar 1991 til 30.
júní 1995. í samanburðinum við
bæjarstarfsmenn utan Reykjavíkur,
liggja þó aðeins fyrir upplýsingar
um eitt ár í skýrslum KOS, 1994.
Samkvæmt upplýsingum KOS eru
laun háskólamanna ekki í þessum
tölum
Ég tel það raunhæfan samanburð
að bera aðeins saman dagvinnulaun.
Þess má þó geta að munurinn eykst
hlutfallslega hvað varðar línurit a
og c þegar heildarlaun eru borin
saman. Samkvæmt KOS var meðal-
heildarlaunamunur á borgarstarfs-
manni í St.Rv. og ríkisstarfsmanni
í BSRB um 190.000 kr. árið 1994.
Sjöfn hefur haldið því fram í út-
varpsviðtali að Reykjavíkurborg
greiði lág laun og það sé ástæðan
fyrir slökum árangri félagsins. Ég
held að Reykjavíkurborg sé ekkert
verri viðsemjandi en aðrir á vinnu-
markaðinum. Félag leikskólakenn-
ara hefur sýnt fram á að hægt er
að semja við Reykjavíkurborg með
betri árangri.
Mörg undanfarin ár hefur höfuð-
krafa St.Rv. í samningum verið að
fá greidd sambærileg Iaun og bæj-
arstarfsmenn utan Reykjavíkur.
Eins og sést á línuritinu hefur for-
ystunni litið orðið ágengt í þeim
efnum.
Sjöfn hefur haldið því fram i út-
varpsviðtali að hún ætli sem for-
maður að halda áfram á sömu
Gott orð fer af Grétari
Jóni Magnússyni, segir
Pétur Krisljánsson,
og hann er þaulvanur
félagsmálum.
braut. Það þýðir væntanlega, nái
hún kjöri, að félagsmenn í St.Rv.
halda áfram að dragas't aftur úr
eins og línuritin glögglega sýna.
Vandamál félagsins
Fyrir utan forystuna liggur vandi
félagsins m.a. í skipulagi þess. Fé-
laginu er skipt í 15 deildir og í
hverri deild er að finna flest þau
starfsheiti sem samið er um í kjara-
samningum. Þegar kemur að kjara-
samningum skilar hver deild inn
kröfum fyrir sína menn. Þannig
geta komið fram 15 mismunandi
kröfur fyrir hvert einstakt starfs-
heiti. Þetta er svo ruglingslegt að
þegar þetta kemur upp á samninga-
borðið er þessu yfirleitt sópað burt
í einu lagi. Þegar lögunum um kja-
rasamninga opinberra starfsmanna
var breytt og sérkjarasamningar
felldir út, var nauðsynlegt að laga
sig að því fyrirkoínulagi. Ég tel að
það þurfi að endurskipuleggja fé-
lagið og skipta því í 3 deildir eftir
faghópum. Skrifstofuhóp, heil-
brigðis- og umönnunarhóp og
tæknihóp. Hver þessara 3ja deilda
ætti að skipa eigin samninganefnd,
þannig er auðveldara að samræma
kröfur og vinnubrögðin verða mark-
vissari. Auk þessara 3ja deilda ætti
að halda deild eftirlaunaþega
óbreyttri vegna sérstöðu hennar.
Sú deild ætti að skipa mann í samn-
inganefndir hinna deildanna
þriggja. Ég hef áður sett þessa
hugmynd fram bæði í stjórn félags-
ins og eins í grein í Fréttabréfi
St.Rv. en forystan hefur ekki viljað
hlusta á hana eða ekki haft þann
kjark sem þarf til að hrinda þessu
í framkvæmd.
Formannsefni
Vinnustaðurinn Reykjavíkurborg
er að mörgu leyti pólitískari vinnu-
staður en almennt gerist og geng-
ur. Það getur því verið óheppilegt
þegar formaður St.Rv. er virkur
félagi í stjórnmálaflokki og sækist
eftir frama á þeim vettvangi. Hætta
á hagsmunaárekstri milli félagsins
og flokksins er því vel möguleg.
Nú er einstakt tækifæri að kjósa
nýja forystu og vekja aftur nauðsyn-
lega tiltrú á félagið og forystu þess
sem verkfæri í kjarabaráttunni.
Ég þekki lítillega til Grétars Jóns
Magnússonar, en af honum fer gott
orð og hann er þaulvanur félags-
málum. Grétar var með í að stofna
og stjórna stéttarfélagi í Ólafsfirði
og hann hefur um árabil verið virk-
ur félagi í Kiwanishreyfingunni á
Islandi. Þar hefur hann verið kosinn
til æðstu metorða. Hann er fastur
fýrir og á auðvelt með almanna-
tengsl. Ég er sannfærður um að
undir stjórn Grétars munu tengsl
stjórnar og hinna almennu félaga
eflast til muna og árangur mun
ekki láta á sér standa.
Ég hvet ykkur, félagar góðir, til
að kjósa Grétar og lista uppstilling-
arnefndar, það er félaginu fyrir
bestu.
Höfundur er fráfarandi sijórnar-
maður.
Línurit A
St.Rv. og ríkisstarfs-
menn í BSRB
90 þús. kr.-
Meðaldagvinnulaun, kr./mán.
85 -----—---------—
BSRB rikisstarfsmenn^
80.........................V
Línurit B
St.Rv. og félag leik-
skólakennara,
samningur við Reykjavíkurborg
Meðaldagvinnulaun, kr./mán.
Línurit C
St.Rv. og bæjarstarfs-
menn utan Reykjavíkur
Meðaldagvinnulaun, kr./m
65 '
91 1992 1993 1994 ’95 ’91 1992 1993 1994 ’95 JFMAMJJASOND
Pétur Kristjánsson
Formannskjör í Starfsmanna-
félagi Reykjavíkurborgar
UNDANFARIÐ hefur einn mót-
frambjóðandi minn til formanns-
kjörs í -St.Rv., Sjöfn Ingólfsdóttir
núverandi formaður félagsins,
margsinnis látið frá sér rangar full-
yrðingar bæði í útvarpi og í blöðum
varðandi störf uppstillingarnefndar':
Hún hefur sakað fulltrúa deildanna,
sem skipa uppstillingarnefndina,
um ósæmileg vinnubrögð. I viðtali
við Sjöfn sem birtist í Morgunblað-
inu 3. febrúar sl. er haft eftir henni:
„Sjöfn segir að Grétar Jón sé for-
maður uppstillingamefndar og
hann greiði atkvæði með tillögu þar
sem honum er stillt upp sem for-
manni... Þetta gerðist á síðasta
fundi nefndarinnar þegar búið var
að ganga frá öllum öðrum atriðum,
eins og uppstillingu til stjórnar."
Ekki veit ég hvaðan Sjöfn hefur
þetta því hún á ekki sæti í uppstill-
ingarnefnd og kosningarnar voru
leynilegar. Ég hafði ekki ætlað að
svara þessum ásökunum en þar sem
þetta atriði er orðið að þungamiðju
hennar í kosningabaráttunni, trú-
lega til að gera mig tortryggilegan
og reyna að draga athygli félag-
anna frá aðalvandamálum St.Rv.,
er nauðsynlegt að leiðrétta þetta
með því að vitna í !ög félagsins en
þar segir m.a. í 7. gr.:
„í upphafí hvers árs
kýs fuiltrúaráðið upp-
stillingarnefnd, skip-
aða einum manni úr
hverri starfsdeild, (15).
Heimilt er að kjósa
jafnmarga varamenn.
Þá skal kosinn formað-
ur nefndar." Til for-
manns í ár voru ijórir
tilnefndir og fór kosn-
ing á þá Ieið að ég fékk
flest atkvæði. Ekki er
kveðið á um það að
kjósa skuli varaform-
ann uppstillingar-
nefndar.
Það er leitt að þurfa
að vera að tíunda lög félagsins hér
en þar sem núverandi formaður er
annaðhvort ekki með á nótunum
eða er vísvitandi að siá ryki í augu
almennra félaga er það nauðsyn-
legt.
Uppstillingarnefnd hélt 4 fundi.
Verkefni hennar var að stilla upp
formanni og 6 stjórnarmönnum.
Deildir félagsins voru beðnar um
uppástungur um menn i stjórn en
auk þess gaf formaður og tveir
stjórnarmenn, sem áttu að ganga
úr stjórn, kost á sér
áfram. Á 4. og síðasta
fundi nefndarinnar
höfðu nefndinni borist
7 tilnefningar í stjórn
og 2 til formanns, þ.e.
Sjöfn og undirritaður.
Var þá auðséð að koma
þurfti til kosninga.
Eins og áður er getið
er enginn varaformað-
ur í nefndinni og ákvað
ég því að skipa Garðar
Hilmarsson sem til-
sjónarmann nefndar-
innar, á meðan upp-
stilling til formanns
var rædd og til að sjá
um þær kosningar sem
framundan voru. Vék ég síðan af
fundi en kom aftur eftir að umræð-
um var lokið og tók þátt í atkvæða-
greiðslu eins og mér bar skylda til
sem fulltrúi minnar deildar. Allir
nefndarmenn voru sammála þessu
fyrirkomulagi. Þess má geta að
Garðar er náinn samstarfsmaður
Sjafnar.
I fyrrnefndu blaðaviðtali segir
Sjöfn einnig: „Hlutverk uppstilling-
amefndar er fyrst og fremst að
stilla upp mönnum sem fyrir eru
Tillaga var gerð um
mig, segir Grétar Jón
Magnússon, og ég tók
þeirri áskorun.
og hafa gegnt trúnaðarstörfum.
Framboð gegn þeirri uppstillingu
hefur vanalega gerst í framhald-
inu.“
Enn fer Sjöfn með rangar stað-
hæfingar um störf nefndarinnar
eins og fram hefur komið hér áður.
Þá eru hugmyndir hennar um hlut-
verk uppstillingamefndar út í hött
því ef það væri meiningin að stilla
alltaf upp sama fólkinu og verið
hefði í stjórn, hefði nefndin lítinn
tilgang. Hlutverk nefndarinnar er
alveg skýrt en það er að finna besta
fólkið sem í boði er hverju sinni.
Og ef ekki næst samkomulag í
nefndinni á að gera upp á milli
manna með atkvæðagreiðslu. Það
var nákvæmlega þetta sem var
gert.
Ágætu félagar, núverandi for-
maður St.Rv. veit ekki um neinn
ágreining, hvorki málefnalegan né
Grétar Jón
Magnússon
annan, innan félagsins. Þess vegna
hefur hún engar skýringar á því
sem er að gerast hvað þá heldur
nú eftir að enn hefur bæst í hóp
frambjóðenda, framboð Maríusar
Sveinssonar. Getur verið að hún
hafi ekki hlustað á raddir félags-
manna og hafi því einangrast frá
þeim? Getur skýringin falist í því
að ákvörðunarvaldið sé orðið í hönd-
um örfárra félaga?
Ég hef verið í St.Rv. í u.þ.b. 5
ár og þar af hef ég gegnt starfi
trúnaðarmanns fyrir deild 2 í tæp
tvö ár. Á þessum tíma hefur mér
fundist ég afskaplega illa upplýstur
um það hvað er að gerast í félaginu
okkar, ekki síst þann tíma sem ég
var það sem kallað er „venjulegur
félagi”. Þá skynjaði ég þetta félag
mitt sem einhvern forræðisaðila
,sem ákveður hvað mér er fyrir
bestu, að mér forspurðum. Ég veit
að fjölda félaga minna finnst það
sama. Ég hef í mörg ár verið starf-
andi í ýmsum félögum og gegnt þar
trúnaðarstörfum. Smám saman
gerði ég mér grein fyrir að það
væri meira en lítið að varðandi
stjórnun St.Rv.
í vetur þegar við nokkrir félagar
fórum að ræða málefni félagsins
gerðum við okkur fljótlega grein
fyrir því að við vorum sammála um
öll aðalatriði. Fljótlega varð þessi
hópur fjölmennari og loks kom fram
ósk frá félögum allra deilda um að
við tefldum fram félaga okkar í
formannsstöðu í væntanlegum
kosningum. Tillaga var gerð um
mig og tók ég þeirri áskorun.
Sjöfn Ingólfsdóttir, núverandi