Morgunblaðið - 16.02.1996, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1996 37
Einvígið Kasp-
arov-Dimmblá, 2-2
SKAK
Heimsmeistari í erfiðleikum í
keppni við tölvu
GARI Kasparov, heimsmeistari
stórmeistarasambandsins, PCA,
stendur í ströngu þessa dagana í
Fíladelfíu í Bandaríkjunum. Hann
teflir þar einvígi við IBM-ofurtölvu,
sem nefnd hefur verið „Dimmblá“
(Deep Blue). Skákirnar í einvíginu
eru af fullri lengd, sem sé alvöru
kappskákir. Ekki skemmir það
ánægjuna, að 50 ára félagsskapur
tölvusérfræðinga, sem stendur fyr-
ir einvíginu, leggur fram væna fjár-
hæð í verðlaun, eða 33 milljónir á
gengi íslensku krónunnar.
Kasparov sagði í viðtali fyrir
nokkrum árum, að hann hefði
kynnt sér mjög vel taflmennsku
tölvuforrita og hefði öðlast svo
góðan skilning á tölvusálfræði, að
vélar ættu ekki mikla möguleika í
skákum við sig. Nú er öldin önnur
og Kasparov hefur gengið erfiðlega
að standa við sín stóru orð. Snill-
ingur 2 (Genius 2) forritið í Pen-
tium tölvu sló hann út úr keppni
á atskákmóti í London fyrir einu
og hálfu ári, en þá hafði hann
nokkrum mánuðum fyrr tapað fyr-
ir öðru tölvuforriti, Fritz 2, í
Munchen. Um síðustu áramót vann
Kasparov Fritz 4-Pentium í einvígi
í London, \'h - 'h. Kasparov talaði
óvenjuvarlega í upphafi éinvigisins
í Fíladelfíu, og sagði að keppnin
yrði erfíð, því að vélinni yrðu ekki
á nein mistök. Fyrsta skákin var
meistaranum ekki til mikillar gleði,
því að sú dimmbláa vann öruggan
sigur. Karparov jafnaði metin í
annarri skákinni, og lýsti því yfir
á eftir, að hann yrði að taka á öllu
sínu til að sigra þessa vél. Þriðja
skákin varð fremur tíðindalítil og
lauk með skiptum hlut. Kasparov
varð einnig að sætta sig við jafn-
tefli í ijórðu skákinni, eftir miklar
sviptingar.
Hver getur skýringin verið á
þessum góða árangri vélar gegn
heimsmeistaranum, ef til vill
sterkasta skákmanni allra tíma?
Við þessari spurningu eru vafa-
laust mörg svör, en Kasparov
kvartar sjálfur yfir því, að það
sé sama, hve skákmaður setji
mikinn þrýsting á stöðu tölvunn-
ar, hún fari ekki á taugum. Vélin
metur allar hugsanlegar leiðir af
þeirri köldu gervigreind, sem
henni hefur verið gefin. Tölvan
reiknar afbrigði af mikilli ná-
kvæmni, þannig að tvíeggjaðar
fórnir eru ekki líklegar til árang-
urs gegn henni. Eins má ljóst
vera, að maðurinn getur verið illa
upp lagður, en vélin teflir alltaf
af sama styrk.
Það er orðið alveg ljóst, að
styrkleiki tölvunnar við skákborðið
hefur aukist geysilega mikið á síð-
ustu árum, og erfitt að sjá fyrir
endann á þeirri þróun. Mikhail
heitinn Botvinnik, fyrrverandi
heimsmeistari, hefði örugglega
glaðst yfir þessu, því að hann
mátti þola háð og spott margra,
þegar hann hóf gerð skákforrita
í hópi brautryðjenda fyrir nálægt
40 árum.
Gaman verður að fylgjast með
framvindu mála í Fíladelfíu, en
við skulum nú sjá fyrstu einvígis-
skákina.
Hvítt: Vélin „Dimmblá“
Svart: Kasparov
Sikileyjarvörn
1. e4-c5 2. c3 -
Skynsamleg sálfræði hjá vélinni!
Hún hleypir Kasparov ekki í stöð-
ur, sem eru einkennandi fyrir Sik-
ileyjarvörn. Hann þekkir þær öll-
um betur og teflir sérlega vel.
2. - d5 3. exd5 - Dxd5 4. d4 -
Rf6 5. Rf3 - Bg4 6. Be2 - e6
7. h3 -
í þriðju skák einvígisins sleppti
vélin leiknum 7. h3 og lék strax
7. 0-0.
7. - Bh5 8. 0-0 - Rc6 9. Be3 -
cxd4 10. cxd4 - Bb4!?
Venjulega er biskupnum leikið
styttra í stöðunni, 10. - Be7, t.d.
11. Rc3 - Dd6 12. Rb5 - Db8
13. Re5 - Bxe2 14. Dxe2 - 0-0
15. Rxc6 - bxc6 16. Rc3 með
jafntefli í 28 leikjum í skákinni
Ljubojevic-Kasparov, ólympíu-
skákmótinu í Moskvu 1994.
11. a3 - Ba5 12. Rc3 - Dd6 13.
Rb5 -
Þriðja einvígisskákin varð jafntefli
í 39 leikjum, eftir (eini munurinn
á stöðunni er sá, að leikinn 7. h3
- Bh5 vantar) 13. Re5 - Bxe2
14. Dxe2 - Bxc3 15. bxc3 -
Rxe5 16. Bf4 - Rf3+ 17. Dxf3 -
Dd5 18. Dd3 - Hc8 19. Hfcl -
Dc4 20. Dxc4 - Hxc4 o.s.frv.
13. - De7?!
Eðlilegra virðist 13. - Db8, því að
í framhaldinu verður leppun ridd-
arans á f6 erfið viðfangs fyrir
svart. Biskupinn á b4 væri betur
kominn á e7.
14. Re5 - Bxe2 15. Dxe2 - 0-0
Svartur hefði ef til vill átt að fresta
hrókun um einn leik og leika 15.
- h6!? til að koma í veg fyrir lepp-
un riddarans á f6.
16. Hacl - Hac8 17. Bg5 -
Nú hótar hvítur bæði 17. Bxf6 -
Dxf6 18. Rd7 og 17. Rg4 o.s.frv.
17. - Bb6 18. Bxf6 - gxf6 19.
Rc4 - Hfd8
Hvíta peðið á d4 er óbeint valdað:
19. - Rxd4? 20. Rxd4 - Bxd4
21. Dg4+ ásamt 22. Dxd4 o.s.frv.
20. Rxb6 - axb6 21. Hfdl - f5
22. De3 - Df6 23. d5 - Hxd5
24. Hxd5 - exd5 25. b3 - Kh8
Svartur getur ekki bjargað peðinu
á b6 með 25. - d4, því að hvítur
getur leikið 26. Rxd4, vegna þess
að svarti hrókurinn á c8 er óvald-
aður.
26. Dxb6 - Hg8
Svörtu peðin eru svo veik, að eina
vonin um björgun liggur í sókn
að hvíta kónginum.
27. Dc5 - d4 28. Rd6 - f4 29.
Rxb7 -
„Sílkónskrímslið“, eins og sumir
nefna skáktölvur, fer ekki á taug-
um, þótt heimsmeistarinn blási til
sóknar!
29. - Re5
Ekki dugar 29. - f3 30. Dxc6 -
Hxg2+ 31. Khl - Hgl+ (31. -
Dg5 32. Dxf3) 32. Kxgl - Dg5+
33. Kfl - Dg2+ 34. Kel - Dgl+
35. Kd2 - Dxf2+ 36. Kd3 - De3+
37. Df6+ - Kg8 38. Kb2 og svart-
ur getur ekki varist hótunum hvíts
Hc8+ og Rd6 á réttu augnabliki.
30. Dd5 - f3 31. g3 - Rd3 32.
Hc7 - He8
Ekki verður séð, að svartur eigi
betri leik.
33. Rd6 - Hel+ 34. Kh2 - Rxf2
35. Rxf7+ - Kg7
Eða 35. - Dxf7 36. Dd8+ - He8
(36. - De8 37. Df6+; 36. - Kg7
37. Hxf7+ - Kxf7 38. Dd5+ og
39. Dxf3) 37. Dxd4+ - Kg8 38.
Hxf7 og hvítur vinnur.
36. Rg5+ - Kh6 37. Hxh7+
og svartur gafst upp, því að hann
er varnarlaus eftir 37. - Kg6 38.
Dg8-i— Kf5 39. Rxf3 o.s.frv.
Bragi Kristjánsson
Önnur skákin:
Hvítt: Kasparov.
Svart: Dimmblá.
1. Hf3 d5 2. d4 e6 3. g3 c5 4.
Bg2 Hc6 5. 0-0 Hf6 6. c4 dxc4
7. He5 Bd7 8. Ha3 cxd4 9.
Haxc4 Bc5 10. Db3 0-0 11.
Dxb7 Hxe5 12. Hxe5 Hb8 13.
Df3 Bd6 14. Hc6 Bxc6 15. Dxc6
e5 16. Hbl Hb6 17. Da4 Db8
18. Bg5 Be7 19. b4 Bxb4 20.
Bxf6 gxf6 21. Dd7 Dc8 22.
Dxa7 Hb8 23. Da4 Bc3 24.
Hxb8 Dxb8 25. Be4 Dc7 26.
Da6 Kg7 27. Dd3 Hb8 28. Bxh7
Hb2 29. Be4 Hxa2 30. h4 Dc8
31. Df3 Hal 32. Hxal Bxal 33.
Dh5 Dh8 34. Dg4+ Kf8 35.
Dc8+ Kg7 36. Dg4+ Kf8 37.
Bd5 Ke7 38. Bc6 Kf8 39. Bd5
Ke7 40. Df3 Bc3 41. Bc4 Dc8
42. Dd5 De6 43. Db5 Dd7 44.
Dc5+ Dd6 45. Da7+ Dd7 46.
Da8 Dc7 47. Da3+ Dd6 48. Da2
f5 49. Bxf7 e4 50. Bh5 Df6 51.
Da3+ Kd7 52. Da7+ Kd8 53.
Db8+ Kd7 54. Be8+ Ke7 55.
Bb5 Bd2 56. Dc7+ Kf8 57. Bc4
Bc3 58. Kg2 Bel 59. Kfl Bc3
60. f4 exf3 61. exf3 Bd2 62. f4
Ke8 63. Dc8+ Ke7 64. Dc5+
Kd8 65. Bd3 Be3 66. Dxf5 Dc6
67. Df8+ Kc7 68. De7+ Kc8 69.
Bf5+ Kb8 70. Dd8+ Kb7 71.
Dd7+ Dxd7 72. Bxd7 Kc7 73.
Bb5 1-0
Þriðja skákin:
Hvítt: Dimmblá.
Svart: Kasparov.
1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5
4. d4 Hf6 5. Hf3 Bg4 6. Be2 e6
7. 0-0 Hc6 8. Be3 cxd4 9. cxd4
Bb4 10. a3 Ba5 11. Hc3 Dd6
12. He5 Bxe2 13. Dxe2 Bxc3
14. bxc3 Hxe5 15. Bf4 Hf3+ 16.
Dxf3 Dd5 17. Dd3 Hc8 18. Hfcl
Dc4 19. Dxc4 Hxc4 20. Hcbl
b6 21. Bb8 Ha4 22. Hb4 Ha5
23. Hc4 0-0 24. Bd6 Ha8 25.
Hc6 b5 26. Kfl Ha4 27. Hbl
a6 28. Ke2 h5 29. Kd3 Hd8 30.
Be7 Hd7 31. Bxf6 gxf6 32. Hb3
Kg7 33. Ke3 e5 34. g3 exd4+
35. cxd4 He7+ 36. Kf3 Hd7 37.
Hd3 Haxd4 38. Hxd4 Hxd4 39.
Hxa6 b4 1/2-1/2
BRIDS
U m s j ó n
Arnór G. Ragnarsson
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Fimmtudaginn 8. febrúar 1996 spil-
uðu 17 pör í tveim riðlum:
A-riðill: 9 pör yfirseta.
Þorleifur Þórarinsson - Oliver Kristófersson 126
Guðlaugur Nielsen - Tryggvi Gíslason 121
Ingibjörg Stefánsdóttir - Þorsteinn Davíðsson 118
B-riðill. 8 pör:
Björn Kristjánsson - Hjörtur Elíasson 102
Halla Ólafsdóttir - Þórhildur Magnúsdóttir 97
Ragnar Halldórsson - Hjálmar Gíslason 94
Sunnudag 11. febrúar hélt sveita-
keppnin áfram og er staðan þá þessi:
Sv. Höllu Ólafsdóttur 131
Sv. Bernharðs Guðmundssonar 108
Sv. Elínar Jónsdóttur 103
Sv. Þórarins Arnasonar 101
Bridsdeild félags eldri
borgara í Kópavogi
Spilaður var Mitcheli-tvímenningur
föstudaginn 9. febrúar sl. 18 pör
mættu, úrslit urðu:
NS
Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Amórsson 245
Júlíus Ingibergsson - Jósef Sigurðsson 244
Fróði Pálsson - Haukur Guðmundsson 228
KarlAdolfsson-EggertEinarsson 226
AV
Ingibjörg Stefánsdóttir - Þorsteinn Davíðsson 272
Eysteinn Einarsson - Sigurleifur Guðjónsson 251
Baldur Ásgeirsson - Magnús Hatldórsson 222
Jón Andrésson - Stígur Herlufsen 219
Meðalskor 216
Spilaður var Mitchell-tvímeningur
þriðjudaginn 13. febrúar. 30 pör
mættu. Úrslit í NS:
SæmundurJörnsson - Böðvar Guðmundsson 507
JónStefánsson-ÞorsteinnLaufdal 489
Helga Ámundadóttir - Hermann Finnbogason 451
Jóhanna Gunnlaugsd. - Gunnar Pálsson 449
AV
Cyrus Hjartarson - Hreinn Hjartarson 518
Eysteinn Einarsson - Stígur Herlufsen 503
Þórarinn Árnason - Þorleifur Þórarinsson 489
Sigriður Pálsd. - Eyvindur Valdimarsson 487
Bridsdeild Rangæinga
og Breiðholts
Þegar einni umferð er ólokið í
sveitakeppninni er staða efstu sveita
þessi: Alfreð Þ. Alfreðsson 196
SteindórGuðmundsson 183
KGB 178
GENUS 177
Sérsveitin 169
Bridsfélag Suðurnesja
Sveit Jóhannesar Sigurðssonar
hefir nú tekið forystuna í aðal-
sveitakeppninni. Lokið er fjórum
umferðum og hefir sveit Jóhannesar
90 stig.
Sveit Guðfinns KE er einnig taplaus
í 2.-3. sæti með 82 stig en sveit
Svölu K. Pálsdóttur tapaði fyrir
Guðfínni KE síðasta spilakvöld og
er einnig með 82 stig.
Slökkvistöðin á Keflavíkurflug-
velli er í 4. sæti með 75 stig og
sveit Gunnars Guðbjörnssonar er i
5. sæti með 72 stig.
Ekki verður spilað nk. mánu-
dagskvöld vegna þátttöku í Brids-
hátíð.
Bridsfélagið Muninn
Gunnar Guðbjörnsson og Bjarni
Kristjánsson eru í forystu í aðaltví-
menningi félagsins en lokið er 11
umferðum af 17.
Staðan er þessi:
Gunnar Guðbjömss. - Bjami Kristjánss. 83
Halldór Aspar - V íðir Jónsson 75
Guðjón Jensen - Randver Ragnarsson 52
Garðar Garðarsson - Eyþór Jónsson 30
Kjartan ólason - Óli Þór Kjartansson 24
Mótinu lýkur nk. miðvikudags-
kvöld í félagsheimilinu. Spila-
mennskan hefst stundvíslega kl. 20.
Keppnisstjóri er Isleifur Gíslason.
Bridsfélag byrjenda
Sl. mánudag var spilaður tvímenn-
ingur hjá félaginu, 8 pör mættu og
urðu úrslit þannig:
AmarEyþórsson-BjörkLind 72
Ásdís Matthíasdóttir - Vilhjálmur Sigurðs. 71
NíelsHafsteinsson-ÓlafurHand 70
Eggert Kristinsson - Kristjana Halldórsd. 69
Mánudaginn 19. feb. verður ekki
spilað vegna bridshátíðar á Loftleiða-
hótelinu, en þann 26. feb. eru byijend-
ur og aðrir sem eitthvað kunna fyrir
sér í brids hvattir til að mæta.
Bridsfélag Akureyrar
Sveit Antons Haraldssonar varð
Akureyrarmeistari í Sveitakeppni fé-
lagsins árið 1996. Sigur Antons og
félaga var mjög glæsilegur en þeir
fengu 305 stig af 350 mögulegum,
eða 87% viningshlutfall og 81 stigi
meira en sveitin sem varð í öðru sæti.
Úrslit urðu þessi:
1. Sveit Antons Haraldssonar 305
stig. Spilarar auk Antons, Pétur Guð-
jónsson, Sigurbjörn Haraldsson; Stef-
án Ragnarsson og Ólafur Ágústsson.
2. Sveit Ormars Snæbjörnssonar
224 stig, spilarar Stefán G. Stefáns-
son, Hróðmar Sigurbjörnsson, Skúli
Skúlason, Jónas Róbertsson, Svein-
björn Jónsson og Sveinn Torfi Pálsson.
3. Sveit Ævars Ármannssonar 222
stig.
4. Sveit Páis Pálssonar 214 stig.
Næsta keppni verður tveggja kvölda
Barómeter-tvímenningur og er skrán-
ing þegar hafin hjá Páli Jónssyni, sími
462-1695, og eru menn beðnir að skrá
sig sem fyrst þótt skráningu ljúki
ekki fyrr en kl. 19.15 þriðjudaginn
20. febrúar.
Úrslit í Sunnudagsbrids 11. febrúar
1. Kristján Guðjónsson
- Una Sveinsdóttir 157
2. -3. Kolbrún Guðveigsdóttir
- Ragnheiður Haraldsdóttir 151
2.-3. Sigurbjörn Haraldsson
- Skúli Skúlason 151
Málþing um
>
Háskóla Islands
ORATOR, Félag laganema, heldur
málþing á Hótel Loftleiðum í dag,
föstudaginn 16. febrúar, kl. 10 und-
ir yfirskriftinni: Háskóli íslands:
Staða hans í dag og í framtíðinni.
Framsögumenn eru: Gunnar S.
Schram, sem fjalla mun um hug-
myndir um breytingu Háskóla Is-
lands úr ríkisstofnun í sjálfseignar-
stofnun, Þorgeir Örlygsson, sem
ræðir um hugmyndir sínar um fram-
tíðarskipan iaganáms við Háskóla
íslands m.a. í ljósi hugmynda um
háskólann sem sjálfseignarstofnun,
þar með talið fjöldatakamarkanir,
og Hannes S. Gissurarson, sem fjall-
ar um starfsmannahald og starfs-
reglur Háskóla íslands.
Fyrirlestur um
Heimsmynd
sljarnvísinda
EINAR H. Guðmundsson, dósent í
stjameðlisfræði, flytur fyrirlesturinn
Heimsmynd stjarnvísinda: Sannleik-
ur eða skáldskapur? í Háskólabíói,
sal 3, laugardaginn 17. febrúar kl.
14. Fyrirlesturinn er iiður í fyrir-
lestraröðinni Er vit í vísindum?
Einar ræðir í fyrirlestri sínuin um
kenninguna um Miklahvell og verður
drepið á ýmsum þáttum heimsmynd-
arinnar. Rætt verður um gerð heims-
líkana í heimsfræði og þær einfald-
anir sem oft er nauðsynlegt að gera
til þess að líkönin komi að tilætluð-
um notum. Einnig verður fjallað um
náttúrulögmáiin og hlutverk þeirra
í heimsfræði, sjóndeildina og þau
takmörk sem hún setur kenninga-
smiðum og þær vísbendingar sem
fundist hafa um þróun veraldarinnar
í heild sinni. Að lokum verður rætt
um þau áhrif sem kenningin um
Miklahvell hefur haft á hugsunar-
hátt eðlisfræðinga og stjamvísinda-
manna samtímans.
Þróun stjórn-
mála í Bretlandi
STJÓRNMÁL á laugardegi halda
síðdegisfund um stjómmál í Bret-
landi laugardaginn 17. febrúar kl.
15 í setustofu veitingahússins Skóla-
brúar. Ólafur Þ. Harðarson, dósent,
mun ræða um þróun stjómmála í
Bretlandi og m.a. fjalia um tillögur
Verkamannaflokksins að breyttri
stjómarskipan. Miklar umræður
eiga sér nú stað í Bretlandi um rót-
tækar hugmyndir Tony Blair sem
m.a. hefur lagt til að lávarðadeildin
verði lögð niður.
Opið hús hjá
Hjálparsveitinni
í Hafnarfirði
í TILEFNI af 45 ára afmæli Hjálp-
arsveita skáta í Hafnarfírði verður
opið hús á morgun, laugardag, í
húsnæði sveitarinnar við Hraunbrún
frá kl. 13-17. Sýndur verður marg-
víslegur búnaður sveitarinnar t.d.
klifurbúnaður, snjósleðar, einn full-
komnasti snjóbíll á landinu o.fl.
Kl. 14 og 16 verður skyndihjálp-
arflokkur með sýningu á björgun
úr bílslysi. Einnig mun skyndihjálp-
arflokkur hafa sýnikennsiu í blást-
ursaðferð og hjartahnoði. Fjalla-
flokkur vérður með heimatilbúið
bjarg þar sem börn og unglingar
geta spreytt sig í bjargsigi.