Morgunblaðið - 16.02.1996, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Léttmeti
á þorra
Þorramaturinn er þungur í maga enda
segist Kristín Gestsdóttir í mesta lagi
borða hann einu sinni á þorranum en borða
því meiri fisk og grænmeti.
Eg hitti
mann um
daginn sem
sagði: „Ég ætla
aldrei aftur á þorra-
blót.“ Hann hafði verið á
þorrablóti þrisvar þá vikuna
sem flestum þykir líklega nóg
en er kannski ekki mjög óal-
gengt. Maginn þolir þetta hrein-
lega ekki. Við skulum því borða
mun meira af léttmeti milli þess
sem við sækjum þorrablótin.
Núna er ýsan upp á sitt besta
fyrir og um hrygningartímann,
en eftir það fer hún að verða
horuð. Þótt við borðum ýsu allt
árið er hún samt misjöfn eftir
árstíma. Margt ungt fólk í dag
borðar aldrei fisk og telur hann
vondan. Illa matreiddur fiskur
er vondur, en ef við gætum þess
að ofsjóða hann ekki og salta
nóg er hann alltaf góður svo
framarlega sem hann sé ferskur.
Grænmeti og ávextir henta mjög
vel með flski. Þetta er fljótmat-
reitt og má setja allt á eina pönnu
eða í eitt eldfast ílát, þá er eng-
inn leiðinlegur fiskpottur. Ávext-
ir og grænmeti gerir fiskinn lyst-
ugri, fallegri og það sem mestu
skiptir - hollari.
Ýsuflak í örbylgjuofni
1 ýsuflak um 400-500 g
_________1 ’A tsk. salt_____
safi úr ’/a lítilli sítrónu
nýmalaður pipar
1. Roðdragið flakið, skerið úr
því bein. Setjið á fat. Kreistið
sítrónusafa yfir flakið og stráið
á það salti og pipar.
2. Setjið í örbylgjuofninn og
látið soðna í gegn. Fylgist vel
með, örbylgjuofnar eru missterk-
ir. í 600 W ofni þarf þetta um 5
mínútur, en í 800 W um 3‘/2.
Gætið þess að hafa fiskinn ekki
of lengi í ofninum.
Ýsuflak með mango
1 ýsuflak, 500-600 g
1 msk. Dijonsinnep
1 'A tsk. salt
nýmalaður pipar
2 dl hveiti
2 msk. matarolía
2 + 1 msk. smjör
__________1 mango__________
1 bikarsýrðurrjómi
1 msk, mangosulta (chutney)
2 msk. appelsínusafi
2 appelsínur í sneiðum
salatblöð
1. Roðdragið flakið, skerið úr
því bein. Skerið í stykki.
2. Stráið salti og pipar yfir.
Látið bíða í 10 mínútur.
3. Hitið stóra pönnu, setjið
matarolíu og 2 msk. af smjöri á
hana, veltið fiskinum upp úr
hveitinu og brúnið örlítið á báðum
hliðum í feitinni. Setjið síðan í
rönd á aflangt fat og haldið heitu.
4. Afhýðið mangóið, skerið í
rif frá hinum flata steini.
5. Bætið 1 msk. af smjöri a
pönnuna og brúnið mangórifin
örlítið. Setjið síðan með fiskinum
á fatið.
6. Skerið endana þykkt af
appelsinunum, kreistið endana
út í sýrða ijómann og setjið
mangósultu út i. Setjið rönd af
sósunni yfir fiskinn á fatinu.
Skerið það sem eftir er af appels-
ínunum í sneiðar og raðið með á
fatið.
Meðlæti: Soðnar kartöflur.
Næsta uppskrift er úr bók
minni „220 gómsætir sjávarrétt-
ir.“
Ysa með gulrótum
og lauk
1 ýsuflak, 400-500 g
safi úr /2 sítrónu
1 '/2 tsk. salt
nýmalaður pipar
3 meðalstórargulrætur
2 meðalstórirlaukar
2 msk. matarolía
2 msk. smjör
1. Roðdragið flakið, skerið
bita. Hellið sítrónusafa yfir og
látið bíða í 10-15 mínútur.
2. Saxið laukinn, rífið gulræt-
urnar gróft. Hitið smjör og olíu
á pönnu, hafið meðalhita og sjóð-
ið lauk og gulrætur í 10 mínút-
ur. Veltið við svo að allt sjóði
jafnt.
3. Leggið síðan fiskinn yfir
grænmetið setjið lokið á og látið
sjóða við hægan hita í um 10
mínútur.
4. Berið fram á pönnunni.
I DAG
SKAK
HVÍTUR leikur og vinnur
Staðan kom upp á stóra
opna mótinu í Linares í janú-
ar. Stigahái rússneski stór-
meistarinn Igor Glek (2.635)
hafði hvítt og átti leik gegn
landa sínum A. Volsjín
(2.460), sem er alþjóðlegur
meistari.
34. Bc7! - Hxc7 35.
Dxd6 (Með tvöfaldri
hótun á c7 og g6)
35. - Bd8 36.
Dxg6+ — Kf8 og
svartur gafst upp án
þess að bíða eftir 37.
Hf4+! - exf4 38.
Hxe8 mát.
Helgarskákmót
Taflfélags Reykja-
víkur hefst í kvöld
kl. 19.30 og stendur
fram á sunnudags-
kvöld. Helgarskák-
mót TR hafa verið
1 " bæði öflug og vinsæl
undanfarin ár. Verð-
laun eru 20 þúsund, 12 þús.
og 8 þús. og hækka ef þátt-
taka er góð.
HÖGNIHREKKVÍSI
COSPER
EF þú einbeitir þér geturðu skrifað undir
ávísunina.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Kattholt
FRÚ SIGRÍÐUR í Katt-
holti hringdi og bað Vel-
vakanda að minna á
Kattholt, en þar er nú
töluverður fjöldi katta í
geymslu. Meindýraeyðir
á vegum borgarinnar
hefur komið með ketti
þangað, svo og fólk sem
fínnur ketti á flækingi.
Fólk sem hefur tapað
ketti er beðið að gera svo
vel að hafa samband við
Kattholt, einnig þeir sem
finna ketti og vita ekki
hvað þeir eiga að gera
við þá.
Gullúr tapaðist
KVENGULLÚR tapað-
ist í miðbæ Reykjavíkur
föstudaginn 2. febrúar
sl. Finnandi er vinsam-
lega beðinn að hringja í
síma 562-2662.
Úr fannst
KVENÚR fannst á
Hverfisgötu í Hafnar-
firði sl. þriðjudag. Upp-
lýsingar í síma 568-8500
á daginn eða í síma
555-2350 á kvöldi. Árni.
Stelpuhúfa
tapaðist
BLEIK útsaumuð flau-
elshúfa tapaðist nálægt
Tjarnarbóli um jólaleyt-
ið. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 551-5333.
Skóíadót
tapaðist
TVÖ pennaveski og
snyrtidót í hvítum plast-
poka tapaðist fyrir utan
HM sl. mánudag. Hafi
einhver fundið dótið er
hann beðinn að hringja
í síma 581-1289.
Með morgunkaffinu
NÚ verður pabbi reiður.
Hann var búinn að segja mér
að koma heim fyrir hádegi
ÞETTA er mín skoðun,
en fyrst þú ert kominn
hingað geturðu svo
sem spurt lækninn.
ER þetta allt sem þú
hefur að segja?
VATNSGLAS? Það er hægt
að þvo það hvenær sem er,
ég spurði hvað þú vildir
drekka.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA finnst fáránlegt að
menn skuli láta sér detta í
hug að rukka STEF-gjöld, eftir því
hvar hlustað er á útvarp. Afnota-
gjald ríkisútvarpsins er nánast nef-
skattur, þ.e.a.s. öll heimiti í landinu,
sem eiga útvarp eða sjónvarp greiða
fyrir að fá að hlusta á þessa fjöl-
miðla og fjölmiðlarnir greiða síðan
STEF-gjöldin til handhafa einka-
réttar. í raun eru stöðvarnar að
greiða fyrir réttinn til þess að út-
varpa tónlist og öðru efni, sem háð
er þessu einkaleyfi.
Það er því gjörsamlega út úr
kortinu, þegar menn fara að láta
kaupmenn greiða þessi gjöld, af því
að útvarp er opið í verzlun. I raun
hafa allir viðskiptavinirnir, sem í
verzlunina koma, greitt fyrir flutn-
ing útvarspefnis með afnotagjöld-
unum, flutningur útvarpsefnis er
þar með orðinn eins konar þjóðar-
eign og það á ekki að skipta máli,
hvar hlustað er.
Öðru máli gegnir, ef verzlunar-
eigandi leikur tónlist af geislaplöt-
um eða eitthvert annað útgefið efni,
sem aðeins er til einkanota, eins
og tilgreint er á umbúðum geisla-
platna. Tónlist í útvarpinu er hins
vegar þegar greidd af útsendingar-
aðila. Ef þessi regla gilti, væri eins
unnt að kreljast þess af áskrifend-
um blaða, að lesi þeir blöð utan
heimilis síns, greiði þeir sérstaklega
fyrir lesturinn. Þegar slík samlíking
er tekin, sjá allir hversu fáránlegt
er að halda slíkri innheimtu til
streitu.
XXX
ARANGUR handknattleiks-
manna úr KA hefur vakið
athygli og eru KA-menn alls góðs
maklegir. En Víkveiji verður þess
var hjá fólki að auglýsingamennsk-
an í kringum liðið sé að verða helzt
til mikil 0g sumir hafa nefnt hið
landsfræga mont Akureyringa í
þessu sambandi.
Líklega má rekja þetta að ein-
hveiju leyti til þess, að flestallir fjöl-
miðlar eru með fréttamenn á Akur-
eyri, þar á meðal báðar sjónvarps-
stöðvarnar. Enda gerðu þær því góð
skil þegar liðið kom með bikarinn
til Akureyrar á laugardagskvöldið.
Og Stöð 2 bætti um betur eftir
helgina þegar löng frétt um árang-
ur KA-liðsins kom frá fréttamann-
inum knáa norðan heiða með við-
tölum við fjölda bæjarbúa.
Nú vill svo til að kvennalið
Stjörnunnar í Garðabæ er í sömu
stöðu og piltarnir í KA. Þær eru
'efstar í 1. deild og þær urðu einnig
bikarmeistarar á laugardaginn. En
þar sem sjónvarpsstöðvarnar eru
ekki með sérstakan fréttamann í
Garðabæ tók enginn mynd af því
þegar þær komu þangað með bikar-
inn né voru Garðbæingar spurðir
álits á frammistöðu stúlknanna á
Stöð 2.
xxx
AMIÐVIKUDAGINN var Val-
entínusardagurinn, sem í en-
skumælandi löndum er kallaður
dagur elskendanna. Þennan dag er
fólk sérlega elskulegt við þá sem
því þykir vænt um. Víkveiji gerir
það að tillögu sinni að íslendingar
geri vægi þessa dags meira en það
er í dag. Ekki veitir af að sýna
örlítið meiri kærleika.