Morgunblaðið - 29.02.1996, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1996 15
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sig.Jóns.
BJÖRN Bjarnason opnar hið nýja bókasafn Fjölbrautaskóla
Suðurlands. Með honum á myndinni er Sigurður Sigursveinsson
skólameistari.
Nýtt bókasafn
Fjölbrautaskóla Suðurlands
Selfossi - Nýtt bókasafn var form-
lega tekið í notkun við Fjölbrauta-
skóla Suðurlands laugardaginn
24. febrúar, á degi símenntunar,
en skólinn var þann dag með opið
hús eins og aðrir framhaldsskólar
landsins.
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra opnaði bókasafnið með
því að klippa á borða fyrir dyrum
þess. í ræðu á hátíðarfundi í til-
efni opnunarinnar lýsti hann
ánægju sinni með þróunina í mál-
efnum skólans og þá möguleika
sem safnið opnaði í vinnu nem-
enda og kennara. Á þessum fundi
var Birni afhent fyrsta eintak af
sögu Fjölbrautaskólans fyrstu tíu
árin sem tveir kennarar skólans,
Ásmundur Sverrir Pálsson og
Gísli Skúlason, tóku saman.
Safnið er í öðrum enda miðrým-
is skólans, með um átta þúsund
titla. Þar eru tölvur sem nemend-
ur geta notað við að afla sér upp-
lýsinga, af geisladiskum og síðan
af internetinu. Hin nýja aðstaða
er umbylting frá því sem var, en
nemendur skólans hafa nýtt vel
þá aðstöðu sem bókasafnið hefur
boðið upp á. Þess er því vænst að
safnið nýtist vel í allri vinnu innan
skólans.
Með opnun bókasafnsins er
byggingu skólans nánast lokið.
Enn er eftir að ganga frá nokkr-
um þáttum utan dyra, sem lokið
verður við næsta sumar.
Utför Jóns Kristjánssonar
Fjárhagsáætlun samþykkt í Borgarbyggð
86 milljónir lagðar í
íþróttavöll og sundlaug
Borgarnes - Fjárhagsáætlun
Borgarbyggðar fyrir árið 1996 var
samþykkt á bæjarstjórnarfundi sl.
mánudag með öllum greiddum at-
kvæðum (8), einn fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, sem er í minni-
hluta, sat hjá. Fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins, Jenni R. Ólason, sem
er í meirihlutasamstarfi með Fram-
sókn, greiddi atkvæði sitt með sam-
þykkt fjárhagsáætlunarinnar en
lagði síðan fram bókun.
Tekjur Borgarbyggðar eru áætl-
aðar 216 milljónir króna nettó.
Gert er ráð fyrir verulegum fram-
kvæmdum á árinu eða fyrir um 105
milljónir, ’þar af eru 86 milljónir
m.a. vegna framkvæmda við
íþróttavöll og útisundlaug. Af öðr-
um málaflokkum má nefna 50
milljónir til fræðslumála, 33 millj-
ónir til félagsþjónustu, 27 milljónir
til yfirstjórnar sveitarfélagsins og
13 milljónir til hreinlætismála. Eig-
ið fé er um 75 milljónir að mestu
tilkomið vegna sölu á Rafveitu
Borgarness á síðasta ári.
Borgarnesbær gerði samning við
Ungmennasambánd Borgarfjarðar
í maí 1994 um að 22. landsmót
UMFÍ yrði haldið í Borgarnesi í
júlí 1997. Þar kemur meðal annars
fram að bærinn skuldbindur sig til
að ganga frá Skallagrímsvelli full-
Mývatnssveit - Útför Jóns Krist-
jánssonar frá Arnarvatni var gerð
frá Skútustaðakirkju 25. febrúar síð-
astliðinn að viðstöddu fjölmenni.
Sóknarpresturinn séra Örn Frið-
riksson flutti minningarræðu og jarð-
söng. Kirkjukórinn söng, organisti
var Jón Árni Sigfússon.
Jón Kristjánsson stundaði á yngri
árum ýmsar íþróttir, m.a. skíða-
göngu og komst í fremstu röð afreks-
manna í þeirri grein. Hann starfaði
í ungmennafélaginu og Kiwanis-
klúbbnum Herðubreið um langan
tíma, enn fremur var hann starfs-
maður hjá Kísiliðjunni um árabil. Jón
söng í mörgum kórum og var þar
ætíð virkur og góður félagi, síðast
með Karlakórnum Hreimi. Kórinn
heiðraði minningu hans með því að
mæta við útför hans og syngja nokk-
ur lög að lokinni erfidrykkju í Skjól-
brekku.
Eftirlifandi eiginkona hans er Þóra
Sigurðardóttir, Arnarvatni. Þau
eignuðust 6 börn sem öll eru á lífí.
PCI lím og fúguefni
■ Jl ««t
Stórhöfða 17, við Guilinbrú,
sími 567 4844
Leið b e i n a n d i :
Glódíb Gunnarsdóttir ACE
M IÐVIKU DAGINN
• MARS
Einkaþjálfari og
Þolfimileiðbeinand
HEFBT NYTT ATAKSNAMSKEIÐ
í FITUBRENNSLU
Það verður stíf keyrsla
í heilarRvikur.
Fylgst verður vel
EINKAÞ JÁLFARI □□
Þdlfimileiðbeinandi )}
LIKAMSRÆKT
N U M EG A K I L □ I N
FARA AÐ VARA SIG
MEÐ GLLUM OG MIKIÐ AÐHALD
SVD ARANGURINN VERÐI
SEM BESTUR,
M.A. VIGTUN, MÆLINGAR,
MAPPA FULL AF FRDÐLEIK
□ G GDÐUM HITAEININGA-
SNAUÐUM UPPSKRIFTUM.
Mgrgun gg Kvöldnámskeið
Barnapössun á mdrganana
Frjáls mæting í aðra tíma
Skráning í síma:
5889400
búnum til keppni í frjálsum íþrótt-
um og knattspyrnu auk þess að
koma upp nauðsynlegri hreinlætis-
aðstöðu, byggja 25 metra sundlaug
og koma upp tjaldstæðum fyrir allt
að 20 þúsund manns.
Kostnaður við Landsmót
Aðspurður um beinan kostnað
Borgarbyggðar vegna Landsmóts-
ins 1997, sagði Óli Jón Gunnarsson
bæjarstjóri að hann teldi kostnað-
inn vera um 20 til 30 milljónir
króna, eða sem næmi kostnaði við
yfírborðsefni á hlaupabrautir og
fijálsíþróttasvæðið sem annars
hefði líklega ekki verið ráðist í að
svo stöddu.
í bókun Jenna R. Ólasonar, full-
trúa Alþýðubandalagsins, sem fyrr
er getið, segir m.a. „Afkoma sveit-
arfélagsins okkar hefur farið jafnt
og þétt versnandi undanfarin ár
og er nú svo komið að skatttekjur
hrökkva aðeins liðlega fyrir rekstr-
arkostnaði, fjármagnskostnaði og
afborgunum langtímalána. I ljósi
atvinnuástands og fjárhagsstöðu
sveitarfélagsins tel ég óvarlegt að
ráðstafa svo miklu fé til eins mála-
flokks. Eins veldur það mér áhyggj-
um að þessu fé skuli öllu vera ráð-
stafað í Borgarnes. Ég óttast að
það muni ekki styrkja eininguna í
sameinuðu sveitarfélagi né auð-
velda frekari semeiningu, sem okk-
ur er þó öllum mikið hagsmuna-
mál.“ Átelur Jenni síðan vinnu-
brögð meirihlutans í meðferð þessa
máls og óskar eftir því að löggiltir
endurekoðendur verði látnir gera
úttekt á því.
Lokadagar stórútsölunnar,
í dag, föstudag og laugardag
Hjálpið okkur að tæma búðina.
Við gefum aukaafslátt á sumar
útsöluvörur allt að 30%.
Djúpsteikingarpottur 2,1 lítri.
Áður 6.038
nú 4.998
6 stk.
vatnsglös. Áður
298 nú 198
Aður 3.695 nú 2.998
Ide line mixer.
Þrír hraðastillar
8 bolia kaffivél
Aður 2.200 nú 1.398
Morg onnur frabær tilboð!
Kjarakaupí
Lógmúia 4, sími 568-4910
Oseyri 4, Akureyri, sími 462-4964.