Morgunblaðið - 09.05.1996, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sjávarútvegs-
ráðherra hlynntur
hvalveiðum
Spurningin
hvenær en
ekki hvort
við hefjum
veiðar
ÞORSTEINN Pálsson, sjávar-
útvegsráðherra, segist vera
hiynntur hvalveiðum. Spurn-
ingin snúist um hvenær en
ekki hvort við hefjum hvalveið-
ar á ný. í framhaldi af þessu
bæri að huga að því hvemig
veiðunum yrði best háttað.
Hann vildi hinsvegar ekki spá
um hvenær af hvalveiðum Is-
lendinga gæti orðið.
Leysa sem flestar aðrar
deilur fyrst
„Við þurfum að veija réttan
tíma. Við höfum átt í miklum
deilum við aðrar þjóðir vegna
fiskveiðimála og hef ég talið
að áður en við færum af stað
í hvalveiðamar, þá yrðum við
að vera a.m.k. búin að leysa
eitthvað af þeim deilum. Það
em takmörk fyrir því hvað við
getum slegist á mörgum víg-
stöðvum í einu auk þess sem
þetta er mjög vandmeðfarið
mál. Nú höfum við verið að
koma frá tveimur mjög mikil-
vægum málum og það flýtir
auðvitað fyrir því að við getum
tekið þetta hvalamál upp aftur.
Það er aftur á móti ljóst,
eins og sakir standa, að við
getum hvergi selt hvalafurðir.
Veiðarnar yrðu að takmarkast
við heimamarkað því engin þjóð
myndi kaupa af okkur hvalaf-
urðir, eins og staðan er í dag.
Við þurfum m.a. að knýja fram
breytingar á þessu á alþjóða-
vettvangi."
Þrátt fyrir að ráðherra áliti
að hugarfarsbreytingar væri
farið að gæta í heiminum í
þessu efní, blasti ennþá sú stað-
reynd við að við gætum ekki
einu sinni selt hvalafurðir til
Japans. Norðmenn væru aifarið
bundnir sínum heimamarkaði,
sem væri miklu stærri en okkar
markaður og gerði þeim þar
með heldur auðveldara fyrir en
okkur.
Útflutningsverðmæti/20
2 mán. fangelsi
fyrir símagabb
TVEIR menn voru í gær dæmdir
í 2 mánaða fangelsi fyrir að
hringja í Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar og tilkynna að sprengja væri
um borð i flugvél.
Annar mannanna, 33 ára gam-
all, átti bókað far með Flugleiðum
til Amsterdam að morgni 2. mars
1995 en svaf yfir sig. Skömmu
fyrir áætlaðan brottfarartíma
hringdi maðurinn úr bílasíma í
afgreiðslu Flugleiða pg bað um
að vélin yrði látin bíða eftir sér
pg stúlku sem með honum var.
ítrekaðri beiðni hans um þetta var
neitað.
Hann hringdi þá í félaga sinn,
37 ára, sem játaði að hafa skömmu
seinna hringt í Flugstöðina og til-
kynnt um sprengju í vélinni, sem
þá var í flugtaksstöðu á brautar-
enda. Vegna leitar í vélinni tafðist
brottför hennar um 3 klst.
Skömmu seinna kom sá sem
átti farið í Flugstöðina og var þá
handtekinn. í fórum hans var m.a.
lagt hald á hundruð þúsunda króna
og var um tíma talið að maðurinn
tengdist ráni sem framið hafði
verið skömmu áður þegar um 5
milljónum króna var rænt af
starfsmönnum Skeljungs við ís-
landsbanka í Lækjargötu.
Síðar beindist grunur lögregl-
unnar að því að maðurinn hefði
verið á leið utan til að kaupa fíkni-
efni.
Hann neitaði að hafa beðið fé-
laga sinn að tilkynna um sprengju
í vélinni en stúlka sem með honum
var sagði hann hafa hringt í vin
sinn og beðið hann að segja að
sprengja væri í vélinni.
Félaginn játaði að hafa staðið
fyrir gabbinu en sagðist fyrir dómi
hafa ótilkvaddur tilkynnt um
sprengju eftir að hafa upphafiega
ætlað að biðja um að vélinni yrði
seinkað.
Dómarinn taldi sekt beggja
sannaða og að sá sem var að missa
af vélinni hefði, eins og stúlkan
sem var með honum á ferð sagði,
hringt í félaga sinn, borið upp
vandræði sín, beðið hann að leysa
þau og í því sambandi nefnt
sprengjuhótun.
Báðir mennirnir voru taldir hafa
gerst sekir um brot á almannafriði
og allsherjarreglu með því að gefa
rangar upplýsingar um yfirvofandi
hættu fyrir loftferðaöryggi og ör-
yggi í flughöfninni.
Báðir hafa hlotið fjölda refsi-
dóma, og sá sem hringdi inn
hótunina var í apríl sl. dæmdur
til 8 mánaða fangelsisvistar fyrir
fíkniefnamisferli.
Viðskiptaráðherra
Bankar
fylgja ekki
vaxtalækkun
VIÐSKIPTARÁÐHERRA seg-
ir að bankar og sparisjóðir verði
að skýra hvers vegna þeir hafi
ekki lækkað vexti í takt við
lækkandi vexti á verðbréfa-
markaði.
Finnur Ingólfsson viðskipta-
ráðherra sagði á Alþingi í gær,
að innlánsvextir banka væru
hærri en vextir ríkisskulda-
bréfa, vegna lækkunar vaxta á
verðbréfamarkaði undanfarið,
sem bankarnir hefðu ekki fylgt
eftir. Kjörvextir almennra
skuldabréfalána banka væru
0,3% hærri nú en í desember.
Finnur var að svara fyrir-
spurnum frá Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, Þjóðvaka, sem spurði
hvort til stæði að breyta reglum
um dráttarvexti. Finnur sagði
að nefnd, sem skilaði áliti í
haust, hefði lagt til að gefa
dráttarvexti fijálsa, en þeir eru
nú ákveðnir af Seðlabanka. Á
næsta þingi yrðu væntanlega
lagðar fram tillögur um breyt-
ingar á vaxtalögunum.
„ Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRA athöfninni, er úthlutað var úr Minningarsjóði Sveins Björnssonar. Frá vinstri: Hjörtur Bragi Sverrisson, Maia Sigurðardóttir,
Ágústa Gunnarsdóttir, Guðrún Pétursdóttir og Pétur Már Ólafsson, sem tók við verðlaunum fyrir Ragnheiði Elfu Þorsteinsdóttur.
Beitir NK veiðir kol
munna við Færeyjar
BEITIR NK frá Neskaupstað fer
væntanlega á kolmunnaveiðar
vestan við Færeyjar í kvöld, en að
sögn Freysteins Bjarnasonar, út-
gerðarstjóra Síldarvinnslunnar hf.
sem gerir Beiti út, var í gær beðið
eftir leyfi sjávarútvegsráðuneytis-
ins til veiðanna. Samningur er
milli íslendinga og Færeyinga um
gagnkvæmar veiðiheimildir á kol-
munna í lögsögum landanna
beggja. Freysteinn sagði að góð
kolmunnaveiði hefði verið við Fær-
eyjar undanfarna daga og vikur
og Beitir yrði væntanlega við veið-
arnar fram að sjómannadegi.
Kolmunni fannst óvænt í miklu
magni við suðurströnd Islands um
miðjan október í fyrra, allt frá
Reykjanesgrunni austur í Horna-
fjarðardjúp. Beitir NK, sem er sér-
staklega búinn til kolmunnaveiða
með sérhannaða flotvörpu, var eina
skipið sem þá reyndi fyrir sér við
Skipið er sérútbúið
til kolmunnaveiða
veiðarnar og landaði 400 tonnum
sem fóru til bræðslu. Veiðitilraunin
gekk vel og búa menn nú að þeirri
veiðireynslu sem fékkst í fyrra, að
sögn Freysteins, og sagði hann að
ætlunin væri að fá enn stærri flot-
vörpu en notuð var í fyrra.
Hagstætt verð á
lýsi og mjöli
„Ef þetta gengur eitthvað þá
ætlum við að sjá til svona framund-
ir sjómannadag og fara ekki á síld-
ina fyrr en þá, en það fer auðvitað
bara eftir því hvernig hún hagar
sér,“ sagði Freysteinn.
Kolmunninn hrygnir út af Ir-
landi og vesturströnd Skotlands
en gengur svo norður eftir vestan
við Færeyjar og jafnvel norður með
austurströnd Islands. Kolmunna-
veiðar hafa verið stundaðar hér á
landi af og til á undanfömum
árum, en mest veiddist árið 1979
þegar heildaraflinn var á bilinu
20.000 til 30.000 tonn. Kolmunn-
inn fer að mestu leyti í bræðslu
og þar sem Beitir er með sjókæl-
ingarkerfi um borð ætti að vera
hægt að koma hráefninu fersku
og góðu að landi, að sögn Frey-
steins. Verð á lýsi og mjöli ræður
því mestu um hvort veiðarnar
borga sig, en að sögn Freysteins
er verðið tiltölulega hagstætt núna
þótt það sé ekki eins hátt og það
var á toppnum um síðustu áramót.
„Þá fór mjölverðið alveg upp í
450-460 pund tonnið og lýsið í 550
dollara, en núna er mjölverðið um
400 pund og lýsið um 400 dollar-
ar. Það er ekkert svo slæmt,“ sagði
Freysteinn.
Fyrstu styrkþegar Minning-
arsjóðs Sveins Björnssonar
ÚTHLUTAÐ var í fyrsta skipti
úr Minningarsjóði Sveins Björns-
sonar, fyrsta forseta lýðveldisins,
í gær en þá hlutu styrki þau Hjört-
ur Bragi Sverrisson, Ragnheiður
Elfa Þorsteinsdóttir, Ágústa
Gunnarsdóttir, Maia Sigurð-
ardóttir og Guðrún Pétursdóttir.
Minningarsjóðurinn var stofnað-
ur á 70 ára afmæli Rauða kross
íslands 1994 til minningar um
Svein, sem var fyrsti formaður
Rauða kross íslands, og er til-
gangur sjóðsins að styrkja rann-
sóknir á mannréttinda- og mann-
úðarsamningum og verkefni sem
stuðla að þekkingu og þróun á
því sviði.
í gær var alþjóðadagur Rauða
kross Islands, en 8. maí var fæð-
ingardagur helsta hvatamannsins
að stofnun Rauða krossins fyrir
133 árum, Svissiendingsins Henri
Dunant. Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands var viðstödd af-
hendingu styrlganna í gær.
Slapp vel frá veltu
LITLU munaði að illa færi þegar bíll
valt á Fagradal, skammt fyrir ofan
Egilsstaði, í gær. Ungur ökumaður
kastaðist út um framglugga bílsins
og lenti undir honum niðri í lækjarfar-
vegi. Hann fékk að fara heim eftir
að gert hafði verið að sárum hans á
heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum.
Að sögn lögreglu á Egilsstöðum
var maðurinn á leið til Reyðarfjarðar
þegar slysið varð. Hann leit um öxl
eftir að hafa farið fram úr bifreið og
áður en varði 'var bifreið hans komin
út á hægri vegarkant í vinstri beygju.
I
:
I
I
»
»
i
t
;
Bifreiðin fór heila veltu og kastaðist
maðurinn út um framgluggann og
lenti ofan í þurrum lækjarfarvegi
undir bílnum. Miðstöðvarslanga í
bílnum fór í sundur við veltuna með
þeim afleiðingum að heitt vatn
sprautaðist yfir andlit og bijóstkassa
mannsins. Hann var kominn undan
bílnum og upp á veg þegar að var
komið. Eftir að gert hafði verið að
sárum hans, brunanum og mari á
baki, fékk ungi maðurinn að fara
heim til sín.
Bíllinn er talinn gjörónýtur.
I.
s
I