Morgunblaðið - 09.05.1996, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
w
FRÉTTIR
Ríkið viðurkennir ekki
bótaskyldu veg’na arna
RÍKISVALDIÐ hefur aldrei viðurkennt bótaskyldu ríkisins vegna frið-
aðra dýra, þar á meðal arna, en æðarbændur við Breiðafjörð telja sig
hafa orðið fyrir búsifjum af þeirra völdum.
Þetta kom fram í fyrirspumar-
tima á Alþingi í gær en Gísli S.
Einarsson Alþýðuflokki spurði
Guðmund Bjamason umhverfis-
ráðherra um bótaskyldu ríkisins
vegna tjóns af völdum ama og
vitnaði þar til æðabændanna.
Guðmundur sagði að tjón af
völdum arna í æðarvörpum virtist
vera séríslenskt fyrirbrigði. Fyrst
hafi verið kvartað til yfirvalda
1930, en slíkum kvörtunum hefur
fjölgað talsvert síðari ár. Hins
vegar væri mjög erfitt að færa
sönnur á slíkt tjón og samkvæmt
nýlegum athugunum væri mjög
hæpið að emir væru valdir að öllu
því tjóni sem þeim væri eignað.
Þó væri fyrirliggjandi dómur frá
1957 þar sem ríkið var dæmt til
að bæta tjón sem talið var að em-
ir hefðu valdið í æðarvarpi, og
menn gætu auðvitað leitað réttar
síns fyrir dómstólum teldu þeir sig
hafa orðið fyrir sannanlegu tjóni.
Gísli S. Einarsson sagði þennan
dóm næga forsendu fyrir því að
ríkissjóður væri bótaskyldur þar
sem sannanlega væri hægt að
sýna fram á tjón af völdum arna.
Svavar Gestsson Alþýðubanda-
lagi gat þess að Steinar Lárusson,
bóndi á Fagradal á Skarðsströnd,
hefði lengi kvartað við stjómvöld
vegna amar sem valdi miklu tjóni
á æðarvarpi, lömbum og laxi. Hins
vegar væri spuming hvar það
tæki enda ef ríkið færi að bæta
tjón vegna friðunarráðstafana yf-
irleitt.
Nýmæli að miðað er
við rúmtölu skipa
I REGLUGERÐ sjávarútvegsráðu-
neytisins um stjórn veiða úr norsk-
íslenska síldarstofninun er það ný-
mæli að miðað er við rúmtölu skips
við úthlutun veiðileyfa. Að sögn
Björns Jónssonar hjá Landssam-
bandi íslenskra útvegsmanna þýðir
þetta að dæmi eru um það í bráða-
birgðaúthlutun Fiskistofu á veiði-
heimildum að bátar sem taka 750
tonn fá úthlutað sama aflahámarki
og bátar sem taka 450 tonn. „Þeir
sem eru með mikla rúmtölu fá
kannski meira en skip sem bera tölu-
vert meira og það eru nokkur dæmi
um þetta sem manni finnst stinga í
stúf,“ sagði hann.
Almennt er búist við að meirihluti
afla íslendinga úr norsk-íslenska
síldarstofninum fari í bræðslu, en
vonast er til að einhver hluti aflans
fari til manneldis. Þau 174 þúsund
tonn sem íslendingar veiddu úr
stofninum í Síldarsmugunni á síð-
asta ári fóru nánast öll í bræðslu
og var heildarverðmæti aflans um
950 milljónir króna. Að sögn Péturs
Amar Sverrissonar hjá LIÚ er alls
óvíst hvert aflaverðmætið verður í
ár fyrir þau 190 þúsund tonn sem
nú koma í hlut íslendinga, en það
ræðst m.a. af því hve mikili hluti
aflans fer til manneldis. Þó þykir
ljóst að verðið fyrir hvert kíló verði
nokkru hærra en fékkst í fyrra og
gæti aflaverðmætið í heild hugsan-
lega orðið á bilinu 1,2-1,3 milljarðar
króna.
Hagstætt verð á lýsi og ny'öli
Jón Reynir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri SR-mjöls, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að verð á
mörkuðum fyrir Iýsi og mjöl væri
hagstætt um þessar mundir, eða um
420 pund fyrir mjöltonnið og
400-440 dollarar fyrir lýsistonnið.
Sagði hann að verðið gæti jafnvel
farið hækkandi á næstunni, en nokk-
ur óvissa væri þó varðandi lýsið
vegna yfírlýsinga stórfyrirtækisins
Unilever um að það hyggist hætta
notkun lýsis úr bræðslufiski, en fyr-
irtækið hefur árlega keypt um 100
þúsund tonn af lýsi.
„Ég held að það sé mjög gott mál
að þessir samningar skuli hafa náðst
um síldveiðarnar og mikið atriði ein-
mitt núna að þeir skuli hafa tekist
svo hægt sé að stjórna þessu eitt-
hvað, en menn sjá þá fram á að gera
þetta að einhveijum arðbærum stofni
eins og þetta var,“ sagði Jón Reynir.
Veiðiheimildir úr norsk-íslenska síldarstofninum
FlosiíS15—
AuðunníS 110-2.227-
Tonn
2-325 eolunðarvfl,-
"^teaflöfður
Sigla Sl 50 -
Tonn
-2.483
Arnarnúpur ÞH 272
« Raufartiöfn
Tonn
1
Guðmundur Ólafur ÓF 91
Sigluf|ðröur r 2.642 tonn
^ÓIafsfjörður
Dalvík áo> \
AmþórEA 16-2.642%
* Húsavík
-..pórafiðfn \: i
•JúpfterÞH 61-4.313
Tonn
Björg Jónsdóttir ÞH 321- 3.271
Akureyri •
Þorsteinn EA810-
Súlan EA 300--------
Tonn
— 4.510
— 3.002
Þórður Jónasson EA 350 2.785
Arnþór EA16-------------2.642
\ Tonn
Beitir NK123— 4.458
BörkurNK 122 - 4.361
Eskifjörður _
Jón Kjartanss,
Tonn
-4.875
VíkíngurAKIOO-
Tonn
-5.047
Hólmaborg SU 11 • .4.854
Guðrún Þörkelsd. SU 211 2.825
Sæljón su 104——2.452
■: cf '
Bjarni Ólafsson AK 70- 3.656
HöfrungurAK 91——3.033 Akrane**-.^" Tonn
Tonn reykjavIk Faxi FIE 241-----2.734
OmKE 13-2.816-j V Svanur RE 45-2.729
Sandgerði^i j,
AmeyKE 50 - 2.793 Kefíavik
Tonn ,,
Hákon ÞH 250 -----------4.649 Grindavík
JónSigurðssonGK162 4.044
Grindvíkingur GK 606 —3.656 Dagfari GK 70—
Elliöi GK 445 ----------3.303 Jón Dan GK197-
Sunnuberg GK199---------2.912 Hrungnir GK 50-
Aibert GK 31 —-------—2.802 Sighvatur GK 57-
Háberg GK 299-----------2.753 Freyr GK157-
Hðfn
Húnaröst SF550-
Tonn
-2.793
-2.781
■ Selfoss Tonn
Páll ÁR 104 - 2.406
Þórshamar GK 75 —
Víkurberg GK1-----
BergurVigfúsGK53-
Tonn
-2.473
-2.431
-2.379
-2.325
-2.282
-2.702 Hringur GK18--------2.191
-2.617
-2.483
“ Vestmannaeyjar
SigurðurVE 15-
Tonri
-5,047
Sighvatur Bjamas. VE 81 4.515
Andrés VE18-------—3.515
Guðmundur VE 29 ------- 3.309
ísleifur VE 63----------3.294
Tonn
Gullberg VE 292 --------- 3.068
Huginn VE 55 ------------ 3.068
« Káp VE 4------------------2.909
Gígja VE 340--------------2.853
Sighvatur Bjamas. VE181 2.773
Bergur VE 44--------------2.492
Heimaey VE1---------------2.461
Glófaxi VE 300 ---------- 2.452
Glófaxi IIVE 301--------- 2.102
Jóna Eðvalds SF 20-
Sigurður Lárusson SF110 2.157
Sigurður Ólafsson SF 44 — 2.096
Forsætisráðuneytið vísar til sýslumarka í auglýsingu en sýslur „eru ekki til lengur“
Leita svara um
stjórnsýslulegt
gildi sýslna
Nýr sveit-
arstjóri í
Kjalarnes-
hreppi
VERIÐ er að ganga frá samningi
við Jónas Vigfússon sveitarstjóra
í Hrísey um að hann taki að sér
sama embætti í Kjalarneshreppi,
að sögn Péturs Friðrikssonar, nýs
oddvita í hreppnum.
Oddviti og sveitarstjóri
ákváðu að hætta
á miðju kjörtímabili
Greint var frá þvl í Morgunblað-
inu hinn 30. mars síðastliðinn að
sveitarstjóri og oddviti væru að
hætta og segir Pétur það hafa
verið ákveðið við síðustu kosningar
að skipta um forystu á miðju kjör-
tímabili þegar nýr sveitarstjóri
tæki við. Pétur er tekinn við emb-
ætti sínu og segir að Jónas taki
væntanlega til starfa í næstu viku.
Mun Pétur víkja sem formaður
skólanefndar að eigin sögn og tek-
ur Jón Pétur Líndal, fráfarandi
sveitarstjóri, við sæti hans. Jón
Ólafsson, oddviti Kjalameshrepps
til 14 ára, verður varaoddviti.
Skuldir sveitarsjóðs eru nú tæp-
ar 280 milljónir króna og segir
Pétur að sveitarstjórn sé búin að
samþykkja að selja samning við
Reykjavíkurborg um urðun á sorpi
í Alfsnesi sem 19 ár eru eftir af.
„Síðan eigum við talsvert útistand-
andi, bæði hjá Jöfnunarsjóði, og
félagslegar íbúðir sem ekki er frá-
gengin sala á. Þetta samanlagt
gefur okkur um helming skuldar-
innar," segir Pétur. Þýðir það að
500 íbúar hreppsins skulda um
280.000 krónur hver, takist að
greiða skuldimar niður um helm-
ing.
ÓLAFUR K. Ólafsson, sýslumaður
í Stykkishólmi og varaformaður
Sýslumannafélagsins, hefur sent
dómsmálaráðuneytinu fyrirspum
fyrir hönd félagsins um hvort sýsl-
ur, heiti þeirra og mörk, hafi stjórn-
sýslulegt gildi. Sigurður Tómas
Magnússon, skrifstofustjóri í dóms-
málaráðuneytinu, segir að sýslurnar
séu í raun ekki til nema sem land-
fræðileg heiti.
ólafur segir að eftir réttarfars-
breytinguna 1992 virtist vera vafi á
því í huga sumra hvort heiti sýslna
væru enn til. „í lögum um aðskilnað
dóms- og umboðsvalds í héraði eru
sýslumenn kenndir við aðsetursstað.
Þannig varð sýslumaðurinn I Mýra-
og Borgarfjarðarsýslu til dæmis að
sýslumanninum I Borgarnesi. Því
hafa menn velt fyrir sér hvort hin
fornu heiti sýslnanna séu ekki til
lengur. Vegna þessa ritaði Sýslu-
mannafélagið dómsmálaráðuneytinu
bréf I ársbyijun 1994 og spurði hvort
heiti og mörk sýslna væru enn við
lýði. Ráðuneytið sagði að þessi heiti
og mörk hefðu ekki lengur neitt
stjórnskipulegt gildi, en kynnu að
hafa einhverja merkingu I hugum
fólks.“
Fyrir nokkru birti forsætisráðu-
neytið lögum samkvæmt auglýsingu
um framboð og kjör forseta íslands.
„í auglýsingunni er tiltekinn fjöldi
meðmælenda forsetaframbjóðenda
úr hverjum fjórðungi. Fjórðungarnir
eru markaðir með heitum og mörk-
um sýslna. Þetta vakti upp þá spurn-
ingu hjá sýslumönnum hvort heiti
og mörk sýslna hafi einhveija merk-
ingu umfram það sem dómsmála-
ráðuneytið hafði svarað okkur, þ.e.
umfram huglæga afstöðu fólks.“
Sýsla er heiti á landsvæði
Ólafur sagði að sýslumönnum
væri annt um heiti sýslnanna og
almenningi væri mjög tamt að nota
þau. „Við erum ekkí sáttir við að
sýslurnar hafi ekkert stjórnsýslulegt
gildi, en við munum að sjálfsögðu
hlíta niðurstöðu ráðuneytisins."
Sigurður Tómas Magnússon,
skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneyt-
inu, segir að fyrirspurn sýslumann-
anna verði svarað á næstunni. „Eft-
ir gildistöku aðskilnaðarlaganna
1992 er í rauninni ekkert til lengur
sem heitir sýsla, þrátt fyrir að á
nokkrum stöðum í iögum sé enn vís-
að til þess heitis. Ég hef skilið mál-
ið þannig, að sýsla væri nú aðeins
heiti á landsvæði, en ekki stjórn-
sýslulegt hugtak.“
Sigurður Tómas sagði umdæma-
mörk sýslumanna nokkuð skýr, en
sú regla gilti að vísu enn á hálend-
inu að miðað væri við gömlu sýslu-
mörkin. Hann sagði að fyrirspurnir
hefðu borist frá útlöndum, þar sem
óskað væri upplýsinga vegna landa-
korta. Þar vildu menn gjarnan halda
í sýsluheitin, því „Umdæmi sýslu-
mannsins á Selfossi“ væri til dæmis
ekki mjög þjált, þrátt fyrir að það
væri stjórnsýslulega rétt. Þá eru
dæmi um að sett hafi verið inn á
kort „Selfossi", „Borgarnesi",
„Stykkishólmi" o.s.frv. og hafa er-
lendir kortagerðarmenn þá tekið
aðsetur sýslumanna í stað hins forna
sýsluheitis.
Viðkvæmt mál
Sigurður Tómas sagði það ekki
valda vanda að sýsluheitin hefðu
verið felld niður, nema þá vegna
landfræðiheita. „Það þyrfti sjálfsagt
að taka þessi mál I gegn og láta
gömlu sýsluheitin ná til umdæma
sýslumannanna. Þegar umdæmi
sýslumanna voru mörkuð, þá skör-
uðust þau stundum við sýsluheitin.
Þannig voru íbúar ákveðins hrepps
til dæmis tilbúnir til að vera innan
umdæmis sýslumannsins á Akur-
eyri, en þeir voru ekki tilbúnir til
að vera Eyfirðingar, heldur vildu
vera Þingeyingar áfram. Þetta er
því viðkvæmt mál og samræming
gerist ekki á einum degi.“
\
I
I
i
»
»
í
«
«
«
1
s
*