Morgunblaðið - 09.05.1996, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 09.05.1996, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Menntamálaráðherra um dreifikerfi RÚV Alþjóðleg símafyrirtæki gætu verið valkostur Morgunblaðið/Ásdís HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra og Liu Jiaxiang, stjórn- arformaður China International Travel Service Group. Aukið samstarf í ferðamálum BJÖRN Bjarnason menntamálaráð- herra sagði á fundi sem Samband ungra sjálfstæðismanna og menn- ingamefnd Sjálfstæðisflokksins stóðu fyrir á þriðjudaginn um nýút- komna skýrslu starfshóps um end- urskoðun útvarpslaga að Ríkisút- varpið ætti ekki að reka eigið dreifi- kerfi heldur semja um þá hluti við Póst og síma og taka upp afnot af ljósleiðarakerfmu. Hann sagði að næðist ekki samningar við Póst og síma kynnu alþjóðleg símafyrirtæki að vera vænlegur kostur fýrir Ríkis- útvarpið. Heimir Steinsson útvarpsstjóri upplýsti á fundinum að reynt hefði verið í langan tíma að ná samning- um við Póst og síma um dreifingu á útvarps- og sjónvarpsefni um ljós1 leiðara en samningar hefðu strand- að á því að stofnunin hefði krafist of hárra greiðslna fyrir þjónustuna. Bjöm benti á að Póstur og sími væri þegar farinn að miðla efni frá erlendum aðilum í gegnum alnetið. „Því ætti ekki að vera hægt að eiga viðskipti við erlendan aðila í sam- MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Auði Eydal, forstöðumanni Kvikmynda- skoðunar: „Vegna ummæla í kvikmynda- rýni Sæbjörns Valdimarssonar í gær skal það tekið fram að „yfir- völd“ hér á landi (væntanlega Kvikmyndaskoðun) klippa aldrei kvikmyndir, þó að slíkt tíðkist víða erlendis. Mér vitanlega hefur enginn áhugi verið á því að taka upp slík- ar reglur. Hins vegar eru í lögum ákvæði sem banna svæsnustu ofbeldis- keppni við Póst og síma til þess að dreifa íslensku efni innanlands? Það er ekkert trúaratriði í þessum fræð- um að dreifingaraðilinn sé íslensk- ur. Aðalatriðið er að það sé íslenskt efni sem er verið að dreifa,“ sagði Björn. Nefskattur ekki hærri en afnotagjöld Björn kvaðst undrast hve starfs- menn Ríkisútvarpsins hefðu lítið sótt á um róttækar breytingar á stofnuninni og sér fyndist þeir fljót- ir að fara í varnarstöðu þegar tillög- ur til breytinga væru kynntar. Björn vísaði því á bug sem haldið hefði verið fram að til þess að útvarpið héldi sínum tekjum vegna afnáms auglýsinga þyrfti nefskatturinn að vera hærri en afnotagjöldin eru nú. Bjöm sagði að það bryti gegn réttlætiskennd sífellt fleiri að þeir gætu ekki horft á sjónvarpsstöðvar einkaaðila án þess að greiða afnota- gjald til ríkismiðjls sem þeir notuðu ef til vill aldrei. Ákvörðun um brott- fall auglýsingatekna Ríkisútvarps- myndimar og samkvæmt þeim ber skoðunarmönnum að meta hvort einstök ofbeldisatriði eða kvik- mynd í heild bijóti í bága við fyrr- greind lög. Á undanförnum árum hefur sárasjaldan þurft að beita þessum ákvæðum. Fari hins vegar svo að kvikmynd sé bönnuð alfarið til sýninga hér á landi getur dreifingaraðili hugsanlega fengið aðra og mildari gerð hennar frá framleiðanda. Hann getur líka valið þá leið að klippa sjálfur og fara síðan fram á nýtt mat á kvikmyndinni, eins og gerðist með Dead Presidents." ins hlyti að taka mið af því hvort um raunverulega samkeppni milli einkaaðila væri að ræða. Bjöm sagði að tryggja þyrfti í senn framtíð Ríkisútvarpsins og þeirra sem við það keppa. „Sumir telja að besta lausnin felist í því að ríkið bjóði upp rásir. Er þá væntanlega átt við aðrar rásir en ríkið notar sjálft. Hvað þætti mönnum um það, ef hér væri stunduð ríkisútgerð, sem bæri vegna stærðar höfuð og herðar yfir keppinauta sína, og hún fengi alltaf að halda sínum kvóta en afgangur- inn væri boðinn upp á fimm ára festi eða svo? Ekkert myndi rétt- læta slíkt fyrirkomulag nema ann- ars konar skerðing á starfsemi rík- isútgerðarinnar. Mundu menn sætta sig betur við að Ríkisútvarpið hyrfi af auglýsingamarkaði, ef það héldi alltaf sínum rásarhlut, en hinn hlutinn yrði reglulega á uppboði? Spurningum sem þessum þarf að svara. Eg er þeirrar skoðunar, að uppboð á rásum eigi einnig að skoða í ljósi tækniþróunar," sagði Björn. Heimili og skóli Skóla- nefndar- menn fái fræðslu STJÓRN Landssamtakanna Heimili og skóli hefur sent frá sér ályktanir stjórnarfundar 5. maí sl. Annars vegar skora samtökin á menntamálaráðu- neyti og Samband íslenskra sveitarfélaga að tryggja að allir skólanefndarmenn eigi kost á fræðslu um verksvið og ábyrgð skólanefnda. Hins vegar er gagnrýndur misbrestur varðandi fram- kvæmd samræmdra prófa í dönsku og íslensku nú í vor. „í ljós hefur komið að nemend- ur sátu ekki allir við sama borð við hlustunarþátt próf- anna. Samtökin krefjast þess að við mat á þessum prófþátt- um verði tekið fullt tillit til þessa og að framkvæmdaaðil- ar prófsins geri grein fyrir hvernig verði við þessu brugð- ist,“ segir í ályktuninni. Nýr ritstjóri Dagsljóss SVANHILDUR Konráðsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri Dagsljóss hjá Sjónvarpinu. Svanhildur tekur við starf- inu af Sigurði Valgeirssyni, dagskrárstjóra innlendrar dagskrárdeildar. Að sögn Sig- urðar er ekki um fasta stöðu við Sjónvarpið að ræða heldur ákveðið verkefni. Nýr ritstjóri mun taka til starfa með vetrar- dagskrá í byrjun október. Logi hættur LOGI Guðbrandsson, aðstoð- arforstjóri Sjúkarhúss Reykja- víkur, lét af störfum 1. apríl siðastliðinn. Logi var framkvæmdastjóri Landakots fyrir sameiningu Landakots og Borgarspítala og var ráðinn aðstoðarforstjóri Sjúkrahúss Reykjavíkur eftir sameiningu. KÍNVERSKIR ferðaþjónustuaðilar eru staddir hér á landi til viðræðna við ferðamálayfirvöld um aukið sam- starf í ferðamálum. Liu Jiaxiang, stjórnarformaður China Intemational Travel Service Group, sagði í samtali við Morgun- blaðið að tilgangur heimsóknarinnar væri fyrst og fremst að skoða land- ið, sjá upp á hvað það hefur að bjóða á sviði ferðamála og að kanna mögu- leika á aukinni samvinnu milli land- anna í ferðaþjónustu. „Islendingar eru vinsamlegir í garð Kínveija og margir Islendingar hafa ferðast til Kína og vilja kynn- ast landinu enn betur. Ég vona að fleiri íslendingar muni ferðast til BORGARRÁÐ hefur samþykkt jafn- réttisáætlun Reykjavíkurborgar 1996-2000. Markmið áætlunarinnar er að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla í Reykjavík og jöfnum möguleikum kynjanna til að nýta sér lagalegt jafnrétti sem er til staðar. Áætlunin tekur til þátta eins og starfsmannamála, almennrar fræðslu, skólamála, atvinnumála og fjölskyidumála en er þó ekki tæm- andi. Hvetur jafnréttisnefnd borg- arbúa til að nýta sér áætlunina til að vinna að þróun heilbrigðs samfé- lags, þar sem jafnrétti og sjálfsvirð- ing eru höfð til grundvallar. Kynjahlutföll sem jöfnust Markmið áætlunarinnar er að flétta jafnréttismálin þannig inn í starfsemi borgarkerfisins og líf borg- arbúa að þau verði eðlilegur þáttur þess. Áætlunin nær til stjórnkerfis borgarinnar og til starfsemi og þjón- ustu sem borgarstofnanir veita en auk þess eru tilmæli til yfirvalda, stofnana og fyrirtækja sem eru óháð borgarkerfinu. Jafnréttisráðgjafi borgarinnar vinnur að stefnumótun í jafnréttis- málum innan borgarkerfisins og í Reykjavík og sér um framkvæmd áætlunarinnar. Við skipan í nefndir, ráð og stjórnir á vegum borgarinnar skal leitast við að hlutföll kynjanna séu sem jöfnust. Borgarstjóm beinir því til stjórnmálaflokka að hafa ákvæðið að leiðarljósi þegar settar eru fram tillögur um fulltrúa í nefnd- ir, ráð og stjómir og að flokkamir hafi með sér samráð áður en gengið er frá endanlegum tillögum. Hvatning í auglýsingum í auglýsingum um stöður skal koma fram hvatning til þess kyns sem er í minnihluta í viðkomandi Kína. Æ fleiri Kínveijar koma einnig til íslands og kynnast landinu. Hafin er samvinna á sviði menningar, ferðaþjónustu og viðskipta milli land- anna og ég vona að slík samvinna geti aukist,“ sagði Liu Jiaxiang. Hann segir að miklar breytingar hafi orðið í Kína. Landið hafi opnast fyrir og miklar umbætur orðið. China International Travel Service Group er nú að kynna Kínveijum ísland. Einkum er bent á þann mögu- leika að Kínveijar á leið til Bandaríkj- anna eða Kanada geta átt viðdvöl á íslandi og ferðast um landið. Einnig er Kínveijum sem ætla í viðskiptaer- indum til Svíþjóðar eða Danmerkur bent á þennan möguleika. starfsgrein eða hvatning þess efnis að konur jafnt sem karlar sæki um starfíð. Jafnréttissjónarmið skulu metin til jafns við önnur sjónarmið þegar ráðið er í stöður hjá Reykjavík- urborg. Við úthlutun verkefna, til- færslu í störfum og uppsagnir skal þess gætt að kynjum sé ekki mismun- að. Gæta skal þess að konur og karl- ar njóti að öllu leyti sambærilegra kjara og starfsaðstæðna. Ekki telst til mismunar að taka sérstakt tillit til kvenna vegna þungunar, barns- burðar og umönnunar ungbarna. Við ákvörðun launa og fríðinda skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. Starfsfólk Reykjavíkur- borgar skal eiga kost á sveigjanleg- um vinnutíma, hlutastörfum eða ann- arri hagræðingu vinnutíma, þar sem því verður við komið til að auðvelda að samræma fjölskylduábyrgð og starf. í áætluninni er gert ráð fyrir að unnið verði kynhlutlaust starfs- mat á vegum borgarinnar til að kanna hvort kynhlutlaust starfsmat dragi fram þætti í hefðbundnum kvennastörfum sem hingað til hafa verið vanmetnir. Einstaklingum, starfsmönnum og stjórnendum borgarinnar skal standa til boða aðstoð jafnréttisráðgjafa sem einnig veiti borgarbúum liðveislu. Stuðningur og ráðgjöf Jafnréttisnefnd beinir því og til skólayfirvalda og forstöðumanna annarra uppeldisstofnana að veita börnum og unglingum hvatningu til að rækta sérkenni sín og jákvæð samskipti kynjanna. Nefndin beinir þeim tilmælum til alls starfsfólks þar sem uppeldisstarf fer fram að hafa jafnréttissjónarmið að leiðarljósi. Jafnréttisnefnd styður sérstök þró- unarverkefni í því skyni að jafna stöðu kynjanna og veitir fjárhagsleg- an stuðning og ráðgjöf. Kvikmyndaskoðun klippir ekki myndir Jafnréttisáætlun Reykjavíkurborgar Stuðlað að jafnri stöðu kynjanna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.