Morgunblaðið - 09.05.1996, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 23
Segir Verkamanna-
flokkinn hafa unnið
með leyniþjónustunni
NORSKA þingið ákvað í gær að
gera opinbera skýrslu Lund-nefnd-
arinnar svokölluðu, sem valdið
hefur miklum úlfaþyt í Noregi
undanfarna daga. I skýrslunni
kemst nefndin
að þeirri niður-
stöðu að Verka-
mannaflokkur-
inn hafi átt
samstarf við
norsku leyni-
þjónustuna frá
stríðslokum og
fram á miðjan
sjötta áratug-
inn, í því skyni
að njósna um
kommúnista.
Telur nefndin
ljóst að Haakon
Lie, sem var rit-
ari og einn helsti áhrifamaður
Verkamannaflokksins á þessum
tíma, hafi unnið með leyniþjón-
ustunni. Lie, sem er 91 árs, vísar
fullyrðingum hennar á bug.
Norska stórþingið skipaði
Lund-nefndina í febrúar 1994 til
að rannsaka meint tengsl leyni-
þjónustunnar og norska Verka-
mannaflokksins. Svo hart hefur
verið deilt um skýrsluna sem var
leynileg, að ákveðið var í gær að
gera efni hennar opinbert. Hún
er rúmar 1.100 blaðsíður að
lengd.
Hleruðu fundi
kommúnista
Að því er segir í Aftenposten
kemur fram í skýrslunni að Leyni-
þjónusta lögreglunnar (POT) hafi
haft félaga í Verkamannaflokkn-
um á launaskrá en þeir gerðu skrár
yfir norska kommúnista. Nokkrir
starfsmenn innan leyniþjón-
ustunnar hafi ennfremur haft
tengsl við Verkamannaflokkinn og
Viðamikil skýrsla
þingskipaðrar
rannsóknarnefnd-
ar hefur vakið
harðar deilur í
Noregi en þar er
fullyrt að Verka-
mannaflokkurinn
hafi unnið fyrir
leyniþjónustuna
um tveggja ára-
tuga skeið
við verkalýðshreyfinguna fram á
miðjan sjötta áratuginn.
Þá segir í skýrslu nefndarinnar
að fram til 1955-1957 hafi leyni-
þjónustan hlerað fundarstaði
kommúnista, þrátt fyrir að hleran-
ir í tengslum við pólitíska starf-
semi séu og hafi verið algerlega
ólöglegar. Einnig hafí verið fylgst
grannt með mönnum á heimilum
þeirra og eftirlitið náð til kommún-
ista og annarra vinstri manna. Þá
hafi POT notfært sér upplýsingar
sem fengust úr hlerununum gegn
löglegum stjórnmálaflokki og
verkalýðssamtökum.
Flokksmenn á launaskrá
leyniþjónustunnar
Sex manns, sem störfuðu hjá
skrifstofu Verkamannaflokksins í
Ósló og á héraðsskrifstofum
flokksins, gerðu skrá yfir komm-
únistana fyrir leyniþjónustuna.
Fimm þeirra þáðu laun fyrir frá
POT, óvíst er um þann sjötta.
Árið 1951 voru um 10.000 nöfn
á skránni, sem sexmenningarnir
höfðu unnið. Þegar mest var voru
50.000 manns á listanum frá 12
ára aldri til sjötugs. Telur Lund-
nefndin Ijóst að upplýsingarnar
hafi verið notaðar til að losna við
eða hafa yfirsýn yfir þá kommún-
ista sem sóttu um að komast í
herinn eða voru þegar í honum.
Nefndin segist í skýrslunni telja
fullvíst að öryggismálanefnd ríkis-
stjórnarinnar hafi vitað af sam-
vinnu Verkamannaflokksins og
leyniþjónustunnar. í þeim tilfellum
sem nefndin leggur ekki dóm á
tengslin er ástæðan sú að viðkom-
andi kommúnistar hafi verið álitn-
ir hættulegir öryggi landsins.
Lie sagður hafa
hvatt til tengsla
Lund-nefndin ræddi við fjölda
fólks sem segja Haakon Lie hafa
hvatt til samvinnu leyniþjón-
ustunnar, verkalýðshreyfingarinn-
ar og Verkamannaflokksins til að
skrá og beijast gegn kommúnist-
um og að hann hafi stutt POT
með ráðum og dáð.
Fullyrt hefur verið í norskum
fjölmiðlum síðustu daga að upp
úr hafi soðið á milli Lie og Lund-
nefndarinnar eftir að Lie krafðist
þess að nefndin breytti útskrift
sinni á samtölum við hann.
Lie hefur einungis viðurkennt
að hafa hitt yfirmann leyniþjón-
ustunnar og undirmann hans í
tvígang hvorn. Hann vísar því
hins vegar á bug að hafa unnið
með POT og að flokkurinn hafi
skráð kommúnista. Hins vegar
neitar Lie því ekki að hann hafi
barist gegn kommúnisma og seg-
ist stoltur yfir því að vera álitinn
sá sem verið hafi í fararbroddi í
baráttunni gegn „rauð-brúnu
pestinni“.
HAAKON Lie,
fyrrverandi rit-
ari Verkaraanna-
flokksins, þver-
tekur fyrir það
að hafa unnið
með leyniþjón-
ustunni.
Njósnadeila hafin
milli Rússa og Eista
Moskvu. Reuter.
RÚSSAR vísuðu í gær eistnesk-
um stjórnarerindreka úr landi og
skömmu síðar lýstu stjórnvöld í
Eistlandi yfir því að rússneskum
sendiráðsstarfsmanni yrði vísað
af landi brott.
Rússar sögðu að Eistinn hefði
orðið uppvís að atferli, sem sam-
ræmdist ekki erindrekastöðu
hans. Að sögn Eista átti brottvís-
un Rússans ekki að fara hátt, en
viðbrögð Rússa gerðu að verkum
að þeir ættu ekki annars kost en
að greina frá henni.
Rússar eiga einnig í njósna-
deilu við Breta og hafa hótað að
senda níu breska erindreka úr
landi.
LANCOME
Kaupauki
SNVtfmÖftlYKPsiJININ
(.1 I SUM
Kópavogi
Fimmtudag ogföstiuJag bjóÖum vifl glœsiiegan
kaupauka* mefl LANCÖME kivmurn.
Mcfl Primoniiale 50 rnl Jylgir t.d. :
Snyrtitaska •Varalitur • Mini Definiciis • Bocagc 30 ml • Eau Bienfait 30 ml
XU drin biqnðir tnukist
Tortiglioni 600g. Farfalle 600g.
329.- 329.-
Pasta Verona 750g.
243.-
NOATUN
Einfalt - bragögott og ódýrt!
Nautakjöts vorrúllur 398.
8 stk.
Kalkúns vorrúllur aoQ
8 stk.
DAL00N V0RRULLUR:
Kínarúllur 8 stk. ggg
Mexik. vorrullur 398
8 stk.
FARM FRITES KART0FLUR
Sléttar franskar 750g. 169.-
Rifflaðar franskar 750g. 169.-
Hvitlauks
smábrauð
10stk. 149.
Pítubrauð 6 stk. 1
§
HATTING BRAUÐ:
Fín smábrauð 15 stk. 197.-
Gróf smábrauð 15 stk. 197.-
Fín hvítlauksbrauð 2 stk. 169.
Gróf hvítlauksbrauð 2 stk. 169.
NOATÚN 17 - S. 561 7000, ROFABÆ 39 - S. 567 1200, LAUGAVEG 116 - S. 552 3456, HAMRABORG 14, KÓP. - S. 554 3888, FURUGRUND 3, KÓP - S. 554 2062
ÞVERHOLT 6. MOS. - S. 566 6656, JL-HÚSINU VESTUR í BÆ - S. 552 8511. KLEIFARSEL 18 - S. 567 0900. AUSTURVER, HÁALEITISBR 68 - S. 553 6700.