Morgunblaðið - 09.05.1996, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
NÚ FINNST mér skernmtilegasti
tími ársins þegar náttúran klæðist
sumarskrúða og farfuglarnir
flykkjast til landsins til að gleðj-
ast með okkur. Krían kom hér á
Garðaholtið 2. maí en spóinn þann
fjórða. Fyrsta útsprungna fífil
sumarsins sá ég um daginn í Hlað-
varpanum á Vesturgötunni. Hann
brosti við mér í nepjunni og yljaði
mér um hjartarætur. Þegar ég ók
Álftanesveginn á leið minni heim,
leit ég með söknuði til malbikuðu
göngu- og hjólreiðabrautarinnar
þar sem áður uxu snemmsprottnir
fíflar sem hlýjuðu bæði forseta
og fyrirmönnum auk okkar hinna,
þó ekki nágrönnum sem kættust
ekki þegar fræ þessarar „mjólkur-
fötu fjandans" fauk yfir í garða
þeirra. Þarna liggur hitaveitu-
lögnin út á Álftanes en nú er
búið að grafa hana niður og ein-
angra með jarðvegsfyllingu. Ég
syng því ekki lengur „fífilbrekka
gróin grund“ þegar ég fer þar um.
Islendingar hafa gert lítið af að
nýta sér fífla, súrur og njóla til
átu, en þessar snemmsprottnu
jurtir eru ljúffengar og vítamín-
auðugar og því sjálfsagt að nýta
þær. í suðurálfu eru fíflablöð
ræktuð til nytja og fáir vita að
það má brugga úr súrum og fífl-
um. Það verður þó ekki uppskrift
að þeim miði í dag.
Með steikinni sl. sunnudag bar
ég...
Steikt njólablöð
30-40 ung frekar lítil njólablöð
1-2 dl matarolía
lítil) pottur eða litil djúp panna
1. Þvoið njólablöðin og þerrið vel.
2. Hitið matarolíuna í lítlum potti
eða djúpri pönnu.
3. Setjið 2 njólablöð í einu út i.
Það snarkar í feitinni þar sem blöð-
in eru vatnsmikil. Farið varlega.
Takið úr feitinni eftir nokkrar sek-
úndur og setjið á eldhúspappír, sem
sogar í sig feitina. Blöðin eru mjög
fljót að brenna.
Eggjabrauð
vorsins
6 stórar rúgbrauðssneiðar
Matur og matgerð
Fíflar, súrur
og njóli
*
A þessum árstíma fer fijókomaofnæmi
að gera vart við sig, segir Kristín Gests-
dóttir, en hún þekkir konu sem hefur
ofnæmi fyrir ruslplöntum eins og læknirinn
hennar kallar fífla, súrur og njóla.
_______ smjörtil að smyija_______
brauðsneiðarnar með
6 hænuegg eða aðrar tegundir eggja
______12 stórar sneiðar beikon___
mikið af ungum smáum fíflablöðum
1. Þvoið fíflablöðin, tínið úr þeim
rusl, þerrið og skerið smátt.
2. Skerið eða klippið beikonið
smátt. Setjið það á pönnu og harð-
steikið, setjið söxuðu fíflablöðin út
í og steikið með síðustu 1-2 mínút-
urnar. Takið af pönnunni, setjið á
eldhúspappír og látið feitina renna
af. Kælið.
3. Harðsjóðið eggin, kælið og tak-
ið af þeim skurnina, skerið í sneiðar.
4. Smyijið brauðsneiðarnar, raðið
eggjasneiðunum í rönd báðum megin
á brauðið þannig að breið auð rönd
myndist í miðjunni.
5. Setjið mikið af beikon/fífla-
blöndunni á auðu röndina.
Meðlæti: Pilsner, bjór eða súru-
drykkur.
Það sem flestir kalla hundasúru
er túnsúra. Hundasúra er ekki æt,
en hún vex einkum við vegkanta og
er með mjóa safalausa leggi og safa-
lítil mjóslegin blöð.
Súrudrykkur
vorsins. (6-8 glös)
__________30 túnsúrublöð_________
____________2 rauð epli__________
2 lítrar eplasafi
1 lítri glært gos, t.d. 7-up, fresca
eða annað
klakamolar
6-8 rör
1. Þvoið og skerið súrurnar þvert
í þunnar ræmur. Setjið í skál. Þvoið
eplið, takið úr því kjarnann, skerið
í mjög litla bita. Setjið með súrublöð-
unum í skálina, hellið eplasafa yfir.
Látið bíða þannig í 1-2 klst.
2. Setjið klakamolana í tvöfaldan
plastpoka, haldið fyrir opið og sláið
á með kökukefli eða öðru barefli.
Setjið klakamulninginn í skálina.
3. Setjið gosdrykkinn út í og ber-
ið strax fram.
Athugið: Skreyta má rörin með
súrublöðum. Þá er stungið gat á
rörið og súruleggnum stungið inn í.
Ekki er gott að sjúga með þessum
rörum, því þarf að setja 2 rör í þau
glös, þar sem súrurörið er bara til
skrauts.
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 4í
Biddu um Banana Boat
sólmargfaldarann
el þú vill verða sólbrún/n á mettíma i skýjaveðri.
□ Yfir 60 gerðir Banana Boat sólkrema, -olia,-gela,-úða,-salva
og -stifta m/sólvóm frá t til #50, eða um tvöfalt öflugri en
aðrar algengar sólarvömr. Banana Boat sólarlinan er tram-
leldd úr Aloa Vera, kollageni og elastíni. jojoba, minkolíu,
banönum, möndlum, kókos, A, B, D og E vítamínum
□ Sértiönnuð sólkrem fyrir íþróttamenn. Banana Boat Sport
m/sótv. #15 og #30.
□ 99,7% hreint Banana Boat Aloe Vera gel (100%). Hvers
vegna aó borga 1200 kr. fyrir kvartlitra al Aloe geli þegar þú
getur fengið sama magn af Banana Boat Aloe Vera geli á 700
kr? Eöa tvöfalt meira magn af Banana Boat Aloe Vera geli á
1000 kr? Án spiruiinu, tilbúinna lyktarefna eóa annarra ertandi
ofnæmisvalda.
Biddu um Banana Boat á sólbaðsstofum, apótekum. snyrtiv.
verslunum og öllum heilsubúóum utan Reykjavikur. Banana
Boat E-gel fæst líka hjá Samtökum psoriasis og exemsjúklin-
9a.
Heilsuval - Barónsstíg 20 w 562 6275
GLEÐILEGT
LAUGAVEGI 20 • SÍMI 552-5040
FÁKAFENI 52 • SÍMI 568-3919
KIRKJUVEG110 •VESTM • SÍMI 481-3373
LÆKJARGÖTU 30 HAFNARF. • S. 5655230
Blað allra landsmanna!
- kjarni inál.vins!
RAOAUGi YSINGAR
Slaka hemla ber að skoða
og lagfæra. Það vita bílstjórar. En geta dóm-
arar lýðveldisins verið sjálfstæðir og óhlut-
drægir í dómstörfum þegar þeir taka við
leyndarbréfum Hæstaréttar og þegja um
meint lögbrot æðstu embættismanna? Bókin
Skýrsla um samfélag upplýsir. Útg.
Jörð til sölu
Ágæt bújörð í 10 km fjarlægð frá Blönduósi
er til sölu. Um er að ræða landmikla og góða
jörð með 301,8 ærgilda fjárkvóta. Óskað er
eftir tilboðum í jörðina með eða án kvóta
fyrir 15. maí 1996, og er áskilinn réttur til
að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Allar nánari upplýsingar gefur Stefán Ólafs-
son, hdl., í síma 452 4030.
Barnaverndarstofa
sími 552 4100,
myndsendir 552 4108
Barnaverndarstofa verður lokuð 9. og 10.
maí vegna flutnings. Opnað verður aftur
þriðjudaginn 14. maí í Austurstræti 16,
3. hæð, gengið inn frá Pósthússtræti.
Símanúmer verður hið sama og áður.
Braggahverfi til sölu
Braggahverfi „Djöflaeyjunnar" er til sölu
í heilu lagi eða pörtum.
Upplýsingar ísíma 896 2308 eða 551 2260.
Sumarbústaður í Borgarf.
Til sölu fallegur sumarbústaður í Borgarfirði.
Bústaðurinn er í stóru, kjarrivöxnu landi og
með stórkostlegt útsýni yfir Norðurárdalinn.
Til greina koma skipti á 28 feta eða stærri
skemmtibát.
Upplýsingar í síma 581 2908 eða 567 2320
eftir kl. 17.00.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTUN 3 • 105 REYKJAVIK • SIMI663 2340 • MYNDS. 5621219
Hæðargarður - leikskóli
Staðgreinireitur 1.817
í samræmi við 17. og 18. gr. skipulagslaga
er auglýst kynning á breyttri landnotkun á
svæði sunnan lóðar Breiðagerðisskóla, norð-
an Hæðargarðs. íbúðarsvæði verði breytt í
stofnanasvæði þar sem fyrirhugað er að
reisa leikskóla.
Kynningin fer fram í sal Borgarskipulags og
byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, kl.
9.00-16.00 virka daga og stendur til 7. júní
1996.
Ábendingum og athugasemdum skal skila
skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur,
Borgartúni 3, 105 Reykjavík eigi síðar en
föstudaginn 21. júní 1996.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
Kirkjusandur 1-5
(áður Laugarnesvegur 89)
Staðgreinireitur 1.340.5
í samræmi við 17. og 18. grein skipu-
lagslaga er auglýst kynning á breyttri
landnotkun á lóðinni Kirkjusandur 1-5.
Athafnasvæði verður breytt í íbúða-
svæði.
Kynningin fer fram í sal Borgarskipulags
og byggingarfulltrúa að Borgartúni 3, 1.
hæð, kl. 9.00 - 16.00 virka daga og
stendur til 20. júní 1996.
Ábendingum og athugasemdum skal
skila skriflega til Borgarskipulags
Reykjavíkur, Borgartúni 3, 105 Reykjavík
eigi síðar en fimmtudaginn 4. júlí 1996.