Morgunblaðið - 09.05.1996, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 51
Afmælis-
hátíð í
Gjábakka
GJÁBAKKI, félags- og tóm-
stundamiðstöð eldri borgara í
Kópavogi, verður þriggja ára
11. maí nk. og verður afmælis-
ins minnst með ýmsu móti.
Föstudaginn 10. maí kl.
11.45 flytja ungir söngvarar
íslensk lög áður en gestir setj-
ast að snæðingi. Á sjálfan af-
mælisdaginn, laugardaginn
11. maí, kl. 14 verður opnuð
sýning á listmunum unnum af
eldri borgurum. Fyrir og við
opnunina leika þau Ása, Ág-
úst, Ingibjörg og Matthías á
harmoníur, en þau eru öll nem-
endur við Músíkskóla Karls
Jónatanssonar, og eldri borg-
ari flytur ljóð tileinkuð stund
og stað. Eftir opnun sýningar-
innar opna eldri borgarar vor-
basar í Hreyfilssalnum í Gjá-
bakka þar sem hægt verður
að kaupa ýmsa handunna
muni. Vorsýningin og basarinn
verða opin laugardaginn 11.
maí og sunnudaginn 12. maí
frá kl. 14-17 báða dagana.
Námskeið í
skyndihjálp
REYKJ A VÍ KURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í al-
mennri skyndihjálp sem hefst
fimmtudaginn 9. maí. Kennt
verður frá kl. 20-23. Kennslu-
dagar dreifast á eina viku eft-
ir samkomulagi. Námskeiðið
telst vera 16 kennslustundir
og verður haldið í Ármúla 34,
3. hæð (Múlabær).
Meðal þess sem kennt verð-
ur á námskeiðinu er blásturs-
meðferðin, endurlífgun með
hjartahnoði, hjálp við bruna
og blæðingum úr sárum. Einn-
ig verður fjallað um helstu
heimaslys, þ.m.t. slys á börn-
um og forvarnir almennt. Að
námskeiðinu loknu fá nemend-
ur skírteini sem hægt er að
fá metið í ýmsum skólum.
Umferðar-
þing hefst
í dag
UMFERÐARÞING, hið þriðja
í röðinni, verður haldið í Borg-
artúni 6 í Reykjavík 9. og 10.
maí 1996.
Þingið hefst kl. 13 fimmtu-
daginn 9. maí og lýkur föstu-
daginn 10. maí. Meðal þess
sem fjallað verður um eru nið-
urstöður úr rannsókn Hag-
fræðistofnunar Háskóla Is-
lands á heildarkostnaði íslensk
samfélags vegna umferðar-
slysa auk fjölda annarra fyrir-
lestra.
Umferðarljósið, viðurkenn-
ing Umferðarráðs til aðila sem
unnið hefur sérstaklega gott
starf í þágu umferðaröryggis-
mála, verður afhent á þinginu.
Vorferðalag
Arbæjar-
kirkju
BARNASTARFI Árbæjar-
kirkju verður formlega síitið
með vorferðalagi austur í
Skálholt sunnudaginn 12. maí.
Saga staðarins verður reifuð í
leik og verður að venju barna-
messa að hætti Árbæinga.
Upplýsingar og skráning í
ferðina verður dagana 8. og
9. maí milli kl. 13 og 17.
Kvikmyndaleik-
stjórar sammála
starfshópi
FYRIR stuttu veitti Flóamarkaður
dýravina Fuglaverndarfélaginu
styrk að upphæð 50.000 kr. Flóa-
markaðurinn er í kjallara að Hafn-
arstræti 17 í Reykjavík.
Ákveðið var að nota styrkinn
við vinnu í sambandi við alþjóðlega
mikilvæg svæði. Nú er unnið að
undirbúningi við að endurskoða
skrá um mikilvæg fuglasvæði hér-
lendis og er það verk unnið í sam-
vinnu við Álþjóða fuglaverndar-
samtökin. Þess háttar skrá var
síðast unnin árið 1987 og kom hún
út í ritinu Important Bird Areas
in Europe árið 1989.
Félagið vill þakka Flóamark-
aðinum rausnarlegan styrk.
STJÓRN Samtaka kvikmyndaleik-
stjóra lýsir ánægju með þau meg-
inviðhorf sem fram koma í skýrslu
starfshóps um endurskoðun á út-
varpslögum á vegum menntamála-
ráðuneytisins. Skýrslan sýnir
glöggt hversu brýna nauðsyn ber
til að lög um sjóvarpsrekstur á
íslandi séu færði í takt við nútím-
ann, segir í fréttatilkynningu.
„Á sama tíma og önnur Evrópu-
ríki hafa lagt áherslu á hagræð-
ingu í rekstri ríkisfjölmiðla með
því að stórfækka föstum starfs-
mönnum og beina verkefnum til
sjálfstæðra framleiðenda, stað-
festir skýrslan að kostnaður Ríkis-
útvarpsins vegna vaxandi fjölda
starfsmanna hefur aukist mjög að
undanförnu. Stór hluti af því fé
sem ætti að fara til dagskrárgerð-
ar hefur lent í húsbyggingu og til
dreifikerfis sem ný fjarskiptatækni
og gei’vihnettir eru óðum að leysa
af hólmi og gera úrelt.
í öðrum löndum Evrópu er sú
stefna ríkjandi að sem mest breidd
fáist í gerð sjónvarpsefnis og að
áfrýjunarmöguleikar framleiðenda
séu sem flestir. Þetta er tryggt
með sérstökum framleiðslusjóðum
utan stöðvanna. Því telur SKL
ástæðu til að taka undir það sjón-
armið að nýr dagskrárgerðarsjóð-
ur leysi Menningarsjóð útvarps-
stöðva af hólmi, svo sjálfstæð inn-
lend dagskrárgerð fái þróast '
áfram.“
Stjórn SKL skipa: Hrafn Gunn- _
laugsson formaður, Friðrik Þór -
Friðriksson varaformaður, Óskar
Jóansson ritari, Hilmar Oddsson
gjaldkeri og Jón Tryggvason með-
stjórnandi.
FRETTIR
VERÐLAUNAHAFAR og fulltrúar þeirra ásamt dómnefnd.
Námustyrkir Landsbankans
afhentir í sjöunda sinn
SJÖ námsmenn fengu styrk úr
Námunni, námsmannaþjónustu
Landsbanka Islands, sl. mánu-
dag. Allir námsmenn sem eru
félagar í Námunni eiga rétt á
að sækja um þessa styrki. Tæp-
lega 400 umsóknir bárust að
þessu sinni en félagar í Nám-
unni eru tæplega tíu þúsund.
Þeir sem hlut.u Námu-styrk-
inn eru: Árni Halldórsson í
kandidatsnámi í rekstrarhag-
fræði við Handelshajskolen í
Kaupmannahöfn, Helga Arn-
fríður Haraldsdóttir í fram-
haldsnámi í sálfræði við Háskól-
ann í Árósum, Andri Stefáns-
son, jarðfræðinemi við Háskóla
Islands, Baldur Steingrímsson,
nemandi í tæknilegri eðlisfræði
við Háskóla íslands, Eva Hlín
Dereksdóttir, nemandi við
Verslunarskóla íslands, Gauti
Þór Reynisson, nemandi við
Menntaskólann á Akureyri, og
Auður Gunnarsdóttir, nemandi
í söng við Háskólann í Stuttgart.
í dómnefndinni sem sá um
val á styrkþegum voru: Dr.
Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi
ráðherra, Sigurður Orri Jóns-
son, formaður félags fram-
haldsskólakennara, Sverrir
Hermannsson bankastjóri,
Kjartan Gunnarsson, formaður
bankaráðs, og Kristín Rafnar,
útibússtjóri Vesturbæjarútibús
LÍ.
Fuglaverndar-
félagið fær styrk
Boðun orðsins
er bezt bæði í
tali og tónum
Morgunblaðinu hefur borizt eft-
irfarandi frá stjórn Kirkjukóra-
sambands íslands:
„Stjórn Kirkjukórasambands
Islands kom nýlega saman á
fundi þar sem eftirfarandi álykt-
un var samþykkt samhljóða:_ “
Stjórn Kirkjukórasambands Is-
lands gleðst yfir því öfluga tón-
listarstarfi sem fram fer innan
kirkjunnar víða um land með
góðu samstarfi presta, organ-
ista og kórfólks. Stjórnin telur
að stofnun og starfræksla
barnakóra á vegum kirkjunnar
sé veigamikill þáttur í trúar- og
tónlistaruppeldi og að kirkjulegt
kórastarf hafi reynst þjóðinni
mikill menningarauki. Sums
staðar virðist þó unnið að því,
meðvitað eða ómeðvitað, að
bijóta niður áratuga öflugt og
óeigingjarnt starf tónlistarfólks
innan kirkjunnar og er það
áhyggjuefni. Telur stjórnin að
með þessum hætti sé fólk fælt
frá kirkjunni í stað þess að laða
það að henni.. Boðun Orðsins
hlýtur að verða áhrifaríkust
þegar saman fer flutningur í
tali og tónum og má hvorugt
án hins vera“.“
gildirtil 11. j
10.000 kr. afsláttur
á mann (fullorðinn)
af verði pakkalcrða
VORÍ
íug og bíll:
i með afslættí frá
2914/0
á niann m.v. 2 í bíl í A-flokki í eina vikn
Lágmarksdvöl ein vika (7 dagar)
ognaniarksdvöl 1 mánuður.
kr. Flug og gisting:
Verð með afslætti frá
»*
Ævintýri á iiýjum slóðum
á mann í tvfbýli í S daga.
Síðasti hcimkomudagur cr 11. júní.
Hafðu sainband við sölufólk okkar, ferðaskrifstofumar cða í síma 50 50 100
(svarað mánud. - föstud. frá kl. 8 -19 og á laugard. frá kl. 8 -16.)
' Innifaliö: ílug, bíll, ótakmarkaður akstur og l.DW-trj'gging.
Sðluskattur, 18% af bílnum, vlðbótartryggiiigar og önnur aukagjöld greióast ytra.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferdafélagi