Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B/C/D/E 114. TBL. 84.ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bosníu-Serb- ar segja sam- stöðu órofna Reuter SORPHIRÐUMENN í Bonn lögðu niður vinnu í gær og komu saman á mótmælafundi í miðborginni. Belgrad. Reuter. RAJKO Kasagic, sem rekinn var úr embætti forsætisráðherra Bosn- íu-Serba í fyrri viku, lýsti óvænt yfir því i gær að sá gjörningur hefði verið löglegur og enginn ágreining- ur væri uppi meðal Serba í Srpska- lýðveldinu. Kasagic undirritaði yfirlýsingu í þessa veru í gær en í síðustu viku skýrði Radovan Karadzic, leiðtogi Bosníu-Serba, frá því að hann hefði Tilræði í Nýju-Delhí Nýju Delhí. Reuter. AÐ minnsta kosti 16 manns létu lífið og um 50 slösuðust er öflug, tíu kílóa bílsprengja sprakk í Lajpat Nagar-verslunarhverfinu í Nýju-Delhí í gær. Tveir hópar aðskilnaðarsinna í Kasmír sögð- ust í gærkvöldi bera ábyrgð á tilræðinu. Sprengjan sprakk á þeim tíma þegar hvað mest er að gera í hverfinu. Kviknuðu eldar í þrem- ur byggingum og óttaðist ind- verska lögreglan að einhveijir kynnu að hafa orðið þar inn- lyksa. „Það er enn verið að leita að líkum,“ sagði talsmaður henn- ar. Kjósa á um tvö þingsæti í Kasmír á morgun og hafa hermd- arverkamenn hótað að spilla kosningunum. ákveðið að víkja Kasagic úr emb- ætti. Hafði Kasagic farið hörðum orðum um stjórnarhætti Karadzic, sem er eftirlýstur fyrir stríðsglæpi í Bosníu. Kasagic hafði verið talinn til raunsæismanna í stjórnmálum Bosníu-Serba og vakti brottvísun hans hörð viðbrögð víða enda þótti hún lítt til þess fallin að greiða fyr- ir framkvæmd Dayton-samkomu- lagsins um frið í Bosníu. í stað Kasagic hefur Karadzic skipað ann- álaðan þjóðernissinna, Gojko Klickovic. Óskhyggja Bildts? Þessi rás atburða og yfirlýsing Karadzic um að hann hafi ákveðið að fela undirsátum sínum að halda uppi samskiptum við fulltrúa er- lendra ríkja, hefur vakið upp vanga- veltur af ýmsum toga um stöðu hans. Carl Bildt, fulltrúi Evrópu- sambandsins í Bosníu, lýsti yfir því um helgina að dagar Karadzic á valdastóli væru senn taldir. Nú þyk- ir margt benda til þess að um ósk- hyggju hafi verið að ræða. Samkvæmt Dayton-samkomu- laginu eiga fijálsar kosningar að fara fram í Bosníu í haust. Alija Izetbegovic, forseti Bosníu, kvaðst í gær telja að skilyrði væru ekki fyrir hendi til að þær gætu farið fram nú þar sem Karadzic væri enn í leiðtogahlutverki hjá Serbum. ■ Meistari upplausnarinnar/20 Bonn. Reuter. Á ANNAÐ hundrað þúsund opin- berir starfsmenn í Þýskalandi lögðu í gær niður vinnu í lengri eða skemmri tima til að mót- mæla niðurskurðaráformum rík- isstjórnarinnar. Olli þetta mikilli röskun á almenningssamgöng- um, sorphirðu og stjórnsýslu í 60 þýskum borgum. Skæruverkföll opinberra starfsmanna hófust fyrir tveim- ur vikum og verða sífellt um- fangsmeiri. Stéttarfélögin, sem standa að aðgerðunum, segja áform stjórnvalda um að spara í opinberum rekstri ógna þeirri samstöðu er ríkt hefur um fé- lagsleg málefni í Þýskalandi frá stríðslokum. Dieter Schulte, formaður stéttarfélagsins DGB sakaði Wolfgang Schauble, einn nán- asta samstarfsmann Helmuts Skæru- verkföll í Þýskalandi Kohls kanslara, um að segja ósatt er hann héldi því fram að verkalýðshreyfingin hefði fallist á sparnaðaráformin. „Þetta er lygi. Fimmtíu punkta áætlunin [til að efla atvinnu og hagvöxt] var ekki rædd við okkur. Um leið og ríkisstjórnin samþykkti áætlunina lýstum við því yfir að hún bryti í bága við þá sameigin- legu yfirlýsingu sem við gáfum út á kanslaraskrifstofunni 23. janúar.“ Scháuble virti hins veg- ar ummæli Schulte að vettugi og hvatti stéttarfélögin til að taka þátt í því að draga úr launa- tengdum kostnaði er væri ein helsta ástæða hins mikla at- vinnuleysis í landinu. Hann sagði Schulte og aðra verkalýðsleið- toga hafa samþykkt í janúar sl. að taka þátt í þessu starfi. Þar sem tilraunir til að gera þetta í nánu samráði við samtök at- vinnulifsins hefðu runnið út I sandinn hefði löggjafinn orðið að taka á málinu upp á eigin spýtur. Ríkisstjórnin vill m.a. frysta laun opinberra starfsmanna og krefst þess að verði laun hækkuð komi jafnframt til hagræðing og lengri vinnutími. Opinberir starfsmenn hafa krafist 4,5% launahækkunar. Farþegaferju frá Tanzaníu hvolfir á Viktoríuvatni Ottast að 500 manns hafi farist Dar es Salaam. Reuter. ÓTTAST var að allt að 500 manns hefðu farist snemma í gærmorgun er feiju frá Tanzaníu hvolfdi á Vikt- oríuvatni í Afríku. Fregnir voru óljósar en sagt að björgunarmenn hefðu þegar fundið um 120 manns á lífi og 25 lík. Ríkisútvarp Tanzan- íu hafði eftir fréttaritara sínum að nær 600 hefðu verið um borð, tals- vert fleiri en leyfilegt var. Feijan, sem nefndist Bukopa, mátti ekki sigla með fleiri en 433 manns innanborðs. P.J. Kyesi, starf- andi yfirmaður ríkisjárnbrautanna, sem áttu feijuna, virtist ekki vita fyrir víst hve margir hefðu verið um borð en algengt er á þessum slóðum að ferjur séu ofhlaðnar. í símasamtali við fréttamann Reuters virtist Kyesi draga í efa að fullyrðingar ríkisútvarpsins í Tanza- KENÝA Bukoba Mwanza TANZANIA níu um að 500 hefðu farist væru réttar. „Þeir [björgunarmennirnir] fundu 120 manns á lífi og við gerum einn- ig ráð fyrir að fleiri hafi komist af með því að búa sér til fleka, við leggj- um þess vegna mikla áherslu á að finna þá,“ sagði hann. Kyesi vísaði á bug fregnum um að feijan hefði steytt á skeri. Benjamin Mkapa, forseti Tanzan- íu, lýsti yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna harmleiksins. Fulltrúi hans sagði að stöðugleiki feijunnar hefði verið mældur fyrir skömmu og reynst í lagi en heimildarmenn hjá járnbrautunum tjáðu fréttamönnum að skipið hefði verið gamalt og hefði átt að taka það úr notkun á næst- unni. Bukopa var á leið frá borg með sama heiti á vesturströnd stöðu- vatnsins til borgarinnar Mwansa á suðurströndinni en sökk um 30 km frá landi, við eyna Karumo. Reuter Fagnað of fljótt? GJALDEYRISKAUPMAÐUR í Amman í Jórdaníu faðmar seðlabúntin sín, írska dinara sem hann telur að muni nú verða meira virði eftir að Irak- ar hafa samþykkt skilyrði Sameinuðu þjóðanna fyrir tak- markaðri olíusölu. Tíðindunum var ákaft fagnað í írak þar sem vöruskortur og óðaverðbólga hafa valdið almenningi miklum þjáningum; einræðisherrann Saddam Hnssein hefur eytt stórfé í minnismerki, hallir og lystisnekkju þrátt fyrir neyð- ina. Stjórnmálaskýrendur segja að Bandaríkjamenn og Bretar hyggist tryggja að við- skiptaþvingunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna gagnvart írak verði að öðru leyti haldið áfram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.