Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ1996 23 LISTIR Næturgalarnir frá Tröllaskaga KARLAKÓRINN Fóstbræður Fóstbræður í tónleikaferð TONLIST Gcrðubcrg SÖNGKVARTETT Tjamarkvartettinn í suðurför 18. mai. TJARNARKVARTETTINN frá Tjörn í Svarfaðardal kom, söng og sigraði á suðurför sinni vorið 1996. Alltjent var uppselt í Gerðubergi 18. maí, og því ákveðið í skyndi að ítreka tónleikana næsta dag. Var undirritaður þá viðstaddur. Sönghópurinn, sem kunnur er af hljómplötum og nýútvörpuðum sjónvarpsþætti, sker sig verulega úr þeim blönduðu kvartettum sem hafa komið og farið undanfarin ár. Fáir þeirra ef nokkrir hafa enzt nógu lengi til að yfirstíga samhæf- ingarvandamál þessa erfiða söng- forms. Ekki sízt er erfitt að ná góðri samblöndun radda, auk auð- vitað hreinnar inntónunar og meiri nákvæmni en víðast hvar, enda fín- gert tjáningartæki. Er þá miðað við atvinnumennskustaðal fyrir ofan venjulegt hopp og hí á þorra- blótum o.þ.h. Það sem fyrst vakti athygli undirritaðs á Tjarnarkvartettinum var einmitt undravert jafnvægi milli söngradda á fyrstu hljómplötu hópsins. Með tilliti til galdra nú- tímahljóðvera og snjallra upptöku- manna var enn undraverðara að uppgötva, að þetta jafnvægi skyldi skila sér á lifandi tónleikum. Sumt í áðurnefndum sjónvarpsþætti var að vísu ekki til að hrópa húrra fyr- ir, en í 22 söngatriðum þeirra fjór- menninga umrætt síðdegi í Gerðu- bergi mátti nánast hvergi reka rak- vélablað milli einstakra radda. Hvað inntónun varðaði, glitti varla í dökkan díl (ein af örfáum undan- tekningum var kannski Maríu- kvæði Atla Heimis), og samhæfing kvartettsins í hrynjandi, styrkvídd, textaframburði og túlkun bar öll vott um þá miklu sameiginlegu ástundun og úthald, sem er for- senda þess að raddgæði og músíka- lítet einstaklinga fái notið sín innan ramma heildarinnar. í ljósi auðheyranlegra kosta Tjarnarkvartettsins fer e.t.v. að verða spurning, hvort hilli senn undir nýja sérgrein í íslenzkum kórbókmenntum fyrir blandaðan kvartett. Fyrstu vísbendingar í þá veru voru fólgnar í upphafsatriðum hópsins, þrem lögum sem Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson samdi fyrir fereykið í fyrra við ljóð Jónasar Hallgrímssonar. „La Belle“ átti sér augljósa fyrirmynd í ítalsk-enska madrígalnum frá lokum 16. aldar, glæstasta tónsöguskeiði raddaðs veraldlegs söngs, með pólýfónísk- um inngangi og niðurlagi kringum miðkafla, þar sem laglína færðist í bassa og undirsöngur í efri radd- ir á utanslags-staccatói. „Fegin í fangi mínu“ var öllu hómófónískara en samt hugljúft, og „Vöggu- kvæði“ (Þey þey og ró ró) var blíð- mennskan uppmáluð í dúnmjúku sólói altraddar við feykivel jafnaðan undirsöng í S, T og B. Fóru fjór- menningarnir á kostum í þessum litlu en sérlega ljúfu lögum Hróðm- ars, eins og raunar í flestu sem á eftir kom. Gaman hefði verið til viðmiðunar að fá að heyra túlkun Tjarnarkvart- ettsins á einhveijum kunnum perl- um brezkra endurreisnarmeistara á við Morley, Weelkes eða Tomkins, sérstaklega í framhaldi af Hróð- mari, en því var ekki að heilsa. Meðal laga fyrir hlé mætti nefna instrúmental-hljómandi útsetningu Elíasar Davíðssonar á „í grænum mó“ Sigfúsar Halldórssonar; „Vor- vísu“ Jóns Ásgeirssonar við ljóð úr Húsi skáldsins eftir Laxness - vina- legt dæmi um „sælureitar-æð“ Jóns í anda rómantísku Dananna Schultz og Gades í 78 takti - og 3 kórlög eftir kameljónið Atla Heimi Sveins- son, sem hér sýndi sína kliðmýkstu hlið. Fyrst með „Idyll“, einkar sjarmerandi söng við texta eftir Halldór Blöndal þáv. landbúnaðar- ráðherra með næsta óvæntu niður- lagi; þá með hinu litla, sáraeinfalda en samt hljómrænt fágaða „Maríu- kvæði“ við nýfundið helgikvæði eft- ir Laxness úr gestabók Jóns Helga- sonar prófessors, og loks með hinum látlausu „Haustvísum til Maríu“ (María, ljáðu mér möttul þinn) við ljóð Einars Ólafs Sveinssonar. Kom hér vel fram hæfileiki sönghópsins til að hljóma fallega og samstillt, jafnvel við minnsta styrk. Eftir hlé sló kvartettinn á léttari strengi með leikhús-, kvikmynda- og dægurlögum. Svo stiklað sé á stóru, fylgdi mikill asi „Fröken Reykjavík“ þeirra Múla-bræðra í útsetningu Elíasar Davíðssonar, er virtist líkja eftir gaspri kjaftakerl- inga, og jaðraði lagið við að leys- ast upp í frumeindir á flengireið sinni, en slapp þó einhvern veginn fyrir horn. Sigurður Þorbergsson átti dágóða útsetningu á sígrænu lagi Gunnars Reynis Sveinssonar úr kvikmyndinni Skilaboðum til Söndru, „Maður hefur nú“. Túlkun Tjarnarkvartettsins á tveimur lögum frá árdögum Spil- verks þjóðanna („Plant no trees“ og ,,Daisy“) í ljómandi útsetningum Sigurðar Halldórssonar sellóleikara og kontratenórs vöktu ekki minni athygli en meðferð þeirra á „virt- ari“ höfundum. (Ætti í þessu sam- bandi kannski að beina tilmælum til textahöfunda um að snara nú afkvæmum sínum yfir á ástkæra ylhýra málið. Þetta eru allt of vin- sæl lög til að liggja óbætt á ensku.) Síðan söng kvartettinn m.a. „Caprí-Katarínu" eftir Jón frá Hvanná, og stutta en skondna út- setningu Hildigunnar Rúnarsdóttur á „Kötu í Koti“ eftir Kaldalóns. Að lokum hljómuðu nokkur nor- ræn lög: hið kyrrláta „Fjær er hann enn þá“, ættað frá útverðinum í austri og fyrst sungið á finnsku; „Svantes lykkelige dag“ eftir Benny Andersen með viðeigandi og heillandi hlýju; hið angurværa „Vetrarkvöld" e. Tove Knutsen, og loks gullfallega sænska þjóðlagið „Úti í mó“ (Ut i vár hage), sem telur upp táknrænar töfrajurtir í viðlagstexta, líkt og enska þjóðlag- ið um markaðinn í Scarborough. Undirtektir áheyrenda voru mjög góðar. Meðal uppklöppunarlaga kvartettsins var „Some of these days“, er undirr. kann ekki að feðra, en hljómar líkt og bandarískt „variety“-lag frá bannárunum kátu, enda gætt töluverðri sveiflu. Þrátt fyrir heillandi og óþvingaða framkomu kvartettsins kom ein- mitt þar fram akillesarhæll hans, því líkt og hjá svo mörgum öðrum sönghópum á Norðurlöndum var sveiflan ekki nema í meðallagi sannfærandi. Virðast að því leyti ótrúlega margir kallaðir, miðað við hvað sárafáir reynast útvaldir. Það er ein útbreiddasta veru- leikafirring sem til er meðal kór- söngvara í okkar heimshluta, að swing a cappella sé ekkert mál. Jafnvel þegar þrælmúsíkalskt fólk og vel menntað á í hlut, virðast menn alltaf vera að beija höfðinu við sama steininn. Staðreyndin er nefnilega sú, að það kostar iðulega blóð, svita og tár, áður en synkóp- ur hætta að verka stressaðar og bláar nótur standa ekki lengur út úr eins og aðskotadýr. Margir ná því aldrei. Enda getur verið regin- munur á því sem einfaldlega er „gaman er að syngja" og því sem (líka) skilar sér til áheyrenda. En ef marka má núverandi stöðu Tjarnarkvartettsins eftir skamman en glæsilegan feril, má alveg eins búast við að söngvararnir ráði fram úr því. Einn góðan veðurdag. Ríkarður Ö. Pálsson KARLAKÓRINN Fóstbræður heldur í tónleikaferð um Norður- lönd næstkomandi fimmtudag. I ferðinni munu þeir syngja á sex tónleikum, þeim fyrstu á föstu- dag í sirkushúsi i Kaupmanna- höfn. Þeir tónleikar eru á vegum Tívolísins í Kaupmannahöfn. Þá verður haldið til Stokkhólms, Norrköping, Turku, Helsinki og endað í Tallin í Eistlandi 3. júní. 55 kórfélagar fara í ferðina auk maka og annars fylgdarliðs. Að sögn Stefáns Más Halldórssonar, formanns kórsins, hefur undir- búningur staðið í um eitt ár. VORTÓNLEIKAR Lúðrasveitar Laugarnesskóla verða haldnir í kvöld kl. 20.30 í skólanum. Sveitin er að undirbúa tón- leikaferð um Skotland og eru þessir tónleikar síðasti hnykkur- „Upphaflega ætluðum við að fara í tónleikaferð til Japans en sá draumur fór út um þúfur þegar fjárframlög frá japönskum aðil- um brugðust. Þá var ákveðið að halda á Norðurlöndin.“ Á efnis- skránni er mest íslenskt efni auk sænskra, norskra og japanskra verka. „Við æfðum eitt japanskt verk fyrir ferðina þangað og það fær að vera með á efnisskránni núna. Við munum syngja í mjög boðlegum húsum í ferðinni og m.a. í Mustpeade Maja sem mér er sagt að sé aðaltónleikahúsið í Tallin,“ sagði Stefán Már. inn á þeim undirbúningi. Sveitina skipa 45 h(jóðfæra- leikarar á aldrinum 10-16 ára og stjórnandi hennar er Stefán Stephensen. Allir velkomnir. VORTÓNLEIKAR Lúðrasveitar Laugarnesskóla verða í kvöld. Vortónleikar Lúðrasveitar Laugamesskóla Brauðostur kg/stk. LÆKKUN 593 kr. kílóið. VERÐ ÁÐUR: kílóið. ÞU SPARAR: 149kr, ■ á hvert kíló. OSTA OG SMIÖRSALAN SE

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.