Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22, MAÍ1996 39 Ur dagbók lögreglu 390 mál til með- ferðar um helgina 17.-20. maí UM HELGINA eru bókfærð 390 mál hjá lögreglunni. Þar af eru 40 vegna ölvunar á almanna- færi, 36 vegna brota á leyfileg- um hámarkshraðamörkum, 45 umferðaróhöpp og slys, 21 inn- brot, 22 þjófnaðir, 16 eignar- spjöll, 13 ölvunaraksturstilfelli, 35 vegna hávaða og ónæðis að kvöld- og næturlagi, 5 vegna heimilisófriðar og 3 vegna ágreinings ýmiss konar. Tilkynnt var um innbrot í bif- reiðir við Fróðengi, Æsufell, Brekkutanga, Borgartún, Kringluna, Langholtsveg, Þver- holt, Logafold, Barónsstíg og Ægisíðu. Brotist var inn í veit- ingastaði við Klapparstíg, versl- un við Skólavörðustíg, geymslu við Granaskjól, aðstöðu við Hafnarstræti, versun við Laug- arnesveg, bílasölu við Borgartún og hús við Víkurgrund. Reiðhjól- um var stolið frá húsi við Stakk- holt, Feijubakka, Jörfabakka og Hverfisgötu. Þá var barnavagni stolið frá húsi við Mávahh'ð. Þrír handteknir Þrír ungir menn voru hand- teknir á föstudag eftir að hafa stolið myndbandstæki úr húsi við Skógarhlíð. Þá voru konur staðnar að því að reyna að stela kápu úr verslun við Laugaveg og sokkabuxum í verslun í Skeif- unni. Gangandi vegfarandi var fluttur á slysadeild aðfaranótt laugardags eftir að hafa orðið fyrir bifreið í Tryggvagötu. Um svipað leyti var ungur maður fluttur þangað eftir að hafa dottið illa á höfuðið í Ingólfs- stræti. Á laugardag var 7 ára drengur á reiðhjóli fyrir bifreið á Langholtsvegi við Sæbraut. Hann var fluttur á slysadeild, en meiðsli hans voru minnihátt- ar. Talið er að hjálmur á höfði drengsins hafi ráðið þar miklu um. Að því tilefni er rétt að minna á að lögreglumenn víða um land eru þessa dagana að huga að reiðhjólum barna sem og athuga með notkun reið- hjólahjálma. Á sunnudag var ökumaður fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Borg- artúns. Lögreglumenn lögðu hald á áhöld til neyslu fíkniefna eftir að hafa stöðvað bifreið á Sæ- braut aðfaranótt laugardags. Færa þurfti þrennt í fanga- geymslu eftir slagsmál ölvaðs fólks á skemmtistað í Austur- borginni aðfaranótt laugardags. Flytja þurfti einn að auki á slysadeild. Þangað þurfti og að aðstoða mann eftir að sparkað hafði verið í höfuð hans í mið- borginni. Bifreið, sem stolið hafði verið fyrir þremur dögum, fannst yfir- gefinn ofan í tjörn við Hólmasel aðfaranótt laugardags. Henni hafði verið ekið þar á tré og talsverðar skemmdir verið unnar á henni. Fjögur ungmenni sáust hlaupa á brott eftir atvikið. Eitt þeirra var handtekið skömmu síðar. Barn brenndist Á laugardag var barn flutt á slysadeild eftir að það hafði brennst á maga þegar innihald kaffikönnu helltist yfir það. Þá féll kona af hestbaki við Reykja- veg. Hún var flutt á slysadeild með sjúkrabifreið. Fjögur g af amfetamíni fund- ust á manni er lögreglumenn handtóku á laugardagskvöld. Maðurinn var að koma frá húsi sem grunur hefur verið um að stunduð hafi verið sala fíkni- efna. Það hús ásamt nokkrum öðrum hefur verið undir eftirliti lögreglu um nokkurt skeið og svo mun verða áfram. Í fram- haldi af handtökunni fór fram húsleit á viðkomandi stað og fundust þá 20 g af amfetamíni til viðbótar auk skammta af LSD og Esctasy-efni. Á laugardagskvöld var til- kynnt um leka úr ammoníak- geymum við verksmiðju í Gufu- nesi. Lekinn var vegna þrýst- ingsfalls af völdum rafmagnsbil- unar. Engin hætta var á ferðum og var viðgerð lokið fljótlega eftir að lekans varð vart. Um kvöldið var bifreið bakk- að á aðra við Hverafold. í ljós kom að tveir 14 ára piltar höfðu tekið bifreiðina ófijálsri hendi. Þeir reyndu að komast undan en voru stöðvaðir á Höfðabakka skömmu síðar. Um svipað leyti féll maður úr stiga í Hólahverfi og lenti með höfuðið á stein- vegg. Hann hafði verið að vinna við háþrýstiþvott á þaki hússins. Maðurinn var fluttur meðvitund- arlaus með sjúkrabifreið á slysa- deild. Aðfaranótt sunnudags var kona lamin af manni á Lauga- vegi svo flytja varð hana á slysadeild. Gerandinn hljóp af vettvangi, en náðist skömmu síðar eftir að hafa verið veitt eftirför af tveimur vegfarend- um. Um nóttina voru sjö ung- lingar færðir úr sundlauginni á Seltjarnarnesi og sóttir á lög- reglustöðina af foreldrum sín- um. Maður var handtekinn í Bláhömrum eftir að rúða hafði verið brotin þar í bifreið og gramsað í henni. Þá var ölvaður piltur handtekinn eftir að hafa brotið umferðarljós á þremur stöðum í miðborginni, auk þess sem hann hafði unnið skemmd- ir á stöðumæli. Hátalarakassi féll á höfuð stúlku á veitinga- stað við Vesturgötu svo flytja varð hana á slysadeild. Loks varð að flytja mann á slysadeild eftir slagsmál í Austurstræti. Mikil ölvun var á meðal fólks í borginni aðfaranætur helgar- innar og þeir voru margir full- orðnir, sem ekki kunnu sér hófs í meðferð áfengis. Á sunnudag stöðvuðu lög- reglumenn ökumann flutninga- bifreiðar, sem flutti varning sem flokkaður er undir hættu- legan farm. Ökumaðurinn hafði ekki öðlast tilskilin réttindi til slíks flutnings. Ökumenn, sem flytja eða munu flytja þess hátt- ar varning, eru minntir á að verða sér út um þau réttindi sem krafist er í hveiju tilviki fyrir sig. Um kvöldið var tilkynnt um skemmdarverk á athafnasvæði við Sóltún. Þar höfðu vinnus- kúrar verið skemmdir auk inn- anstokksmuna. Skömmu eftir miðnætti voru ökumaður bif- reiðar og farþegi færðir á lög- reglustöð eftir að 1 g af amfeta- míni hafði fundist á farþegan- um. FRÉTTIR Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson Sigið um borðí Vædderen DANSKA eftirlitsskipið Vædderen var í vináttuheim- sókn á Austfjörðum um helgina. Á Seyðisfirði var almenningi boðið að skoða skipið og það fór fjögurra tíma sjóferð með nokkra boðsgesti. Þyrla Land- helgisgæslunnar TF-LÍF tók þátt í hátíðarhöldunum og m.a. lét hún mann síga niður í Vædd- eren. Gengið með ströndinni HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer í fyrsta áfanga raðgöngu meðfram strönd Reykjavíkur- borgar og Seltjarnarnesbæjar í kvöld, miðvikudaginn 22. maí. Mæting er við Miðbakka- tjaldið (norðan við Hafnarhús- ið) kl. 20 og þaðan farið með SVR suður í Fossvog. Hægt verður að koma í hópinn við Nesti í Fossvogi kl. 20.30. Gangan hefst við fjörumörk Kópavogs og Reykjavíkur og síðan verður ströndinni fylgt út með Skeijafirðinum að Lambastöðum. Val um að nota SVR eða ganga til baka. Á leið- inni verður litið inn hjá Sport- kafarafélagi íslands og einnig rætt um sumardagskrá HGH. Allir velkomnir. Þingmenn kynni sér umsögn BHM BANDALAG háskólamanna hefur sent Ólafi G. Einarssyni, forseta Alþingis, bréf þar sem skorað er á hann að koma í veg fyrir að samþykkt verði fyrirliggjandi frumvarp til laga um breytingar á réttindum og skyldum starfs- manna ríkisins. Óskað er sérstak- lega eftir að Ólafur beiti sér fyrir því að alþingismenn kynni sér ítar- legar athugasemdir BHM um mál- ið. „Frumvarpið felur í sér órök- studda og tilefnislausa skerðingu á samningsrétti, félagafrelsi, jafn- ræðisreglu, atvinnufrelsi og eigna- rétti félagsmanna. Þessi réttindi eru grundvallarmannréttindi og eru því varin af stjórnarskrá lýð- veldisins. Ennfremur felur frum- varpið í sér óviðunandi afskipti af innri málefnum stéttarfélaga ríkis- starfsmanna. Þannig brýtur frum- varpið í bága við 87. og 98. sam- þykkt Alþjóðavinnumálastofnun- arinnar sem ísland hefur skuld- bundið sig að fara eftir. Bandalag háskólamanna hefur með ítarleg- um umsögnum gert efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis og ein- stökum alþingismönnum grein fyr- ir því með hvaða hætti frumvarpið ýmist gengur á svig við eða brýtur ofangreind mannréttindiákvæði stjórnarskrárinnar og alþjóðlegar samþykktir,“ segir í bréfi BMH til forseta þingisins. Umsögn BHM um frumvarpið og fylgiskjöl með umsögninni eru rúmlega 50 blaðsíður. BHM segir í bréfinu til þingforseta að ef al- þingismenn kynni sér til hlítar þessa umsögn muni frumvarpið ekki verða samþykkt, enda séu alþingismenn bundnir af dreng- skaparheiti að fara eftir stjórnar- skrá og samvisku sinni. Annað gult spjald TVÖ gul spjöld voru gefin á hesta- íþróttamótum helgarinnar. Auk Sveins Jónssonar, sem sagt var frá í þriðjudagsblaði Morgun- blaðsins mun Þórður Þorgeirsson hafa fengið gult spjald á opnu íþróttamóti hjá Geysi á Gaddstaða- flötum fyrir óviðeigandi framkomu og munnsöfnuð við einn dómara mótsins, Pétur Jökul Hákonarson. Bæði þess máli verða sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins tekin fyrir hjá aganefnd Hesta- íþróttasambandsins. ■ BJÖRGUNARSKÓLI Lands- bjargar og Slysavarnafélags ís- lands og Ferðafélag íslands standa fyrir fræðslufundi fyrir al- menning um ferðabúnað í göngu- og fjallaferðum miðvikudaginn 22. maí kl. 20. Fyrirlesari verður Helgi Eiríksson. Fundurinn verð- ur haldinn í húsnæði Ferðafélags íslands, Mörkinni 6, og er öllum opinn. Þátttökugjald er 1000 kr. og er fræðslurit um ferðamennsku innifalið í þátttökugjaldinu. ■ DJASSGÍTARLEIKARINN Ómar Einarsson leikur á Kringlukránni í kvöld, miðviku- daginn 22. maí. Ómar útskrifað- ist frá Tónlist- arskóla FÍH ekki alls fyrir löngu. Efnisskrá kvöldsins er fjöl- breytt en svo- kallaðir stand- ardar verða megin uppistaða tónlistarinnar sem flutt verður. Með Ómari leika þeir Gunnlaugur Briem á trommur, Kjartan Valdimars- son á pianó og Gunnar Hrafns- son á kontrabassa. ■ ÞÁTTTAKENDUR í nýaf-. stöðnu þingi Alþýðusambandsins á Kúbu, Gylfi Páll Hersir, félagi í Dagsbrún, og Drífa Snædal iðn- nemi halda opinn fund og greina frá ferð sinni. Verkamannafélagið Dagsbrún og stjórn Iðnnemasam- bands íslands styðja fundinn sem verður í fundarsal Dagsbrúnar, Lindargötu 9, efstu hæð, fimmtu- daginn 23. maí kl. 20.15. ■ HLJÓMSVEITIN Sport held- ur tónleika ásamt sérstökum gest- um á Gin og tónik-kvöldi á veit- ingahúsinu 22 í kvöld, miðviku- daginn 22. maí, og hefjast þeir kl. 22. Á tónleikunum verður boð- ið upp á frumsamið gitarrokk ásamt nokkrum gömlum slögur- um. Hljómsveitina skipa: Otto Tynes, Stefán Már, Þórir Viðar og Palli. Aðgangur er ókeypis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.