Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Mmjar og saga keyptu hornið FÉLAGIÐ Minjar og saga, vina- félag Þjóðminjasafns íslands, keypti íslenska drykkjarhomið frá 16. öld sem boðið var upp á stóru uppboði á Sjálandi síðast- liðinn mánudag og mun félagið gefa Þjóðminjasafninu homið. Minjar og saga hafa meðal annars á stefnuskrá að kaupa merka gripi og gamla og fágæta gripi sem talið er að eigi heima á Þjóðminjasafni íslands, og hef- ur félagið áður gefið Þjóðminja- safninu tvö málverk, þ.e. olíumál- verk af konungskomunni 1907 og gamalt málverk af Þórði Þor- lákssyni biskupi í Skálholti og Guðríði Gísladóttur konu hans. Minjar og saga hrepptu drykkjarhomið fyrir um 275 þúsund krónur íslenskar auk uppboðsgjalda, en að sögn Sverris Kristinssonar, formanns Minja og sögu, var gert ráð fyr- ir að það færi á töluvert hærra verði. Þjóðminjasafnið bauð í annað yngra íslenskt drykkjar- horn á uppboðinu, en fékk ekki, og segist Sverrir telja að skyn- samlegt hafi verið að fara ekki upp fyrir öll mörk í því sam- bandi. Á uppboðinu hyggst Þjóð- minjasafnið einnig bjóða í vatns- litamynd, frá 19. öld, af goshver. Sverrir sagði að hornið hefði fengist á góðu verði og ekki hefði hlaðist á það neinn aukakostnað- ur, m.a. vegna þess að enginn hefði farið utan til að annast kaupin heldur hefði maður bú- settur í Danmörku gert það. Félagið Minjar og saga var stofnað 1989 og hefur Sverrir verið í stjóm þess frá upphafi og formaður frá 1990. Aðrir í stjórn eru Ólafur Ragnarsson, Guðrún K. Þorbergsdóttir, Sig- ríður Th. Erlendsdóttir, Sverrir Scheving Thorsteinsson, Guðjón Friðriksson og Katrín Fjeldsted. I lögreglufylgd niður að Tjörn ÖND með sjö unga gerði sig heimakomna í húsagarði við Vesturgötu í Reykjavík síðast- liðinn mánudagsmorgun og var lögreglan fengin til að fylgja hópnum niður að Tjörn. Að sögn Maríu Karenar Sig- urðardóttur sem býr á Vestur- götu 19b varð eiginmaður henn- ar var við öndina með unga sína um hádegisbilið og kom lögregl- an rúmlejga klukkustund síðar á staðinn. I millitíðinni brá öndin sér frá um stund og sótti stegg- inn sem kom svo á vettvang með henni, en á meðan söfnuðust veiðibjöllur saman yfir unga- hópnum sem varð ókyrr mjög, að sögn Maríu Karenar. Ákveðið var að reka andahópinn niður að Tjörn í stað þess að háfa hann og gekk greiðlega að koma honum á áfangastað. María Karen sagði að líklega hefðu endurnar komið inn i garðinn um nóttina, en ákveðið var að kalla eftir aðstoð lögregl- unnar vegna fjölda katta í um- hverfinu sem ungunum hefði getað stafað hætta af. Nýr mótor íPál Sveinsson Lést af slysförum STEINÞÓR Jakobsson, skíðakenn- ari frá ísafírði, lést af slysförum um borð í báti sínum í Mexíkó á sunnudaginn var. Margt er óljóst um tildrög slyss- ins, en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var Steinþór einn um borð í bátnum þegar slysið bar að höndum og virðist hann hafa hrapað niður í vélarrúm hans með fyrrgreindum afleiðingum. Frumvarp sjálfstæðismanna á Alþingi Skattaívilnanir til PÁLL Sveinsson, flugvél Land- græðslunnar, fer í fyrstu flugferi sumarsins 3. júní. Fyrsta áburðar flugið verður farið yfir Reylya- nes, þá Gunnarsholt og endað yfii Auðkúluheiði síðast í júní að sögn Stefáns Sigfússonar fulitrúa land græðslustjóra. Búið er að setja nýjan mótor í Pál Sveinsson, 52 ára DC-3 vél embættisins, og var verið að selja skrúfuna í vélina og prófa mótorinn á Reykjavíkur- flugvelli þegar myndin var tekin í skýli Flugleiða. Morgunblaðið/Halldór SKIPT er um mótor á 1.000 flugtíma fresti að sögn Stefáns og kostar nýr á þriðju milljón. að örva rannsóknir Blaðinu í dag fylgir fjögurra síðna auglýsingablað frá BYKO. FIMM þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram lagafrumvarp á Alþingi sem miðar að því að beita skattaívilnunum til að hvetja ein- staklinga og fyrirtæki til rann- sókna- og þróunarstarfsemi. Er þar lagt til að heirnilt verði að sækja um allt að 500 þúsund króna lækkun á tekjuskattsstofni einstaklinga, sem taka þátt í þróunar og rannsóknarverkefnum, þar til ljóst er hvort verkefnin skili arði eða ekki. Er þetta m.a. rökstutt með því, að oft á tíðum byggist verðmæta- sköpun í slíkum verkefnum á mik- illi og fórnfúsri vinnu, en ekki sé hægt að sýna vinnuframlag í bók- haldi því þá þarf að greiða tekju- skatt af framlaginu. Þetta leiði til þess að verðlagning á verkefninu verði röng og það hefti oft fram- gang verkefnanna. Skattaívilnanir til fyrirtækja sem sækja um einkaleyfi í frumvarpinu er einnig lagt til að fyrirtæki, sem eru markvisst í rannsóknar- og þróunarstarfsemi, fái heimild til að gjaldfæra tvöfald- an þann kostnað sem þau hafi lagt í þróun og rannsóknir. Er markmiðið að lækka skattskyldar tekjur viðkomandi fyrirtækja og hvetja þau til að leggja fjármuni í rannsóknir. Þá er einnig gert ráð fyrir skattaívilnunum til fyrirtækja sem sækja um einkaleyfi. Sturla Böðvarsson er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. í greinargerð segja flutningsmenn að það sé skoðun þeirra að hvetja eigi til rannsókna og hvers konar þróunarstarfsemi. Það leiði til framfara, auki hagsæld og skili sér til ríkissjóðs með tekjum af öflugra atvinnulífi. Því sé mikil- vægt að fyrirtæki fái hvatningu til að efla rannsóknir á öllum svið- um, og samþykkt frumvarpsins muni auka rannsóknar- og þróun- arstarf í smærri fyrirtækjum og þátttöku stærri fyrirtækja í því starfi. Morgunblaðið/Þorkell Valur Fannar til Arsenal VALUR Fannar Gíslason, hinn 19 ára gamli leikmaður Fram, hefur ákveðið að taka tilboði enska úrvalsdeildarliðsins Arse- nal um samning til þriggja ára. Hann heldur utan í lok júní, en æfingar hefjast 8. júlí. Valur Fannar er frá Eskifirði og lék áður með Austra en er að byrja fjórða tímabilið með Fram. ■ Semur við Arsenal/Cl Kúariðan stöðvaði verð- lækkun á fiski HORFUR eru á að fisksala muni aukast varanlega um 3-5% í kjölfar kúariðufársins í Bretlandi. Fiskverð hafði farið lækkandi frá áramótum, en það hefur staðið í stað síðan fárið kom upp og jafnvel aðeins hækkað á sumum stöðum, að sögn Agn- ars Friðrikssonar, fram- kvæmdastjóra Icelandic Freez- ing Plants Ltd. ■ Kúariðan/ID. Þrír sækja um lyfsöluleyfi ÞRJÁR nýjar umsóknir um lyf- söluleyfi í Reykjavík hafa borist til borgarráðs frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og er óskað eftir umsögn borg- aryfírvalda. Jón Grétar Ingvarsson lyfja- fræðingur sækir um lyfsöluleyfi fyrir lyfjaverslun við Hring- braut 119, í sama húsi og Jón Loftsson var áður til húsa. Andri Jónsson lyfjafræðingur sækir um lyfsöluleyfi fyrir lyfja- verslun í Skeifunni 8 og Róbert Melax lyfjafræðingur sækir um lyfsöluleyfi í verslun Hagkaups í Skeifunni 15 eins og áður hefur komið fram í fréttum Morgunblaðsins. Borgarráð vísaði umsóknun- um til umsagnar borgarlög- manns. Sendibílstjóra- ar vilja leigu- bílaakstur BORGARYFIRVÖLD gera ekki athugasemd við ósk Sendibíla- stöðvarinnar hf. og Nýju sendi- bílastöðvarinnar um að hefja rekstur leigubifreiðastöðva. At- hygli er vakin á að þeim einum, sem hafa atvinnuleyfi og gefið er út af umsjónamefnd fólksbif- reiða, er heimilt að taka að sér eða stunda leiguakstur. í umsögn borgarlögmanns, sem lögð hefur verið fram í borgarráði segir að samkvæmt lögum um leigubifreiðar sé sveitarstjóm heimilt að ákveða að allar leigubifreiðar í sveitar- félaginu í hveijum flokki fyrir sig skuli hafa afgreiðslu á bif- reiðastöð, sem fengið hefur við- urkenningu sveitarstjórnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.