Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MINIMIIMGAR MIDVIKUDAGUR 22. MAÍ1996 35 SIGURÐUR HJÁLMAR JÓNSSON + Sigurður Hjálmar Jónsson fæddist á ísafirði 27. mars 1959. Hann lést 7. maí síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Akrakirkju 17. mai. í formála minningargreinanna um Sigurð sem birtust á blað- síðu 41 í Morgunblaðinu á þriðjudag, 21. maí, var Stein- gerður móðir hans sögð Jóns- dóttir, en hún er Guðmunds- dóttir. Eru hlutaðeigendur innilega beðnir afsökunar á þessum mistökum. Fyrir rúmum 15 árum fóru Siggi og Unnur systir mín að draga sig saman. Ég hafði fram að því aðeins heyrt talað um Sigga í fréttum þar sem getið var um afrek hans í skíða- brekkunum. Man ég eftir því eitt sinn að ég sat ákafur fyrir framan sjónvarpið þegar Bjarni Fel. lýsti seinni ferð hans á Olympíuleikunum þar sem hann kom i mark meðal fremstu manna og hefur eflaust enginn íslenskur skíðamaður gert betur á þeim vettvangi fyrr eða síð- ar. Við hvert tækifæri eignaði ég mér lítinn hluta af afrekum Sigga þegar tal barst að skíðum og því sem þeim tengdist í mínum vina- hópi, montinn af að þekkja hann. Það var síðan sumarið 1986 að Siggi tók mig í læri. Ekki þó á skíðum heldur við laxveiðar þar sem þetta var mitt fyrsta sumar sem leiðsögumaður við Haffjarðará en þar hafði hann þá starfað í nokkur sumur. Þó að ég hafði verið mikið við ána sem polli þá átti ég margt eftir ólært. Siggi fór með mig með ánni og útlistaði, stein fyrir stein, hvar vænlegt væri að kasta flug- unni í von um lax, allt á sinn rólega og yfirvegaða hátt. Þarna eyddum við skemmtilegum sumrum þar sem við gerðum okkar besta til að veiði- + Friðrik Gíslason fæddist í Hafnarfirði 5. nóvember 1964. Hann lést af slysförum í Tælandi 26. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hafnarfjarðarkirkju 21. maí. Styrkizt í Drottni og í krafti máttar hans. Náð mín nægir þér; því að mátt- urinn fullkomnast í veikleika. Því vil ég mjög gjarna þess framar hrósa mér af veikleika mínum, til þess að kraftur Krists megi taka sér bústað hjá mér. Þess vegna uni ég mér vel í veikleika, í misþyrmingum, í nauð- um, í ofsóknum, í þrengingum vegna Krists, því að þegar ég er veikur, þá er ég máttugur. - Eg fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið; því að það er kraftur Guðs til hjálpræð- is hverjum þeim, er trúir. Allt megna ég fyrir hjálp hans, Skilafrest- urminning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunn- inn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. menn færu nú ekki heim með öngul- inn í rassinum. Við veiðina mátti sjá örla á keppnisskapinu í Sigga þegar reynt var að draga sem flesta laxa, en einmitt þetta keppnisskap hafði áður eflaust átt stóran þátt í að fleyta honum á óteljandi verð- launapalla skíðamóta. Það er sárt að sjá á eftir Sigga, þó að ég huggi mig við að hafa Jón Karl son hans innan seilingar. Lífið er okkur svo miserfitt að næsta óskiljanlegt er. Sumir fá þyngri kross en aðrir að bera, jafnvel svo að þunginn sligar. En minningin um góða sál Sigga lifir með mér. Ég votta Ólöfu, Jóni Karli og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. Drottinn veiti dánum ró en hinum líkn er lifa. Yngvi Daníel Óttarsson. Það hefur oft verið sagt að guð- irnir elski þá sem deyja ungir. Sig- urður H. Jónsson var einn þeirra sem guðirnir elskuðu. Það er engin önnur leið að útskýra þá miklu hæfileika sem hann bjó yfir. Við, strákarnir sem vorum nokkrum árum eldri á ísafirði, undruðumst strax getu þessa púka sem varla stóð upp úr skónum þegar hann renndi sér niður skíðabrekkurnar. Brosandi út að eyrum renndi hann sér niður hlíðarnar og glotti þegar hann sá okkur horfa öfundaraugum á hann. Strax frá byijun varð mað- ur hreykinn af Sigga og á seinni árum breyttist það yfir í virðingu og traust. Alþjóð veit um árangur hans á sviði skíðaíþrótta hér heima sem erlendis en fáir þekktu Sigga sem einstakling, einstakling sem allir gerðu óstjórnlegar kröfur til og kröfur sem engin leið var að uppfylla. Þegar ég fluttist búferlum til sem mig styrkan gerir. - Ég á í striti og baráttu eftir þeim mætti, sem kröftuglega verkar í mér. - En þennan fjársjóð höfum vér í leir- kerum, til þess að ofurmagn kraft- arins sé Guðs, en ekki frá oss. Gleð- in í Drottni er hlífiskjöldur yðar. - Verðið styrkir með hvers konar krafti eftir mætti dýrðar hans, svo að þér fyllizt þolgæði í hvívetna og umburðarlindi. Soffía Margrét Þorgrímsdóttir. Noregs 1976, varð ég hluti af smá ísafjarðarnýlendu í Geilo. Ingvar bróðir og Agga systir Sigga, Gunn- ar Bóa, Sammi Kára, Steindór o.fl., mynduðu stóra fjölskyldu og Siggi dvaldi hjá okkur á milli keppnis- ferða í Evrópu. Sterk tengsl mynd- uðust þarna og mótuðu okkur öll og tengdu. Siggi var þarna næstu árin, jafnt vetur sem sumur og gekk til allra verka og var sama hvað hann tók sér fyrir hendur, allt gerði hann vel. Veturinn 1978, það voru fimmtíu manns í salnum á Holms hotel þar sem sjónvarpa átti frá heimsmeistarakeppninni í Garmisch Partenkirchen, mest Norðmenn. Siggi var í 14. sæti eftir fyrri ferð á undan Norðmann- inum og endaði síðan í 13. sæti, einu sæti á undan Norðmanninum. Þvílík sæla, og gleðin var ekki bara okkar heldur líka heima- manna frá Geilo sem litu a Sigga sem sinn mann. Árin liðu og þegar Siggi hætti að keppa, stofnuðum við saman skíðaskóla Sigurðar H. Jónssonar ásamt Öggu og Ingvari. Þannig hófst seinna skeið okkar og eins og áður stóð Siggi ætið fyrir sínu og var sjálfum sér og öðrum til sóma. Heimiii Ingvars og Öggu, en þar bjó Siggi, varð fljótlega ein- hvers konar félagsmiðstöð skíða- manna og sérstaklega Isfirðinga sem virtust sogast þangað af ein- hvetjum orsökum. Siggi bjó í kjall- aranum, innan um skíðaútbúnað, flögg og stangir og virtist hvergi eiga betur heima. Siggi skrölti á gömlu Wolksvagen-rúgbrauði sér- merktu skíðaskólanum um allar trissur og kenndi á skíðum frá morgni til kvölds. Það er minnis- stætt atvikið þegar við fjögur kenndum 180 manns eitt kvöld í Hamragili. Ég held að eftir það kvöld hefðum við öll viljað henda skíðunum okkar. Ég henti mínum skíðum en hin héldu áfram og fljótlega skapaði Siggi sér nafn sem frábær kennari og þjálfari. Leiðir okkar Sigga hafa ekki legið saman hin síðari ár en jafnan þegar við hittumst var eins og við hefðum daglegt samband. Siggi var góður drengur og það var ekki hægt annað en að elska hann. Hópurinn sem var svo sterkur í Geilo er óðum að minnka, tveir góðir drengir eru farnir á vit feðra sinna. Fyrst Sammi Kára og nú Siggi. Ég er þess fullviss, að það er vegna þess að guðirnir elskuðu þessa sómadrengi og saman sitja þeir og gæta okkar hinna sem eftir sitjum. Elsku Ólöf, Jón Karl, Steingerð- ur, Agga og Ingvar og fjölskyldur, verum glöð yfir því að hafa fengið að hafa Sigga svona lengi hjá okk- ur. Gleðjumst yfir minningunum um góðan dreng sem guðirnir elskuðu. Friðjón Einarsson. t Faðir minn, afi og bróðir okkar, STEINÞÓR JAKOBSSON skíðakennari, lést af slysförum í Mexíkó 19. maí sl. Arnar Steinþórsson, Sunna Arnarsdóttir, Konráð, Erna, Ásta og Jakobína. t Okkar ástkæri SNÆLAUGUR KRISTINN STEFÁNSSON, Vanabyggð 2d, Akureyri, lést 16. maí. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 24. maí kl. 13.00. Margrét Sölvadóttir, Baldvina Snælaugsdóttir, Margrét Björk Jónsdóttir, Ólavía Snælaugsdóttir, Eggert Arason, Ólafía Halldórsdóttir. FRIÐRIK GÍSLASON t Útför eiginmanns míns, ÞÓRARINS ÞÓRARINSSONAR fyrrv. ritstjóra, verður gerð frá Dómkirkjunni fimmtu- daginn 23. maí kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Ragnheiður Þormar. t Ástkær eiginkona mín, SIGRÍÐUR MARÍA AÐALSTEINSDÓTTIR, Hlíðarvegi 5, Ytri-Njarðvik, lést í Borgarspítalanum í Reykjavík sunnudaginn 19. maí. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 24. maí kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, HaukurIngason. Móðir mín, amma og langamma, ÞURÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, Engihjalla 3, Kópavogi, áðurtil heimilis í Grundargerði 10, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð að kvöldi 16. maí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstu- daginn 24. maí kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Magnús Kjartansson. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Fannborg 3, Kópavogi, sem lést þann 16. maí, verður jarðsung- in frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 23. maí kl. 13.30. Sigrún Sigvaldadóttir, Guðmundur Þ. Jónasson, Halldóra Benediktsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Sigurlaug Guðmundsdóttir, Jón Kallgrímsson, Herdís Jónsdóttir, Egill Hallgrimsson, Ólafia Sigurjónsdóttir, Páll Hallgrímsson, afa- og langafabörn. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HALLGRÍMS HAFSTEINS EGILSSONAR garðyrkjubónda, Hveragerði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.