Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Um lög, réttindi og réttlæti FYRIR Alþingi liggur nú frumvarp til laga um réttindi sjúkl- inga. I frumvarpinu er fyrst og fremst fjallað um réttindi sjúklinga gagnvart heilbrigðisstarfs- mönnum og heilbrigð- I isstofnunum. Ekki 'V: skal það dregið í efa að lagasmíðar er þörf um réttindi þess þjóð- félagshóps, sem heitir sjúklingar, sem sam- kvæmt skilgreiningu í annarri grein frum- varpsins eru notendur heilbrigðisþjónustu, heilbrigðir eða sjúkir. Þarna er ástæða til að staldra við því hér er í fyrsta skipti, undirrituðum vitanlega, sett fram hugtakið heilbrigður sjúklingur. Finnist mönnum þetta vera hártogun, skal á það bent að orðið sjúklingur er, skv. ís- lenskri orðabók Arna Böðvarsson- ar, sjúkur maður eða vanheill. Það virðist því skjóta nokkuð skökku við að kalla heilbrigðan mann sjúkling þótt hann þurfi að leita til heilbrigðisþjónustunnar, t.d. til að spyija hvaða bún- að hann þurfi að hafa með sér í fjallgöngu, ef slys ber að hönd- um. Þá er orðið „heil- brigðisstarfsmaður" notað allfijálslega í frumvarpinu og verð- ur að teljast fremur vafasamt að það sé í þágu sjúklinga, eða getur það verið rétt gagnvart sjúklingi að hvaða heilbrigðis- starfsmaður sem er (þótt hann sé löggilt- ur af heilbrigðisráð- herra) taki á sig ábyrgð á með- ferð hans eða hugsanlega á því að veita honum enga meðferð eða hætta meðferð. Hversvegna mega löggilt starfsheiti heilbrigðis- stétta ekki standa í þessum lög- um? Þriðju greinina, sem fjallar um gæði heilbrigðisþjónustu er rétt að staldra við. Því erfitt er að skilja hana öðruvísi en að í henni felist skerðing á þeim rétti sem sjúkir hafa nú, skv. heilbrigðislög- um. Þar stendur að sjúklingur Efnahagslegt misrétti og skertur aðgangur að heilbrigðisþjónustu getur, að mati Arna Björnssonar, stytt meðalævi fólks á nýjan leik. eigi rétt á fullkomnustu heil- brigðisþjónustu, sem völ er á á hveijum stað og tíma. Skv. nýju lögunum er þetta ákvæði tak- markað við „þann fjárhagsramma sem heilbrigðisþjónustunni er sniðinn á hveijum tíma“. Þá á sjúklingur nú ekki lengur skilyrð- islausan rétt á meðferð, því nú skal miðað við „ástand hans, ald- ur og horfur“, þegar meðferð er veitt. Hvað sem öðru líður er hér verið að skerða rétt aldraðra og virðist sumum, að í þann knérunn hafi nú þegar verið vegið nógu oft. í frumvarpinu er kveðið á um rétt sjúklinga til að deyja með reisn. Að því að best er vitað hefur þetta hugtak ekki verið skilgreint félagslega eða læknis- fræðilega og því hlýtur að vera mjög erfitt að túlka lög sem kveða á um það. Þegar við íslendingar tölum um að deyja með reisn, hugsum við fyrst til Þormóðar kolbrúnarskálds. Svo má hugleiða hvernig dómstólar mundu taka á því ef aðstandandi látins manns færi í mál við heilbrigðisstarfs- mann fyrir það að hann hefði ekki séð til þess að ættingi hans dæi með reisn. Hvergi í frumvarp- inu er hinsvegar kveðið á um rétt- inn til að lifa með reisn og kann það að eiga þær eðlilegu skýring- ar, að þau réttindi auka útgjöld ríkisins. Það er ekki ætlun höfundar að gagnrýna frumvarpið, lið fyrir lið, þótt vissulega sé þar af mörgu að taka. Almennt séð virðist vera stefnt að því að festa í lögum næsta sjálfsagðar samskiptavenj- ur sjúklinga við heilbrigðisþjón- ustuna. Flest þessara atriða eru þegar skjalfest í siðareglum heil- brigðisstétta og alþjóðasam- þykktum og vissulega getur orkað tvímælis hvort, sum þeirra a.m.k., eigi erindi í lög. En hversvegna er nú verið að lögfesta réttindi sjúklinga gagn- vart heilbrigðisstéttum og heil- brigðisstofnunum? Væri hugsan- lega réttara að setja lög sem vernduðu rétt stofnananna og starfsfólks þeirra til að veita þá þjónustu sem núgildandi heil- brigðislög kveða á um og sem tryggðu rétt allra til að geta fært sér þjónustu þeirra í nyt, sem er hluti af réttinum til að lifa með reisn? Um allan heim er gjáin sem skilur ríka og fátæka að breikka. Á Vesturlöndum er breidd gjárinn- ar minni en í þróunarlöndum en þar eins og annarsstaðar hafa menn tekið eftir því að heilsufar þeirra sem eru fátækramegin við gjána er lakara og meðalævin skemmri. Hér á landi hefur land- læknir verið manna ötulastur við að benda stjórnmálamönnum á þá staðreynd að heilsufar er lakara meðal láglaunafólks og atvinnu- lausra en annarra þegna íslenska velferðarríkisins. Enn er þessa ekki farið að gæta í styttri meða- lævi þessa fólks, en að því mun koma, ef við höldum áfram að kippa stoðunum undan velferðinni með því að auka efnahagslegt misrétti í landinu og skerða að- gengi að heilbrigðisþjónustunni í nafni markaðshyggju og sparnað- ar. Lög um réttindi sem ekki eru fyrir hendi þegar á þarf að halda breyta þar næsta litlu, nema hugs- anlega til að vera bót á samviskut- ötra sem hafa rifnað í átökum við pólitíska samheija, sem ekki telja sig lengur þurfa á svoleiðis flíkum að halda. Höfundur er læknir. ) i 1 f Húsib og garburinn Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, 9. júní nk., fylgir blaðauki sem heitir Húsib og garburinn. í blaðaukanum verður ýmis fróðleikur fyrir áhugamenn um garðrækt, fjailað um umönnun garðsins, trjá-, blóma- og matjurtarækt og garðskreytingar. Einnig verða upplýsingar fyrir þá, sem vilja byrja að rækta garðinn sinn, fjallað um viðhald húsa, sumarbústaða o.m.fl. Þeim, sem áhuga hafa á aí> auglýsa í þessum blahauka, er bent á aí> tekií) er vib auglýsingapöntunum til kl. 12.00 mánudaginn 3. júní. Anna Elínborg Gunnarsdóttir og Arnar Ottesen, söiufulltrúar í auglýsingadeild, veita allar nánari upplýsingar í síma 569 1171 eba meí) símbréfi 569 1110. - kjarni málsins! Biddu um Banana Boat sólbrúnkufestandi After Sun el þú vill festa sólbninkuna lil mánaða um leið ng þú nærir húðina með flloe Vera, E-vítam., kollageni og lanólíni. □ Sérhannaðar Banana Boat bamasólvarnir #15, #29, #30 og 50#. Krem, úði, þykkur salvi og stifti. o Banana Boat næringarkrem Brún-án sólar m/sólvöm #8. □ Hraðgræðandi Banana Boat varasalvi steyptur úr Aloe Vera m/sólv. #21, E-vítamin m/sólvöm #30; kirstuberjum, vatns- melónum, blönduðum ávöxtum m/sólv. #15. Bragðgóðir. o Hvers vegna að borga 1200 kr. fyrir kvartlítra af Aloe geli þegar þú getur fengið sama magn af 99,7% hreínu Banana Boat Aloe Vera geli á 700 kr ? Eða tvölalt meira magn af Banana Boal Aloe Vera geli á 1000 kr. Án spírulínu, lil- búinna lyktarefna eða annarra ertandi ofnæmisvalda. Blddu um Banana Boat í sólbaðsstofum, apótekum, snyrtiv. verslunum og öllum heilsubúðum utan Reykjavíkur. Banana Boat E-gel fæst líka hjá Samtökum psoriasis- og exem- sjúklinga. Heilsuval - Barónsstig 20 tt 562 6275 DANMORK Verö frá kr. hvora leið með flugvallarskatti 9.900 Nú á Islandi Wihlborg Rejser 1 Sími: 567 8999 AÐ ALFUNÐt H AIAII.NW Veröur haldinn miðvikudaginn 22. nud n.k. að Hótel Sögu og hefst kl.16.15 DAGSKRÁ /. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 9. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um breytingu á 3. gr. samþykkta félagsins þess efnis að félaginu sé heimilt að taka skammtímalán. 3. Önnur rnál, löglega upp borin. Alnwnnililulubréfwtjóðuriim Stjárn Alrncnnn hlutabréfasjáðsins ^^Skumlia

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.