Morgunblaðið - 22.05.1996, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
r
FRÉTTIR
A meðal bestu
lækna New York
Atvinnuleysi vex lítil-
lega frá marsmánuði
RÚMLEGA 6.600 manns voru að
meðaltali atvinnulausir í aprílmán-
uði samkvæmt upplýsingum vinnu-
málaskrifstofu félagsmálaráðuneyt-
isins, en það jafngildir því að at-
vinnuleysi hafi verið 5,1% af áætl-
uðum mannafla á vinnumarkaði.
Atvinnulausum fjölgaði um 215
manns frá marsmánuði, en atvinnu-
lausum fækkar um tæplega 500
manns frá aprílmánuði í fyrra. Síð-
ustu tólf mánuði hafa að meðaltali
rétt tæplega 6.200 manns verið at-
vinnulausir að staðaldri, en það jafn-
gildir um 4,7% af mannafla á vinnu-
markaði. Atvinnuleysi að meðaltali
á árinu 1995 var hins vegar um 5%.
Atvinnuleysi skiptist þannig milli
karla og kvenna að 3.095 karlar
voru atvinnulausir í apríl og 3.533
konur. Það jafngildir því að atvinnu-
leysi hjá konum sé 6,5% af áætluð-
um mannafla á vinnumarkaði, en
4,1% hjá körlum.
Breyting víðast lítil
í frétt frá vinnumálaskrifstofunni
segir að atvinnuástand hafi víðast
hvar á landinu breyst lítið milli
mars- og aprílmánaða. Aukningin
sé þó mest á höfuðborgarsvæðinu
og Suðurnesjum en fækkunin mest
á Norðurlandi eystra og á Suður-
landi. Hlutfallslegt atvinnuleysi er
mest á höfuðborgarsvæðinu og
minnst á Vestfjörðum eins og verið
hefur, en atvinnuleysi er nú minna
en í apríl í fyrra í öllum landshlutum
nema á höfuðborgarsvæðinu og á
Vesturlandi.
Hlutfallslegt atvinnuleysi í apríl
skiptist þannig eftir iandshlutum að
það er 5,7% á höfuðborgarsvæðinu,
4,9% á Vesturlandi, 0,9% á Vest-
fjörðum, 4,5% á Norðurlandi vestra,
4,4% á Norðurlandi eystra, 4,4% á
Austurlandi, 4,2% á Suðurlandi og
4,9% á Reykjanesi.
í SÉRÚTGÁFU tímaritsins
New York, sem kom út 20.
maí, eru birtir listar yfir bestu
lækna New York-borgar og þar
kemur fram að Kristján T.
Ragnarsson bæklunarlæknir er
á meðal bestu læknanna á sviði
endurhæfingar að mati starfs-
bræðra hans.
Átta starfsmenn bókaútgáf-
unnar Woodward/White, sem
gefur út bókina „Bestu læknar
Bandaríkjanna", unnu að
listunum i rúmt ár í samvinnu
við 650 lækna í New York.
Allra læknanna er getið i
„Bestu læknum Bandaríkj-
anna“ og þeir voru spurðir til
hverra þeir myndu leita ef þeir
eða ástvinir þeirra þyrftu lækni
á sérsviði þeirra.
Þúsund læknar
á listanum
Á listunum eru nöfn rúmlega
1.000 lækna sem eru flokkaðir
eftir sérsviðum. Kristján T.
Ragnarsson er á lista yfir átta
bestu endurhæfingarlæknana.
Með greininni er birt mynd af
Krisljáni með eftirfarandi til-
vitnun:
„Á þessu sviðj fæst engin
skyndiumbun. Árangur næst
eftir margar vikur eða mánuði
og stundum eftir áralanga end-
urhæfingu - en það gefur
manni samt ótrúlega mikið að
fylgjast með sjúklingum leita
hugvitssamlegra Iausna á
vandamálum semeru svo ein-
staklingsbundin. I rauninni
stjórnar sjúklingurinn ferðinni
sjálfur, við veitum honum þjón-
Kristján T. Ragnarsson.
ustu og og kennum ýmis brögð,
en án dugnaðar, hugrekkis og
einurðar hans getum við lítið
gert.“
Yfir 23 þúsund læknar
í New York
í greininni kemur fram að í
New York-borg starfa meira
en 23.000 læknar og á
Manhattan, þar sem Kristján
starfar, er einn læknir á hveija
17 íbúa. Mun færri læknar eru
í öðrum hlutum borgarinnar,
til að mynda einn á hveija 580
íbúa í Bronx.
Olíuflekkur
á sjónum
við Akurey
STARFSMENN Landhelgis-
gæslunnar urðu varir við olíu-
flekk á sjónum norðaustur af
Akurey í gær og var þyrla send
á vettvang. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Landhelgisgæslunni
var Hollustuvernd ríkisins látin
vita því brákin var utan hafnar-
markanna. Olíuflekkurinn var
fremur þunnur og ekki talið
að um mikla mengun væri að
ræða. Greining olíunnar er í
höndum Hollustuverndar.
Milljón í
björgunar-
búnað
GUNNAR Marel Eggertsson skipa-
smiður hefur fengið vilyrði fyrir
hálfrar milljónar króna framlagi frá
ríkinu og hálfri milljón frá sam-
gönguráðuneytinu til þess að festa
kaup á björgunarbúnaði fyrir vík-
ingaskipið Islending.
Áður hefur Gunnar Marel fengið
500 þúsund frá fjárveitinganefnd til
þess að ljúka smíði skipsins og býst
hann við því að siglingar hefjist frá
Reykjavíkurhöfn um miðjan júní.
Verið er að sauma segl fyrir bátinn
í Noregi og býst Gunnar Marel við
því að það verði komið til landsins
um mánaðamót.
KnsningaskrifsUtfan i
Hor%artúni 20 er opin
10 00-22 00 alla du%a.
Sími: 588 6688
Myndsendír: 555 5208
Atkva:ða)’reidsla utan
kjorfundar fer fram hjá
fýslumiinnuum um
land allt á skrifstofu
limu kl. 'J .UJ-12:00 <>%
15:00-15:10
Hafið samband <j þið
verðió a<) hciman á
kjördag.
Allar nánan upplýsing
-ar um forselakmning-
arnar eru gefnar <i
skrifstofu Auömngs
rnanna þéturs Hafstein
i -írna 555 1209
Sluðningsmenn
Stuðningsmenn
Péturs Hafstein
Heimili fyrir fjölfötluð
börn verður lokað í júní
ÚTLIT er fyrir að loka verði heim-
ili fyrir fjölfötluð börn að Árlandi
9 í Reykjavík í júní vegna fjár-
skorts. Samkvæmt rekstraráætlun
vantar 3-4 milljónir króna til að
rekstur heimilisins standist fjár-
lög. Friðrik Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Þroskahjálpar, segir
að það hafi í för með sér mikla
röskun fyrir börnin og foreldra
þeirra verði heimilinu lokað í júní.
Á heimilinu að Árlandi 9 búa
sex börn sem eru mjög mikið fötl-
uð. Foreldrar hafa tekið mikinn
þátt í rekstri heimilisins. Rekstur
þess er alfarið fjármagnaður af
fjárlögum. Halli var á rekstrinum
á síðasta ári, en fjárveiting til
heimilisins í ár er sú sama og í
fyrra.
Friðrik sagði að umræður hefðu
farið fram um að Reykjavíkurborg
tæki við rekstri heimilisins í
tengslum við samning borgarinnar
og ríkisins um að Reykjavík verði
reynslusveitarfélag. Samningur
væri hins vegar ekki í sjónmáli
og þess vegna yrðu stjórnendur
heimilisins að grípa til ráðstafana
til að það færi ekki fram úr fjárlög-
um.
Friðrik sagði hugsanlegt að
leggja yrði sum barnanna inn á
sjúkrahús í júní. Sum þeirra væru
það mikið veik að foreldrar þeirra
gætu ekki tekið þau inn á heimili
sín. Hann sagði að ástæðan fyrir
því að ekki hefði tekist að halda
rekstri heimilisins innan fjárlaga '
væri m.a. sú að það væri mat for- i
stöðumanna þess að nauðsynlegt |
væri að hafa tvöfalda næturvakt
á heimilinu. Ástæðan væri sú að
börnunum hætti til að fá alvarleg
krampaköst, sem ein manneskja
réði ekki við jafnframt því að hafa
eftirlit með öllu heimilinu.
Tvær manneskjur hafa skipt
með sér starfi forstöðumanns, en
þær hafa báðar sagt upp st’arfi
sínu m.a. vegna þess að þær
treysta sér ekki til að reka heimil-
ið á þeim forsendum sem fjárveit-
ingarvaldið ætlast til.