Morgunblaðið - 22.05.1996, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Hlutabréf í
Jarðborunum rifin út
100 millj-
ónir seld-
ust upp á
fyrsta degi
Heimild veitt til að selja
afganginn af bréfum
ríkissjóðs
HLUTABRÉF Reykjavíkurborgar og
ríkissjóðs í Jarðborunum voru rifín
út á fyrsta söludegi í gær og undir
lokun hjá verðbréfafyrirtækjum í
gær þótti sýnt að tekist hefði að
selja öll þau bréf sem áætlað var að
selja í fyrstu lotu. Alls var þar um
að ræða 18,5% alls hlutaíjár fyrir-
tækisins, samtals að söluverðmæti
tæplega 100 milljónir króna miðað
við sölugengið 2,25.
Að sögn Ragnars Hannesar Guð-
mundssonar, umsjónaraðila með sölu
bréfanna hjá Kaupþingi, var þegar í
gær veitt heimild til þess að halda
sölu hiutabréfa ríkisins áfram og selja
þau 20% sem ríkissjóður á eftir í Jarð-
borunum. Þar er um að ræða röskar
47 milljónir króna að nafnvirði, eða
tæpar 106 milljónir að söluvirði.
Ragnar segir ekkert benda til þess
að draga muni úr eftirspuminni eftir
hlutabréfunum og því sé allt útlit
fyrir að sölu þeirra muni ljúka á allra
næstu dögum.
Marks &
Spencer
koma á óvart
London. Reuter.
HLUTABRÉF í Marks &
Spencer, stærstu verzlana-
keðju í Bretlandi, hafa hækkað
í verði vegna betri afkomu á
síðasta fjárhagsári en búizt
hafði verið við og bættrar stöðu
á erfiðu markassvæði. Horfur
eru á að afkoman haldi áfram
að batna ef bjartsýni neytenda
eykst.
Það sem gerði gæfumuninn
var bætt afkoma dótturfyrir-
tækisins í Bandaríkjunum,
Brooks Brothers, að sögn sér-
fræðings í London.
Hagnaður M&S fyrir skatta
jókst um 7,2% í 993,7 milljónir
punda og kvað Sir Richard
Greenbury stjómarformaður
hagnaðinn ekki hafa farið yfír
einn milljarð vegna aukins elli-
lífeyriskostnaðar.
Velta á fjárhagsárinu til 31.
marz jókst í 7,23 milljarða
punda úr 6,8 milljörðum og
arðgreiðsla á árinu var aukin
um 10,7% í 11,4 pens.
Sérfræðingar höfðu spáð
975-990 milljóna punda hagn-
aði fyrir skatta og 11,2-11,5
pensa arði á hlutabréf.
Hagnaður Brooks Brothers
í Bandaríkjunum jókst um 80%
í 10,7 milljónir punda og velta
um tæplega 11% í 286,1 millj-
ónir punda miðað við tap upp
á 2,5 milljónir punda á miðju
fjárhagsárinu.
Brezkum fyrirtækjum hefur
yfírleitt gengið illa á banda-
rískum mörkuðum. Fræg fyr-
irtæki eins og Laura Ashley
Plc og J. Sainsbury hafa átt
erfítt með að ná fótfestu.
Hlutabréf í M&S hækkuðu
um 19 pens í 451,5 pens.
Vinnslustöðin hf. býður út 200 milljóna hlutafé
Eigið fé komið yfir
milljarð íjúní
VINNSLUSTOÐIN hf. í Vestmanna-
eyjum hefur boðið út nýtt hlutafé
að nafnvirði um 200 milljónir króna
eða sem nemur um helmingi af heim-
ild síðasta aðalfundar félagsins til
hlutafjáraukningar. Núverandi hlut-
hafar hafa forkaupsrétt að bréfun-
um fram á næsta þriðjudag eða til
28. maí miðað við gengið 1,39 en
þá verður það sem eftir stendur
boðið til sölu á almennum markaði
á genginu 1,43. Er þetta í fyrsta
sinn sem félagið býður út hlutafé á
almennum markaði.
Tilgangur útboðsins er að styrkja
eiginfjárstöðu Vinnslustöðvarinnar
og er liður í fjárhagslegri endur-
skipulagningu félagsins, en félagið
hefur sem kunnugt átt við rekstrar-
erfíðleika að stríða. Hlutafjáraukn-
ingin verður nýtt til lækkunar skulda
og þar með minnkar vaxta- og
greiðslubyrði skulda, eins og segir í
útboðslýsingu. Eiginfjárhlutfall fé-
lagsins var í lok febrúar 13,1% sam-
kvæmt sex mánaða uppgjöri, en
verður eftir hlutafjáraukninguna og
sölu á Sighvati Bjarnasyni VE81 um
21,8%. Gert er ráð fyrir að eigið fé
nemi a.m.k. einum milljarði í júní-
byijun og v.eltufjárhlutfall verði þá
komið yfír 1 í fyrsta sinn frá 1992.
Sex mánaða uppgjör sýndi um
215 milljóna króna heildarhagnað
fyrstu sex mánuði reikningsársins
sem hófst 1. september, en þar af
nam söluhagnaður um 134 milljón-
um. Átta mánaða uppgjör verður
birt í lok næstu viku.
Rekstraráætlun vegna yfirstand-
andi rekstrarárs gerir ráð fyrir um 3
milljarða tekjum og 43 millj. hagnaði
af reglulegri starfsemi. Þá á félagið
verulegt uppsafnað skattalegt tap.
Endurskipulagning
landvinnslu
Vinnslustöðin kynnir í tengslum
við útboðið viðamikla endurskipu:
lagningu á allri landvinnslu sinni. {
útboðslýsingu segir m.a. að mark-
mið breytinganna sé að öll vinnsla
verði í einu húsi félagsins og hin
húsin seld eða nýtt tii annarra verk-
efna. Byggð verði flokkunarstöð fyr-
ir síld og loðnu og komið upp einum
vinnslusal fyrir síld, loðnu og hum-
ar. Við þetta batnar nýting á hús-
næði, starfsfólki og vélum til muna
frá því sem nú er auk þess sem
beinn framleiðslukostnaður lækkar
talsvert. Fyrirtækið fékk afhent nýtt
nóta- og togveiðiskip, Sighvat
Bjarnason VE 81, í byijun þessa
mánaðar og gerir nú út fimm skip.
Sighvatur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
unnið væri að því að tæknivæða
bolfiskvinnsluna og sameina vinnslu
í neytendapakkningar við hefð-
bundna vinnslu. „Við ætlum smátt
og smátt að leggja af hefðbundna
vinnslu á næstu tveimur til þremur
árum. Það er veruleg stefnubreyting
frá því sem verið hefur. Með því að
hafa alla starfsemina á einum stað
náum við fram verulegri hagræð-
ingu. Fjárfesting í breytingunum
sem nemur um 100 milljónum króna
mun skila okkur um 40-45 milljónum
króna í aukna framlegð. Hins vegar
ætlum við að mæta þessari fjárfest-
ingu með því að selja eignir.“
Lánasjóður Vestur-Norðurlanda með mikinn
gengishagnað af skuldabréfaeign
Hagnaður fjór-
faldaðist miUi ára
LANASJÓÐUR Vestur-Norður-
landa skilaði alls um 58 milljóna
króna hagnaði á síðasta ári sem er
rösklega íjórfalt meiri hagnaður en
árið 1994. Þessi bætta afkoma
skýrist fyrst og fremst af mikilli
hækkun á gengi danskra ríkis-
skuldabréfa í eigu sjóðsins. Gengi
þeirra var óvenju lágt í lok árs
1994 en hækkaði mikið í kjölfar
lækkunar vaxta í Danmörku á árinu
1995. Framlag í afskriftarreikning
nam alls um 55 milljónum sem er
ríflega tvöföldun frá árinu áður.
Lánasjóðurinn var stofnaður
árið 1987 af ríkisstjórnum Norður-
landanna ásamt landsstjórnum
Hafnfirðingar, nærsveitamenn
Höfum opnað að nýju. Verið velkomin.
sumarblóm-trjáplöntur-runnar
Plöntusalan,Heiiisgerði. opiðki. 11-22.
Færeyja og Grænlands. Tilgangur-
inn var að efla fjölbreytt og sam-
keppnisfært atvinnulíf á Vestur-
Norðurlöndum, _þ.e. í Færeyjum,
Grænlandi og á Islandi. Hann veit-
ir lán og tryggingar á almennum
bankakjörum en getur þó ef að-
stæður leyfa veitt lán og trygging-
ar á hagstæðari kjörum. Sjóðurinn
getur einnig veitt styrki eða skilyrt
lán til sérstakra verkefna, þ.e.a.s.
lán sem því aðeins bera vexti og
endurgreiðast ef framvinda verk-
efnisins leyfa.-
Býður lægstu vexti í helstu
gjaldmiðlum
Mikil aukning hefur orðið í starf-
seminni undanfarin ár. Heildarútlán
námu um 590 milljónum um síðustu
áramót og eigið fé um 1.261 millj-
ón. Samkvæmt upplýsingum Stein-
ars B. Jakobssonar, forstjóra, hefur
sjóðurinn alltaf metið útlánaáhætt-
una mjög varlega og hefur ekki
orðið fyrir óvæntum skakkaföllum
vegna gjaldþrota viðskiptavina.
Sjóðurinn býður nú lægstu vexti
af iánum í helstu gjaldmiðlum en
vaxtamunur er u.þ.b. 1% að meðal-
tali. Greining hinna ýmsu lánsum-
sókna er mjög ítarleg og er sérstak-
lega fjallað um áætlaða rekstraraf-
komu verkefna í samvinnu við um-
sækjendur. Þá býður sjóðurinn
marga valmöguleika á greiðslufyr-
irkomulagi t.d. fasta- og breytilega
vexti, jafnar greiðslur eða jafnar
afborganir svo og greiðslur og láns-
tíma í samræmi við þarfir.
Á síðasta ári voru samþykkt tólf
venjuleg lán, eitt skilyrt lán og einn
styrkur til íslenskra fyrirtækja.
Meðal lántakenda voru íslenska
útvarpsfélagið, Útgerðarfélag Ak-
ureyringa, Gabbró hf., Myllan hf.,
Gesthús Dúna, Suðurflug hf.
Andrea hf., Ullarvinnsla Frú Láru
hf. og Öryggisþjónustan. Þá fékk
ísvatn hf. skilyrt lán. Einn styrkur
var greiddur út til Hitaveitu Suður-
nesja vegna athugunar á vinnslu
magnesíum að fjárhæð tæplega 500
þúsund krónur.
Hlutabréf
Plastprents
og SS skráð
á Verð-
bréfaþingi
STJÓRN Verðbréfaþings íslands
samþykkti á fundi sínum á mánu-
dag að skrá hlutabréf Plastprents
hf. og Sláturfélags Suðurlands á
þinginu. Þá var jafnframt sam-
þykkt að skrá bréf Þróunarfélags
Islands hf. um leið og félagið upp-
fyllir skilyrði þingsins um 200 hlut-
hafa. Félagið stefnir að því að ná
því marki í hlutafjárútboði sem
hefst á almennum markaði á morg-
un.
Þar með eru hlutafélög sem
skráð eru á Verðbréfaþingi Islands
orðin 29 talsins en Þróunarfélagið
verður hið þrítugasta í röðinni.
Fleiri félög hafa lýst því yfir að
þau hafi hug á að sækja um skrán-
ingu þ.á.m. Nýheiji og Samskip.
Hlutabréf Sláturfélagsins er
annar flokkur samvinnuhlutabréfa
sem skráð eru á þinginu en fyrir
voru samvinnubréf Kaupfélags
Eyfirðinga.
Með skráningu á þinginu gang-
ast hlutafélögin undir strangar
reglur um upplýsingaskyldu við
hlutabréfamarkaðinn. Skylt er að
birta ársreikninga og sex mánaða
uppgjör svo og allar aðrar upplýs-
ingar sem geta haft áhrif á mat
manna á gengi hlutabréfa í við-
komandi félögum.
------»-♦--♦-----
Afkoma Spari-
sjóðs Hvamms-
tanga góð
Hvammstanga. Morgunblaðið.
HAGNAÐUR af rekstri Sparisjóðs
Hvammstanga varð 11,4 milljónir
króna, en þá höfðu verið lagðar á
afskriftareikning 14,6 milljónir. Eig-
ið fé sjóðsins í árslok var 133,2 millj-
ónir króna. Eiginfjárhlutfall er
13,1% en lágmark þess skal vera
8% samkvæmt lögum.
Á starfsárinu urðu þær breytingar
á stjórnun Sparisjóðsins að Ingólfur
Guðnason, sem hefur verið spari-
sjóðsstjóri frá árinu 1959, lét af
störfum vegna aldurs. Ingólfur sagði
í spjalli við Morgunblaðið að starf-
semi Sparisjóðsins hefði verið í íbúð-
arhúsi, þegar hann tók við stjórn
sjóðsins og hann aðeins unnið sem
nam hálfu stöðugildi. Mikið hefði
því breyst á þessum tíma.
Nýráðinn sparisjóðsstjóri er Páll
Sigurðsson, en hann hefur unnið sem
skrifstofustjóri Sparisjóðsins um
árabil. Stjórnarformaður sjóðsins er
Jóhannes Björnsson og skrifstofu-
stjóri er Kristín Magnúsdóttir.
-------------»---------
Dollarinn yfir
1,54 mörk
London. Reuter.
DOLLAR hækkaði í yfir 1,54 mörk
í gær og hefur ekki staðið eins vel
að vígi síðan í janúar 1995 vegna
óvæntra ummæla fulltrúa í stjórn
þýzka seðlabankans.
Sérfræðingar sögðu að 1,54
mörk hefðu verið mikilvæg hindrun,
sem nú hefði verið yfirstigin og
dollarinn kynni því að halda áfram
að hækka.
Hækkunin varð þegar Olaf Sie-
vert úr stjórn þýzka seðlabankans
sagði að verða mundi efnahag Þjóð-
veija til góðs ef dollarinn hækkaði
um nokkra pfenninga og töluvert
svigrúm væri til að lækka vexti.
Sérfræðingar telja líklegt að
markið verði í aðalhlutverki á er-
lendum gjaldeyrismörkuðum þar
sem efasemdir um myntbandalag
Evrópu (EMU) haldi áfram að auk-
ast.