Morgunblaðið - 22.05.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ1996 21
LISTIR
Morgunblaðið/Ásdís
EDDA Þórarinsdóttir afhendir frú Vigdísi Finnbogadóttur
heiðursskjöldinn.
Frú Vigdís Finnbogadóttir heið-
ursfélagi Félags íslenskra leikara
MYNPUST
Gallerí Borg
MÁLVERK/VATNSLITIR
Daði Guðbjömsson. Opið frá 14-18
alla daga til 27. maí.
Aðgangur ókeypis.
MÁLARINN Daði Guðbjörnsson
hefur munninn fyrir neðan nefið
eins og sagt er, og þannig
mælist honum í blaðaviðtali
nýlega: „Að nýjungar séu
tímaskekkja.“ Á hann þá
auðvitað við í listum, en
kannski hefur eitthvað skol-
ast til hjá blaðamanninum,
því þótt flestir séu með á
nótunum má snúa út úr
ummælunum á meinlegan
hátt. Nýjungar eru auðvitað
sjaldnast tímaskekkja, og
eðlilegra væri að orða það
svo, að tilbúinn og tillærður
frumleiki standist ekki og
sé því tímaskekkja.
Hvað hugmyndafræði-
lega gjaldþrotið snertir er
það djúphugsaðri framslátt-
ur, því ekki er mikið spunn-
ið í hugmyndafræði sem
byggir ekki á traustum
handverkslegum grunni,
persónulegri úrvinnslu, hugsæi og
tilfinningum. Skotið er svo stoðum
undir hana með háfleygum og djúp-
hugsuðum frösum heimspekinga
fornaldar og endurreisnar.
Hvað sem öðru líður, er gott til
þess að vita að ungir eru farnir að
þora að tjá sig á opinberum vett-
vangi og hvort sem þeir hafa rétt
fyrir sér eða ekki er það ólíkt
mennilegri kostur en að veðja á
pilsfald sýningarstjóra.
Daði telst einnig hafa hinar list-
rænu fijóhirslur í lagi og eys af
þeim af krafti svo sem athafnir
hans á sýningavettvangi eru til
Brau^
o g
Venusar
vitnis um. Kala Daða til nýlista
má að hluta rekja til þess, að hinn
menntunarlegi grundvöllur hans er
sóttur á vettvanginn og það hefur
tekið hann tíma að fóta sig á sviði
málverksins, þar sem hann telst
að mestu sjálflærður. Hann hefur
því verið nokkuð brokkgengur og
óstýrilátur á dúkum sínum lengi
og þannig hefur verið erfitt að rýna
í sumar framkvæmdir hans og ekki
gerst átakalaust, því hér skipti öllu
að leita ekki málamiðlana. Mál-
aranum hefur á köflum ekki liðið
of vel á síðustu tímum og menn
hafa haft eftir honum yfirlýsingar
eins og „að nú væri best að leggja
frá sér pentskúfinn og hefja smíð-
arnar,“ en Daði mun útlærður tré-
smiður.
Sem betur fer voru þetta bara
léttvæg skilaboð úr háknum, því
„þolinmæði þrautir vinnur allar,“
eins og Giovanni Boltraffio, læri-
sveinn Leonardo da Vinci, orðaði
það eitt sinn. Sýning Daða í nýjum
húsakynnum listhússins Borg telst
í stuttu máli tvímælalaust
hin markverðasta fram að
þessu. Vinnubrögðin hafa
þróast til muna og einkum
sér þess stað i vatnslita-
myndunum en þar er hann
í mikilli sókn. Nú galdrar
listamaðurinn fram tækni-
brögð sem eru eins og hann
orðar það sjálfur, ávöxtur
persónulegrar reynslu. Þar
kemur fram sá léttleiki sem
maður hefur lengi fundið á
sér að hann ætti í viðureign
við, en með misjöfnum ár-
angri. Þetta staðfesta
myndir eins og „í góðum
byr“ (20), „Samfella" (41),
„Vin“ (47), Ljóð fyrir
brauð“ (48), „Snúið hjarta“
(50) og hin sérkennilega
mynd „Svartur Venus“ (51).
Allt eru þetta tilfansanir
sem runnið hafa úr pensli manns
sem verður að telja einn af færustu
vantslitamálurum þjóðarinnar er
svo er komið.
Þótt olíumyndirnar séu þyngri
og naumast jafn markvissar eru í
þeim fjari vel málaðar einingar, svo
sem „I .norðurljósi“ (4), „Vetrar-
morgunn einhyrnings" (86) og „í
nýju ljósi“ (10). Listamaðurinn
mætir nú mun agaðri til leiks og
það er styrkur hans og veitir honum
möguleika til aukins frelsis og jarð-
tengdari vinnubragða.
Bragi Ásgeirsson
AÐALFUNDUR Félags íslenskra
leikara var haldinn mánudaginn
26. febrúar síðastliðinn í Rúg-
brauðsgerðinni. I nýjum lögum
félagsins segir að hægt sé að
kjósa heiðursfélaga, þótt viðkom-
andi sé ekki félagsbundinn.
„Það þótti vel við hæfi að fyrsti
heiðursfélagi FÍL, sem ekki er
félagsmaður, yrði frú Vigdís
Finnbogadóttir. Fundarmenn
sýndu hug sinn með því að fagna
nýjum heiðursfélaga með lófa-
klappi.
Mánudaginn 20. maí síðastlið-
inn (á mánudögum eru fríkvöld
leikara) hélt stjórnin frú Vigdísi
hóf í húsi félagsins að Lindar-
götu 6 og var henni afhentur
heiðursskjöldur þar sem á eru
letruð þessi orð: „Vigdís Finn-
bogadóttir hefur verið kjörin
heiðursfélagi Félags íslenskra
leikara í viðurkenningarskyni
fyrir vel unnin störf í þágu leik-
listarinnar. Á þann hátt vottar
félagið þér þakkir og virðingu.
Félag íslenskra leikara."
Þeir sem voru viðstaddir af-
hendinguna voru auk frú Vigdís-
. ar Finnbogadóttur, formaður og
stjórnarmeðlimir félagsins, fyrr-
verandi formenn þess og heiðurs-
félagarnir, þeir Bessi Bjarnason,
Gísli Alfreðsson og Klemens
Jónsson,“ segir í frétt frá FÍL.
/"*“**..J
æk
Ékmmsam i
9
„VETRARMORGUNN Einhyrnings",
olía á striga 1966.
Verð:
limwoew
Fullorðinst.: XS-XXXL
IfáteiHMi iMa*
Vind og vatnsheldír
Verð:
Stærðir:4-8 3.990.- £
10-14 4.49Ö.- \
s-xxl 5.480.-
Stakar buxur Dökkbláar:
barnastærðir 2.490.-
tullorðinstærðir 2.990.-
5% st|fr. afsláttur - sendum í póstkröfu!
Erum flutt í Nóatún 17
(Nóatúnsbúðin)
»hummél’S
SP0RTBÚÐIN
Nóatúni 17 sími 511 3555
Bamast.: 2-14 ara