Morgunblaðið - 22.05.1996, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 22.05.1996, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ1996 27 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FYLGJA ÞARF UPPLÝ SIN G ALÖG- UM EFTIR UPPLÝSINGALÖGIN, sem Alþingi samþykkti fyrr í vikunni, eru þörf og tímabær löggjöf. Lög um al- mannaaðgang að stjórnsýslunni hefur lengi skort hér á landi. Fyrst var flutt þingsályktunartillaga um upplýs- ingaskyldu stjórnvalda á Alþingi árið 1969 og fyrsta frumvarpið var flutt þremur árum síðar. Frumvörpin urðu fleiri og alls dagaði fjögur uppi á þingi. Það er því fyrst nú, 27 árum eftir að umræður um þessi mál hófust hér að ráði, að lög um aðgang almenn- ings að upplýsingum úr stjórnkerfinu eru sett. Ástæðan er ekki sú að nokkur stjórnmálaflokkur hafi beinlínis lýst andstöðu sinni við þörf á slíkum lögum, heldur miklu fremur það sinnu- og skeytingarleysi um vönduð vinnu- brögð í stjórnsýslunni, sem því miður hefur ríkt lengi á íslandi. Þetta viðhorf hefur reyndar verið að breytast á undan- förnum árum. Mikil framför varð með setningu stjórn- sýslulaganna árið 1993, þar sem í fyrsta sinn voru sett- ar almennar reglur um aðgang aðila einstakra mála að gögnum stjórnsýslunnar. Það er hins vegar ekki fyrr en nú, að hin almenna meginregla um skyldu stjórnvalda um að veita öllum almenningi aðgang að gögnum stjórn- sýslunnar, með þeim takmörkunum sem eðlilegar verða að teljast til að vernda einkalíf manna eða öryggi ríkis- ins, er lögfest. Viðhorfsbreytingin í stjórnsýslunni er þó engan veginn fullkomin þótt lögin hafi verið sett. Nú þarf að fylgja þeim eftir og tryggja að farið verði eftir þeim. Það er til dæmis næsta víst að mörgum ríkisstofnunum og sveit- arfélögum mun veitast erfitt í fyrstu að uppfylla ákvæði nýju laganna um skráningu og varðveizlu upplýsinga, vegna þess að þau mál hafa verið í ólestri áratugum saman. Fagmannleg skjalavarzla er hins vegar alger forsenda þess að upplýsingarétturinn komi almenningi að gagni og sjá verður til þess að þessi mál komist í lag á sem skemmstum tíma. Þegar stjórnsýslúlögin voru sett fyrir þremur árum fylgdi forsætisráðuneytið þeim eftir með kynningar- átaki, bæði í opinberum stofnunum og meðal almenn- ings. Á vegum ráðuneytisins var gefið út ítarlegt skýr- ingarit með lögunum og aðgengiiegur upplýsingabækl- ingur fyrir almenning. Mikilvægt er að sami háttur verði nú hafður á; að stofnunum stjórnsýslunnar verði gert ljóst hvað til þeirra friðar heyrir og að almenningur verði vel upplýstur um rétt sinn gagnvart stjórnvöldum. SÍLDARS AMNIN GUR SANNAR GILDISITT NORSK-íslenzka síldin hefur á vorgöngu sinni farið mun hraðar yfir en menn bjuggust við. Síldin fór inn í norsku lögsöguna við Jan Mayen um það bil mán- uði fyrr en búizt hafði verið við, miðað við hegðun henn- ar undanfarin ár. Gönguhraði síldarinnar kom norska embættiskerfinu þannig í opna skjöldu og voru reglur um veiðar ís- lenzkra skipa í lögsögunni við Jan Mayen ekki tilbúnar þegar íslenzki síldarflotinn hugðist elta gönguna þang- að. Nú hefur hins vegar verið gengið frá því máli. Þetta sýnir hversu skynsamlegt það var af íslenzkum stjórnvöldum að semja um veiðar síldarinnar við ná- grannaríkin, þrátt fyrir að fyrir vikið féllust þau á minni kvóta en ísland hafði áður tekið sér. Hefði ekki verið samið við Noreg og Rússland hefði síldarflotinn getað misst síldina inn á Jan Mayen-svæðið og átt hálfan kvóta sinn eftir. Ákvæði síldarsamningsins um gagnkvæmar veiðiheim- ildir, sem sumir urðu til þess að gagnrýna, koma íslenzk- um hagsmunaaðilum þess vegna mjög til góða nú. Ekki er á vísan að róa þar sem síldin er, hún er flökkustofn og getur greinilega breytt hegðun sinni frá ári til árs. Þess vegna er skynsamlegast að semja við nágrannarík- in um síldveiðarnar og tryggja gagnkvæman aðgang síld- veiðiríkjanna hvers að annars lögsögu. SLATURHUS Gæðastj omun ábótavant af INNLENDUM VETTVANGI KRÖFUR um öryggi í mat- vælaframléiðslu hafa aukist á undanförnum árum. Eftirlitskerfum hefur verið komið upp í fiskvinnslu og kjötvinnslu. í kjötiðnaðinum hefur slátrunin sjálf orðið eftir i þróuninni, ekki hafa verið gerðar sömu kröfur til hennar og annarra þátta. Þess vegna hafa margvísleg vandamál komið upp. Á síðasta ári skipaði Framleiðslu- ráð landbúnaðarins starfshóp til •að skoða hvað gera þyrfti til þess að koma slátrun, meðferð kjöts og vinnslu í það horf að afurðir full- nægðu kröfum sem gerðar væru á mörkuðum hérlendis og erlendis. Ákvörðun Framleiðsluráðs um að láta skoða þessi mál þá var komin til að gefnum tilefnum, að því er fram kemur í skýrslu hópsins, „því kjöti sem flutt var út hefur verið hafnað í tolli vegna hára og óhrein- inda. Einnig er það staðreynd, að innlend kjötvinnslufyrirtæki hafa hafnað viðskiptum við einstök sláturhús, vegna þess að þau upp- fylla ekki þær kröfur, sem kaupand- inn hefur gert um hreinleika vörunn- ar.“ Gæðavandamál við útflutning Vegna aukinna matarsýkinga í Evrópu o g Bandaríkjunum hafa kröf- ur um gæði afurðanna aukist. Er nú aðeins eitt sláturhús hér á landi sem hefur leyfi til útflutnings á báða þessa markaði. Annað hús hefur leyfi til að framleiða fyrir Ameríkumarkað og tvö mega slátra fyrir Evrópu- markað. Fram kom í grein í Morgunblaðinu í lok síðasta árs að upp höfðu komið gæðavandamál við útflutning á frosnu lambakjöti til Bandaríkjanna og fersku til Evrópu. Kjöti sem fór til Bandaríkjanna var illa pakkað svo plastpakkningar opnuðust og kjöt skemmdist. I einhveijum pakkning- um fannst hár á kjötinu. Hluta af því kjöti sem fór til Belgíu var skilað heim aftur vegna þess að það aflitað- ist, að talið var vegna rangrar með- höndlunar eða umbúða. Auknar kröfur innlendra kaupenda Öll sláturhúsin mega framleiða kjöt fyrir íslenska markaðinn. Finnst mörgum að sömu kröfur ætti að gera til framleiðslunnar, hvort sem kjötið fer á markað innanlands eða erlendis, enda sé heimamarkaðurinn mun mikilvægari fyrir atvinnugrein- ina en sá erlendi. Þess ber að geta að kaupendur hér, það er kjöt- vinnslufyrirtæki og stór- -------- eldhús, hafa hert kröfur sínar á undanförnum árum. Á þetta ekki síst við um stóra kjötkaupendur. Ef eitthvert frávik er frá kröfum er strax tekið á vandamálinu og reynt að bæta úr því í samvinnu við framleiðendur. Stundum er vör- unni skilað og dæmi eru um að við- skiptum hafi verið hætt við slátur- hús vegna endurtekinna. vandamála. Slátrunin hefur orðið á eftir í þróuninni í gæðastjórnun í matvælaframleiðslu og hefur það skapað ýmis vandamál. Er nú verið að undirbúa útgáfu reglna um innra eftirlit í slát- urhúsum. Matvælaeftirlitið í landinu heyrir undir þijú ráðuneyti og mismunandi eftirlits- stofnanir annast það, eftir því hvort um er . - - — að ræða físk, Iqöt eða kjötvinnslu. I grein Helga Bjamasonar kemur fram að ræddar hafa verið hugmyndir um að samræma allt eftirlitið og spara ríkinu útgjöld með því að fela skoðunarstofum vinnuna. Áhættustaðir í kjötferlinu Streita Streita |l. HJÁBÓNDA Áhættuþáttur j Umhverfi Vatnsgæði Hiti og loftleyti Raki Geislun Húsakostur Rými Lyfjanotkun I fóðurrækt Við lækningar í fóðri Einangrun Loftræsting Hiti Raki Básar/síur Lýsing Gasstyrkur Gjafatíðni Brynning Frelsi Hreyfing Fóðrun Smölun Rekstur Magn (vanfóðrun) Gæði (fóðurgildi) Efnaþarfir Efnanotkun Lyfjaanotkun Ofnotkun Ofnotkun Ofnotkun Aldur Þungi Hold Ástand/heilbrigði Óhreinindi 2. í SLÁTURHÚSI Áhættuþáttur Rétt Biðtími Meðferð siáturdýra Aflífun n Stunga Fyrirrista /1§\ Fláning Innanúrtaka Sögun Snyrting Þvottur Gæðamat^j Vigtun Kæling Pökkun Merking Frysting Óhreinindi/hár Gormenguní/spörð Ónóg/of hröð Ónóg/of hæg 3. í VINNSLUSTO0 Áhættuþáttur Kæling Ónóg Stykkjun/kjötv. Röng, óhreinindi Vigtun innihaldsefna Hökkun Försun Söltun Hitun Súrsun Reyking Pökkun Merking Geymsla Ófullnægjandi Röng Ónóg kæling/frysting 4. HJÁ SMÁSALA/STORELDHÚSI Kæling Ónóg Geymsla Umfram geymsluþol Óhreinindi Umgengni 5. HJÁ NEYTANDA Áhættuþáttur Geymsla Matreiösla , Ónóg kæling/tfýsfing Mengun 6. HJA FLUTNINGSAÐILUM Farartæki Þéttleiki Vegalengd Streita Hitastig Hreinlæti Krossmengun Mfnni kröfur á innanlands- markaöi Jón Björnsson, framkvæmdastjóri Ferskra kjötvara hf. sem vinna m.a. mikið fyrir verslanir Hagkaups og -------- Bónuss, segir að það geti komið fyrir tvisvar til þrisvar sinnum í mánuði að fyrirtækið skili kjöti. Geta ýmsar ástæður legið til þess. Of lítil kæling, aðstæður á flutningstæki Jón segir mikla fjármuni í sýrustig, og fleira. húfi, þegar til dæmis heilum bílfarmi af kjöti er skilað, og því reyni menn að gæta sín næst. Hann segir að það hafi komið einu sinni fyrir að við- skiptum hafí verið hætt við framleið- anda. Valgerður Hildibrandsdóttir, for- stöðumaður eldhúsa Ríkisspítalanna, segir að ef kjöt sé ekki afgreitt í sam- ræmi við verklýsingu sé tekið á vandamálinu strax í samvinnu við framleiðandann. Harkan í aðgerðum fer eftirþví hvað vandamálið er alvar- legt og stigmagnast. Ef það kemur til dæmis ítrekað fyrir að hitastigið í kjötinu er yfir fjórar gráður er kjötinu skilað. Ríkisspítalar hafa einnig hætt viðskiptum við fyrirtæki sem ekki hafa staðið sig, að sögn Valgerðar. Á vegum Ferskra kjötvara og eld- húsa Ríkisspítalanna eru kjötvinnslur og sláturhús tekin út, áður en við- skipti komast á og eftirlit haft á meðan á þeim stendur. Rannsókna- stofnun landbúnaðarins annast eftir- lit og mælingar fyrir eldhús Ríkis- spítalanna. Guðjón Þorkelsson, deild- arstjóri matvæladeildar RALA, segir að flest vandamálin snerti þætti sem hafi áhrif á geymsluþol vörunnar, ekki sjúkdómssmitandi bakteríur. Jón Gíslason, forstöðumaður mat- væla- og heilbrigðissviðs Hollustu- vemdar ríkisins, telur að hér séu til- tölulega góð matvæli á boðstólum. Aðstaða fyrirtækjanna sé góð, þótt auðvitað megi ýmislegt bæta. Stífari kröfur til fiskvinnslu en kjötframleiðslu Mun stífari kröfur hafa verið gerð- ar til fiskvinnslu en kjötvinnslu. Kemur það vafalaust til af því hvað fiskiðnaðurinn er háður kröfuhörðum kaupendum á mörkuðum sínum er- lendis. Þá hafa verið gerðar meiri kröfur til sláturhúsa sem vinna vörur til útflutnings en þeirra sem vinna vörur fyrir innanlandsmarkað, eins og fram kemur hér að framan. Marg- ir telja tima til kominn að breyta þessu. Á árinu 1994 var gefin út reglugerð sem skyldaði matvælafyr- irtæki til að starfrækja innra eftirlit til að tryggja gæði, öryggi og holl- ustu matvæla. Eftirlitið átti að vera komið á fyrir miðjan desember sl. og taka mið af svokölluðu GÁMES- eftirlitskerfi (greining áhættuþátta og mikilvægra eftirlitsstaða). Hefur verið unnið að framkvæmd regln- anna en mörg fyrirtæki hafa reyndar fengið fresti. Reglur þessar ná ekki til slátur- húsanna þannig að hráefnisþáttur- inn hefur að einhveiju leyti setið eftir. Hins vegar hafa mörg þeirra sláturhúsa sem jafnframt reka kjöt- vinnslu látið eftirlitskerfið taka yfir alian framleiðsluferilinn. Afurðasal- an Borgarnesi hf. er eitt þeirra. Fyrir ári byijaði fyrirtækið á því að koma upp GAMES-eftirlitskerfí fyr- ir allan framleiðsluferilinn. ívar Ragnarsson framkvæmdastjóri telur fáránlegt að skilja sláturhúsin eftir þegar gerðar eru kröfur til fram- leiðslunnar. Hann segir að kröfur kaupenda séu sífellt að aukast og segir að það sé spurning um að falla eða halda velli í samkeppninni að taka upp trúverðugt innra eftirlit. Telur ívar að þessi vinna muni einn- ig skila sér til baka í minni rýrnun og vonandi einnig hærra verði afurð- anna í framtíðinni. Spjótin beinast að bændum Auknar kröfur kaupenda, jafnt erlendis sem innanlands, hafa aukið þrýsting á kjötvinnslurnar. Auknar kröfur þar kalla á öruggara hráefni frá sláturhúsunum. Skipuleg gæða- stjórnun í sláturhúsunum gerir loks kröfur til bænda. Þannig leiðir eitt af öðru og skörunin er mikil. ívar Ragnarsson í Borgarnesi segir að gæðastjóri fyrirtækisins vinni að endurbótum á þeim þátt- ---------- um sem snúa beint að bændum í samvinnu við þá. í því sambandi má nefna kröfur um að grip- irnir komi hreinir til slátr- unar og meðferð þeirra heima á bæjunum og í flutningi sé ekki streituvaldandi. Það veldur vandræðum hvað slát- urhúsin í landinu eru mörg og lítil. Minni húsin hafa síður fjárhagslegt Morgunblaðið/Ásdls STÓRIR kjötkaupendur hafa aukið eftirlit með því hráefni sem þeir taka við og skila kjötinu miskunn- arlaust til baka ef það er ekki nákvæmlega eins og samið hafði verið um. bolmagn til að vinna að gæðastjórn- un á fullnægjandi hátt. Sumir telja að einfaldasta aðferðin til að fækka sláturhúsunum í landinu, eins og lengi hefur verið á dagskrá, sé að herða kröfur um aðbúnað og stjórn- un. Guðjón Þorkelsson segir að gæðin fari ekki eftir stærð húsanna, þau minni geti staðið sig eins vel og þau stærri. Þau þurfi hins vegar að sameinast um gæðaeftirlit. „Mestu máli skiptir að hafa vel þjálf- að starfsfólk með rétta hugarfarið," segir Guðjón. Þrifnaði og aðbúnaði ábótavant Léleg aðstaða og hugsunarháttur stjórnenda eru talin ráða því hvemig sláturhúsunum gengur að skila af sér vöru í samræmi við óskir kröfu- harðra kjötkaupenda. í sumum hús- unum er ekki almennileg kæliað- staða, og þá fer kælingin meira eftir veðrinu úti en kröfum kaupenda. Kælingin ræður miklu um geymslu- möguleika kjöts, eins og kunnugt er. Vegna gæðastjórnunar I Afurðasöl- unni í Borgamesi var komið þar upp tölvustýrðri kælingu á kjöti eftir slátmn og er það fyrsta fyrirtækið sem það gerir. Ferskar kjötvörar hf. hafa í sumum tilvikum komið upp síritandi hitamæli í kjötgeymslum sláturhúsanna til að tryggja hags- muni sína. Nefnd eru dæmi um afleit kjöt- vinnsluhús við sláturhús, hús sem standast ekki kröfur sem almennt eru gerðar til matvælaframleiðslu en lengi hafi verið rekin á undanþág- um. Ýmislegt fleira er nefnt, varð- andi þrifnað og aðbúnað. Dæmi eru um ópússuð gólf inni í kjötvinnslum og útihurðir sem ekki halda mein- dýrum. Nefnt er dæmi um að hjól- barðar séu geymdir í miðju slátur- húsi. Allvíða er sláturútgangur geymdur I opnum gámum utandyra og sums staðar er kjötúrgangur geymdur við staði þar sem af- greiðsla á kjöti fer fram. Sums stað- ar er fiskur unninn fyrir innanlands- markað á sama stað og kjöt. Sigurður Örn Hansson, dýralækn- ir hjá embætti yfirdýralæknis, segir að kjötvinnslur sláturhúsanna séu vissulega misjafnar, eins og þessi starfsemi almennt í landinu. Margt megi bæta. Hann hafnar því hins vegar alfarið að ástandið í slátur- húsunum sé verra en í sérhæfðum kjötvinnslum. Segir Sigurður að héraðsdýralæknar taki út rekstur sláturhúsanna og kjötvinnslur þeirra ---------- 6g geri kröfur um úrbæt- ur. Það sé síðan alltaf spurning hvað eigi að ganga langt í eftirliti og við hvaða aðstæður beri að loka fyrirtækjum. Spurning um að falla eða halda velli Unnið að tillögum um innra eftirlit Starfshópur um áhættumat í kjöt- ferlinum, sem fyrr er nefndur, lagði meðal annars til að lögskipað yrði innra eftirlit í sláturhúsum frá 1. september næstkomandi og að ein- staklingsmerkingar gripa yrðu lög- skipaðar sem þáttur i gæðastjórnun í landbúnaði. Síðan hefur nokkuð verið að þessu unnið á vegum Bændasamtakanna og í frumvarpi til laga um sláturdýr og sláturafurð- ir er gert ráð fyrir því að eftirlit með gripunum færist heim á búin. Einnig er gert ráð fyrir heimild til að setja reglur um innra eftirlit í vinnslustöðvum. Á vegum yfirdýra- læknis er nú þegar unnið að setn- ingu samræmdra reglna um innra eftirlit í sláturhúsum og segir Sig- urður Örn Hansson að reglurnar verði gefnar út strax og þær verða tilbúnar, en ekki beðið eftir laga- breytingunni. Reglurnar munu ná yfir alla kjötframleiðslu, það er jafnt slátrun sauðfjár, stórgripa, svína og alifugla. Sigurður telur ekki að nein sérstök vandamál hafí kallað á þessar nýju reglur, heldur hafi gæðaeftirlit al- mennt verið að færast yfír í fyrir- byggjandi aðgerðir í stað skoðunar á tilbúnum afurðum. Sigurður segir að nýju reglurnar byggist í meginat- riðum á þeirri skráningu sem farið hafi fram í útflutningssláturhúsun- um undanfarin ár. Ekki eru gerðar kröfur um að byggt verði á GAMES- eftirlitskerfí en héraðsdýralæknarnir munu hafa eftirlit með framkvæmd- inni, eins og verið hefur. Telur Sig- urður Örn að útkoman verði sú sama og í áhættugreiningu kjötvinnsln- anna. Starfsfhópur Fram- ---------------- leiðsluráðs lagði til að nú- verandi eftirlitskerfi yrðu samræmd og gjaldskrár endurskoðaðar, væntan- lega með það í huga að halda kostnaði í lágmarki. Starfs- hópurinn vildi einnig að opinbert kjötmat yrði fellt niður og gæðamál- in þannig alfarið færð á ábyrgð slát- urhússins. Kjötmatsmenn eru nú starfsmenn ríkisins og er innheimt gjald af hverju kjötkílói til þess að standa undir kostnaðinum. Það felst í tillögum starfshópsins að kjötmatið yrði hluti af innra eftirliti slátur- hússins. Þrískipt matvælaeftirlit Matvælin og eftirlit með fram- leiðslu þeirra heyrir undir þrjú ráðu- neyti. Fiskurinn er að mestum hluta undir sjávarútvegsráðuneyti, kjöt- framleiðsla undir landbúnaðarráðu- neyti og kjötvinnsla, stóreldhús og verslun heyrir undir umhverfísráðu- neyti. Síðan em óteljandi stofnanir sem annast eftirlitið: Fiskistofa, yfir- dýralæknir og héraðsdýralæknar, Hollustuvernd ríkisins og heilbrigðis- eftirlit sveitarfélaga. Nóg er af gráum svæðum. Þannig hefur ekki verið skorið úr um það hvort fram- leiðsla á fiski fyrir innanlandsmarkað falli undir sjávarútveg eða heilbrigði- seftirlit. Kjötvinnslur sláturhúsa heyra undir landbúnað en ekki al- mennt heilbrigðiseftirlit, ólíkt sér- hæfðum kjötvinnslum. Vegna þessa eru ekki gerðar sömu kröfur til allra þátta matvælaframleiðslunnar eins og vikið hefur verið að hér að framan. Einnig er skörun milli ríkisins og sveitarfélaga. Þannig annast heil- brigðiseftirlit sveitarfélaganna allt almennt heilbrigðiseftirlit, nema þá þætti sem ríkisstofnanirnar Fiski- stofa og embætti yfirdýralæknis sjá um. Þær spurningar era áleitnar hvort ekki sé eðlilegt að samræma eftirlit- ið og einfalda, meðal annars með því að færa það allt á sömu hendi. Guð- jón Þorkelsson hjá Rannsóknastofn- un landbúnaðarins tekur undir gagn- rýni um þrískiptingu matvælaeftir- litsins. Það hljóti að vera eðlilegast að sama kerfið nái yfir allt sviðið. Jón Gfslason hjá Hollustuvernd telur þörf á að endurskoða skipulagið, til þess að þekking og starfskraftar nýtist sem best. Hann bendir hins vegar á að ákveðin samvinna sé með aðilum og þau mál sem skarist séu rædd í matvælaráði. Sigurður Örn Hansson dýralæknir telur ekki ástæðu til að hafa nákvæmlega sama kerfi í sláturhúsunum og annarri matvælavinnslu. Segir að fyrirkomu- lagið hér sé svipað því sem almennt tíðkist í nágrannalöndunum. Samræming í skoðunarstofum Vegna undirbúnings fjárlaga 1997 fór starfshópur á vegum ráðherra- nefndar um ríkisfjármál yfir rann- sókna- og eftirlitsstarfsemina í land- inu. Hópurinn lagði meðal annars til að athugað yrði með sameiningu matvælaeftirlits. Formaður starfs- hópsins, Snævar Guðmundsson deildarstjóri í Hagsýslu ríkisins, seg- ir að með því móti mætti spara út- gjöld hjá ríkinu en það var einmitt verkefni hópsins að finna leiðir til þess að ná niður fjárlagahallanum. Tillögurnar eru nú til meðferðar hjá ráðherrunum sem liður í miklu stærra máli. Snævar telur að það fyrirkomulag sem er á eftirliti með fiskvinnslu gæti orðið fyrirmyndin að nýju sam- einuðu kerfi. Skoðunarstofurnar gætu bætt við sig eftirliti með slátur- húsum og kjötvinnslum og það væri vel athugandi að þær tækju einnig að sér almennt heilbrigðiseftirlit og vinnueftirlit. Skoðunarstofurnar eru j flestar hlutafélög en Snævar segb; að athuga þurfí með eignarhaldið þannig að þær verði óháðar hags- munaaðilum. Þær innheimta þóknun fyrir vinnu sína. Með því að fara þessa leið yrði hægt að komast fram hjá þeim múr- um sem skilja að atvinnugreinarnar í landinu. Ekki þyrfti að fara í það viðkvæma mál að taka til að mynda eftirlit með slátrun undan landbún- aðarráðuneyti og sameina öðru mat- --------- vælaeftirliti undir um- hverfisráðuneyti, eins og í fljótu bragði virðist eðlþ legt. Ríkið og hugsanlega einnig sveitarfélögin fælu einkafyrirtækjum úti um landið framkvæmd eftirlitsins og kæmu kostnaðinum yfir á atvinnu- greinarnar sjálfar. Núverandi eftir- litsstofnanir ríkisins yrðu síðan að minni stjórnsýslustofnunum í við- komandi ráðuneytum. Opinbert kjötmat verði fellt niður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.