Morgunblaðið - 22.05.1996, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMIIMGAR
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ1996 37
HALLGRIMUR HAF-
STEINN EGILSSON
+ Hallgrímur Hafsteinn Egils-
son, garðyrkjubóndi í
Hveragerði, fæddist á Smjör-
dalakoti í Sandvikurhreppi í
Flóa 13. júlí 1919. Hann lést 7.
maí síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Hveragerðis-
kirkju 15. maí.
Þegar Garðyrkjuskóli ríkisins að
Reykjum tók til starfa fyrsta sumar-
dag 1939, innrituðust til náms fímm
nemenda Bjarna Bjarnasonar skóla-
stjóra á Laugavatni. Einn þeirra var
Hallgrímur H. Egilsson.
Er dagar liðu og kynni tókust
smám saman meðal nemenda skólans
varð mér nokkur forvitni að heyra
um fyrri daga Hallgríms og rætur
hans í bemsku.
Hann var fæddur í Sandvíkur-
hreppi, en ólst upp í Reykjahjáleigu í
Ölfusi. Tíu ára að aldri missir Hall-
grímur föður sinn Egil Jónsson. Upp
frá því mun Hallgrímur hafa bytjað
að vinna og styðja móður sína, ekkj-
una Svanborgu Eyjólfsdóttur.
Á Reykjabúinu í Ölfusi vann Hall-
grímur venjuleg bústörf eftir því sem
aldur leyfði um getu. Þar nam hann
fyrstu handtök sín í garðyrkju, sem
átti eftir að verða hans lífsstarf. Sá
er leiðbeindi fyrstu skrefin á garð-
yrkjubrautinni var Magnús Kristjáns-
son, sem þekktur var fyrir vandvirkni.
Þrátt fyrir að lífsbaráttan væri
hörð á þessum árum ámm blundaði
þrá til frekara náms með Hallgrími.
Hann lauk prófí frá Héraðsskólanum
á Laugarvatni 1935 og Garðyrkju-
skólanum á Reykjum 1941. Þegar frá
em talin árin á heilsuhælisbúinu á
Reykjum starfaði hann í gróðrarstöð-
inni Fagrahvammi í fjögur ár, þar
til hann settist í Garðyrkjuskólann.
Nú gerast heldur betur ævintýrin.
Nemandi Bjarna og Unnsteins bygg-
ir garðyrkjubýli, sem hann kallaði
Grímsstaði. Reisir Hallgrímur gróð-
urhús sín og reiti árið 1946. I hálfa
öld rekur hann garðyrkjustöð sína
með miklum dugnaði og hagsýni.
Hann jók smátt og smátt umsvif sín.
Gaf út vandaðar skrár um plöntur
þær sem hann ræktaði og hafði á
boðstólum.
Við, skólasystkini Hallgríms
kynntumst dugnaði hans og ósér-
hlífni. Hann var ýmsu leyti betur
undirbúinn til ræktunarstarfa en flest
okkar, eins og fyrr er að vikið. Hann
varð snemma að vinna fyrir sér.
Gæfa hans varð sjálfsagt kynnin við
Magnús í búinu á Reykjum, skólana
tvo og eiginkonuna Sigurlaugu Guð-
mundsdóttur. Henni kvæntist Hall-
grímur árið 1950. Hún studdi mann
sinn í umsvifum hans uns yfir lauk.
Við skólasystkin úr fyrsta nemenda-
hópi Reykja kveðjum nú enn einn
skólabróður. Minning er um skap-
fastan mann með óvenjulegt starfs-
þrek. Hann virtist stundum nokkuð
alvörugefínn, en stutt var í kímnina
og brosið.
Hallgrímur lét sig mjög varða hag
sveitarfélags sín. Tugum manna
veitti hann atvinnu um árabil. Hann
studdi Sjálfstæðisflokkinn í landsmál-
um og var virkur rtieðlimur Lionsfé-
lagsins.
Mikið vatn er runnið til sjávar síð-
an Gísli Bjömsson frá Elliðavatni
reisti fyrsta húsið með hverahita í
Árnessýslu árið 1922. „Hvítu kolin“
hafa síðan verið notuð til hitunar
gróðurhúsa víða í Ámesþingi, auk
híbýla manna. Hailgrímur Egilsson
lét ekki bið á verða að hagnýta sér
heita vatnið.
Af Hamrinum í Hveragerði er víð-
sýnt. Á björtum vordegi bregður birtu
yfír láglendið til hafs og Reykjafjallið
veitir skjól í norðankulinu. Áð baki
er Heiðin og Henglafjöll og dalir. Á
Hamrinum hafa skógræktarmenn
komið upp tijálundum. Hallgrímur
var einn þeirra vormanna.
Ekkju Hallgríms og börnum em
færðar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hans.
Halldór O. Jónsson.
Endurvinnsluiðnaður
á íslandi
Hvernig er hægt að auka
endurnýtingu úrgangs?
Ráðstefna á vegum umhverfisráðuneytisins
og Sambands íslenskra sveitarfélag verður
haldin í Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðinni)
þriðjudaginn 28. maí kl. 13.00-17.30.
Dagskrá:
13.10 Ávarp ráðherra og setning
Guðmundur Bjarnason, umhverfisráð-
herra.
13.20 Ávarp
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
13.25 Stefnumörkun stjórnvalda og fyrir-
sjáanlegar breytingar á reglum
Ingimar Sigurðsson, umhverfis-
ráðuneyti,
Sigurbjörg Sæmundsdóttir, umhverf-
isráðuneyti.
14.00 Sjónarmið sveitarfélaga
Ingi Arason, hreinsunardeild Reykja-
víkurborgar,
Sveinn Jónsson, Árskógshreppur,
Ögmundur Einarsson, Sorpa bs.
14.45 Iðn- og þjónustufyrirtæki á sviði
endurvinnslu
Þórarinn Kristjánsson, Gúmmí-
vinnslan hf. á Akureyri,
Gunnar Örn Harðarson, Gáma-
þjónustan hf.,
Eiríkur Jónsson, Endurvinnslan hf.
15.30 Kaffi
15.45 Umhverfisstjórnun og endurvinnsla
Helga Jóhanna Bjarnadóttir,
Iðntæknistofnun íslands.
16.00 Verslunin
Óskar Magnússon, Hagkaup hf.
16.15 Iðnaðurinn
Örn Jóhannsson, Morgunblaðið.
16.40 Umræður.
17.15. Samantekt fundarstjóra - ráð-
stefnuslit.
Ráðstefnustjóri: Magnús Jóhannesson,
ráðuneytisstjóri.
Skráning þátttöku er hjá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, í síma 581 3711 eða bréfsíma
568 7866. Þátttökugjald er kr. 2.000.
Ráðstefnan er öllum opin.
I
I
I
Flutningur
hverfaskrifstofu
Starfsemi hverfaskrifstofu fjölskyldudeildar
Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar fyrir
Austurbæ, Árbæ og Grafarvog flytur frá
Síðumúla 39 fimmtudaginn 23. maí nk. og
verður af því tilefni lokuð þann dag.
Hverfaskrifstofan verður opnuð föstudaginn
24. maí á Suðurlandsbraut 32, 2. hæð.
Nýtt símanúmer er 588 3040. Bréfsími er
588 3041. Geymið auglýsinguna.
Mosfellsbær
Deiliskipulag
Tillaga að deiliskipulagi íbúðabyggðar við
Hjallahlíð í Mosfellsbæ verður til sýnis á bæjar-
skrifstofu Mosfellsbæjar frá og með miðviku-
deginum 22. maí 1996 til 20. júní 1996.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu berast
skriflega til Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar,
Hlégarði 270, Mosfellsbæ, fyrir 20. júní 1996.
Bæjartæknifræðingur Mosfellsbæjar.
TIL SÖLU
Á þögn við á þingum?
Til dæmis á Alþingi um alvarlega bresti
stjórnskipunar og stjórnarfars? Getur þögn
um slíka þögn verið tæki launþega í kjarabar-
áttu? Bókin Skýrsla um samfélag upplýsir
um leyndarbréf Hæstaréttar og meint lög-
brot æðstu embættismanna. Útg.
Iðnaðarhúsnæði
60-110 fm iðnaðarhúsnæði á jarðhæð, með
innkeyrsludyrum, í Garðabæ eða nágrenni
óskast til kaups.
Upplýsingar um verð og staðsetningu sendist
til afgreiðslu Mbl., merktar: „I - 6855“.
Lager - iðnaðarhúsnæði
Til leigu er 200 fm lager- eða iðnaðarhús-
næði utarlega á Seltjarnarnesi. Stór inn-
keyrsluhurð. Kaffistofa og snyrtiherbergi er
í húsnæðinu. Næg bílastæði og greið leið inn
í miðbæ Reykjavíkur.
Upplýsingar í síma 511 4400.
Stýrimannaskólinn í Reykjavík
Skólaslit - innritun
Afhending prófskírteina og skólaslit Stýri-
mannaskólans í Reykjavík skólaárið 1995-
1996 verður í hátíðarsal Sjómannaskólans
föstudaginn 24. maí kl. 14.00.
Eldri nemendur og afmælisárgangar eru
boðnir sérstaklega velkomnir.
Innritun nýnema er til 10. júní nk.
Skólameistari.
Söngskólinn í Reykjavík
SKOLASLIT
og LOKATÓIMLEIKAR
verða í (slensku óperunni fimmtudaginn 23. maí:
19:30 Skólaslit og afhending prófskírteina
20:30 Nemendatónleikar - Lokatónleikar
Aögangur á tónleikana er ókeypis og öllum heimill
Inntökuprót fara fram þriðjudaginn 4. júní næstkomandi.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans að Hverfisgötu 45.
sími 552-7366, þar sem allar upplýsingar eru veittar daglega frá kl. 10-17.
Skólastióri
__ "
SHICI auglýsmgar
Hörgshlíð 12
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Lofgjörð, bæn og biblíulestur
í kvöld kl. 20.00.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma í kvöld kl. 20.30 í
Kristniboössalnum. Sr. Sigurður
Pálsson flytur hugleiðingu og
segir frá starfi að biblíuþýðing-
um í Eþíópíu.
Allir velkomnir.
Fræðslumiðstöð
andlegrar vitundar
Skyggnilýsingafundur
Láru Höllu Snæfells
Lára Halla Snæfells miðill verður
með skyggnilýsingu fimmtudag-
inn 23. maí kl. 20.00 í Duggu-
vogi 12, 2. hæð (græna húsið á
móti Nýju sendibílastöðinni á
horni Dugguvogar og Sæbraut-
ar). Salurinn verður opnaður
kl. 19.30.
Allir hjartanlega velkomnir á
meðan húsrúm leyfir.
Miðar seldir við innganginn.
Dulheimar.
FERÐAFELAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Hvítasunnuferðir
Ferðafélagsins:
Jöklaferðir - gönguferðir -
fjölskylduferð f Þórsmörk
1.24.-27. maí: Öræfajökull. Gist
að Hofi í Öræfasveit. Farþegar
ath.: Undirbúningsfundur með
fararstjórum fimmtudag 23. maí
kl. 20.00 í Mörkinni 6.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, kl. 20 föstu-
dag.
2. 25.-27. maí: Snæfelisnes —
Snæfellsjökull. Fjölbreyttar
göngu- og skoðunarferðir, m.a.
á Jökulinn. Gist að Görðum i
Staðarsveit. Silungsveisla.
Sundlaug í nágrenni.
3. 25.-27. maí: Þórsmörk — til-
valin fjölskylduferð. Gönguferðir
um Mörkina. Gist i Skagfjörðs-
skála.
25.-27. maí: Fimmvörðuháls.
Gengið á laugardeginum yfir
Hálsinn (8 klst.). Gist í Skag-
fjörðsskála, Þórsmörk.
Brottför kl. 08.00 laugardag.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu F.Í., Mörkinni 6.
Miðvikudagskvöldið 22. maí
veröur fyrirlestur um ferðaút-
búnað í samkomusalnum í Mörk-
inni 6 og hefst hann kl. 20.00.
Kjörið tækifæri til þess að fræð-
ast um hentugan búnað í göngu-
ferðir sumarsins! Aðgangur
kr. 1.000 (fræöslurit innifalið).
Ferðafélag islands.