Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF • FORSETAKJÖR
I DAG
Kosningabarátt-
an - ómálefna-
legur sirkus
Frá Birgi Hermannssyni:
í ÞESSUM dálki laugardaginn 18.
maí síðastliðinn ritaði Kristinn Sig-
ursveinsson frá Hafnarfirði afar
rætna grein um hugsanlegt forseta-
framboð Jóns Baldvins Hannibals-
sonar, alþingismanns og fyrrver-
andi utanríkisráðherra. Lágkúran
kristallaðist skýrast í því að nefna
hvorki Jón Baldvin né konu hans
Bryndísi Schram á nafn, en veitast
að þeim með stóryrðum og dylgjum.
Kjaftasögur hafa alltaf gegnt miklu
hlutverki í forsetakosningum á ís-
landi, en nú virðist eiga að gera
þær að blaðamáli eins og hveija
aðra málefnalega umfjöllun um
raunverulega og líklega frambjóð-
endur. Slíkt ber ekki vott um mikla
virðingu fyrir embætti forseta ís-
lands.
Fáum stendur á sama um Jón
Baldvin og skoðanir hans. Flestir
bera þó virðingu fyrir stefnufestu
hans og víðtækri þekkingu jafnt á
- alþjóðamálum sem þjóðmálum inn-
anlands. Hann var utanríkisráð-
herra á miklum umbrotatímum í
heiminum og leiddi samningana um
evrópska efnahagssvæðið. EES var
ekki utanríkismál í hefðbundnum
skilningi, heldur snerist það öðrum
þræði um aðlögun íslensks samfé-
lags að háttum annarra Evrópu-
þjóða. Sem slíkt var EES því eitt
stærsta mál lýðveldistímans og hef-
ur nú þegar markað djúp spor í
íslenskt þjóðlíf. Nú þegar moldviðr-
inu í kringum það mál hefur slotað,
geta menn metið Jón Baldvin af
verkum sínum. Geta menn á siðustu
áratugum fundið afkastameiri ut-
anríkisráðherra? Það er að renna
upp fyrir æ fleirum, sérstaklega
ungu fólki, að Jón Baldvin er stjórn-
málamaður af þeirri stærðargráðu
að hans jafningjar eru vandfundir
hér á landi síðustu áratugi. Það
skal því engan undra að margir
hafi skorað á hann til að bjóða sig
fram til forseta lýðveldisins.
Ljótasti bletturinn á grein Krist-
ins er að sverta framgöngu Jóns
Baldvins i málefnum Eystrasalts-
ríkjanna. Kjaftasögum Kristins er
best að svara með nokkrum stað-
Ifcí'eyndum. Fyrir nokkrum vikum
kom í fréttum að Jón Baldvin
Hannibalsson hefði verið sæmdur
æðsta heiðursmerki forseta Eist-
lands, sem þeim einum hlotnast sem
fremstir stóðu í sjálfstæðisbaráttu
Eista undan oki kommúnismans.
Fyrir framan þinghúsið í Vilníus í
Litháen er sérstakur stöpull til heið-
urs íslandi sem reistur var af þakk-
látum huga fyrir frumkvæði og
kjark Jóns Baldvins, sem lagði þeim
lið á hættustundu, þegar aðrir litu
undan. Nýlega kom einnig í fréttum
að höfuðborg Litháens hefði kosið
Jón Baldvin heiðursborgara Vilníus-
ar, ásamt Ronald Reagan fyrrver-
andi Bandaríkjaforseta. Er ekki
meira að marka slíkan vitnisburð
en kjaftasögur úr Hafnarfirðinum?
Jóni Baldvin varð það á í fjár-
málaráðherratíð sinni að gefa sam-
starfsmanni sínum freyðivínsflösk-
ur af ráðherrarisnu í tilefni af af-
mæli. Þetta voru mistök. Jón Bald-
vin viðurkenndi þessi mistök, baðst
opinberlega afsökunar og endur-
greiddi reikninginn að fullu. Hann
var því maður að meiri. Almenning-
ur getur borið viðbrögð Jóns Bald-
vins við þessum mistökum saman
við mistök margra annarra ráðherra
fyrr og síðar.
Kristinn riíjar einnig upp mikið
fjölmiðlafár af meintu smygii Bryn-
dísar Schram á skinku um Keflavík-
urflugvöll. Staðreyndirnar í því
máli eru öllum kunnar sem vita
vilja. Kjötið var ekki eign Bryndísar
Schram og hún hafði ekki gert
neina tilraun til að smygla því. Mál
af þessu tagi koma reglulega upp
við tollafgreiðslu venjulegra Islend-
inga; þetta tiltekna mál fékk ná-
kvæmlega sömu afgreiðslu og öll
önnur mál af sama tagi. Gróa á
Leiti virðist því fítna vel á ijosbitan-
um að Hólabraut 3 í Hafnarfirði.
Jafnþekkt og áberandi fólk í þjóð-
lífinu og Jón Baldvin Hannibalsson
og Bryndís Schram þarf gjarnan
að sitja undir kjaftasögum og rógi.
Slíkur rógburður segir gjaman
meira um smitberana en þá sem
sverta á. Það er vitað mál að marg-
ir stuðningsmanna Ólafs Ragnars
Grímssonar fóru á taugum þegar
hugsanlegt framboð Jóns Baldvins
Hannibalssonar kómst í hámæli.
Kristinn Sigursveinsson er greini-
lega einn af þeim. Að kalla Jón
Baldvin trúð hittir ekki Jón Baldvin
fyrir, heldur eru þau ummæli bjúg-
verpill sem hitta Kristin Sigur-
sveinsson sjálfan. Trúðslæti Krist-
ins eru til þess eins fallin að gera
kosningabaráttuna að ómálefnaleg-
um sirkus sem engum er til sóma.
Sjálfur hef ég verið jákvæður í
garð framboðs Ólafs Ragnars -
enda er hann gamall kennari minn
- og get vel hugsað mér að kjósa
hann sem forseta. Til þess að af
slíku geti orðið verður Ólafur Ragn-
ar þó að reka málefnalega og
drengilega kosningabaráttu. Eg
skora því á Ólaf Ragnar Grímsson
að haga sér að hætti þeirra bresku
heiðursmanna sem hann sótti
menntun sína til að slá opinberlega
á fingur hins hafnfirska trúðs síns.
Slíkur drengskapur gæti stöðvað
þann sirkus sem kosningabaráttan
virðist vera að breytast í.
BIRGIR HERMANNSSON,
stjórnmálafræðingur.
Forseti með fortíð
Frá Bernhard Jóhannessyni:
ÞAÐ HEFUR löngum verið skoðún
mín að einstaklingur, sem gefur
kost á sér ti) forsetaframboð, getur
ekki lokað á fortíð sína og byijað
nýtt líf eins og Ólafur Grímsson er
að gera. í grein sem birtist í morg-
unblaðinu 15. maí lýsir Einar S.
Hálfdánarson HDL einum af þeim
gjömingum sem Ólafur Grímsson
stóð fyrir, og er það eitt og sér
pægjanlegt til að verða ekki gjald-
gengur til forsetaframboðs á ís-
landi.
Það er lágmarkskrafa að þeir
einstaklingar sem gefa kost á sér,
skulu hafa óflekkað mannorð, þegar
fjármálaráðherra er dæmdur til
bóta fyrir hönd ríkisins vegna að-
gerða, sem hann stóð fyrir verður
hann að bera ábyrgð á því, einnig
eftir að hann lætur af störfum sem
fjármál aráðherra.
Embætti forseta íslands er lát-
laust en mikilvægt embætti sem
verður að fara vel með, það getur
ekki hentað aðila sem verið hefur
í forsvari í pólitík, þar sem alltaf
er verið að taka afstöðu í öllum
mögulegum og ómögulegum mál-
um, slíkur einstaklingur verður
seint sameiningartákn þjóðarinnar.
Af þeim aðilum sem gefið hafa
kost á sér er aðeins einn sem upp-
fyllir þau skilyrði sem ég geri til
forsetaframbjóðenda, það er Pétur
Kr. Hafstein og hvet ég alla sem
vilja hafa frið um forsetaembættið
í framtíðinni, að skoða hug sinn út
frá þessum bollaleggingum.
BERNHARD JÓHANNESSON,
Sólbyrgi, Reykholtsdal.
Farsi
Með morgunkaffinu
ÁÐUR en ég afhjúpa
styttuna krefst ég þess að
fá að vita hvort hún er
af konu eða karli.
HEFUR ykkur einhvern
tíma dottið í hug hvort
ekki hefði verið fallegra
að hafa teppið á litinn eins
og Egils appelsín?
EN elskan mín! Ég sagði
ekki að ég vildi ekki borða
þetta, ég sagði bara að
þetta væri í fyrsta sinn
sem ég fengi bixímat
úr afgangnum af
sítrónubúðingi.
VON á barni? Maðurinn minn verður frá sér
numinn af kæti. Hann er nefnilega ófrjór.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Tapað/fundið
Föt í poka
GULAR munstraðar
leggingsbuxur og bóm-
ullarbolur í plastpoka
töpuðust í Gnoðarvogi sl.
föstudag. Finnandi er
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 553-3109.
Farsími tapaðist
MOBIRA-farsími hvarf
úr hvítum Colt (fyrirtæk-
isbíl) þar sem hann stóð
fyrir utan Logafold 146
í Grafarvogi. Sé einhver
með símann bendi ég
honum á að hann getur
ekki nýtt sér hann þar
sem hann fæst ekki
skráður aftur. Ef síman-
um verður skilað verður
málið látið niður falla.
Ef einhver getur gefið
upplýsingar er hann vin-
samlega beðinn að
hringja í síma 567-4772.
Fundarlaun.
Gæludýr
Páfagaukur
fannst
BLÁR og hvítur páfa-
gaukur (gári) fannst við
Alfheima 50 sl. sunnu-
dag. Hafi einhver misst
gárann sinn getur hann
hringt í Elínu í síma
588-9106.
Kettlingar
TVEIR tíu vikna mann-
elskir og þrifnir kettling-
ar, svart og hvítt fress
og þrílit læða, óska eftir
að komast á góð heimili.
Upplýsingar í síma
553-7151.
SKÁK
llmsjón Margcir
Pctursson
SVARTUR leikur
og vinnur peð
STAÐAN kom upp á stór-
mótinu í Madrid sem lauk
um helgina í innbyrðis viður-
eign spænsku keppendanna
tveggja. Pablo San Seg-
undo (2.535) var með hvítt,
en Miguel Illescas (2.635)
var með svart og átti leik.
San Segundo var heillum
horfinn á mótinu, en Illescas
náði besta árangrinum á
ferli sínum. Og hér var hvít-
ur að leika afskaplega
óheppilegum leik, 24. Hcl
- c2?? sem færði svarti svar-
leikinn upp í hendurnar:
24. - Hxe4! 25. Kf2 (Eft-
ir 25. fxe4 - Bxe4 er hvítur
í þeirri neyðarlegu aðstöðu
að geta ekki
tengt hrókana
saman og annar
hvor þeirra fellur
óbættur) 25.
Hd4 26. Hhcl -
Bd5 27. Hxc5 -
Hxc5 28. Hxc5
- Bxb3 og Illesc-
as vann á um-
frampeðinu. Úr-
slitin í Madrid:
1.-2. Illescas og
Topalov, Búlgar-
íu 6'/2 v. 3.-4.
Salov, rússlandi
og Shirov, Lett-
landi 6 v. 5.-6.
Azmajparashvili, Georgíu
og Gelfand, Hvíta Rúss-
landi 5 v. 7. Adams, Eng-
landi 3>/2 v. 8. Morosjevitsj,
Rússlandi 3 v. 9. Kortsnoj,
Sviss 2 v. 10. San Segundo
1 '/2 v.
Skákþing íslands,
Eimskipsmótið
Mótið hefst í dag kl. 17
í Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ. Fimm stór-
meistarar og tveir alþjóð-
legir meistarar eru á meðan
keppenda.
Víkveiji skrifar...
AÐ fór eins á laugardagskvöld-
ið síðasta og Víkveiji hafði
gert sér vonir um, að því er varðar
Spaugstofumenn, sem standa að
Enn einni stöðinni. Beint á eftir
Evrópusöngvakeppninni voru þeir
með svo ilmandi ferskan grínþátt
um atburði líðandi stundar, að segja
má, að ákveðnir atburðir hafi vart
verið liðnir, þegar þeir voru komnir
út á myndbandi í grínútfærslu
þeirra Spaugstofumanna. Það er
hreint með ólíkindum hvað þeir
fimmmenningar eru snöggir í snún-
ingum. Þjóðin var enn að melta 13.
sæti íslands í Evrópusönglaga-
keppninni, þegar Karl Ágúst Úlfs-
son birtist á skjánum í óborganlegu
kvenmannsgervi, ásamt félögum og
þeir sungu sína útfærslu á íslenska
framlaginu, Sjúbidú, sem í þeirra
munni hét „Út úr kú“. Hreint frá-
bær frammistaða og hárrétt að
mati Víkverja. Framlag íslendinga
var beinlínis út úr kú og þær voru
hreint og beint ömurlegar tilraun-
irnar sem textahöfundur gerði til
þess að fela hið ylhýra móðurmál
íslenskuna, með öllum tilvitnunun-
um í fræga slagara og söngvara í
gegnum tíðina.
XXX
LLTÉNT er Víkveiji sannfærð-
ur um að þeir sem koma fram
í keppni sem þessari fyrir Islands
hönd og virðast skammast sín fyrir
móðurmálið, eigi ekkert erindi í
slíka keppni. Að syngja á móður-
málinu er skilyrði fyrir þátttöku í
þessari keppni og það er hárrétt
stefna, því með þessari samvinnu
evrópskra sjónvarpsstöðva, er ein-
mitt verið að leggja áherslu á að
hver þjóð hafi lítið tækifæri til þess
að kynna tungu sína, sérstöðu og
menningu. Það tækifæri notuðu
þátttakendur fyrir íslands hönd alls
ekki, enda vart við því að búast,
þar sem þátttakendur, að söngkon-
unni undanskilinni, munu hafa ver-
ið fluttir inn til landsins frá henni
Ameríku, til þess að raula hinn
flókna texta „Sjúbidú“ að baki
söngkonunnar.
xxx
VÍKVERJl ætlar rétt að vona,
að loforðið sem Spaugstofu-
menn gáfu í þættinum á laugardags-
kvöld, um að síðasti þáttur þeirra
yrði næsta laugardag, hafi bara ver-
ið tilkynning um að spaugararnir
ætli að taka sér hlé yfir sumarið,
til þess að hlaða „kanónur" sínar á
nýjan leik. Hafi ekki verið svo, þá
var hér ekki um loforð að ræða,
heldur hótun. Þeir eru svo fjölmarg-
ir sem bíða þáttar þeirra hvert laug-
ardagskvöld, til þess að fá að sjá
forsætisráðherra, félagsmálaráð-
herra, heilbrigðisráðherra, útvarps-
stjóra, forsetaframbjóðendur, at-
vinnulífsfrömuði, kirkjunnar for-
kólfa og fleiri og fleiri, í þeirra út-
færslu, sem er yfirleitt svo miklu
skemmtilegri og skondnari en út-
færsla frummyndanna.