Morgunblaðið - 22.05.1996, Qupperneq 52
Hátækni til framfara
gjg TæknSvai
Skeifuntli 17 • Slmi 568-1665
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(g>CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Aukning á lyfja-
kostnaði um 13%
AUKNING heildarkostnaðar vegna
lyfseðilsskyldra lyfja, bæði hjá sjúkl-
ingum og Tryggingastofnun ríkisins
(TR), fyrstu fjóra mánuði ársins, er
tæp 13% miðað við sama tíma í fyrra,
að sögn Kristjáns Guðjónssonar
deildarstjóra sjúkratryggingadeildar
TR. Ástæðurnar eru taldar ný og dýr
lyf á markaði og aukin aðhiynning
sjúklinga í heimahúsi, sem veltir
lyfjakostnaði yfir á TR.
Kristján segir að ef svo haldi
áfram sem horfir fari lyfjakostnaður
Tryggingastofnunar fram úr fjárlög-
um. Þá hefur kostnaðarhlutdeild
sjúklings hækkað í 33,5% úr 29,5%.
Hlutdeild TR í lyfjakostnaði í apríl
hefur jafnframt aukist um 17,3% frá
því á sama tíma í fyrra. í apríl 1995
greiddi stofnunin 222,4 milljónir, en
40 milljónum meira í apríl 1996, eða
260,9 milljónir. „Ef kostnaður í apríl
siðastliðnum er skoðaður hjá sjúkl-
ingum og TR til samans fór hann í
389,4 milljónir, en var 317,4 milljón-
ir fyrir sama mánuð í fyrra, sem er
22,7% aukning á heildarútgjöldum,“
segir Kristján.
Rætt um lægri álagningu
og hert eftirlit
Einar Magnússon skrifstofustjóri
á skrifstofu lyfjamála í heilbrigðis-
ráðuneyti er spurður hvort ekki þurfi
að lækka álagningu á lyfjaverð.
„Það þarf auðvitað að gera það,
til þess að ná fjárlögum, en kostnað-
urinn felst ekki bara í söluverði held-
ur líka magni og því hvaða lyf er
verið að velja. Meira en helmingur
þessarar aukningar er til kominn
vegna nýrra og dýrari lyfja,“ segir
hann. Kemur til greina að taka upp
kostnaðar- og gæðaeftirlit með
lyfjaávísunum lækna. „Rætt er um
að veita læknum ráðgjöf og fara
ofan í saumana á því hvað þeir eru
að skrifa upp á og hvað megi hugsan-
lega betur fara.“
Aðspurður hvað lesa megi úr
17,3% hækkun á kostnaðarhlutdeild
TR í lyfjaverði í apríl segir Einar að
samskonar hækkun hafí orðið í jan-
úar síðastliðnum, miðað við janúar í
fyrra. „í janúar 1995 var kostnaður-
inn 238 milljónir en 274 milljónir
1996. Það er því hæpið að fullyrða
að samband sé milli nýrra lyíjaversl-
ana og fjölda lyfseðla." Einar segir
ennfremur að þegar lyfjamál eru
mikið í umflöllun í fjölmiðlun, verði
oft vart við aukningu, sem síðan
geti jafnast út skömmu síðar.
Samið um nýtingu á
orku frá Nesjavöllum
VIÐRÆÐUNEFNDIR Reykjavíkur-
borgar og Landsvirkjunar hafa kom-
ist að samkomulagi um hvernig stað-
ið skuli að virkjun raforku á Nesja-
völlum, orkuveitusvæði Hitaveitu
Reykjavíkur, og hvaða meginreglur
skuli gilda um nýtingu raforku það-
an. Eftir er að ganga frá samrekstr-
arsamningi milli Landsvirkjunar og
borgarinnar um virkjunina en Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, borgar-
stjóri, segir að í raun sé búið að
marka þá stefnu að það skuli virkjað
á Nesjavöllum og sé gert ráð fyrir
hð virkjunin komist í gagnið árin
1999 til 2000.
Samkomulagið var kynnt á fundi
borgarráðs í gær og það samþykkt
þar. Samkvæmt samkomulaginu er
gert ráð fyrir að sá raforkumarkaður
á höfuðborgarsvæðinu sem Lands-
virkjun er búin að virkja fyrir verði
ekki skertur frá því sem nú er, en
kaup Rafmagnsveitu Reykjavíkur á
forgangsorku frá Landsvirkjun hafa
numið rúmum 660 gígavattstundum
á síðustu árum. Hins vegar gerir sam-
komulagið ráð fyrir að virkjönin á
Nesjavöllum uppfylli viðbótarorku-
þörf á veitusvæði Rafmagnsveitunnar
en orkuþörfin á svæðinu er talin vaxa
um 25 gígavattstundir á ári.
Samkvæmt fyrirliggjandi áætlun-
um er reiknað með að hægt sé að
virkja 360 gígavattstundir á Nesja-
völlum án þess að til komi frekari
gufuöflun en nú vegna hitaveitunn-
ar. Gert er ráð fyrir að Landsvirkjun
kaupi þá umframorku sem fyrir
hendi verður frá því virkjunin tekur
til starfa og þar til Rafmagnsveita
Reykjavíkur nýtir hana að fullu á
orkusvæði sínu.
Ingibjörg Sólrún sagði að þetta
samkomulag væri mikill áfangi fyrir
Reykjavíkurborg. Borgin hefði ekki
fengið sínum ýtrustu kröfum fram-
gengt, en „ég held að með þessum
samningi hafi bæði verið gætt hags-
muna Reykjavíkurborgar og Lands-
virkjunar."
Morgunblaðið/Kristinn
Kosið á ASÍ-þingi
FULLTRÚAR á þingi ASÍ gerðu
hlé á fundi í gær og héldu niður
á Austurvöll til að koma á fram-
færi mótmælum við frumvörpum
ríkisstjórnarinnar um stéttarfé-
lög og vinnudeilur og um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins.
í dag er fyrirhugað að kjósa
forystu ASI. Kjörnefnd sat á
löngum fundum í gær. Niður-
staða nefndarinnar lá ekki fyrir
seint í gærkvöldi. Vaxandi líkur
voru taldar á að kosið yrði milli
Hervars Gunnarssonar, varafor-
seta ASÍ, og Grétars Þorsteins-
sonar, formanns Samiðnar.
Benedikt Davíðsson, forseti
ASÍ, hefur hins vegar ekki úti-
lokað framboð, en segir eins og
aðrir að hann leiti ekki eftir kjöri
nema víðtækur stuðningur sé
fyrir hendi.
Gjörólíkar áherslur í kjara-
málum komu fram við umræður
um stefnu Alþýðusambandsins í
launamálum á ASI-þinginu í gær.
■ Tekist á um launastefnu/11
Morgunblaðið/Sverrir
Heimsókn frá Færeyjum
EDMUND Joensen lögmaður
Færeyja kom ásamt eiginkonu
sinni og föruneyti i opinbera
heimsókn tilíslands igær í
boði Ðavíðs Oddssonar forsæt-
isráðherra. Lögmaðurinh
ræddi í gær við forsætisráð-
herra og Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra um samskipti
og samvinnu landanna.
f dag fer hann í fylgd sam-
gönguráðherra um Vestfirði
og heimsækir m.a. Flateyri og
Súðavik, en Færeyingar hafa
gefíð rausnarlegar gjafir til
uppbyggingar á þessum stöð-
ura f kjölfar snjóflóðanna i
fyrra. Á myndinni sjást Davíð
Óddsson forsætisráðherra og
Ástriður Thorarensen eigin-
kona hans bjóða Edmund Jo-
ensen velkominn við komuna
til landsins á Reykjavíkurflug-
velli í gær.
■ Samvinna á mörgum/6
Jón Baldvin ekki
í forsetaframboð
JÓN BALDVIN Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, tilkynnti í
gær að hann yrði ekki meðal fram-
bjóðenda í forsetakosningunum 29.
júní nk. í yfiriýsingu frá Jóni Bald-
vin segir að kosningabarátta um
valdalaust forsetaembætti snúist
ekki um málefni og hafi tilhneigingu
til að umhverfast í auglýsingaskrum
og persónuníð. Á því hafi hann ekki
áhuga.
Jón Baldvin segir að á síðustu
tveimur vikum hafi fjöldi fólks leitað
fast eftir því að hann gæfi kost á
sér til forsetaframboðs. Rökin fyrir
þessari málaleitan hafi einkum verið
að stór hópur kjósenda fyndi ekki
samhljóm við þá frambjóðendur, sem
í boði væru. Einnig að samanlögð
starfsreynsla sín og Bryndísar
Schram að skóla- og menningarmál-
um, stjórnmálum og alþjóðasam-
skiptum gæti komið að góðum not-
um.
Jón Baldvin segir að ekki hafi
orðið undan því vikist að svara ósk-
um um að hann gæfi kost á sér í
framboð. Hann segist hafa skoðað
nákvæmlega hlutverk forsetaemb-
ættisins í íslenskri stjórnskipan,
kannað afstöðu nánustu samstarfs-
manna innan Alþýðuflokksins og
látið kanna viðhorf kjósenda og fylg-
isvonir.
Jón Baldvin segir að niðurstaða
sín sé að embætti forseta Islands
sé táknræn tignarstaða, án sjálf-
stæðra valdheimilda, nema hugsan-
lega í neyðartilvikum, sem aldrei
hafi reynt á. Stjórnmálamaður, sér-
staklega ef hann sé þeirrar gerðar
að vilja fylgja sannfæringu sinní,
geti ekki beitt formlegu valdi forseta
til þess, t.d. beitt málskotsrétti til
þjóðaratkvæðagreiðslu, án þess að
lenda þar með í átökum við ríkis-
stjórn og þingmeirihluta. Það sam-
rýmist ekki því hefðbundna hlutverki
forseta að vera sameiningartákn og
blanda sér ekki í flokkspólitísk
ágreiningsmál.
Jón Baldvin segist vera þeirrar
skoðunar að stjórnmálamaður, sem
sest að á Bessastöðum, sé þar með
að setjast í helgan stein. Það sé
ótímabært í sínu tilviki.
Yon um fylgi fjórðungs
kjósenda
Jón Baldvin segir að kannanir á
fylgisvon hafi bent til að framboð
kæmi of seint fram til þess að vinna
upp forskot keppinauta. Skoðana-
kannanirnar hafi bent til að hann
gæti vænst fylgis um fjórðungs
kjósenda. Það fylgi hafi einkum
komið úr röðum kjósenda Alþýðu-
flokks og Sjálfstæðisflokks úr
Reykjavík og Reykjanesi, mest með-
al ungra kjósenda. „Framboð okkar
Bryndísar hefði m.ö.o. goldið þess
að ég er virkur og umdeildur stjórn-
málamaður, sem kjósendur taka
afstöðu til á pólitískum forsendum.
Það er ekki besta vegarnestið fyrir
forseta."
■ Forsetakosningar/12-13