Morgunblaðið - 11.06.1996, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lauk doktors-
prófi í lífeðlis-
fræði
• INGIBJÖRG Hrönn Jónsdóttir
lauk doktorsprófí í lífeðlisfræði við
Lífeðlisfræðistofnun Háskólans í
Gautaborg þann 26. apríl sl. Leið-
beinandi var Peter Thorén prófess-
or við Karolinska
Institutet (KI) í
Stokkhólmi. And-
mælandi á dokt-
orsvöminni var
Dr. Thomas
Lundeberg KI,
Stokkhólmi.
Ritgerðin fjallar
um samspilið milli
• lífeðlisfræðilegra
áhrifaþátta og
ónæmiskerfisins og þá sérstaklega
áhrif þjálfunar á ónæmiskerfið og
hafa rannsóknimar verið unnar á
tilraunadýmm. Helstu niðurstöður
em þær að þjálfun hefur jákvæð
áhrif á ónæmiskerfið og þá sér í
lagi svokallað meðfætt ónæmi (nat-
ural immunity) sem er fyrsta svar
líkamans gegn ýmsum veirusýking-
um o g krabbameinsframum. Virkni
ónæmiskerfisins gegn þeim
krabbameinsfmmum sem notaðar
vom í rannsóknunum mældist
þannig mun hærri í þjálfuðum ein-
staklingum miðað við óþjálfaða ein-
staklinga. Sterk tengsl em á milli
taugakerfísins, hormónakerfisins
og ónæmiskerfisins og hafa rann-
sóknir þessar hjálpað til við að
skilgreina betur þetta samband.
Niðurstöðumar hafa birst í alþjóð-
legum vísindatímaritum og á ráð-
stefnum víða um heim.
Styrkt af fjölda
vísindasjóða í Svíþjóð
Verkefnið hefur verið styrkt af
fjölda vísindasjóða í Svíþjóð, þ.á
m. Sænska vísindaráðinu í lækna-
vísindum (The Swedish Medical
Research Council), Krabbameins-
félaginu (The Swedish Cancer Soci-
ety) og íþróttarannsóknaráði Sví-
þjóðar (The Swedish National Cen-
tre for Research in Sports).
Ingibjörg er fædd og uppalin í
Kópavogi, lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1986
og B.S. gráðu í Líffræði frá Há-
skóla íslands árið 1990. Foreldrar
Ingibjargar eru Alda Sveinsdóttir
deildarstjóri á dagdvöl aldraða í
Sunnuhlíð, Kópavogi og Jón Ingi
Ragnarsson málarameistari. Ingi-
björg er búsett í Gautaborg og
starfar við rannsókna- og kennslu-
störf við Lífeðlisfræðistofnun
læknadeildar Gautaborgarhá-
skóla.
Morgunblaðið/Kári
Sólveig Þorvaldsdóttir segir mikilvægt að björgunarfólk starfi saman við almaiinavarnir
Þarf að læra að umgangast
almenning eftir hamfarir
Laugrarvatni. Morgunblaðið
SÓLVEIG Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Al-
mannavama ríkisins, segir að kenna þurfí björgun-
arfólki að umgangast almenning, sem upplifir
náttúmhamfarir. Þetta hafí hún lært „af biturri
reynslu á Flateyri“. Einnig ieggur hún áherslu á
mikilvægi sjálfboðastarfs hins almenna borgara
við miklar hamfarir, eins og kom fram í erindi
hennar á þingi Slysavamafélags íslands á Laugar-
vatni um helgina, sem haldið var undir yfirskrift-
inni almenningur í slysavörnum og björgunarstörf-
um. Þá lagði hún áherslu á mikilvægi samvinnu
allra björgunarsveita og stofnana til þess að ná
árangri í starfí.
í 'erindi sínu benti Sólveig á að almennir borg-
arar væru mikilvægur en týndur hlekkur í röð
viðbragða við náttúmhamfömm og að reynsla
manna um allan heim sýndi að það væra þeir sem
veittu mestu og fyrstu hjálpina. Hún nefndi sem
dæmi að við jarðskjálfta slösuðu flestir sig með
því að detta, reka sig í eða verða fyrir hlutum sem
falla. Aðeins lítili hluti fólks lokaðist inni í rústum
þar sem þörf væri á sérhæfðu björgunarliði til að
ná því út.
Sólveig nefndi að almennir borgarar hefðu
stjómað umferð í Mexíkó 1985, borið börur á þak
bíla og flutt fólk á sjúkrahús í Armeníu 1988,
slökkt elda í San Francisco 1989 og hver hjálpað
öðrum úr rústum í Los Angeles 1994. Þá benti
hún á að almenningur hefði gegnt mikiivægu hlut-
verki við hamfarir í Vestmannaeyjum, Súðavík
og á Flateyri. Á öllum þessum stöðum hafí það
verið almennir bæjarbúar sem fóru af stað og
unnu nauðsynleg björgunarstörf áður en skipulagt
björgunarstarf hófst.
Hörð átök hafa orðiö milli almennings
og björgunarliðs
Sagði Sólveig ennfremur að Slysavarnafélagið
og Almannavamir þyrftu að velta fyrir sér þeirri
spumingu hvemig hægt væri að virkja almenning.
„Búa þarf almenning undir að bið getur orðið á
að hjálp berist og að björgunaraðgerðir geti haf-
ist. Þá er það einnig reynslan að þegar björgunar-
lið hefur mætt á staðinn og beðið almenning að
víkja til hliðar hafa orðið ansi hörð átök milli björg-
unarliðs og almennings. Því er nauðsynlegt að þjálfa
björgunarlið í að taka á slíkum málum. Kenna
verður björgunarfólki að umgangast almenning sem
upplifir náttúruhamfarir. Þetta lærði ég af biturri
reynslu á Flateyri í fyrra,“ sagði Sólveig.
Einnig vék hún að nýju starfi sínu sem fram-
kvæmdastjóri Almannavarna ríkisins og fortíð
sinni sem liðsmaður í Landssambandi hjálpar-
sveita skáta og síðan Landsbjörgu, eða „hinum
samtökunum“ og bað viðstadda að líta á sig sem
samheija úr björgunarsamtökum á Islandi fremur
en andstæðing úr „hinum samtökunum" þótt hún
hefði tekið þátt í þeirri pólitík sem væri í viðskipt-
um samtakanna.
„Framkvæmdastjóri Almannavarna gerir ekki
upp á milli björgunarsamtaka. Sem opinber starfs-
maður er ég talsmaður björgunarmanna á ís-
landi. Samvinna allra björgunarsveita og stofnana
er mikilvæg til að ná árangri í starfi. Markmið
mitt er ekki að hafa alla góða heldur að ná ár-
angri á sviði almannavama. Ef tekur að gefa á
bátinn um of mun ég taka þá stefnu sem skilar
bátnum heilum til hafnar, þó svo að einhver verði
sár af því að hans stjarna skín ekki eins skært
og hann hefði viljað,“ sagði hún.
Jafnframt ítrekaði Sólveig að mikið afl byggi
innan björgunarsamtaka í landinu og því mikilvægt
að sameina þau til átaka. „Það er í mörg hom að
líta fyrir Almannavamir en þær em aðeins beina-
grindin að starfinu því björgunarsveitimar í landinu
em vöðvamir sem knýja það áfram. Án ykkar
kemst starf að almannavömum hvorki lönd né
strönd,“ sagði Sólveig Þorvaldsdóttir að lokum.
Aðalfundur Sjálfsbjargar
Morgunblaðið/Ásdís
AÐALFUNDUR Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra, fór
fram um helgina. Guðríður Ól-
afsdóttir, formaður Sjálfsbjarg-
ar, setti fundinn en við það tæki-
færi tóku einnig til máls Ingibjög
Pálmadóttir heilbrigðisráðherra
og Ólöf Ríkharðsdóttir, formað-
ur Öryrkjabandalagsins.
Velferðar-
ráðstefna í
Reykjavík
FRAMTÍÐ norræna velferðar-
samfélagsins er viðfangsefni
ráðstefnu í Reykjavík sem hefst
í dag í Háskólabíói kl. 9. Á ráð-
stefnu Norrænu ráðherranefnd-
arinnar um framtíðarhorfur í
velferðarmálum „Morgendagens
velfærdssamfund“ verður stefna
Norðurlanda og Evrópu í vel-
ferðarmálum rædd út frá ýms-
um sjónarhomum. Stuðningur
við atvinnulausa, atvinnuskap-
andi aðgerðir, jafnrétti og fé-
lagslegt öryggi em nokkur lykil-
atriði á ráðstefnunni.
Ráðstefnuna sækir tugur
norrænna ráðherra sem fara
með mál er varða réttindi þegn-
anna. Meðal ræðumanna er
Pádraig Flynn, sem á'sæti í
framkvæmdastjóm ESB, Ingi-
björg Pálmadóttir heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra, Páll
Pétursson félagsmálaráðherra,
Sigrún Júlíusdóttir lektor. Ole
Norrback, samstarfsráðherra
Finnlands og formaður ráð-
herranefndar samstarfsráð-
herra, opnar ráðstefnuna.