Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Skráning hafin í Kvennahlaupið KVENN AHL AUPIÐ fer fram á Akureyri næstkomandi sunnu- dag, 16. júní, og hefst það á Ráðhústorgi kl. 14. Forskráning fer fram í Gull- smíðastofunni Skart, Hafnar- stræti 94, alla þessa viku, en á föstudag, 14. j'úní, verður einnig hægt að skrá sig við Hagkaup, KEA Nettó, KEA Hrísalundi og verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð frá kl. 15 til 18. Einnig verður hægt að skrá sig á Ráðhústorgi frá kl. 12.30 á sunnudaginn. Upphitun fyrir hlaupið hefst kl. 13.40 undir stjórn Önnu R. Her- mannsdóttur íþróttakennara sem einnig sér til þess að teygt sé á helstu vöðvum eftir hlaup- ið. _ Á síðasta ári tóku tæplega 1.100 konur á öllum aldri þátt í Kvennahlaupinu á Akureyri. Hlaupið er ekki sérstaklega ætlað þrautþjálfuðum íþrótta- konum, heldur öllum sem geta gengið, skokkað eða hlaupið . vegalengdirnar sem um er að ræða, en þær eru tvær, 2,4 kíló- metrar og 4,5 kílómetrar. ■ttiiíti'Hr V- >■ í jp-' ■... V yj C',.. TÆPLEGA 1.100 konur tóku þátt í kvennahlaupinu á Akureyri í fyrra. Fyrirtækið Sjó- ferðir á Dalvík Kaugir bát frá Italíu FYRIRTÆKIÐ Sjóferðir á Dalvík er að ganga frá kaupum á 17 tonna báti frá Sikiley á Ítalíu, sem fyrir- tækið hyggst nota í skemmtiferðir og sjóstangaveiði með ferðamenn. Sjóferðir eiga fyrir tæplega 10 tonna bát sem tekur um 20 far- þega og segir Júlíus Snorrason, að með tilkomu nýja bátsins sé stefnt að því að selja hann. Júlíus segir að nýi báturinn, sem er búinn mjög öflugum vélum, sé ekki hannaður fyrir farþegaflutn- inga og þurfí að gera á honum nokkrar breytingar en stefnt sé að því að hann fái leyfi fyrir um 40 farþega. Hann sagðist vonast til að báturinn komi til landsins í byijun júlí og að þá yrði strax ráðist í nauðsynlegar breytingar á honum. Sjóferðir hafa stundað siglingar með ferðamenn sl. þijú ár og seg- ir Júlíus að áhugi fyrir þeim hafi verið að aukast jafnt og þétt. „Það hefur háð okkur að hafa ekki stærri bát, þar sem við höfum ekki ráðið við að taka stóra hópa í þess- ar ferðir okkar. Við höfum flutt flesta farþega í svokallaðar grill- ferðir í Hrísey og sjóstöngin nýtur vaxandi vinsælda. Þá er áhugi fyr- ir almennum skoðunarferðum allt- af að aukast, m.a. fugla- og hvala- skoðun. Við höfum líka farið nokkrar ferðir til Grímseyjar og einnig til Héðinsfjarðar og út í Flatey á Skálfanda," sagði Júlíus. -----♦ ♦ ♦---- € C c I € i I Æ c < < t RATVÍS Brekkugöíu 3 • Akureyrí • S, 461 2999 ■ Hamraborg 10 ■ Kópovogí ■ s, 564 1522 Læknaverið, Efling og Ossur í « nýtt hús < ÞRJÚ fýrirtæki, Læknaverið, Efl- ing, sjúkraþjálfun og Össur, stoð- tæki opnuðu starfsemi sína á þriðju hæð nýbyggingarinnar að Hafnar- stræti 97 á Akureyri í síðustu viku, í alls um 600 fermetra húsnæði. Að Læknaverinu standa bæklun- arlæknarnir Ari H. Ólafsson, Jón Ingvar Ragnarsson, Júlíus Gestsson og Þorvaldur Ingvarsson ásamt Ste- I fáni Yngvasyni endurhæfinga- | lækni. Eigendur Eflingar eru sjúkra- þjálfaramir Einar Einarsson, Sig- rún Jónsdóttir og Stefán Ólafsson. Össur, stoðtæki hf. mun þjónusta viðskiptavini sína í hinu nýja hús- næði en einnig verða þar seld hjálp- artæki frá Hjálpartækjabankanum, sem er dótturfyrirtæki Össurar. | --------------- , Den Danske ' Triomeð tónleika DEN DANSKE Trio heldur tónleika á vegum Listasumars á Akureyri | og Tónlistarfélags Akureyrar í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju annað kvöld, miðvikudagskvöldið ( 12.Júní, kl. 20.30. Á efnisskránni eru verk eftir N.V. Gade, Atla Heimi Sveinsson, Hans Henrik Nordström og Dmitri Shostakovitsj. í tríóinu er velþekktir tónlistar- menn í Danmörku, Rosalind Bevan, píanóleikari, Bjarne Hansen, fiðlu- leikari, og Svend Winslov, sellóleik- | ari. , Tónleikarnir eru haldnir í sam- vinnu við Norræna húsið í Reykja- ( vík. í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.