Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ1996 21
Alheimur
þyngist
Washington. Reuter.
ALHEIMURINN er að þyngj-
ast, og eru það góðar fréttir
fyrir íbúana. En stjörnufræð-
ingar telja að þyngdaraukn-
ingin stafi að mestu leyti af
„rusli“ í geimnum. Þetta kem-
ur fram í nýjasta hefti vísinda-
ritsins Science.
í ritinu segir að því þyngri
sem alheimurinn er því líklegri
sé hann til að halda áfram að
þenjast út að eilífu. Til er sú
kenning að alheimurinn sé rétt
naumlega nógu þungur til þess
að vega salt milli þess að þenj-
ast óendanlega og að falla
saman, sem nefnt hefur verið
„hrunið mikla.“
Von um meiraaf
„andefni“
Stjörnufræðingar hafa lengi
leitað svokallaðs „andefnis" -
sem er talið vera ósýnilegt en
engu að síður raunverulegt -
til þess að gera grein fyrir
þyngd alheimsins. Hubble-
geimsjónaukinn og Keck-sjón-
aukinn á jörðu niðri hafa nýst
vel til þess að renna stoðum
undir að téð efni sé til, að því
er fram kemur í Science.
En upplýsingar frá stjörnu-
sjónaukum hafa leitt í ljós að
það sem vísindamenn töldu
vera baug „andefnis" umhverf-
is Vetrarbrautina er í raun
dimmar stjörnur, risastórar
plánetur og annað „rusl.“
Hversu mikið sem athugan-
ir kunna að leiða í ljós af venju-
legu efni, að „ruslinu" með-
töldu, benda útreikningar
stjörnufræðinga til þess að það
myndi ekki nægja til þess að
ná þeirri þyngd, sem nauðsyn-
leg er talin, til þess að renna
stoðum undir kenninguna um
óendanlega útþenslu.
Þess vegna leita vísinda-
menn nú logandi ljósi að meira
„andefni“ til þess að efna í
alheiminn. Fram kemur í
Science, að „því umfangsmeiri
sem rannsóknir á alheiminum
verða, því meira virðist vera
til af þessu torfundna efni.“
Óþægindi af
völdum farsíma
Stokkliólmi. Rcuter.
SÆNSKIR læknar, sem unnið hafa
að rannsóknum á áhrifum farsíma
á fólk, segja fyrstu niðurstöður
benda til þess að fólk sem sé við-
kvæmt fyrir rafbylgjum, fínni fyrir
óþægindum af völdum farsíma.
Olle Johansson, yfirmaður til-
raunastofnunar Karolinska-sjúkra-
hússins í húðsjúkdómum, sagði að
rannsókn á sjö mönnum sem allir
töldu sig viðkvæma fyrir rafbylgj-
um, hefði sýnt fram á að þrír hefðu
fengið höfuðverk, ertingu í andliti
og dofa, þegar sími var virkur í
innsigluðum kassa, um 70 sm frá
fólkinu. Hann segir þó of snemmt
að losa sig við farsímana enda eigi
eftir að endurtaka tilraunina.
Bhumibol konungur heiðraður
Reuter
TUGIR þúsunda Tælendinga
héldu á kertum til heiðurs Bhumi-
bol Adulyadej, konungi Tælands,
í miðborg Bangkok á sunnudags-
kvöld í tilefni þess að hálf öld er
liðin frá því hann var krýndur.
Svipaðar athafnir fóru fram út
um allt landið.
Bhumibol var krýndur 18 ára
að aldri og hefur ríkt lengur en
nokkur annar konungur í heim-
inum. Óvissa ríkti um framtíð
tælenska konungdæmisins þegar
hann varð konungur en þótt hann
hafi lítil völd hefur hann haft mik-
il áhrif á bak við tjöldin og áunnið
sér virðingu landsmanna. Þrátt
fyrir meira en tylft valdarána og
valdaránstilrauna frá þvi hann tók
við konungdómi hafa allir vaidhaf-
arnir lýst yfir hollustu við hann.
„Tælendingar hafa alltaf hlust-
að á ummæli hans, jafnt opinber-
lega sem á bak við tjöldin, af mik-
illi athygli," sagði Anand Pany-
arachun, fyrrverandi forsætisráð-
herra landsins, í fyrirlestri nýlega.
Konungurinn skarst til að
mynda í leikinn í október 1973,
þegar mannskæð uppreisn náms-
manna gegn herstjórninni náði
hámarki, og fékk hershöfðingjana
til að láta af völdum og fara úr
landi. I maí 1992 tókst honum
einnig að binda enda á þriggja
daga götubardaga milli stjórnar-
hermanna og lýðræðissinna þar
sem tugir manna biðu bana og
hundruö særðust.
I hugum margra Tælendinga
er konungurinn nánast guðleg
vera og gagnrýni á hann og kon-
ungsfjölskylduna er bönnuð með
lögum.
Myndin er af flugeldasýningu í
tilefni krýningarafmælisins við
höllina í Bangkok þar sem kon-
ungurinn var krýndur.
Verðbréfasjóðir Landsbréfa
[r
m i
íslandsmeistari
í ávöxtun
Raunávöxtun vcrðbréfasjóða á ársgrundveili 1991-1995
Allir itinlendir sjáðir
Raunávöxtun
á ársgrundvelli
Nr. Sjóður Fyrirtæki 1991-1995
1. Þingbréf Landsbréf 10,35%
1 LaunabrdP Landsbréf 7,88%
W Stslubrg—[ Landsbréf 7,80%
S4.:m öndvegisbréf Landsbréf ■Rl\
5. Sjóður 2 VIB 7,59%
6. Fjórðungsbréf Landsbréf 7,45%
7. Sióður 5 VfB 7,12%
8. íslandsbréf Lmdsbréf 6,84%
9. Skammtímabrcf Kaupþing 6,10%
10. Reiðubréf Landsbréf 5,72%
11.-12. Einingabréf 1 Kaupþing 5,53%
11.-12. Sjóður 1 VÍB 5,53%
13. Sjóður 6 VÍB 3,76%
Árin 1991 - 1995 gáfu sjóðir Landsbréfa
hæstu raunávöxtun allra innlendra
verðbréfasjóða.
Hringdu eða komdu og fáðu nánari upplýsingar
hjá ráðgjöfum Landsbréfa eða umboðsmönnum
í Landsbanka Islands um allt land.
r 4 ár
LANDSBRÉF HF.
14 tn -
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
Ábending frá Landsbrcfum: Athugið að munur á kaup- og sölugengi sambarrilcgra vcrðbrcfasjóða gctur vcrið mismikill.
Yfirlitinu cr cinungis ætlað aö sýna samanburð á sögulcgri ávöxtun vcrðbréfasjóða og á ckki að skoða scm vísbcndingu um ávöxtun í framtíðinni.
SUOURLANDSBRAUT
REYKJAVIK
S 1 M I
B R E F A S I M 1