Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Sverrir Jacques Diouf, framkvæmdastjóri FAO, og Guðmundur Bjarna- son, landbúnaðarráðherra, á fundi með fréttamönnum í gær. Framkvæmdasljóri FAO heimsækir ísland Þjóðin taki sið- ferðilega afstöðu JACQUES Diouf, framkvæmdastjóri Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna jFAO), kom í stutta heimsókn til íslands í gær vegna undirbúnings fyrir leiðtogafund um fæðuöryggi í heiminum, sem hald- inn verður í Róm 13.-17. nóvember. Átti Diouf meðal annars fundi með Vigdísi Finnbogadóttur, forseta ís- lands, og Guðmundi Bjamasyni, land- búnaðarráðherra. Fyrirhugað er að Diouf hitti Davíð Oddsson, forsætis- ráðherra, að máli í dag. Á fréttamannafundi í gær sagði Diouf tilgang heimsóknar sinnar vera tvíþættan. I fyrsta lagi vildi hann ræða væntanlegan fund leiðtoga og ráðamanna um fæðuöryggi í heimin- um. Ástæða þess að til fundarins sé boðað sé fyrst og fremst sú, að ástand mála sé með öllu óviðunandi. Um 800 milljónir jarðarbúa svelti og þar af séu um 200 milijónir barna undir fimm ára aldri. Horfur séu á að þetta ástand muni versna. „Árið 2030 verður um þrem millj- örðum fleiri munna að metta, en nú þegar eru auðlindir okkar ofnýttar. Við eigum í vandræðum vegna jarð- vegseyðingar, skorts á vatni, og hef- ur þetta leitt til átaka í sumum heimshlutum ... Fiskveiðiauðlindir eru einnig nýttar um of, og ofveiði er farin að valda vandræðum sem ykkur er kunnugt.“ Diouf sagði þetta vera í fyrsta sinn í sögu FAO sem efnt yrði til leiðtoga- fundar með þessum hætti, og væri þess vænst, að komast mætti að sameiginlegri niðurstöðum um hvemig bregðast skuli við þessum vanda, auk vandamála sem fátæk ríki eigi við að etja. Samstarf íslands og FAO Diouf sagði það einnig vera til- gang heimsóknar sinnar að ræða samstarf íslands og FAO. Hann vildi gera íslenskum ráðamönnum grein fyrir breytingum á stofnuninni til þess að hún geti betur brugðist við breyttum tímum og þörfum aðildar- ríkjanna. Diouf sagðist telja að íslendingar gætu fyrst og fremst orðið að liði með því að halda áfram að gera það sem þeir hafa gert. „Með því að taka siðferðilega afstöðu í heimsmálum. Með því að benda á hvernig réttilega skuli brugðist við aðsteðjandi vanda ... Við væntum þess einnig að íslend- ingar taki þátt í leiðtogafundinum í Róm og láti til sín taka ... í þriðja lagi með samvinnu við FAO, og með því að sinna verkefnum í þróunar- löndum. Ég nefndi verkefni í fisk- veiðum, þjálfun [fólks] og verndun jarðvegs, þar sem [íslendingar] hafa öðlast kunnáttu sem er í miklum metum á alþjóðlegum vettvangi." VAN Regnfatnaður fyrir börn á öllum aldri SKÚLAGÖTU 51 SÍMI 552 7425, FAXAFENI 12 SÍMI 588 6600 Margar stærðir, margir litir! Veljum íslenskt! Framkvæmdastjórn ESB tekur fyrir viðkvæmt mál Stuðningnr við ríkis- rekið sjónvarp skoðaður Brussel. Reuter. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr- ópusambandsins hefur samþykkt að taka til athugunar hvort niður- greiðslur eða stuðningur við ríkis- reknar sjónvarpsstöðvar bijóti gegn almennum samkeppnisregl- um. Er hér um að ræða mjög við- kvæmt mál, sem framkvæmda- stjórnin telur sig ekki geta hunsað öllu lengur. Einkareknar sjónvarpsstöðvar í að minnsta kosti þremur Evrópu- sambandsríkjum hafa kvartað undan því við framkvæmdastjórn- ina, að ríkisreknu stöðvarnar njóti opinbers fjárstuðnings auk þess að beijast við þær einkareknu á auglýsingamarkaðinum. Kunn- asta málið af þessu tagi er um- kvörtun TFI vegna Antenne 2 í Frakklandi en auk þess hafa einkareknar stöðvar á Spáni og í Portúgal borið fram sams konar umkvartanir. Áskrift og auglýsingar Haft er eftir ónefndum starfs- manni framkvæmdastjórnarinnar, að það virðist ósanngjarnt, að ríkis- reknu sjónvarpsstöðvarnar skuli geta haft tekjur jafnt af áskriftar- gjöldum og auglýsingum og í Frakklandi hitnaði mjög í kolunum í þessum málum nú nýlega þegar Jean-Pierre Elkabbach, fyrrver- andi yfirmaður ríkissjónvarpsins, sagði af sér. Gerði hann það eftir að upplýst hafði verið, að sjónvarp- ið hefði greitt tugi eða hundruð milljóna króna til frægra skemmti- krafta. Ríkisreknu stöðvamar hafa að vísu ýmsum skyldum að gegna, sem þær einkareknu sleppa við, til dæm- is að gera kosningabaráttu allra flokka eðlileg skil auk þess að sinna bömunum sérstaklega og ýmsum minnihlutahópum. Lítið er horft á sumt af þessu efni og auglýsinga- tekjur því samfara em því litlar. Það er því spuming hvort ekki beri að bæta ríkissjónvarpinu upp kostn- aðinn við þetta efni að einhveiju ieyti. Karel Van Miert, sem fer með samkeppnismál í framkvæmda- stjóminni, segir, að þetta mál sé mjög snúið og erfitt úrlausnar. JACQUES Santer, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, gagnrýndi Breta harðlega um helgina og varaði þá við því að önnur Evrópuríki kynnu að snúast gegn þeim vegna þeirrar stefnu bresku stjórnarinnar að koma í veg fyrir fram- gang mála innan ESB vegna kúariðudeilunnar. Evrópuandstaða eykst í Bretlandi Santer varar Breta við ein- angrunarhættu London. Reuter. BRETAR hafa ekki haft meiri efa- semdir um aðild sína að Evrópu- sambandinu um árabil, samkvæmt Gallup-könnun sem dagblaðið The Daily Telegraph birti í gær. Hefur mikil breyting átt sér stað á viðhorf- um Breta undanfarið ár. í könnuninni var meðal annars spurt að því hvernig fólk myndi kjósa ef gengið yrði til þjóðarat- kvæðis um áframhaldandi ESB- aðild. Einungis 57% kjósenda sögð- ust vera ákveðnir f því að greiða slíkri tillögu atkvæði en 43% sögð- ust líklega greiða atkvæði gegn aðild. í júlí á síðasta ári vom hlutföllinn þau að 67% Breta vom hlynnt aðild en 37% andvíg. Jacques Santer, forseti fram- kvæmdastjórnarinnar, gagnrýndi Breta harðlega í viðtali við blaðið The Observer um helgina og varaði þá við því að önnur Evrópuríki kynnu að snúast gegn þeim vegna þeirrar stefnu Johns Majors forsæt- isráðherra að koma í veg fyrir fram- gang mála innan ESB vegna kúa- riðudeilunnar. Hann sakaði breska ráðherra um að haga sér „fáránlega" og að fram- ferði þeirra gæti leitt til einangrun- ar Breta á næstu árum. „Við erum komin að mörkum þolinmæði okk- ar. Það á ekki einungis við um ríkis- stjórnir heldur einnig almennings- álitið, neytendasamtök, þrýstihópa ... Ég verð að segja eins og er að breska ríkisstjórnin ber algjörlega ábyrgð á klúðrinu í þessu máli,“ sagði Santer. Evrópuandstæðingar reiðast Evrópuandstæðingar innan Ihaldsflokksins reiddust Santer mjög vegna þessara ummæla. Einn helsti forsprakki þeirra, þingmaður- inn Bill Cash, sagði Santer vera „ókjörinn embættismann" og að það væri með öllu óþolandi að slíkur maður væri að setja Bretum ein- hver skilyrði. Cash er flutningsmaður frum- varps um að draga úr tengslum Bretlands við Evrópusambandið og hafna með öllu áformum um sam- eiginlegan gjaldmiðil. Tillagan verður tekin fyrir á breska þinginu í dag, þriðjudag og þó að engar lík- ur séu á að frumvarpið verði sam- þykkt er talið hugsanlegt að allt að 90 þingmenn íhaldsflokksins muni greiða því atkvæði til að sýna óánægju sína. Vilja hraða ríkjaráð- stefnu París. Reuter. HERVÉ de Charette, utanríkisráð- herra Frakklands, sagði í viðtali við Le Figaro í gær að hann teldi að á leiðtogafundi Evrópusambandsins í næstu viku ætti að reyna að hraða ríkjaráðstefnunni. Þrír mánuðir eru siðan ráðstefn- an hófst og sagði De Charette nauð- synlegt að leiðtogar ríkjanna kæmu með pólitískan innblástur þannig að hægt væri að hraða störfum ráðstefnunnar. „Við og Þjóðveijar gerum ráð fyrir því að leiðtogafundurinn muni setja skýrar línur varðandi störf ráðstefnunnar á þremur sviðum: hvernig auka megi öryggi almenn- ings, gera ákvarðanatöku skilvirk- ari og hvernig skipuleggja eigi evr- ópska öryggis- og utanríkisstefnu.“ Franskir embættismenn sögðu að Helmut Kohl, kanslari Þýska- lands, og Jacques Chirac Frakk- landsforseti hefðu á fundi í vikunni sem leið verið sammála um að á leiðtogafundinum í Flórens ætti að skýra meginmarkmið ríkjaráðstefn- unnar og hvernig ná mætti þeim markmiðum þannig að valkostir lægju fyrir er kæmi að leiðtoga- fundinum í Dublin um miðjan des- ember. Þá yrði hægt að ná lokanið- urstöðu um mitt árið 1997. ------» ♦ ♦------ Slóvenar sækja um ESB-aðild Lúxemborg. Reuter. SLÓVENÍA lagði í gær fram form- lega umsókn um aðild að Evrópu- sambandinu og er ríkið fyrsta lýð- veldi fyrrverandi Júgóslavíu, sem það gerir. Janez Drovnesk forsætisráðherra lagði fram umsóknina eftir að Sló- venar undirrituðu í gær aukaaðild- arsamning við Evrópusambandið. Bretar féllust á að leggjast ekki gegn samningnum við Slóvena, þrátt fyrir þá stefnu sína að sam- þykkja engin mál innan ESB þar til að lausn fínnst á kúariðudeilunni. Að sögn stjórnarerindreka beittu Bandaríkjamenn Breta gífurlegum þrýstingi þannig að umbuna mætti Slóvenum fyrir að taka ekki þátt í Júgóslavíudeilunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.