Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ1996 47 FRETTIR Kjarrá Morgunblaðið/Bergur G. Gíslason. FALLEG veiði úr Kjarrá, f.v. Kristján Garðarsson, Gunnar Gísla- son og Gísli Kristjánsson. Fyrir aftan með kúrekahattinn er Þorgeir Jónsson. Ur dagbók lögreglu Enginn unglingur færður í athvarf 7.-10. jóní byijaði vel VEIÐI byijaði með ágætum í Kjarrá í Borgarfirði. Fyrsta hollið fékk um 30 laxa á tveimur og hálfum degi, frá því eftir hádegi á föstudag og til sunnudagskvölds og voru þó margir hættir veiðum snemma dags á sunnudag. Veiði hófst einnig í Laxá í Kjós á laugardagsmorgun og á mánudagsmorgun voru komnir 20 laxar á land. Þá voru Laxá í Aðal- dal og Haffjarðará opnaðar í gær og í Laxá veiddust 8 laxar. Fiskur víða Kristján Garðarsson var meðal þeirra sem opnuðu Kjarrá og sagði hann ekki mikið laxamagn í ánni. Svæðið væri þó langt og fiskur mjög dreifður. „Vatnið er þó frekar lítið og það voru staðir þar sem greini- legt var að talsvert var fyrir af laxi. Þeir staðir gáfu nokkra veiði, en laxinn styggðist fremur fljótt. Þetta voru t.d. Neðri Johnson, Langidrátt- ur, Svanafljót, Pottar og Runki. Þá komu fiskar úr Efra-Rauðabergi, Rönnustreng og laxar sáust, tóku en sluppu í Aquarium, sem er mjög ofarlega. Ekki var farið í Svarta- stokk að þessu sinni,“ sagði Kristján. Kristján sagði enn fremur að lax- inn hefði yfirleitt verið jafn að stærð, varla undir 9 pundum og þeir stærstu 14 pund. Þó nokkrir 13 punda. Flestir laxarnir veiddust á flugu, mest á rauða Frances og Black Sheep. Notuðu menn aðallega túbuflugur en þó ekki þyngdar, enda ekki ástæða til þar sem vatnsskil- yrði voru fremur hásumarsleg en vorleg. Reytist úr Kjósinni í gærmorgun voru komnir um 20 laxar úr Laxá í Kjós og fiskur kom- inn þar upp um alla á. „Menn eru Jóhann sigraði á lielgar- skákmóti 45. HELGARSKÁKMÓTIÐ fór fram á Bíidudal um helgina í samvinnu við Skákfélag Bíldudals. Keppendur voru 30 og hart bar- ist um hvern vinning. Jóhann Hjart- arson sigraði glæsilega, vann átta fyrstu skákirnar, þar á meðal stór- meistarana Helga Ólafsson og Hannes Hlífar en gerði jafntefli við þriðja stórmeistarann, Helga Áss, í síðustu umferð. Jóhann hlaut því 8'Á vinninga af 9 mögulegum. í 2.-3. sæti urðu Helgi Ólafsson og Hannes Hlífar með 7 vinninga, 4. Helgi Áss Grétarsson 6V2, 5.-6. Sævar Bjarnason og Sigurður Daní- elsson með 6 vinninga. Sigurður hlaut einnig boð á Helgarskákmót í verðlaun fyrir besta frammistöðu dreifbýlismanns. Sex fengu 5 vinninga og meðal þeirra var Gunnar Finnsson, kenn- ari í Bíldudal, en hann hlaut verð- laun fyrir besta frammistöðu heimamanns sem er boð á helgar- skákmót. Þrír fengu 4'/2 vinning. Meðal þeirra voru Kristján Friðrik Kristjánsson Bíldudal 11 ára og Róbert Rúnarsson Patreksfirði 18 ára en þeir hlutu unglingaverðlaun sem eru boð á helgarskákmót. Slíkt boð sem öldungaverðlaun hlaut einnig Sturla Pétursson sem nú er á níræðisaldri. í því sam- | bandi má geta þess að hann tefldi fyrir íslands hönf á Olympíumótinu í Stokkhólmi fyrir réttum 60 árum. Morgunblaðið/Atli Vigfússon HALLA Bergþóra Björnsdótt- ir með fyrstu laxana úr Laxá. búnir að sjá laxa í Þórufossi, sem er efsti veiðistaðurinn og laxar hafa komið á land úr Skugga og Poka- fossi. Þá frétti ég að það hefðu veiðst tveir Iaxar í Meðalfeilsvatni um helg- ina og sjálfur sá ég nokkra fiska í Selvaði í Bugðu, þannig að það er fiskur upp um allt. Þá eru að koma fiskar inn á hveiju flóði, ekki mikið en alltaf nokkrir fiskar," sagði Páll G. Jónsson leigutaki, árinnar í gær- morgun. Morgunblaðið/Þorkell HJÓNIN Sigrún Olsen og Þórir Barðdal. Heilsubót- ardagar á Reykhólum HEILSUBÓTARDAGAR á Reykhól- um eru nú að hefjast í níunda skipt- ið. Haldin verða fimm námskeið á tímabilinu 23. júní til 30. júlí. I tilkynningu segir að hjónin Sig- rún Olsen og Þórir Barðdal bjóði upp á ýmsar leiðir til þess að bæta lífið. Heilsubótardagar eru sniðir fyrir alla þá sem vilja bæta líkamlega og andlega líðan sína. Þar er á boðstól- um heilsufæði, nudd, yoga, fyrir- lestrar, tónlist, hugkyrrð o.fl. Vikan á Heilsubótardögum er fyr- ir þá sem vilja losa sig við streitu, breyta lífi sínu til hins betra og læra nýjar leiðir. -----»• ♦ ♦--- Afmælisrit MR AFMÆLISRITI Menntaskólans i Reykjavík var dreift til allra stúd- enta skólans. Vegna mistaka í dreif- ingu fengu stúdentar 1953 og 1958 ekki sent eintak. Þeir og aðrir MR- ingar sem ekki fengu blaðið sent geta nálgast það á skrifstofu skól- ans. Vítt og breitt... Norðurá er að nálgast 100 laxa, fyrsta holl fékk 24 laxa, annað holl 23 laxa og það þriðja 30 stykki. Nýr hópur er nú að veiðum, byrjaði á sunnudag og hefur gengið þokka- lega. Vatn er minnkandi, en nýjar smágöngur hafa verið tíðar. Stærsti laxinn veiddist í síðasta holli, 16 pundari á flugu á Kýrgrófarbroti. Lítið hefur enn gerst í Stekk og Munaðarnesi. Þeir sem þar hafa verið að veiðum hafa séð talsverða fiskför, en vatnsskilyrði hvetja lax- inn til að halda ferðinni áfram. Blanda er sú áin sem líflegust hefur verið. Þar höfðu veiðst milli 80 og 90 laxar í gær, nær eingöngu fallegir stórlaxar frá 10 til 14 punda. Nokkrir laxar veiddust í Haffjarð- ará, en fyrstu köstin voru tekin þar í gærmorgun. Laxarnir veiddust að- allega í Kvörninni og voru stórir. Afar stór fiskur, 18 til 20 punda, sást undir Gömlu Brú í vikunni áður og þá sáust einnig laxar í Gretti og við Nýju Brú. I Laxá í Aðaldal í gærmorgun fengust 8 laxar við Æðarfossa, einn var 18 punda og hinir voru á bilinu 9-14 pund. Þá veiddist einn lax í Brúarhyl. Undanfarið hafa margir laxar sést á neðsta svæðinu og allt upp að virkjun við Brúar. Laxinn er feitur og lúsugur og eru menn bjartsýnir á framhaldið. Fyrirlest- ur um stærð- fræðikennslu DR. Elizabeth Fennema frá Univers- ity of Wisconsin heldur fyrirlestur á morgun, miðvikudaginn 12. júní, kl. 15 í Kennaraháskóla íslands, stofu 301. Fyrirlesturinn er haldinn í boði Flatar — samtaka stærðfræðikennara ,og endurmenntunardeildar Kennara- háskóla íslands. í honum er fjallað um leiðir til að grundvalla stærð- fræðinám byijenda á skilningi þeirra og eigin hugmyndum um viðfangs- efni og lausnaleiðir. Dr. Fennema hefur um langt skeið stundað rannsóknir á stærðfræði- skilningi barna í samstarfi við fjöl- marga aðra fræðimenn. Þau ráð sem kennurum eru gefin eru afrakstur þessara rannsókna. Fyrirlesturinn er einkum ætlaður kennurum. -----»..»-«----- Kvöldferðir áEsju FERÐAFÉLAG íslands efnir til þein-- ar nýjungar að bjóða upp á Esjugöng- ur á þriðjudagskvöldum. Fyrsta ferðin er í kvöld, þriðjudagskvöldið 11. júní, kl. 19 og verður síðan farið á hálfs- mánaðarfresti til ágústloka. Miðað er við að þátttakendur komi á eigin bílum að Mógilsá og verður gengið þaðan að hringsjánni á Þverfellshorni. Nýlega hefur verið útbúið Esju- merki 1996 og verður það selt í göngunni á 400 kr. en merkið er tilval- in gripur til minningar um Esjugöngu. Esjugöngumar eru ennfremur tilvald- ar fyrir þá sem vilja æfa sig fyrir lengri gönguferðir sumarsins, segir í frétta- tiikynningu. LÖGREGLUMENN voru 30 sinnum kallaðir til vegna hávaða og ónæðis um helgina. Afskipti voru höfð af 56 einstaklingum vegna slæmrar ölvunarháttsemi á almannafæri, 16 ökumenn eru grunaðir um ölvunar- akstur, langflestir aðfaranótt sunnu- dags, og 52 þurfti að vista í fanga- geymslum af ýmsum ástæðum. Mest 2.500 manns í miðbænum Fremur rólegt var í miðborginni, þrátt fyrir mikinn mannsöfnuð. Enga unglinga þurfti að færa í at- hvarf ÍTR. Talið er að um 2.500 manns hafi verið á svæðinu þegar flest var. Aðila var ekið á slysadeild eftir slagsmál í Austurstræti. Skömmu síðar var öðrum ekið þang- að eftir slagsmál í götunni. Tveir voru handteknir. í Vallarstræti réðst ölvaður maður á fólk. Hann var handtekinn og vistaður í fanga- geymslum. Tilkynnt umferðaróhöpp helgar- innar voru 23, auk 4 slysa. Því mið- ur virðist vel meint umferðarátaks- vika nokkurra aðila gegn umferðar- slysum ekki hafa skilað sér í um- dæmi lögreglunnar í Reykjavík. Síð- degis á sunnudag varð barn í barna- vagni fyrir bifreið á Otrateig. Barn- ið slapp óskaddað, en skemmdir urðu á vagninum. Um kvöldið meiddist ökumaður eftir harðan árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Furumels og Grenimels. Um 70 ökumenn voru kærðir fyr- ir of hraðan akstur um helgina. Nokkrir þeirra voru sviptir ökurétt- indum til bráðabirgða, aðrir fá mis- jafnlega háar sektir. Sjö ára staðinn að hnupli Á föstudagsmorgun var tilkynnt um innbrot í bifreið í Mjóuhiíð. Úr bifreiðinni var stolið veski, sem fannst skömmu síðar í næstu götu. Geislaspilara var stolið úr bifreið við Kaplaskjólsveg og reiðhjóli var stolið úr læstri geymslu húss við Baldurs- götu. Ákveðinn aðili var grunaður um þjófnaðinn. Hjólið var sótt og komið í hendur eiganda þess. Geisla- spilara var stolið úr bifreið við Hálsasel. Skömmu eftir hádegi var tilkynnt um eld í húsi við Bakkavör. Þar hafði kviknað í eldavél í þvotta- húsi. Skemmdir urðu á millivegg, auk reykskemmda. Sjö ára drengur var staðinn að hnupli í verslun í Breiðholti. Hann var fluttur á lög- reglustöð og síðan sóttur þangað af foreldri. Oll börn undir lögaldri, sem staðin eru að hnupli eru flutt á lög- reglustöð þar sem gerðar eru í fram- haldi af því ráðstafanir til að hafa samband við barnaverndaryfirvöld og foreldra. Á föstudagskvöld féll bifreið, sem verið var að gera við ofan á mann í Húsahverfi. Maðurinn var talinn fótbrotinn. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild. Fíkniefni fundust á farþega bifreiðar, sem stöðvuð var á Hringbrautinni. Undir miðnætti var tilkynnt um ölvaðan mann henda sér í sjóinn í Sunda- höfn. Hann komst á þurrt af sjálfs- dáðum. Unglingspiltur var handtek- inn eftir að hafa brotist inn í vinnu- stofu í Breiðholti. Klámhundur gekk laus Á laugardagsmorgun var 4 hjól- koppum stolið af bifreið við Hverfis- götu. Farmiða var stolið af manni á veitingastað í Hafnarstræti. Um miðjan dag var tilkynnt um lausan klámhund á ferð um Elliðaárdal. Þar er slík lausaganga óheimil líkt og víðast hvar annars staðar. Kona rann til á hálum flísum sólbaðsstofu og kenndi til eymsla í mjöðm. Hún var fiutt á slysadeild með sjúkrabif- reið. Kona var staðin að hnupli í Hagkaup í Kringlunni. Um kvöldið datt drengur ofan af þaki húss við Unnarbraut. Um tveggja metra hátt fall var að ræða. Drengurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabif- reið. Hasspípa fannst í fórum manns við leit á veitingastað. Þá fundust áhöld til fíkniefnaneyslu við leit í bifreið er stöðvuð hafði verið á Hverfisgötu. Tiikynnt var um inn- brot í íbúðir við Hátún og Vífilsgötu. Skömmu eftir miðnætti á föstu- dag var þekktur fíkniefnamaður handtekinn með u.þ.b. 7 g af hassi, tvær E-töflur og peninga í fórum sínum. Hann var vistaður í fanga- geymslum. Undir morgun var maður sleginn í andlitið í Austurstræti og annar fékk spark í andlitið í Lækjar- götu. Einn maður var handtekinn vegna þessa. Barn klemmdist í rúllustiga Á sunnudagsmorgun var maður handtekinn í Þingholtunum. Hann var grunaður um fíkniefnaneyslu. Næturgestir í samkvæmi tóku með sér myndbandstæki húsráðanda í Hólahverfi. Skömmu eftir hádegi klemmdist barn á fíngri í rúllustiga í Kringlunni. Það var flutt með sjúkrabifreið á slysadeild. Brotist var inn í bílskúr við Bergstaðastræti og í bifreið við Vaðlasel. Úr henni var stolið geislaspilara. Síðdegis fékk stúlka körfuboltaspjald í andlitið við leik í Fjölskyldugarðinum. Stúlkan skarst á nefi og vankaðist. Hún var flutt á slysadeild. Geislaspilara var stolið úr læstri bifreið við Goðaland. Stúlka féll úr rólu húss við Hofteig. Hún meiddist lítilsháttar. Á mánu- dagsmorgun var tilkynnt um innbrot í bifreið við Flókagötu. Úr henni var stolið tveimur hátölurum. Af tilkynntum innbrotum undan- farnar vikur virðast þjófar oftar en ekki vera að sækjast eftir geislaspil- urum eða lausum verðmætum. Með því að skilja ekki eftir slík tæki eða lausa hluti í bifreiðunum að nætur- lagi er hægt að draga verulega úr tjóni og eignamissi, sem fylgir slík- um afbrotum. Unaðslegt umhverfi! Erum með í einkasölu tvo frábæra veitingastaði í Reykjavík. Annars vegar sérhæfðan skyndibitastað með mikla viðskipta- vild og hins vegar vínveitinga-, kaffi- og matsölustað m.m. Báðir þessir staðir eru í eigu sömu aðila og seljast sitt í hvoru lagi ef óskað er. Veitingastaðirnir eru reknir í eigin húsnæði og er mögulegt að fá keypt annað húsnæðið með staðnum ef áhugi er fyrir hendi. Þarna er á ferðinni frábært tækifæri fyrir trausta aðila til að skapa sér og sínum trausta og góða vinnu svo ekki sé talað um afkomuna. (13061 - 13062). Hóll - fyrirtækjasala, Skipholti 50b, sími 551 9400, fax 562 9091.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.