Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Halldór Keith Ikaia-Purdy tenór, Dmitri Hvorostovsky barýtón, Rannveig Friða Bragadóttir mezzosópran, Olga Romanko sópran, stjórnandinn Klauspeter Seibel, Sinfóníuhljómsveit íslands og Heimskórinn taka hyllingu áheyrenda í lok tónleikanna. Bragðdaufur heimskór TONLIST Laugardalshöll ÓPERUTÓNLEIKAR eftir Rossini, Verdi, Wagner, Gounod, Bizet & Puccini. Olga Romanko sópran, Rannveig Fríða Bragadóttir mezzosópran, Keith Ikaia-Purdy tenór, Dmitri Hvor- ostovsky barýtón, Heimskórinn (Worid Festival Choir) og Sinfóníu- hljómsveit íslands undir stjóm Klauspeter Seibels. Framkvæmdar- stjóri og listrænn stjómíindi Heims- kórsins: Jan Jensen. Laugardaginn 8. júní kl. 16. LAUGARDALSHÖLLIN var stútungsfull af fólki á laugardag- inn var og eftirvænting tónleika- gesta tilfinnanleg, þegar fjórir ein- söngvarar, Heimskórinn og Sinf- óníuhljómsveit íslands fluttu hvorki meira né minna en 25 kunn atriði úr óperubókmenntum undir stjórn Klauspeter Seibels. Flest var hér stórt í sniðum, líka tímalengdin, því tónleikarnir stóðu á fjórðu klukkustund. Stærð húss- ins var hins vegar ekki til marks um gæði þess sem tónlistarhúss, úr því að þótti nauðsynlegt að rafmagna upp ekki aðeins einsöng, heldur einnig hljómsveit og kór. Ekki hafði heldur verið gert ráð fyrir þjónustu við slíkan áheyr- endafjölda í framenda hússins við hönnun þess, því þar var allt pikk- fast í hléinu. Of fáar karlaraddir Á mörgu mátti skynja, að fyrir utan Hvorostovsky, bjartasta rúss- neska loftsteininn meðal barýtóna um þessar mundir, lék áheyrend- um einna mest forvitni á að heyra hljóðið í Heimskórnum, enda nokk- uð lagt upp úr frumraun hans hér á landi sem viðburði í forkynning- um. Tónleikaskráin nefndi tölur allt upp í 4.200 manna stærð á 11 ára starfsskeiði kórsins, en sleppti að geta þess, að hér væri fjöldi söngmanna aðeins 350; það kom hinsvegar fram í dagblaðs- auglýsingu daginn áður. Hefði sá fjöldi engu að síður átt að duga, og vel það, á móti 70 manna hljómsveit. Og vissulega heyrðist í kórnum, hversu mikið sem það var annars uppmögnun- inni að þakka. En þegar öllu er á botninn hvolft, olli framlag kórsins vonbrigðum. í fyrsta lagi var hlut- ur hans af dagskrá, miðað við að hann átti að heita meginaðdráttar- efni, full rýr; innan við ‘A eða 7 atriði af 25. í öðru lagi voru karla- raddir hlutfallslega allt of fámenn- ar, og kom það ekki sízt niður á Steuermann, steh’ die Wacht úr Hollendingnum fljúgandi. En það versta var þó, að kórinn skorti í heild allan kraft, snerpu og gljáa til að hrífa hlustendur til samræm- is við glæsilegt framlag einsöngv- ara og hljómsveitar, enda þótt inn- tónun kórsins væri annars nokkuð hrein, og gæti það að hluta verið tiltölulega háum meðalaldri söng- manna að kenna, ef þá ekki ein- faldlega því, að beztu söngmenn kórsins hafi af einhverjum ástæð- um verið fjarstaddir. Hljómsveitin lék snarpt og af innlifun Tónleikarnir voru firnalangir, jafnvel fyrir hörðustu óperuaðdá- endur, og sérstaklega miðað við aðstæður - vont hús, Iítið sam- hengi milli efnisatriða, hvorki sviðsleikur né búningar, fyrir utan þennan þreytandi uppmögnunar- tón, sem þrátt fyrir heyranlega viðleitni tæknimanna til endurbóta þegar á leið hélt þeirri tilfinningu hlustandans vakandi til loka, að leikið og sungið væri í gegnum trekt. Tónleikaskráin var þar að auki til lítillar upplyftingar í fróð- leiksfátækt sinni, miðað við hvað hún var í stóru broti, og vantaði ýmsar lágmarksupplýsingar um heiti aría og kóra úr tilteknum óperum. Það var ekki einu sinni tilgreint hver söng hvað. Klauspeter Seibel náði að setja persónulegt og jákvætt mark sitt á spilamennskuna þegar frá upp- hafi í Forleik Rossinis að Rakaranum í Sevillu. Að svo miklu leyti sem heyra mátti óbijálað gegnum uppmögnunina, var hljómsveitárleikur- inn nákvæmur, snarpur og innlif- aður, og stjómandinn átti greini- Iega auðvelt með að tempra styrk og hraða við hæfí kórs og ein- söngvara, svo til fyrirmyndar var. Síberski barýtóninn Dmitri Hvorostovsky sigraði sömuleiðis salargímaldið strax í fyrstu at- rennu með aríu Fígarós úr Rakar- anum. Þó að uppmögnunin hefði leiðinda tilhneigingu til að draga fram strigann í röddinni á kostnað hljómfyllingar, var það sem við heyrðum samt furðu hlýlegt, og söngtækni hins unga Rússa (þ.á m. rosalegt úthald) var slík, að athyglin gat beinzt ótrufluð að túlkuninni. Enda þótt sungið væri á ítölsku, leyndi sér ekki, að Hvor- ostovsky bar höfuð og herðar yfír aðra söngvara hvað textatúlkun varðar, og sýndi í aríu rakarans afburða leikhæfileika sína með verulega kómískum tilþrifum. Hvorostovsky söng síðar aríu Renatos í Grímudansleiknum, Val- entíns úr Faust eftir Gounod og Posas úr Don Carlo, auk tvísöngs með tenórnum næst þar undan og þrísöngs með tenór og sópran úr Trúbadúrnum. Söng hann allt af- burðavel, en þó e.t.v. eftirminni- legast í hlutverki Renatós, þar sem samleikur flautnanna og hörpunn- ar settu sætan aukapunkt yfir i-ið. Sama gilti um strengjaintróið að Posa-aríunni, er leikið var af espandi dulúð. Þung og dramatísk sópranrödd Þeir sem voru fyrir þungar og dramatískar sópranraddir, kunnu örugglega að meta Olgu Rom- anko. Rússneska sópransöngkon- an söng aríu Leónóru úr Trúbad- úrnum og stuttu síðar aríu Amelíu úr Grímudansleiknum af miklu öryggi og krafti. Söng hún seinna tvísöng með tenórnum úr síðar- nefndri óperu, er verkaði fremur langdreginn, Iíka sem tónsmíð. Annan tvísöng með tenórnum, mjög innilegan, söng hún í hlut- verki Mímíar úr La Bohme, en næst þar á undan einsöngsaríu í sama hlutverki, sem að minni hyggju er hugsað fyrir nokkru létt- ari raddgerð en þessa, enda þótt söngkonan færi vel með. Loks söng hún aríu Aidu úr samnefndri óperu, og átti þar líklega sterkasta innslag sitt að þessu sinni. Kom það ekki sízt fram í geysifallegu nið- urlagi, sem endaði með löngum tóni á hægu dímínúendói a/ niente. Habaneran var signr fyrir Rannveigu Rannveig Fríða Bragadóttir, einsöngvari við Ríkisóperuna í Vín, hlaut fæst tækifæri ailra að þessu sinni, tvær einsöngsaríur en engan samsöng, burtséð frá nokkrum tónaskiptum við Romanko í upp- hafi aríu Leónóru úr Trúbadúrn- um. Fyrst söng hún Rosínu úr Rakaranum, en eftir hlé hina tæl- andi Habaneru Carmenar eftir Bizet. Að mínum smekk færi hinn vaggandi flúrsöngur Rosínu bjart- ari, eða allavega ’bit-meiri’, rödd betur (þetta var eitt af glansnúm- erum Maríu Callas) en hinni dimmu mezzórödd Rannveigar, sem m.a.s. stundum hljómar á neðra sviði líkt og hún sé dekkt vísvitandi, en söngkonan fór engu að síður glettilega vel með þennan krefjandi barkabijót. Habaneran var ótvíræður sigur fyrir Rann- veigu, er sýndi þar nýja og ’hættu- lega’ hlið á söngpersónuleika sin- um sem undirritaður hefur ekki upplifað áður, enda ætlaði allt um koll að keyra úti í sal, þegar síð- asti tónninn fy'araði út. Birtist stolt tenórrödd með hljómmikilli hæð Hawaiíski tenórinn Keith Ikaia- Purdy virtist svolítið lokaður fram- an af. Fyrst söng hann Rodolfo í aríu úr Luisa Miller (Verdi), en eftir hlé annan Rodolfo, þann úr La Bohéme. Einnig söng hann með í þrísöng úr Trúbadúrnum og í tvísöngvum úr Grímudansleikn- um, La Bohéme og Don Carlo. Þegar á leið, opnaðist söngfærið og afhjúpaði stælta tenórrödd með hljómmikla hæð, einna fallegast í ’Hve köld er litla höndin’, sem var túlkuð af karlmennskulegum næmleika, en einnig í hinum áhrifamikla dúett Don Carlos og Posas á móti Hvorostovsky, þar sem hljómsveitin bætti um betur með skemmtilega mergjaðri snerpu. Sæmilega viðunandi lokapunktur Heimskórinn tók á sig rögg í lokaatriðinu, Sig- urmarsinum úr Aida, og setti þannig sæmilega viðunandi endapunkt við tónleikana. Ekki var seinna vænna. Hljómsveitin lék af viðeigandi glæsibrag og brá hvergi skugga á, ef undan er skilið óskilj- anlegt smáklúður í upphækkun trompetakaflans fræga, sem að öðru leyti var sigurvissan uppmál- uð. Ríkarður Ö. Pálsson Þjóðleikhúsið Taktu lagið, Lóa! á stóra sviðinu og leikferð TAKTU lagið, Lóa! eftir Jim Cartwright, sem Þjóðleikhúsið sýndi á Smíðaverkstæðinu, er nú á leið í leikferð. Áður en ferðin hefst, verða fjórar sýningar á Stóra sviði Þjóðleikhússins, en verkið var sýnt alls 95 sinnum á tveimur leikárum og sló sýningarmet á Smíðaverk- stæðinu. Kristbjörg Kjeld hiaut Menning- arverðlaun DV í leiklist 1995 fyrir túlkun sína á móðurinni, en Ólafía Hrönn Jónsdóttir fer með hlutverk Lóu. Leikstjóri er Hávar Siguijóns- son. 100. sýning á Akureyri Leikferð Þjóðleikhússins hefst 27. júní og verður 100. sýning á Taktu lagið, Lóa! á Akureyri það kvöld. Sýnt verður fjögur kvöld í röð á Akureyri, þar næst á Blöndu- ósi 3. júií og Egilsstöðum 5. og 6. júlí. Þórólfur Stefánsson Gítarleikur í Norræna húsinu ÞÓRÓLFUR Stefánsson gítarleik- ari heldur tónleika í Norræna hús- inu miðvikudaginn 12. júní kl. 20 og í Deiglunni á Akureyri sunnu- daginn 23. júní kl. 20.30. A efnisskránni eru verk eftir Mertz, Piazzolla og Jón Ásgeirsson. Þórólfur er búsettur í Svíþjóð og starfar þar sem gítarleikari og kennari. Listahátíð í Reykjavík 1996 Þriðjudagur 11. júní Den Danske Trio. Nor- ræna húsið: Tónleikar kl. 20.30. Circus Ronaldo. hljóm- skálagarðurinn: Frumsýning í tjaldi sígauna kl." 20. „GaIdra-Loftur“. íslenska óperan: 5. sýning kl. 20. Jötuninn eftir Evrípídes. Loftkastalinn: 2. sýn. kl. 20.30. Klúbbur Listahátíðar: Loftkastalinn: Opið frá kl. 17. Flest var stórt í sniðum Kórinn tók á sig rögg í lokin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.