Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996 39 Samtök okkar, Landssamband íslenskra rafverktaka og Rafiðnað- arsamband íslands, hafa til margra ára rekið saman Ákvæðisvinnustofu rafiðna og gerðist Svavar starfs- maður hennar árið 1980 og fram- kvæmdastjóri frá árinu 1986. Ég kynntist Svavari þegar ég árið 1987 hóf störf á Ákvæðisvinnu- stofunni. Ég lærði margt af Svav- ari. Hann var mjög samviskusamur og nákvæmur í öllum sínum athöfn- um og starfið var honum nánast sem hugsjón. Framgangur ákvæð- isvinnunar var honum hjartans mál og hann vildi ávallt hag stéttar sinn- ar sem bestan. Hann var einarður og hafði ákveðnar skoðanir á hlut- unum en þrátt fyrir að við værum ekki alltaf sammála bar aldrei skugga á samstarf okkar og vináttu. Svavar tókst á við erfiðan sjúk- dóm af æðruleysi og í trú á æðri máttarvöld, með þeim eiginleikum sem líf hans oft á tíðum krafðist. Kæra Ragnhildur og Svavar Geir, megi guð varðveita ykkur og styrkja um ókomna framtíð. Ásbjörn Ragnar Jóhannesson. Menn gefa samferðarmönnunum mismikið á lífsleiðinni og gjafirnar eru frábrugðnar að gerð og lögun. Við fráfall vinar okkar, Svavars Guðbrandssonar, framkvæmda- stjóra Ákvæðisvinnustofu rafiðna, er sem dregið hafi fyrir birtuna í bili, eitt af leiðarljósum rafiðnar á íslandi er slokknað, en við huggum okkur við að maður kemur í manns stað og þá birtir að nýju. Það gengur ekki alltaf þrauta- laust að gera kjarasamninga, en öllu meiri vandi er þó að semja og endurbæta ákvæðisvinnutaxta, sem eru eini raunverulegi mælikvarðinn á vinnu rafvirkja. Þegar þannig verk bar á fjörur samningamanna var Svavar ævinlega kallaður til. - Það var því ekki að tilefnislausu að hann réðst til Ákvæðisstofu rafiðna fyrir rúmum hálfum öðrum áratug, gerð- ist forstöðumaður hennar sex árum seinna og starfaði þar af ótrúlegum dugnaði og æðruleysi til æviloka, þrátt fyrir afar erfítt heilsufar síð- ustu árin. Á vissan hátt var Svavar guðfað- ir ákvæðisvinnutaxtans, a.m.k. í því nútímalega formi sem hann átti mestan þátt í að þróa. - Fram- kvæmdastjórastarfinu fylgdu fjöl- þætt samskipti við kaupendur og seljendur verka, svo og rafvirkjana sem þau unnu, auk margvíslegra útreikninga og áætlanagerða. - Segja má að þarna hafi verið um þrenns konar hagsmuni að ræða, sem oft þurfti að sætta, en ekki minnist ég þess að dregið hafí verið í efa hlutleysi Svavars og heiðar- leiki. Þótt um verulega fjármuni væri að ræða virtist honum takast að ganga á milli án þess að vand- ræði hlytust af. Opinberir aðilar þurftu oft í smiðju Svavars og var þar sömu sögu að segja að á þeim bæ var borið fullt traust til nákvæmni og færni þess manns sem hafði þrek til að lyfta sér yfír tímabundin átök og væringjar, og hafði það að leiðar- ljósi að halla aldrei réttu máli hver sem í hlut átti. Þótt Svavar hefði komist til manns löngu fyrir tölvur lét hann sér hvergi bregða þegar þær þustu fram á völlinn, alls ófullkomnar til að takast á við þau verkefni sem væntingar gerðu ráð fyrir. - Hann hafði vit á að bfða af sér fyrsta storminn og vanda þeim mun meira allan undirbúning við að gera taxt- ann tölvutækan þegar tölvurnar voru orðnar til þess vel hæfar og viðskiptamenn undir það búnir. - Þessi vinna Svavars lagði grundvöll- inn að magntöku rafverka, en án þess grunns verður ekki vinna raf- virkja reiknuð út af neinu viti. Það sem fólk e.t.v. mat mest við Svavar var hve varkár hann var í orði um menn og málefni, sem gekk stundum svo langt að okkur, sem ekki erum eins orðvarir, þótti stund- um nóg um, en fljótræði í dómum um menn og málefni var honum ekki eiginleg. - Þetta var lærdóms- ríkt fyrir þá sem vom óvarkárari, skoðanir hans urðu af þessum sök- um þyngri á metunum. Þótt kynni okkar Svavars tengist að mestu vinnunni og í fyrstu setu hvor sínu megin við samningaborð- ið, skyggði það aldrei á góðan anda og vinskap, sem nauðsynlegt er að svífi yfír öngstrætum kjaramála. - Þótt menn standi á rétti þeirra sem þeir vinna fyrir þurfa slík átök ekki að leiða til vinslita og það er mikið lán að eiga samleið með mönnum sem hægt er að treysta, standa við orð sín, vita hvað þeir segja og stunda ekki baktal. Við áttum þess kost að ferðast saman bæði innanlands og utan, en einna minnisstæðast er mér og konu minni ferðalag um heimastöðvar Svavars, vegna kunnugleika hans og skemmtilegs frásagnarmáta, sem okkur þótti mikið til koma. - Nú þegar leiðir skiljast er margs að minnast, sem gaman væri að rifja upp, en það verður að bíða betri tíma ef við skyldum seinna hittast aftur til að spjalla. Eiginkonu Svavars, frú Ragnhildi Óskarsdóttur, syni og öðrum vanda- mönnum vottum við dýpstu samúð vegna fráfall þessa frábæra föru- nautar. Árni Brynjólfsson. BERGÞÓRA JÚLÍUSDÓTTIR + Bergþóra Júl- íusdóttir fædd- ist í Reykjavík 21. ágúst 1905. Hún lést í Reykjavík 21. apríl síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkj- unni 80. april. Amma mín Bergþóra Júlíusdóttir er látin. Hún fæddist í Skugga- hverfinu í Reykjavík og var fyrsta bam ungra sjómannshjóna, Ing- veldar Jóhannsdóttur og Júlíusar Arasonar. Þegar hún var aðeins á fyrsta ári missti hún föður sinn í sviplegu sjóslysi á Viðeyjar- sundi. Því fór það svo að amma mín ólst upp í faðmi móðurfjölskyldu sinnar, afa og ömmu Bergþóru og Jóhanns og fimm bama þeirra. Hún varð eina barn þessara systkina, sem upp komst og því bæði sólar- geislinn þeirra og stolt alla tíð. Bergþóra giftist Jó- hannesi Jónssyni. Þau eignuðust ekki böm saman en tóku að sér tvö kjörbörn, Þorkel og Ingveldi Jóhannesbörn. Amma mín var hús- móðir að ævistarfi og jafnvel þótt fjölskylda hennar væri ekki stór þá var oft fjölmennt á heimilinu og margir höfðu þar viðkomu í lengri eða skemmri tíma. Heimilið var rekið af myndarskap og gestrisni ávallt mikil. Hún hafði gaman af fjöl- menni og hélt ófáar veislurnar fyrir vini og fjölskyldu meðan heilsa og lífsþróttur entist henni. Ámma mín tilheyrði einni af fyrstu kynslóð innfæddra Reykvík- inga. Ég man eftir henni sem glæsi- legri konu, raunverulegri dömu, án þess þó að tepruskapar gætti. Oft reyndi hún að kenna nöfnu sinni betri siði en hafði sjaldan árangur sem erfíði. Hún var félagslynd, létt í skapi og hafði til að bera umburð- arlyndi til þess að sjá skárri parta náungans. Oft þegar talið barst að löstum náungans sagði hún: „Æ, við erum nú öll einhvern veginn,“ og minnti okkur þannig á að allir hafa bæði kosti og lesti. Auk þess að reka heimilið stund- aði Bergþóra hannyrðir alla tíð. Þannig skapaði hún falleg listaverk sem við getum öll glaðst yfir að eiga til minningar nú er hún er horfin af sjónarsviðinu. Dauðinn kom til Beggu ömmu sem líkn við þraut fyrir bæði líkam- ann og sálina sem ekki gátu tekist á við lífið héma megin grafarinnar öllu lengur. Við sem eftir erum þökkum fyrir mörg góð ár og vonum að allar góðar vættir vaki yfir henni þar sem leið hennar liggur nú. Bergþóra Þorkelsdóttir. KRISTJÁN MARGEIR JÓNSSON ar stundirnar sem við sátum í eldhús- inu hjá þér og ömmu og spiluðum ólsen eða lögðum kapal eins og þú kenndir mér. Það sem mér þykir einna vænst um er hversu góður þú varst mér, þú áttir alltaf nóg af fall- egum orðum og hrósi og því leið mér alltaf vel hjá þér. Þú lést mig vita að ég er mikilsverð og það var gott fyrir mig sem barn og einnig nú þegar ég er fullorðin. Allar góðu stundirnar okkar ætla ég að geyma í hjarta mínu afi minn og alltaf mun ég muna eftir bjarta brosinu þínu og hlýju lófunum þínum er þeir struku vangann minn. Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið, og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sina. En meðan árin þreyta hjörtun hinna, sem horfðu á eftir þér í sárum trega þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðmundsson) Vertu sæll, afi minn. Þín + Kristján Mar- geir Jónsson fæddist á Galtar- hrygg í Reykja- fjarðarhreppi 22. október 1915. Hann lést í Kristnesspít- ala 1. júní sl. For- eldrar hans voru Guðbjörg Efemía Steinsdóttir og Jón Ólason. Kristján var fjórði í röð ellefu systkina. Hann kvæntist Hólmfríði Jónsdóttur 22. októ- ber 1949 og áttu þau fjögur börn: Ólöfu Guðbjörgu, maki Ingimar Snorri Karlsson; Jónheiði, maki Rún- ar Jóhannsson; Ósk- ar, maki Björk Mikaelsdóttir og Bjarna, maki Ragn- heiður Bragadóttir. Áður eignaðist Kristján dótturina Huldu, f. 26. mars 1938, d. 18. janúar 1995. Móðir Huldu er Stefanía Finn- bogadóttir. Barna- börn Kristjáns eru 19 og barnabarna- börnin 22. Útför Kristjáns var gerð frá Akureyrarkirkju mánudaginn 10. júní. Elsku afi. hvíldina en samt er það sárt að hugsa Nú ert þú búinn að kveðja og ég til þess að þú sért farinn. Ég hef svo veit að það er gott fyrir þig að fá margt að þakka þér. Þær voru marg- t Faðir minn og sonur, ÞÓRIR ÓLAFSSON, Tunguvegi 5, Hafnarfirði, andaðist á heimili móður sinnar þann 9. júní. Fyrir hönd aðstandenda, Þórey S. Þórisdóttir, Stefanía Guðmundsdóttir. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, systir, amma og langamma, FILIPPÍA KRISTJÁIMSDÓTTIR (Hugrún) frá Brautarhóli, Svarfaðardal, til heimilis f Seljahlfð, Hjallaseli 55, andaðist í Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn 8. júní. Útförin verður auglýst síðar. Einar Eirfksson, Helgi Valdimarsson, Guðrún Agnarsdóttir, Ingveldur Valdimarsdóttir, Ágúst Eiríksson, Svanfrfður Kristjánsdóttir, Sigurður Kristjánsson, Lilja Kristjánsdóttir, Ólöf Ásgeirsdóttir Þormar, Ásgeir Helgason, Valdimar Helgason, Birna Helgadóttir, Agnar Helgason, Kristján Helgason, Ingibjörg Guðmundsdóttir og barnabarnabörn. t Elskuleg eiginkona mfn, JÓNAGUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Bakkagerði 13, lést í Landspítalanum að kvöldi 9. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Steindór Guðmundsson. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR HELGASON, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 9. júní. Útförin fer fram frá Akranesskirkju föstudaginn 14. júnf kl. 14.00. Helgi Sigurðsson, Stefanía Sigmarsdóttir, Sigrún Erla Sigurðardóttir, Haukur Ármannsson, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir minn, tengdafaðir og bróðir okkar, ÆVAR GUNNARSSON, lést á gjörgæsludeild Landspítalans að kvöldi 9. júní. Guðmundur Ævarsson, Hildur Gunnarsdóttir, Gunnar Þ. Gunnarsson, Sverrir Gunnarsson, Þorgerður Gunnarsdóttir. 4 t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HJÖRLEIFUR EINAR FRIÐLEIFSSON vaktstjóri, sem andaðist í Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 3. júní, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 12. júní kl. 13.30. Sigríður Helga Árnadóttir, Árni Hjörleifsson, Stella Hjörleifsdóttir, Árni Jóhannesson, Sveinn Erlendur Hjörleifsson, Hinrik Arnar Hjörleifsson, Sigrfður Ósk Reynaldsdóttir, Hjörleifur Einar Hjörleifsson, Unnur Guðfinna Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hólmfríður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.