Morgunblaðið - 11.06.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kári Jónsson
STULKAN rótaði talsvert á heilsugæslustöðinni
á Laugarvatni í leit sinni að lyfjum.
Stal lyfjum og
peningum
Þyrla flutti
fótbrotna konu
LÖGREGLUNNI á Selfossi var síð-
degis á laugardag tilkynnt um að
kona hefði dottið og fótbrotnað á
Ölkelduhálsi í Grafningi. Hún var á
göngu frá Nesjavöllum til Hvera-
gerðis þegar óhappið varð. Lögreglan
bað Landhelgisgæsluna um að sækja
konuna og var flogið með hana á
Sjúkrahús Reykjavíkur þar sem gert
að meiðslum konunnar.
Bílvelta varð á Suðurlandsvegi við
Litlu kaffístofuna á sunnudag. Öku-
maður og farþegi voru fluttir á
sjúkrahús í Reykjavík.
Lögreglan á Selfossi stöðvaði sex
ökumenn, grunaða um ölvun, um
helgina.
SAUTJÁN ára stúlka úr Reykjavík
braust aðfaranótt sunnudags inn í
verslunina H-Sel og heilsugæslu-
stöðina á Laugarvatni.
Stúlkan braust fyrst inn í heilsu-
gæslustöðina, rótaði þar talsvert og
stal pillum sem hún tók inn. Síðan
lagði hún leið sína í verslunina H-
Sel og hafði á brott með sér lítil-
ræði af peningum og smávegis af
vörum. í H-Seli er öryggiskerfi sem
fór í gang og vakti eigendur.
Á sama tíma hringdi stúlkan til
Reykjavíkur og lét vita af sér; að
hún hefði brotist inn og tekið inn
lyf. Lögreglan á Selfossi var látin
vita og voru lögreglumenn sendir
til Laugarvatns þar sem stúlkan
fannst í símaklefa. Hún var síðan
flutt til Reykjavíkur á sjúkrahús.
Hæstiréttur staðfesti 8 mánaða fangelsisdóm
Dæmdur fyrir að eiga
o g selja fíkniefni
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
héraðsdóm yfir 23 ára gömlum
manni fyrir að hafa haft í fórum
sínum og selt hass, amfetamín og
E-töflur. Þetta er í fyrsta sinn sem
hæstaréttardómur fellur í máli þar
sem E-töflur koma við sögu.
Maðurinn var í Héraðsdómi Aust-
urlands dæmdur í átta mánaða
fangelsi í desember sl. Hann var
ákærður fyrir að hafa fyrri hluta
síðasta árs haft í vörslu sinni 40 g
af hassi, 40 g af amfetamíni, og
17 E-töflur og hafa selt þremur
ungum mönnum, þar af einum 18
ára, 30 g af amfetamíni, 33 g af
hassi og E-töflurnar 17. Einn hinna
þriggja manna keypti sýnu mest
eða 25 g af amfetamíni, 30 g af
hassi og 9 E-töflur. Við leit í bíl
ákærða fann lögreglan 12 g af
amfetamíni og hálft gramm af
hassi.
Maðurinn viðurkenndi brot sín
skýlaust og kvaðst hafa haft 94.500
krónur í hagnað af sölu efnanna. I
dómi Hæstaréttar segir að við mat
á refsingu verði að líta til þess að
brot ákærða varði talsvert magn
af stórhættulegum fíkniefnum sem
hann seldi að hiuta unglingum.
Hann hafi hins vegar greiðlega
gefið upplýsingar um brot sín. Þá
verði að líta til aldurs hans og fram-
ferðis eftir brotið, svo og þess að
hann hafi ekki áður gerst sekur um
refsivert athæfi svo máli skipti í
þessu sambandi. Niðurstaða Hér-
aðsdóms um 8 mánaða fangelsi var
staðfe’st. Maðurinn var dæmdur til
að greiða áfrýjunarkostnað.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Markús Sigurbjörnsson og
Gunnlaugur Claessen og Björn Þ.
Guðmundsson prófessor.
Forsetaframbjóðendur í sjónvarpssal
Vilja afnema
skattafríðindi
embættisins
ALLIR forsetaframbjóðendurnir fimm lýstu sig hlynnta því að afnema
skattafríðindi forsetaembættisins, í beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins í
fyrrakvöld. Pétur Hafstein kvaðst telja það miður að Alþingi afgreiddi
ekki á liðnu þingi frumvarp til laga um afnám skattfrelsis forseta íslands.
Yelferðar-
ráðstefna í
Reykjavík
FRAMTÍÐ norræna velferðarsamfé-
lagsins er viðfangsefni ráðstefnu í
Reykjavík sem hefst í dag í Háskóla-
bíói kl. 9. Á ráðstefnu Norrænu ráð-
herranefndarinnar um framtíðar-
horfur í velferðarmálum „Morgenda-
gens velfærdssamfund" verður
stefna Norðurlanda og Evrópu í vel-
ferðarmálum rædd út frá ýmsum
sjónarhomum. Stuðningur við at-
vinnulausa, atvinnuskapandi aðgerð-
ir, jafnrétti og félagslegt öryggi eru
nokkur lykilatriði á ráðstefnunni.
Ráðstefnuna sækir tugur norrænna
ráðherra sem fara með mál er varða
réttindi þegnanna. Meðal ræðumanna
er Pádraig Flynn, sem á sæti í fram-
kvæmdastjóm ESB, Ingibjörg Pálma-
dóttir heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra, Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra, Sigrún Júlíusdóttir lektor.
Ole Norrback, samstarfsráðherra
Finnlands opnar ráðstefnuna.
í þættinum kom einnig fram að
forsetaframbjóðendurnir hyggjast
eyða mismiklum gármunum í kosn-
ingabaráttunni. Ástþór Magnússon
áætlar að hann muni eyða um 30
milljónum í kosningabaráttunni, Ól-
afur Ragnar Grímsson telur að kosn-
ingabarátta hans geti kostað allt að
18 milljónum króna, Guðrún Agnars-
dóttir áætlar kostnað við sína kosn-
ingabaráttu um 10 milljónir króna,
en þau Guðrún Pétursdóttir og Pétur
Hafstein kveðast ekki hafa tölulegar
upplýsingar á hraðbergi um kostnað-
inn.
Guðrún Pétursdóttir upplýsti í
þættinum, að ástæður þess að hlé
hefur verið gert á birtingu sjónvarps-
auglýsinga fyrir framboð hennar
væm þær að „framboðið veður ekki
í peningum“. Pétur Hafstein greindi
frá því að hann hefði sett þá reglu,
að því er varðaði framlög í kosninga-
sjóð hans, að hámarksframlag frá
einstaklingi eð fyrirtæki væri ein
milljón króna.
Allir frambjóðendurnir utan einn,
Ástþór Magnússon, lýstu því yfír,
að reikningar kosningasjóða þeirra
yrðu gerðir opinberir að afloknum
kosningum. Astþór svaraði ekki
þeirri spurningu fréttamannanna.
Morgunblaðið/Þorkell
SsangYong Musso seldist upp
FYRSTA sending sem Bilabúð
Benna fékk af SsangYong Musso
jeppanum frá Suður-Kóreu seldist
upp um helgina. Bíllinn var frum-
kynntur sl. laugardag. Tíu bílar
voru í fyrstu sendingunni og segir
Benedikt Eyjólfsson, eigandi Bíla-
búðar Benna, að næsta sending,
sjö bílar sem koma eftir hálfan
mánuð, séu einnig seldir.
Benedikt segir að nú sé verið
að reyna að fá nýja sendingu af
Musso frá Þýskalandi. Um helgina
reynsluóku 230 gestir jeppanum.
Landsfundur Þjóðvaka
Hvatt til samem-
ingar j afnaðarmanna
LANDSFUNDUR Þjóðvaka var
haldinn í Viðey á laugardag og sóttu
hann á sjötta tug manna samkvæmt
frétt frá Þjóðvaka.
Nokkrar lagabreytingar voru sam-
þykktar og kosin 39 manna stjóm.
Jóhanna Sigurðardóttir var endur-
kjörin formaður, Svanfríður Jónas-
dóttir varaformaður og Ágúst Einars-
son ritari hreyfingarinnar. Svanur
Kristjánsson stjórnmálafræðingur
flutti erindi þar sem hann skilgreindi
þróun stjómmála frá því Þjóðvaki var
stofnaður og til dagsins í dag.
í stjórnmálaályktun landsfundar
Þjóðvaka segir m.a.: „Jafnaðarmenn
vilja veiðileyfagjald í sjávarútvegi,
sambærilegt orkugjald við nýtingu
orkulinda og nýjan búvörusamning,
sem er hagkvæmur neytendum og
bændum... Jafnaðarmenn vilja
öflugt velferðakerfi sem rekið er á
fjárhagslega hagkvæman hátt, með
áherslu á forvarnir, sjálfsvirðingu
og stuðning við fjölskylduna...
Landsfundur Þjóðvaka telur að
stefna núverandi ríkisstjórnar og
góð samvinna þingflokka stjórnar-
andstöðunnar feli í sér áskorun til
jafnaðarmanna að vinna enn betur
saman á næstu árum.
Landsfundurinn skorar á jafnað-
armenn að bjóða sameiginlega fram
við næstu Alþingiskosningar. Hinar
mörgu fylkingar jafnaðarmanna,
sem vilja róttæka uppstokkun í þjóð-
lífinu, verða að snúa bökum saman
í baráttu fyrir betri framtíð."
YANTAR ÞIG FATASKÁP?
ÞAÐ ERU TILBOÐSDAGAR HJA OKKUR
Á ÖLLUM FATASKÁPUM MEÐ RENNI-
HURÐUM.
NÚ GEFST EINSTAKT TÆKIFÆRITIL AÐ
FJÁRFESTA í RÚMGÓÐUM FATASKÁP
MEÐ 15% AFSLÆTTI.
ALLIR SKÁPAR ERU FRAMLEIDDIR EFTIR
MÁLI. í BOÐIER ÝMISSKONAR ÚTLIT M.A.
SPEGLAR OG ÝMSAR VIÐAR TEGUNDIR.
15% AFSLÁTTUR
Hamraborg 1. Kópavogur
Simi: 554 4011