Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996 13
I
)
)
\
|
w
í
)
i
A
¥
i
.
I
D
$
gj
i
&
&
i
Morgunblaðið/Kristján
STEFÁN afhendir Rögnvaldi gjöfina, 650 þúsund
krónur til tækjakaupa.
Snjóleysi setti strik í reikninginn í Hlíðarfjalli
Rekstur Skíðastaða erfiður
REKSTUR Skíðastaða í Hlíðar-
íjalli gekk illa í vetur enda var
nýliðinn vetur sá snjóléttasti í lang-
an tíma. ívar Sigmundsson, for-
stöðumaður Skíðastaða, segir að
tekjumar í vetur hafi aðeins verið
rúmlega fjórðungur af því sem
áætlanir gerðu ráð fyrir en á móti
hafi rekstrargjöld verið lægri en
áætlað var. „Við huggum okkur
við að svona vetur kemur tæpast
aftur á þessari öld.“
Ivar sagðist ekki hafa tölu yfir
fjölda skíðagesta en þeir hafi samt
verið mun færri en undanfarin ár.
Hann nefndi sem dæmi að von
hafi verið á 15 hópum skólafólks
í heimsókn en aðeins 1 hópur hafi
skilað sér í fjallið. „Þegar ekki er
hægt að hafa barna- og byijenda-
lyftur í gangi kemur skólafólkið
síður og það á einnig við um stór-
an hluta almennings. Við vorum
með opið í um 70 daga í vetur en
oft var það eingöngu fyrir æfingar
keppnisfólksins okkar,“ sagði ívar.
Hann sagði þó jákvætt að öll
helstu skíðamót landsins voru flutt
til Akureyrar og m.a. göngumót
frá Siglufirði. „Keppnisfólkið okk-
ar var mjög ánægt með veturinn
enda hefur sjaldan eða aldrei verið
jafnt gott skíðafæri fyrir keppnis-
fólk og einmitt í vetur. Viku eftir
viku var alltaf sama harða færið
og yfirleitt gott veður. Árangur
akureyrska skíðafólksins var mjög
góður og sérstaklega þeirra í ungl-
ingaflokkunum. Einnig voru þeir
keppendur sem sóttu okkur heim
ánægðir með skíðafærið á mótum
vetrarins.
Plastiðjan Bjarg
Kiwanis-
menn gefa
fé til tækja-
kaupa
SVEINBJÖRN Árnason, svæðisstjóri
Óðinssvæðis Kiwanishreyfingarinnar
sem nær frá Ólafsfirði til Vopnafjarð-
ar, afhenti Rögnvaldi Símonarsyni,
forstöðumanni Plastiðjunnar Bjargs,
650 þúsund krónur sem ætlaðar eru
til tækjakaupa fyrir plastiðjuna.
Um er að ræða hluta af ágóða af
sölu K-lykilsins sem Kiwanismenn
selja um land allt á þriggja ára fresti.
K-lyklar voru seldir í fyrra, í 7. sinn,
og var andvirðinu að mestu varið til
kaupa á íbúð í Reykjavík sem ætluð
er fyrir fjölskyldur geðfatiaðra barna
sem leita þurfa þar aðstoðar. Þá fékk
Sogn í Ölfusi einnig peninga að gjöf.
Rögnvaldur sagði að Plastiðjan
Bjarg myndi njóta góðs af gjöfinni,
fjármuni vantaði til að endurnýja
tæki og búnað á vinnustaðnum þar
sem starfa fjórir öryrkjar í föstu
starfi auk þess sem þar eru 14 stöð-
ur fyrir fólk í starfsendurhæfingu til
6 mánáða í senn.
-----» ♦ ♦-----
Bráða-
birgðalau-
snir á hús-
næðismálum
Síðuskóla
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur sam-
þykkt tillögu frá starfshópi um mál-
efni Síðuskóla um bráðabirgðalausn
á húsnæðismálum skólans næsta
skólaár.
í tillögunum er gert ráð fyrir að
gengið verði til samninga við Skáta-
félagið Klakk um samnýtingu við
Síðuskóla á húsnæði félagsins í Gler-
árkirkju. Með hagræðingu innanhúss
í núverandi húsnæði skólans verði
útveguð ein viðbótarkennslustofa
auk þess sem heimilað verði að smíð-
uð verði ein laus kennslustofa sem
komið verði fyrir við skólann fyrir
haustið.
Bæjarráð hefur fallist á tillögumar
og felur bæjarverkfræðingi að láta
bjóða út smíði einnar lausrar
kennslustofu eins fljótt og auðið er.
Kostnaði, sem er áætlaður um 8
milljónir króna, er vísað til endur-
skoðunar fjárhagsáætlunar.
- kjarni málsins!
Eigum til afgreiðslu strax nokkra vel útbúna sjálfskipta
Hyundai Accent á verulega lækkuðu verði.
Þeir sem fyrstir bregðast við, aka út á glænýjum bíl, hlöðnum
aukabúnaði, en á verði sem er ólíklegt að sjáist í bráð.
Sjálfskiptur Accent--
• Álfelgur
• Vindskeið með bremsuljósi
• 1500 sm3 vél
• 90 hestöfl
Bein innspýting
Útvarp með 4 hátölurum
Rafmagn í rúðum
Vökva og veltistýri
Samlitir stuðarar
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 568 1200
BEINNSÍMI: 553 1236
til framtíðar
Veruleg verdlækkun
á Accent vegna
tollabreytinga! .