Morgunblaðið - 11.06.1996, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ1996 15
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigrún Oddsdóttir
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
ÖRN og Marit í nýja gróðurhúsinu.
Ný aðferð við
byggingu
gróðurhúsa
Syðra-Langholti - Nú nýlega var
byggt gróðurhús hjá Marit og Emi
Einarssyni bændum á garðyrkjustöð-
inni Silfurtúni á Flúðum með nýrri
og ódýrari byggingaraðferð en venja
hefur verið við byggingu gróðurhúsa.
Húsið er 1.500 fm plasthús og er
plastdúkurinn klæddur á stálgrind.
Húsið er flutt inn frá Bretlandi og
er byggingaverð þess aðeins um
þriðjungur af verði venjulegs gler-
húss.
Örn segir að veruleg reynsla sé
komin á þessa byggingaraðferð víða
erlendis og eru hús til hinna margvís-
legustu nota byggð úr sams konar
efni en dúkurinn er þá mismunandi
þykkur eftir því sem hentar hvetju
sinni. Plastdúknum er ætlað að end-
ast a.m.k. í 5 ár. Alltaf er hætta á
áfoki en nýja húsið að Silfurtúni er
staðsett í skjóli stórra aspartrjáa á
alla vegu. Mikill áhugi er meðal garð-
yrkjubænda að fylgjast með hvernig
þetta nýja gróðurhús reynist. Verið
er að ganga frá hitalögn en síðan
verða jarðarber ræktuð í húsinu.
Um 2.500 fm eru undir gleri í
gróðurhúsum í Silfurtúni og ein-
göngu ræktaðir í þeim tómatar, einn-
ig er þar veruleg útirækt á káli.
Safnað
fyrir hrút
Vopnafjörður - Guðbjörg Lilja
Jónsdóttir var að tjalda einn dag-
inn fyrir stuttu. Hún sagðist ætla
að halda tombólu í tjaldinu síðar
um daginn. Hún væri að safna
fyrir hrút til að setja á gimbrina
sína. Hrúturinn þyrfti að vera
svartur og hvítur eins og gim-
brin, því hún ætlaði að fá svört
og hvít lömb. Hún hafði frétt af
slíkum hrúti, sem reyndar væri
bara gimbill ennþá, en hann
fengi að verða gamall tók hún
fram, því hann ætti að gagnast
mörgum ám. „Það er verst að
svona hrútur getur kostað um
8.000 krónur“, bætti Guðbjörg
við og bjóst nú ekki við að henni
tækist að afla þess fjár á einni
tombólu. Hver var svo að tala
um að unga fólkið í dag væri
hætt að hugsa fyrir hlutunum?
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Jóhann D. Jónsson ferðamála-
fulltrúi og Jón Björn Skúlason
atvinnumálaráðgjafi.
Viðtalstímar
í öllum sveit-
arfélögum
Vogum - Markaðs- og atvinnu-
málaskrifstofa Reykjanesbæjar
hefur ákveðið að hafa opna viðtals-
tíma í öllum sveitarfélögum á Suð-
urnesjum.
Jón Björn Skúlason, atvinnu-
málaráðgjafi, segir að hér sé verið
að auka þjónustuna og bæta tengsl-
in við bæjarskrifstofurnar í sveitar-
félögunum. Það er markmiðið að
atvinnumálaráðgjafí og ferðamála-
fulltrúi verði til viðtals enda vanir
að starfa mikið saman.
Jón Björn segir að boðið verði
upp á fasta viðtalstíma sem tilraun
út árið og að þeim tíma liðnum
verði málið skoðað að nýju. Hann
segir að þó skrifstofan sé rekin af
Reykjanesbæ komi fé til rekstursins
einnig frá hinum sveitarfélögunum
á Suðurnesjum í gegnum Samband
sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Korthafar EUROCARD geta valið um að greiða kreditkorta-
reikningana sína annan* eða sautjánda** hvers mánaðar.
Með því að bjóða upp á tvo greiðsludaga
kemur EUROCARD til móts við korthafa sína
og lagar sig að þörfum þeirra sem fá laun sín
greidd í lok hvers mánaðar, tvisvar í mánuði
eða vikulega.
Hafðu samband við bankann þinn eða okkur
í síma 568 5499.
* Úttektartímabil: 18. hvers ménaðartil 17. næsta mánaðar.
** Úttektartímabil: 1.-31. hvers mánaðar.
EUROCARD á íslandi • KREDITKORT HF. • ÁRMÚLA 28 - 30 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI: 568 5499
HVlTA HÚSIO / SlA