Morgunblaðið - 11.06.1996, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996 19
ERLENT
Forsetakosningarnar í Rússlandi um helgina
Jeltsín telur signr
vísan á sunnudag
Reuter
BORIS Jeltsin, forseti Rússlands, dansar við söngkonu á popptón-
leikum í borginni Rostov í suðurhluta landsins, þar sem hann
var á kosningaferðalagi í gær.
Skoðanakannanir
benda til þess að
hann fái ekki
nægilegt fylgi
Moskvu, Budapest. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
kvaðst í sjónvarpsviðtali á sunnu-
dagskvöld telja að hann næði kjöri
í forsetakosningunum næstkom-
andi sunnudag. Þrjár nýjar skoð-
anakannanir, sem birtar voru um
helgina, benda til þess að Jeltsín
sé enn að sækja í sig veðrið en fái
þó ekki meirihluta atkvæðanna,
sem nægir til að ná kjöri í fyrri
umferð kosninganna.
I könnununum þremur sögðust
34,5-37% aðspurðra ætla að kjósa
Jeltsín í fyrri umferðinni á sunnu-
dag, en 15,9%-26% Gennadíj Zjúg-
anov, frambjóðanda kommúnista.
Aðrir frambjóðendur eru með 7%
fylgi eða minna.
Rússneskar skoðanakannanir
hafa ekki reynst áreiðanlegar og
fréttaskýrendur segja að margir
þátttakendanna svari spurningun-
um eins og þeir telji að ætlast sé
til af þeim en láti ekki eigin
skoðanir í ljós. Skekkjumörkin í
könnunum eru sögð 4% og margir
kjósendanna sögðust ekki hafa
gert upp hug sinn.
49-52% stuðningur í síðari
umferðinni
í einni könnuninni sögðust 52%
aðspurðra ætla að kjósa Jeltsín í
síðari umferðinni í júlí og 36%
Zjúganov. í annarri könnun sögð-
ust 49% ætla að kjósa forsetann
og 31% Zjúganov ef velja þyrfti á
milli þessara tveggja frambjóðenda
í síðari umferðinni.
Kjörstjórnin skráði ellefu fram-
bjóðendur í kosningunum en einn
þeirra, kommúnistinn Amman
Tulejev, hefur ákveðið að draga
sig í hlé.
„Innsæið segir mér að ég vinni
sigur í fyrri umferðinni. En auðvit-
að er það þjóðin sem ræður.
Annaðhvort þekki ég ekki þjóðina
eða að niðurstaðan verður þessi,“
sagði Jeltsín í viðtali við sjónvarps-
stöðina NTV. Hann sagði ennfrem-
ur að stuðningsmenn hans þyrftu
ekki að óttast að kommúnistar
gætu beitt kosningasvikum til að
tryggja sér sigur og kvaðst ætla
að kveða niður hugsanleg götu-
mótmæli kommúnista ef frambjóð-
andi þeirra tapaði.
Jeltsín kvaðst ætla að velja þann
sem hann vildi að tæki við af sér
innan þriggja^ ára. „Eg hef þijá
menn í huga. Ég fylgist með þeim,
hvemig þeir þroskast í pólitíkinni.
Eftir þijú ár get ég svarað þessu
betur.“
Kosið áný 3. júlí?
Sergej Fílatov, einn af helstu
samstarfsmönnum Jeltsíns, sagði
í gær að síðari umferð kosning-
anna kynni að fara fram miðviku-
daginn 3. júlí. Hingað til hefur
verið gengið út frá því að kosið
verði á sunnudegi, annaðhvort 7.
eða 14. júlí. Margir Rússa verða í
sumarbústöðum sínum þessar
helgar, einkum þá síðari, og að
sögn Fílatovs þykir miðvikudagur-
inn 3. júlí góður kostur til að
tryggja sem mesta kjörsókn.
Fréttaskýrendur telja að mikil
kjörsókn auki sigurlíkur Jeltsíns
en lítil kjörsókn verði Zjúganov í
hag.
Stalín lofsamaður
Ungverska dagblaðið Magyai
Hirlap birti í gær viðtal við Zjúg-
anov þar sem hann fer lofsamleg-
um orðum um Jósef Stalín og seg-
ir hann hafa látið handtaka færri
menn en ráðamenn í Rússlandi nú.
„Hefði hann lifað í fimm eða sex
ár til viðbótar hefðu Sovétríkin
orðið ósigrandi í margar aldir,“
hefur blaðið eftir frambjóðandan-
um.
Ennfremur er haft eftir Zjúg-
anov að „útlendingar" í sovésku
leyniþjónustunni KGB og forystu-
sveit kommúnistaflokksins, gyð-
ingar og Georgíumenn, hefðu stað-
ið fyrir hreinsunum á valdatíma
Stalíns.
Zjúganov hefur forðast að lof-
sama Stalín í kosningabaráttunni
og í viðtölum við erlenda frétta-
menn hefur hann lýst sér sem jafn-
aðarmanni að vestrænni fyrir-
mynd.
Heimsmeistaraeinvígi FIDE
Jafntefli í þriðju
skákinni í Elista
Anatolí Karpov og Gata Kamsky
sömdu um jafntefli í þriðju skák-
inni í heimsmeistaraeinvígi Al-
þjóðaskáksambandsins (FIDE) í
Elista í Kalmykíu í gær.
Stórmeistararnir standa því
jafnir að vígi, með 1 'A vinning
hvor. Karpov vann fyrstu skákina
á fimmtudag en Kamsky bar sig-
urorð af honum í annarri skák-
inni á laugardag.
Karpov hafði hvítt í þriðju skák-
inni. Kamsky tefldi rólegt afbrigði
í drottningarindverskri vörn með
svörtu og lét það ekkert á sig fá
að Karpov hefur náð mjög góðum
árangri gegn því. FIDE heims-
meistarinn fékk ívið betri stöðu á
hvítt, en tókst ekki að bijóta vam-
ir Kamskys á bak aftur.
3. einvígisskákin:
Hvítt: Anatólí Karpov
Svart: Gata Kamsky
Drottningarindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3.
Rf3 - b6 4. g3 - Ba6 5. b3 -
Bb4 6. Bd2 - Be7 7. Bg2 - c6
8. Bc3 - d5 9. Re5 - Rfd7 10.
Rxd7 - Rxd7 11. Rd2 - 0-0
12. 0-0 - Hb8 13. Hel - b5
14. c5 - e5 15. dxe5 - Rxc5
16. a3 - Re6 17. b4 - d4 18.
Bb2 — c5 19. bxc5 — Bxc5 20.
Re4 — Be7 21. e3 — dxe3 22.
Hxe3 - Dxdl 23. Hxdl - Bb7
24. Hd7 - Bxe4 25. Hxe7 -
Bxg2 26. Kxg2 - a5 27. Ha7 -
Ha8 28. Hxa8 - Hxa8 29. Hb3
- Hb8 30. Bc3 - a4 31. Hbl -
Hc8 32. Ba5 - Hc5 33. f4 -
f6 34. exf6 - gxf6 35. Hdl -
Kf7 36. Hd7 - Kg6 37. Kf3 -
Hc4 38. Ke3 - Rc5 39. Hd5 -
Kf7 40. Bb6 - Hc3+ 41. Kd4 -
Hc4+ 42. Ke3 - Hc3+ 43. Ke2
- Re4 44. Hxb5 - Hxa3 45.
Ha5 - Kg6 46. Bd4 - h5 47.
Be3 - f5 48. Ha6+ - Kf7 49.
Ha5 Kg6
og hér var samið jafntefli, þar
sem hvorugur vill reyna að hætta
við þráskákina.
Andófsmaður látinn laus
KÍNVERJAR létu á sunnudag laus-
an andófsmanninn Ren Wanding
eftir sjö ára fangelsisvist fyrir þátt-
töku í kröfugöngum og -fundum
fyrir auknu lýðræði í Kína árið 1989.
Kona Rens, Zhang Fengying,
sagði í samtaíi við Reuter-frétta-
stofuna að hann hefði komið til
heimilis sfns í Peking í fylgd lög-
reglu og fimm klukkustundum síð-
ar hefði hann haldið af fúsum og
fijálsum vilja til hafnarborgarinnar
Dalian, sem er vinsæll ferðamanna-
staður á norðausturströnd Kína.
Áður hafði kona Rens sagt að
lögregla hefði fært hann brott en
kvaðst síðan ekki muna eftir að
hafa látið þau orð falla.
Ren var dæmdur í sjö ára fang-
elsi í kjölfarið á því að látið var til
skarar skríða gegn lýðræðissinnum
á Torgi hins himneska friðar 4. júní
árið 1989. Hann hefur verið framar-
lega í mannréttindabaráttunni í
Kína frá árinu 1978 og var fyrst
handtekinn árið 1979.
70 farast við Eritreu
Asmara. Reuter.
TALIÐ er að rúmlega 70 manns
hafi farist þegar kviknaði í skipi
undan ströndum Eritreu á fímmtu-
dag. Ríkisútvarp Eritreu greindi frá
þessu í gær og sagði að 33 mönnum
um borð hefði verið bjargað úr skip-
inu, sem var á leið til Saudi Arabíu.
Sagt var að um borð í skipinu
hefðu verið 105 manns, sem hugð-
ust smygla sér til Saudi Arabíu.
Flestir þeirra, sem létust hefðu verið
Eþíópíumenn.
Ekki er vitað hvað olli eldsvoðan-
um.
Lúxusútgáfa á
einstöku tilboði
Við vorum að fá til landsins sérstaka lúxusútgáfu af
Volvo 850 sedan á einstöku tilboðsverði.
7 m y;
■ .
Tilboðið er fólgið í því að þú færð frían aukahlutapakka
að verðmæti hvorki meira né minna en 137.400 kr.
í þessum pakka er:
• Líknarbelgur fyrir farþega
• Fjarstýring fyrir samlæsingu
• Þokuljós
• SC-800 útvarp/segulband
• 8 hátalarar
• Armpúði að framan m/glasahaldara
• Volvo taumottur
Athugið að einnig er tilboð
á Volvo 850 station.
VOLVO
BIFREIÐ SEM ÞÚ GETUR TREYST
Volvo 850 sedan kostar með þessum aukahlutum auk ríkulegs
staðalbúnaðar frá aðeins: 2.648.000 lci*. StCJI*. sjálfskiptur.
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • SÍMI 515 7010
c
c
i
£
V
o
<0