Morgunblaðið - 11.06.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ1996 41
skuli nú vera allur og mikill harm-
ur kveðinn að Elísabetu konu hans
og sonum þeirra tveimur. En við
eigum þó minninguna um þann lífs-
glaða og smitandi hlátur sem
hljómaði hvar sem hann fór.
Tómas R. Einarsson.
Engum hef ég kynnst sem kallar
jafn umsvifalaust fram sólskin í
huga mínum og Guðmundur Thor-
oddsen.
Við kynntumst þegar við vorum
lítil, - þá var hann kallaður Balli
og það hef ég kallað hann síðan.
Systkinahópurinn á Laugalæknum
virtist stór, - eftir á að hyggja
voru þau bara fjögur, - en þau
voru svo lík, töluðu hvert upp í
annað og hlógu þannig að manni
fannst þarna vera her manns.
Seinna endurnýjuðum við kynn-
in, - tvö við stórt borðstofuborð
heima hjá Dóru vinkonu að reyna
að læra anatómíu. Það er viður-
kennt sem óbærilega leiðinleg iðja.
En ekki með Guðmundi. Hann fór
á flug við að myndskreyta glósurn-
ar okkar, sem urðu einn samhang-
andi brandari. Þessi próflestur inn-
siglaði vináttu okkar og hlaut að
launum heiðurssess meðal al-
skemmtilegustu minninga. Guð-
mundur hætti við að verða læknir
og ákvað að lifa lífinu í staðinn.
Og það gerði hann. Líf hans leiðir
þráðbeint til niðurstöðu Jónasar
Hallgrímssonar um langlífí.
Hann var hugaður lífsnautna-
maður, sem sáði gleði allt í kring-
um sig. Hann hafði einstakt auga
fyrir möguleikum hverrar stundar
- sá það skemmtilega í hveijum
hlut og tilsvari, og var svo örlátur
á lífskraft sinn að allir blómstruðu
nálægt honum. Að hitta Guðmund
bjargaði ekki bara deginum, heldur
heilli árstíð.
Hann rúmaði miklar andstæður
í fullri sátt. Hugrekkið og kraftinn
sem þarf til að smíða sér skútu og
leggja í hann út um öll heimsins
höf, eða fara á mótorhjóli yfir Sah-
ara og slást í för með tilviljuninni
út og suður um Afríku. Bak við
þennan kraft var svo ljóðræn næm-
in sem við eigum í myndlistarverk-
unum hans, hlýjan, dýptin og húm-
orinn sem hann jós yfir okkur.
Það er lítil huggun að hann hafði
lifað meira og skapað fleira en við
vinir hans til samans. Við vildum
öll eiga hann að svo miklu miklu
lengur. Samúð vinanna umvefur
Elísabetu, Jón Kolbein og Einar
Viðar, systkinin og ijölskylduna
alla. Minning Guðmundar Thor-
oddsens skín björt og hlý, eins og
sólskinið sem hann bar með sér.
Guðrún Pétursdóttir.
Enn er hoggið skarð í raðir fé-
lagsmanna Nýlistasafnsins, en
skammt er síðan safnið sá á eftir
öðrum mætum félagsmanni. Guð-
mundur Thoroddsen hafði verið
félagi í Nýlistasafninu frá 1983 og
náði hann að halda ijórar einkasýn-
ingar í safninu auk þess að eiga
verk á samsýningu félagsmanna
1995. Guðmundur hélt sína síðustu
einkasýningu í Nýlistasafninu í
byrjun þessa árs. Þrátt fyrir þreng-
ingar og alvarleg veikindi sýndi
hann í metnaðarfyllsta rými húss-
ins ljóðrænar veggmyndir sem
undirstrikuðu fegurð rýmisins.
Ævintýraþrá hans endurspeglast í
verkum hans, en siglingar og sigl-
ingafræði voru honum liugstæð.
Ferðin sem næstum var farin, Suð-
urflauta, Hugsað að Horni, í
Skýmingini, Dimmalætting, Stað-
vindar og Eyjar.
Guðmundur var gleðimaður og
í þeim anda var síðasta opnun hans
með djasstónleikum og troðfullu
húsi - mikill mannfagnaður. Að
margra áliti var þetta besta sýning
Guðmundar og vafalítið áttu marg-
ir sína síðustu stund með honum
við það tækifæri. Félagar í Nýló
minnast hans, þakka honum fé-
lagsskapinn og óska honum velf-
arnaðar á siglingunni um ókönnuð
höf. Fjölskyldu og vinum færum
við innilegustu samúðarkveðjur.
Stjórn Nýlistasafnsins.
+ Hulda Jóns-
dóttir fæddist á
Hólmavík 16. júní
1930. Hún lést í
Reykjavík 4. júní
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
María Bjarnadótt-
ir, f. 25.5. 1893, d.
7.11. 1971, og Jón
Óttarsson, f. 14.6.
1892, d. 26.5. 1970.
Þau bjuggu á Ból-
stað 1915-1920, á
Fitjum 1921-1927,
lengi á Hólmavík
en fluttu til Akra-
ness 1953 og bjuggu þar til
dánardags. Systkini Huldu
eru: Björg Heiður Guðrún, f.
19.11. 1916, Ása, f. 5.8. 1917,
d. 11.7. 1995, Bjarni, f. 23.4.
1918, d. 5.8. sama ár, Sigríður,
f. 8.12. 1920, d. 25.7. 1963,
Bjarni, f. 19.8. 1922, Sig-
urbjörg Jónína, f. 19.8. 1922,
Kæra Hulda, okkur langar til
að kveðja þig með nokkrum fá-
tæklegum línum og þakka af al-
hug þá samleið sem við höfum
átt í svo mörg ár. Hvernig má
það vera að þú sért farin frá okk-
Guðrún Hallfríður,
f. 12.3. 1924, Ottó
Helgi, f. 5.5. 1925,
d. 4.8. 1925, Petr-
ína Hansína, f. 7.7.
1926, d. sama ár,
Pétur, f. 20.7.1927,
og Gylfi, f. 25.5.
1933.
Hulda giftist Jó-
hanni Jónssyni,
þau skildu. Eftirlif-
andi eiginmaður
hennar er Jónas
Þór Arthúrsson, f.
12.8. 1940. Börn
Huldu og Jóhanns
eru: 1) Olafur, f. 26.10. 1952,
hann á tvö börn. 2) Jóna Mar-
ía, f. 18.12. 1957, hún á tvö
börn. 3) Sigurður, f. 1.10.1963,
sambýliskona Guðleif Bergs-
dóttir og eiga þau tvö börn.
Útför Huldu fer fram frá Víði-
staðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
ur svo skyndilega, við sem vorum
hjá þér í saumaklúbb fyrir nokkr-
um vikum alltaf svo kátar og
hressar að njóta frábærra góð-
gerða á þínu fallega heimili. Þú
varst að segja okkur frá fyrirhug-
aðri aðgerð sem þú þyrftir að
fara í, en bjóst við að verða orðin
svo hress að geta mætt í næsta
klúbb. En hvað gerist? Sætið þitt
var autt og okkur bárust daprar
fréttir af heilsu þinni en það hlyti
að lagast fljótlega.
Svo gerðist eitthvað sem við
eigum svo erfitt með að skilja og
maðurinn með ljáinn heimsótti þig
og fullkomnaði sitt verk. Nú vit-
um við að stóllinn þinn verður
auður áfram. Og sorgarfregnin
skyggir á birtu sumarsins og tregi
situr í hjarta. En þú munt lifa í
hugum okkar, því svo margar
skemmtilegar minningar eigum
við frá samverustundum í sauma-
klúbbnum, og þær getur enginn
tekið frá okkur þó þú sért horfin
sjónum okkar. Hvíl þú í friði.
Við sendum öllum aðstandend-
um innilegar samúðarkveðjur og
biðjum guð að styrkja ykkur og
hugga á sorgarstundum.
Fyrir hönd saumaklúbbsins,
Jóhanna Sigurðardóttir.
Hún Hulda okkar er látin, eftir
stutta en snarpa sjúkralegu. Hún
hafði alltaf verið heilsuhraust og
sterk kona og því kom andlát
hennar eins og þruma úr heið-
skíru lofti fyrir alla sem hana
þekktu.
Ég kynnist Huldu í gegnum son
hennar Sigga um það bil sem þau
flytja til Keflavíkur. Hulda var
sérlega opin, ræðin og jákvæð
manneskja, þannig að strax við
fyrstu kynni var eins og maður
hafi þekkt hana ævilangt. Fljót-
lega tók ég eftir því að hún var
sterkur persónuleiki sem bar
mikla virðingu fyrir öðru fólki og-*~
naut þess að vera í góðra vina
hópi. Hún var snyrtimenni eins
og vel mátti sjá á hennar nánasta
umhverfi og á henni sjálfri, t.d.
þegar hún lá á spítalanum sár-
þjáð. Þá bað hún dóttur sína að
setja rúllur í hár sitt, svo hún
gæti litið sómasamlega út.
Hulda kom mér fyrir sjónir sem
einstaklega góð móðir og amma,
sem alltaf var góður vinur barna
sinna, enda kom það ekki ósjaldan
fyrir þegar ég kom í heimsóknir
til Sigga að Hulda var þar með**
börnum sínum og barnabörnum.
Hulda var alltaf mjög framtaks-
söm kona og ung í anda og hafði
ætlað sér að flytja til Reykjavíkur
til þess að geta verið meira með
manni sínum sem hefur atvinnu
þar. Einnig hafði hún ætlað að
sækja Tölvuskóla á hausti kom-
andi. Oftast þegar ég kom í heim-
sókn til Sigga og Hulda var þar
fyrir, var oftar en ekki spjallað
tímunum saman um bæði verald-
lega og andlega hluti. Alltaf var
stutt í hláturinn og grínið þegar
Hulda var annars vegar,. þannig
að auðvelt er að minnast hennar
með bros á vör. t-
Nú ert þú horfin úr lífi okkar,
Hulda mín, en þú verður alltaf í
hjarta þeirra sem þig þekktu.
Bjarni Kristjánsson.
HULDA
JÓNSDÓTTIR
GISSURINGI
GEIRSSON
+ Gissur Ingi
Geirsson fædd-
ist á Byggðarhomi
í Sandvíkurhreppi
17. júlí 1939. Hann
lést á Borgarspíta-
lanum 27. maí síð-
astliðinn og fór út-
för hans fram frá
Selfosskirkju 8.
júní.
Sá sem eftir lifir,
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnamir
honum yfir.
(Hannes Pétursson.)
Mig langar að minnast frænda
míns Gissurar Inga Geirssonar, sem
lést eftir skamma en erfiða baráttu
við sjúkdóm. Gissur Ingi var elstur
fimm systkina og það mótaði hann
og viðhorf okkar til hans. Hann var
foringinn, hljómsveitarstjórinn og
fyrirmyndin. Gissur lærði trésmíði
og starfaði við það en gerðist seinna
landpóstur, en þekktastur var hann
fyrir hljómsveitina sem hann stýrði
í fjölda ára, og sungu
systur hans þær Úlf-
hildur og Hjördís með
henni. Það var mín
heppni að lenda á
sjúkrastofu með
frænda mínum fyrir sjö
árum og kynnast hon-
um nánar en ella. Þá
fann ég að frændsemi
mín hafði ekki verið
upp á marga fiska og
þar sem tvísýnt var
hvernig færi í það
skiptið, þá var það
ómetanleg reynsla að
sjá þegar að Gissur á
einum degi, sneri vörn í sókn og
styrkist dag frá degi og að lokum
yfirvann sjúkdóminn. Þá sá ég líka
hve duglega og fallega fjölskyldu
hann átti, sem heimsótti hann
hvernig sem færð var og ég minn-
ist þess, að ég fór að hafa ekki
minni áhyggjur af ferð þeirra yfir
Hellisheiðina, en heilsu frænda. En
allt fór vel og Gissur. yfirvann erfið-
leika með hjálp fjölskyldu og vina.
Hann náði þreki og vann áfram við
starf sitt sem landpóstur. Nú komu
góð ár þar sem frændi var heill og
þá auðvitað hrókur alls fagnaðar í
afmælum og öðrum fagnaði með
GARÐS
APÓTEK
Sogavegi 108
REYK J AVÍKU R
APÓTEK
Austurstræti 16
eru opin til kl. 22
"A”
Næturafgreiðslu
eftir kl. 22 annast
Garðs Apótek
SuðurlandsbrautlO
108 Reykjavtk • Sími 5531099
nikkuna eða saxófóninn. Þar fór
þó gjörbreyttur Gissur, það er á lík-
ama, en ekki í eðli, hjálpsemin og
vinarþelið var til staðar og gleðin.
Hann hafði einstaka kímnigáfu og
það geislaði af honum, en grínið
var alltaf á hann sjálfan, ekki á
aðra. Nú sakna ég góðu stundanna
með frænda og varðveiti minning-
una um góðan dreng sem var lagið
að gefa af sér gleði og sigraði erfíð-
leika með jákvæðu hugarfari og
elju. Frábær styrkur eiginkonu hans
og barna hefur þar skipt sköpum.
Og nú þegar úrslitin eru ljós þökk-
um við fyrir síðustu árin, sem hefðu
mátt vera miklu fleiri, fyrri barátta
Gissurar og sigur gaf von og fyrir-
heit um þau. Eg bið Addý og böm-
unum, Geir föður hans og öðrum
vandamönnum styrk í sorg.
Gissur Karl Vilhjálmsson.
Þann 27. maí, annan dag hvíta-
sunnu, kvaddi þennan heim vinur
okkar og vinnufélagi Gissur Ingi
Geirsson.
Fyrir nokkrum árum veiktist
hann og fór í erfiða aðgerð sem
reyndi mikið á hann. En með ótrú-
legum krafti náði hann sér og átti
góð ár með fjölskyldu sinni og vin-
um en varð að lokum að lúta í lægra
haldi fyrir óvægum sjúkdómi.
Gissur starfaði sem landpóstur
til fjölda ára og var hann með þeim
fyrstu sem hófu þau störf í Árnes-
sýslu, eða frá 1974. Hann var góð-
ur starfsfélagi og vildi hafa hlutina
í röð og reglu.
Gissur var félagsvera og hafði
mikla ánægju af allri tónlist. Þess
fengum við vinnufélagarnir að
njóta, því ekki taldi hann eftir sér
að koma með „nikkuna" og halda
uppi gleðskap þegar komið var sam-
an á góðum stundum.
Við þökkum honum samstarfið
og samfylgdina um veraldarveginn.
Ásdísi og fjölskyldunni allri send-
um við innilegar samúðarkveðjur.
Hér við skiljumst
og hittast munum
á feginsdegi fira.
Drottinn minn,
gefi dauðum ró
og hinum líkn er lifa.
(Sólarljóð, 82.)
Kveðja.
Vinnufélagar hjá
Pósti og sima, Selfossi.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 - sími 587 1960
Islenskur efniviður
íslenskar steintegundir henta margar
afar vel í legsteina og hverskonar
minnismerki. Eigum jafnan til fyrir-
liggjandi margskonar íslenskt efni:
Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró.
KAU*N
OlY'UV
♦ HM
*******
Áralöng reynsla.
Leitið
upplýsinga.
il
i S. HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 557 6677