Morgunblaðið - 11.06.1996, Qupperneq 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF • FORSETAKJÖR ÍDAG
Bjargvættur Bessastaða
Frá Þórði E. Halldórssyni:
KRISTINN Sigursveinsson,' Hóla-
braut 3, Hafnarfirði, skrifar eftir-
tektarverða grein í Morgunblaðið 18.
maí sl. sem hann kýs að nefna „Höld-
um Bessastöðum utan við trúðslæt-
in“.
Hann segir meðal annars; „það
er skoðun mín að þegar þjóðin velur
sér forseta, vilji hún fremur öllu
öðru, að forsetinn sé vammlaus".
Hún vill geta borðið virðingu fyrir
forseta sínum og vill ekki að á Bessa-
stöðum sitji fólk sem hún þarf að
skammast sín fyrir._ „Hún vill fólk
sem ber menningu Islands og allan
hag fyrir brjósti, en ekki hrokafulla
framagosa í embættisleit. Það er
ekki sjálfgefið, að því kjaftforari og
óprútnari sem menn eru á opinberum
vettvangi að því vinsælli verði þeir.
Við viljum fo'rseta sem er sameining-
artákn okkar. Ef við höfum þessi
viðhorf í huga þegar við kjósum
næsta forseta íslands, verður valið
auðvelt. Við veljum Ólaf Ragnar
Grímsson." Það fer ekkert á milli
mála að framanrituð ummæli eru í
eðli sínu hárrétt, en eiga ekki við
nokkum frambjóðanda að ávirðing-
um betur en Ólaf Ragnar Grímsson.
Þess vegna er auðséð að greinarhöf-
undur hefur gleymt því að hann
ætlaði að segja í lokin; „Við veljum
ekki Ólaf Ragnar Grímsson.“
Kristinn biður um vammlausan
mann í embættið. Er það Ólafur
Ragnar? Hefur enginn orðið var við
sóðalegt orðbragð Ólafs á Alþingi
íslendinga? Var það ekki líkt persónu
Ólafs þegar hann sagði að forsætis-
ráðherra Davíð Oddsson væri haldinn
„skítlegu eðli“? Þetta sagði hann í
opinberri sjónvarpaðri umræðu á hinu
háa Alþingi. Vilja mertn reyna að
gleyma setu Ólafs í stóli fjármálaráð-
herra? Mundu t.d. kennarar gefa
honum háa einkunn fyrir afrek hans
þar? Það hefur vakið talsverða at-
hygli íjöldans hvað Ólafur hefur ver- *
ið þögull, allt frá þeim degi er Vig-
dís forseti tilkynnti að hún færi ekki
fram til forsetakjörs. Sporin hræða.
Ólafur telur sér hentast að hafa sem
fæst orð um fortíðina. Láir það hon-
um enginn. Greinarhöfundur heldur
áfram og ræðir um hrokafulla fra-
magosa í embættisleit, einnig forseta
sem á að vera sameiningartákn. Á
það helst að vera Ólafur Ragnar
Grímsson, sem hefur verið og er trú-
legast enn kyndilberi kommúnism-
ans, enda þótt sú stefna hafi sett upp
tærnar í bili. Fólki er talin trú um
það að á íslandi finnist ekki kommún-
ismi. En hann á sér það til ágætis
að hafa í mörg skipti breytt um nafn
til að villa um fyrir almenningi að
betrumbætur á stefnunni fælust í
nýrri nafngift. Á þar vel heima í
umsögn Kristins Sigursveinssonar
um hrokafulla framagosa í embættis-
leit, kjaftfora og óprúttna. Þess
vegna er brennandi spuming til
þeirra er hyggjast kjósa Ólaf Ragnar
til forseta hvort litið verði til okkar
frá nágrannaríkjunum með mikilli
virðingu eftir að hafa kosið eitt aðal-
átrúnaðargoð kommúnismans á ís-
landi fyrir forseta.
Þrátt fyrir nafnbreytinguna á
kommúnistaflokknum áram saman,
hafa fomstumenn hans aldrei breyst
að neinu leyti. Frammámenn hans
em sömu hrokafullu, kjaftforu og
óprúttnu framagosarnir sem Kristinn
er svo snilldarlega að lýsa. Ég tek
því heilshugar undir það sem Kristinn
ætlaði að segja. Kjósum ekki Ólaf
Ragnar Grímsson til forseta.
ÞÓRÐUR E. HALLDÓRSSON,
Sólheimum 23, Reykjavík.
Guðrún Agnarsdóttir -
ein af okkur
Frá Önnu Vigfúsdóttun
í TILEFNI væntanlegra forseta-
kosninga langar mig til að segja frá
kynnum mínum af einum frambjóð-
andanna, Guðrúnu Agnarsdóttur.
Ég hef þekkt Guðrúnu frá því hún
fæddist og unnið með henni í fjöld-
skyldufyrirtæki ömmu hennar og
móðursystkina. Ég var á heimili
ömmu hennar frá því að Birna
móðir Guðrúnar var á unglingsár-
um. Síðar vann ég og systir mín í
fyrirtæki ömmu Guðrúnar. Á þeim
árum var langt frá því að vinnuveit-
endur litu á verkafólk sem jafningja
sína. Hins vegar var fólk Guðrúnar
sérstakt að því leyti að í hennar
fyrirtæki voru allir eins og ein fjöld-
skylda. Fólk vann hlið við hlið og
þegar vel gekk nutu allir góðs af.
Fjöldskyldan var sparsöm og engu
var eytt í óhóf, en þó var síður en
svo reynt að hafa neitt af starfsfólk-
inu. Þvert á móti var þeirra réttur
virtur og gert betur við það en venja
var til.
Guðrún var strax í bernsku ein-
staklega dugleg og röggsöm stúlka,
en jafnframt ljúf í viðmóti og um-
gekkst samferðafólk sitt af sömu
nærgætni og einkenndi fjöldskyldu
hennar. Móðir Guðrúnar var sér-
staklega jákvæð og grandvör kona
og dró aldrei fram galla í fari neinn-
ar persónu, sem bar á góma. Mót-
aði þetta viðhorf uppeldi barna
hennar og að mínu mati hefur Guð-
rún tekið þessa eiginleika í arf. Mér
og minu fólki hefur Guðrún ætíð
reynst vel og heiðarleiki og trygg-
lyndi hefur einkennt framgöngu
hennar þar sem ég hef verið henni
samtíða og fylgst með henni.
Ég treysti Guðrúnu manna best
til að halda merki íslensku þjóðar-
innar á lofti og sameina hana að
baki sér að loknum kosningum. Ég
tel að það væri óbætanlegt slys ef
þjóðin léti villa um fyrir sér vegna
auglýsinga, sem dælt er yfir okkur
í skjóli ómælds fjármagns. Ég skora
á þjóðina að fylkja sér heldur að
baki Guðrúnar Agnarsdóttur, sem
stendur utan allra öfga í stjórnmál-
um og mun eins og hún hefur ávallt
gert deila með okkur kjörum og
vinna með okkur að því markmiði
að skapa betra og réttlátara þjóðfé-
lag á Islandi.
ANNA
VIGFÚSDÓTTIR,
saumakona.
Forsetakjör
Frá Ásmundi U. Guðmundssyni:
í UPPHAFI ætlaði ég að leiða hjá
mér alla umræðu um frambjóðendur
til æðsta embættis I íslensku réttar-
kerfi, forsetans. Fram að þessu höf-
um við Islendingar verið heppnir með
kjör okkar forseta og vona ég að svo
verði áfram. Þeir voru allir kjömir
án skrumauglýsinga. Nú þykist hver
mestur sem gerir íburðarmestu og
dýrustu auglýsingarnar, eigin verð-
leikar frambjóðenda eru torfundnir í
slíkum hafsjó fáránleikans. Sú um-
ræða sem komin er í gang að mark-
aðssetja Bessastaði og þar með for-
setaembættið er glæpsamleg í alla
staði og til skammar fyrir okkur Is-
lendinga hvar í metorðastiganum sem
við stöndum. Að forsetaembættið sé
gagnslaus skrautfjöður sem megi
falla er hvergi rétt. Þeir sem slíkt
halda eru hryðjuverkamenn glund-
roðans._ í mínum huga ætti forseti
okkar Islendinga að beita valdi sínu
meira en gert hefur verið í stórum
og erfiðum málum sem snerta okkur
landsmenn beint og óbeint. Vitna ég
þar til máls sem okkar ágæti for-
seti, frú Vigdís Finnbogadóttir, var
þvinguð til undirskriftar á hér um
árið, sem í dag er að meirihiuta til
óheilla fyrir okkur.
Að virkja eitthvað er í mínum huga
orð sem táknar að beisla fallvötn, ár
og vötn, til raforkuöflunar, sem aftur
er söluvara til hins almenna notanda.
Á Álftanesi syðra er ekki sá hæðarm-
ismunur sem réttiætir slíkt orð.
ÁSMUNDUR U. GUÐMUNDSSON,
Suðurgötu 124, Akranesi.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Einelti í
Hólabrekku-
skóla
KONA hringdi og vildi taka
undir með konunni sem
talaði um einelti í Hóla-
brekkuskóla. Hún segist
vita af a.m.k. fimm bömum
í götunni sem hún býr við
sem hafa orðið fyrir einelti.
Henni fionst gott að þetta
skyldi hafa komið fram í
dagsljósið og vill að skólayf-
irvöld geri eitthvað í málinu.
Meira einelti
SIGRÚN hringdi og sagð-
ist vita um eineltið í Hóla-
brekkuskóla. Hennar börn
urðu fyrir slíku athæfí og
kvað svo rammt að að hún
þurfti að skipta um skóla.
Þegar foreldrar koma sam-
an á foreldrafundum í
Hólabrekkuskóla er rætt
um þessi mál og eru flestir
sámmála um að þetta sé
vandamál, en skólayfirvöld
virðast ekki gera sér neina
grein fyrir því og aðhafast
ekkert.
Orð Jesú Krists
VEGNA ummæla Njarðar
P. Njarðvík um nýútkomna
bók hans þar sem hann
segir að sú bók sé líklega
sú eina sinnar tegundar,
þá langar mig að koma á
framfæri að ég á bók sem
heitir Orð Jesú Krists -
öll orðin er Nýja testa-
mentið geymir, og kom út
um 1950. Séra Þorvaldur
Jakobsson bjó bókina undir
prentun.
Hrefna
Til hamingju
MIG langar að óska homm-
um og lesbíum til hamingju
með nýju löggjöfina sem
staðfesti sambúðarlöggjöf
samkynhneigðra. Öllum
landsmönnum langar mig
líka að óska til hamningju
með þetta skref í mann-
réttindabaráttu íslend-
inga.
Jón Helgi Gíslason
Tapað/fundið
Hjól tapaðist
STÓRT, svart gamaldags
kvenreiðhjól hvarf úr Eski-
hlíð rétt ofan við Nauthóls-
vík um hálfeittleytið að-
faranótt annars í hvíta-
sunnu. Finnandi vinsam-
lega láti vita í síma
551-2733.
Gæludýr
Kettlingar
ÁTTA vikna fallegir
bröndóttir og gæfir kettl-
ingar fást gefins á gott
heimili. Þeir eru vanir
bömum. Upplýsingar í
síma 567-6569.
Týndur köttur
GRÁBRÖNDÓTTUR gelt-
ur fressköttur með rauða
hálsól tapaðist frá Selja-
hverfi í Breiðholti á mánu-
daginn fyrir rúmri viku.
Hann var eyrnamerktur
„R-5112". Hafi einhver
orðið ferða hans var er
hann beðinn að hringja í
síma 557-8422.
Dísarpáfagaukur
GRÁR dísarpáfagaukur
með gulan haus og rauðar
kinnar flaug frá Fjólugötu
sl. laugardag. Hann er
mannelskur og gæti hafa
reynt að komast inn ein-
hvers staðar. Ef einhver
hefur orðið var við hann
er hann beðinn að hringja
í síma 551-0638.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á meist-
aramóti Skákskóla íslands
um helgina. Einar Hjalti
Jensson (2.120) var með
hvítt, en Stefán Kristjáns-
son (1.715) var með svart
og átti leik. Svartur fann
nú glæsilega hróksfórn og
vann fljótt;
31. - He2! 32. Dxe2?? -
Dxe2 og hvítur gafst upp,
því eftir 33. Rxe2 — Bf5+
34. Ka2 — Ha8 er hann
mát. Hvítur mátti alls ekki
þiggja hróksfómina.
Skársti varnar-
leikurinn var 32.
Dd4! þótt svart-
ur standi auðvit-
að betur að vígi.
Kristján Eð-
varðsson sigraði
á. mótinu með
sex vinninga af
sjö mögulegum
og vann sér ferð
á skákmót er-
lendis. 2. Sigur-
björn Björnsson
5‘A v., 3. Stefán
Kristjánsson 5
v., 4-7. Páll A.
Þórarinsson,
Einar Hjalti Jensson, Berg-
steinn Éinarsson og Hlíðar
Þór Hreinsson 4'/2 v. 8—10.
SVARTUR á leik
Torfi Leósson, Davíð Kjart-
ansson og Hjalti Rúnar
Ómarsson 4 v.
Ást er...
... að styrkja
sjálfsmynd hans.
TM Reg. U.S. Pat Off. — all hflhts resarved
(c) 1996 Lo8 Angeles Times Syndicate
Hlutavelta
Ljósm. Hanna Hjartardóttir
ÞESSAR þrjár ungu stúlkur sem heita Tinna Lárus-
dóttir, Nína Hrefna Lárusdóttir og Ólöf Rún Benedikts-
dóttur, héldu á dögunum hlutaveltu á Kirkjubæjar-
klaustri og söfnuðu 1.500 krónum. Peningana lögðu
þær inn á reikning til styrktar Marin
Hafsteinsdóttur á Eskifirði.
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu hlutaveltu nýlega til
styrktar krabbameinssjúkum börnum og varð ágóðinn
2.048 krónur. Þær heita Sara Sigurðardóttir, Vilfríður
Hrefna Hrafnsdóttir og Stella Sigurðardóttir.
Víkverji
ATHYGLISVERÐAR upplýs-
ingar komu fram hér í blaðinu
um helgina um vinnubrögð kaffi-
sala. Framleiðendur Gevalia-kaffis
hafa verið sakaðir um að flytja inn
gamalt kaffi og að hafa ætlað að
leyna því með því að raða kaffinu
í gám með þeim hætti að litlar lík-
ur væru á, að það yrði upplýst.
Hinir íslenzku umboðsmenn
þessa kaffis hafa mótmælt þessum
ásökunum og upplýst, að gámur,
sem fara hefði átt til Austur-Evrópu
hafí fyrir mistök verið sendur til
íslands. Hver og einn leggur mat
á þær skýringar eftir sínu höfði,
en það sem vakti athygli Víkveija
var sú staðreynd, að hið gamla
kaffi átti að fara til Austur-Evrópu.
Eru vinnubrögðin gagnvart hin-
um nýfrjálsu þjóðum í Austur-Evr-
ópu svona? Er hægt að selja þeim
hvað sem er, líka gamalt kaffi, sem
stenzt ekki þær kröfur, sem neyt-
endur gera á Vesturlöndum? Geta
virðuleg fyrirtæki eins og hið er-
lenda fyrirtæki, sem framleiðir Gev-
skrifar...
alia-kaffí, verið þekkt fyrir að
stunda viðskipti með þessum hætti?
xxx
AÐ ER skemmtileg hugmynd
hjá Arngrími Jóhannssyni,
flugstjóra, eiganda Atlanta-flugfé-
lagsins að nefna nýja breiðþotu fyr-
irtækisins í höfuðið á Úlfari Þórðar-
syni, augnlækni. Eins og fram kom
í frétt hér í blaðinu um helgina
hefur Úlfar komið mjög við sögu
flugs á íslandi og því vel að þessum
heiðri kominn.
xxx
TÖLUVERT var hert að forseta-
frambjóðendum í umræðu-
þætti í ríkissjónvarpinu í fyrra-
kvöld. Víkveija þótti þeir margir á
hálum ís, þegar þeir voru annars
vegar að lýsa því, hvernig þeir
mundu vinna að margvíslegum
málefnum, sem á döfinni eru í þjóð-
félaginu og leitast við að hafa áhrif
á viðhorf fólks til þeirra og hins
vegar sérstaklega í sambandi við
hugsanlegan atbeina forseta að
friðarmálum.
Hvernig dettur fólki S hug, að
smáþjóð á borð við okkur Islendinga
geti haft raunveruleg áhrif í þá átt
að auka frið í heiminum? Hvernig
eru deilur settar niður í Miðaustur-
löndum og Bosníu? Það er gert með
því að stórveldin ýmist hóta öllu
illu eða bjóða deiluaðilum gull og
græna skóga, ef þeir láta af ofbeldi
og hernaði. Þetta er ástæðan fyrir
því að hvergi er hægt að koma á
raunverulegum friði nema fyrir til-
stilli Bandaríkjamanna. Allir vita
að þeir hafa bæði tækin til þess að
beita hörðu og peningana til þess
að greiða fýrir lausn margvíslegra
vandamála í kjölfar friðar.
Það er innantómt hjal að halda
að Islendingar geti átt raunvéruleg-
an þátt í að stuðla að friði í heimin-
um eða að forseti íslands geti átt
hlut að því. Við erum ekki smáþjóð
heldur örþjóð og eigum að gera
okkur raunsæja grein fyrir eigin
stöðu.