Morgunblaðið - 05.07.1996, Page 1

Morgunblaðið - 05.07.1996, Page 1
64 SÍÐUR B/C 150. TBL. 84. ÁRG. FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Kommúnistar viðurkenna sigur Borís Jeltsíns í forsetakosningunum Forsetinn boðar þjóðarsátt og rússneska endurreisn Moskvu, Varsjá. Reuter. ER búið var að telja rúmlega 99% atkvæða í forsetakosningunum í Rússlandi hafði Bor- ís Jeltsín forseti hlotið 53,70% en keppinaut- ur hans, kommúnistinn Gennadí Zjúganov, 40,41%. Um fimm af hundraði greiddu at- kvæði gegn báðum frambjóðendum. Jeltsín sló á strengi sátta og hvatti til þjóðareining- ar er hann flutti stutt sjónvarpsávarp til þjóðarinnar í gær. „Við skulum ekki skipta þjóðinni í sigurvegara og sigraða," sagði hann. „Saman munum við stuðla að endur- reisn Rússlands". Kommúnistar ætla að una úrslitunum, Zjúganov sagði þó í yfirlýsingu að misfellur hefðu verið á framkvæmd kosn- inganna og kosningaloforð Jeltsíns gætu valdið efnahagslegu öngþveiti. Dómsmálaráðherra landsins er úr röðum kommúnista og stjórnmálaskýrendur telja ekki útilokað að þeim eða öðrum stjórnar- andstæðingum verði boðin fleiri ráðherra- embætti. „Við sættum okkur við vilja borgaranna í rússneska ríkjasambandinu," sagði í yfir- lýsingu Zjúganovs sem hann lét dreifa í upphafi blaðamannafundar. Hann sagðist hafa sent Jeltsín heillaóskaskeyti en sakaði hann jafnframt um „gróf brot“ á kosninga- lögum. Lagði Zjúganov áherslu á að þjóð- fylking föðurlandsvina, þ.e. kommúnistar og ýmsir þjóðernissinnaðir hópar er studdu framboð hans, hefði sýnt styrk sinn og ekki yrði gengið framhjá þessum öflum við lands- stjómina. Kommúnistar eru öflugasti fiokk- urinn á þingi. Jeltsín að braggast Ekki er enn fyllilega ljóst hvað amaði að Jeltsín síðustu vikuna fyrir kjördag, ráðgjaf- ar hans og æðstu embættismenn gáfu mis- munandi skýringar á lasleika hans. Jeltsín leit nú mun betur út en þegar hann ávarp- aði þjóðina rétt fyrir kosningarnar, var afs- lappaður og skýrmæltur. Hann þakkaði kjós- endum fyrir að styðja sig og sagði kosning- arnar á miðvikudag hafa farið vel og lýðræð- islega fram. JÚRÍ Lúzhkov, borgarstjóri Moskvu og einn af vinsælustu stjórnmálamönnum Rússlands, afhendir Borís Jeltsín forseta helgimynd, íkon, að gjöf í Kreml í gær. ZJÚGANOV játar ósigur sinn á blaðamannafundi í þinghúsinu. „Ég er hreykinn af þeirri staðreynd að við stóðumst þetta próf. Ég er hreykinn af Rússlandi, ég er hreykinn af ykkur, rúss- nesku þjóðinni", sagði Jeltsín. Forsetakosn- ingarnar eru hinar fyrstu sem haldnar hafa verið í Rússlandi eftir hrun Sovétríkjanna í árslok 1991. Forsetinn fól i gær Víktor Tsjernomýrdín forsætisráðherra að mynda nýja ríkisstjórn. Andstæðingar Jeltsíns, kommúnistar og þjóðernissinnar, hafa samanlagt meirihluta í neðri deild þingsins, Dúmunni, sem verður að staðfesta stjórnarmyndunarumboð Tsjernomýrdins. Sé útnefningunni hafnað verður forsetinn að boða til nýrra þingkosn- inga. Forseti þingdeildarinnar, kommúnist- inn Gennadí Seleznjov, gaf í skyn í gær að skipan Tsjernomýrdíns yrði samþykkt and- spyrnulaust. Anatolí Lúkjanov, stuðningsmaður Zjúg- anovs og einn af forsprökkum uppreisnar- innar gegn Míkhaíl Gorbatsjov, síðasta sov- étforsetanum, í ágúst 1991, var fullur heift- ar. „Þetta er ekki ósigur. Ef við hefðum haft jafnmikinn stuðning og Jeltsín hafði í fjölmiðlunum hefði ekki verið um neinn ósig- ur að ræða,“ sagði hann. Forsetinn og menn hans nýttu sér miskunnarlaust yfirburða- stöðu sína í dagblöðum og ljósvakamiðlum. Alexej Podberjoskín, þjóðernissinni og einn helsti hugmyndafræðingurinn í innan- landsmálum í herbúðum Zjúganovs, reyndi að beija í brestina. „[Jeltsín] hefur þegar tekið margar af hugmyndum okkar upp á sína arma ... í þessum skilningi sigruðum við.“ Nýtt blóð í Kreml Alexander Lebed, sem Jeltsín setti yfir þjóðaröryggisráðið eftir fyrri umferð for- setakosninganna, sagði að Rússar hefðu valið rétt í fyrradag. Forsetinn hefði tekið nýja stefnu og væri koma hans sjálfs til valda í Kreml dæmi um nýtt blóð í æðstu stöðum sem tryggja myndi breytingar í Rússlandi. Lebed sagðist hafa ákveðið hveij- ir tækju við starfi varnarmálaráðherra og yfirstjórn öryggisþjónustunnar. Endurkjöri Jeltsíns hefur verið fagnað víða um heim. Ráðamenn í fyrrverandi sov- étlýðveldum og ríkjum Mið-Évrópu vörpuðu flestir öndinni léttar, töldu að niðurstaðan gæti eflt umbætur og frið í austurhluta álf- unnar. Sumir vöruðu þó Vesturveldin við því að treysta um of á að stöðugleiki myndi haldast í Rússlandi. Úrslitin mættu ekki verða til að seinka áformum um stækkun Atlantshafsbandalagsins. ■ Straumhvörf í Rússlandi/27 Sharon fær ráðherrastól Karl býður lokasátt Jerúsalem. Reuter. BENJAMIN Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, hefur ákveðið að búa til ráðherrastól fyrir Ariel Shar- on. Búist er við að ákvörðunin reiti arabaríki til reiði og valdi stjórn- völdum í Washington áhyggjum þar sem skipan Sharons þykir ekki til þess fallin að auðvelda friðarumleit- anir milli araba og ísraela. Sharon er fyri'verandi varnar- málaráðherra og stjórnaði sem slík- ur innrás ísraela í Líbanon árið 1982. Sem húsnæðisráðherra stjórnaði hann síðan uppbyggingu byggða landnema á hernumdu svæðunum og breiddust þær ört út á þeim tíma. David Levy, utanríkisráðherra og pólitískur fóstbróðir Sharons, barðist fyrir því að hann fengi ráðherrastól og hótaði afsögn ella. Öll ráðuneyti eru setin og því verður nýtt emb- ætti búið til fyrir Sharon, sem fara mun með kerfis- og skipulagsmál. Meir Porush, húsnæðisráðherra, sagðist í gær andvígur komu Shar- ons í stjórnina og vill ekki láta for- ræði yfir vega- og byggðamálum af hendi. ■ Knúið á um fortíð/20 Reuter Sigurgleði IIOLLENSKUR hjólreiðamaður, Jeroen Blijlevens, fagnaði sigri í gær á fimmta legg Frakklands- reiðarinnar, erfiðustu þolraunar íþróttanna, sem nú fer fram 83. árið. Hjólað var frá Lac de Mad- ine til Besancon, 242 km leið í austurhluta Frakklands. London. Reuter. KARL Bretaprins gerði í gærkvöldi Díönu prinsessu tilboð um skilnað- arsáttmála. Svari hún játandi gæti skilnaður þeirra að lögum náð fram að ganga á 6-8 vikutn. Elísabet Bretadrottning lagði til við Karl og Díönu í desember sl. að þau byndu endi á hjónaband sitt en þau höfðu þá verið skilin að borði og sæng í tvö ár. Karl varð strax við bón móður sinnar og Díana um síðir. Hún kvartaði hins vegar nýverið við drottningu og sagði Karl draga lappirnar í samningum um lyktir hjónabandsins. Steytt hefur á því hversu miklar fjárgreiðslur til henn- ar skyldu verða, en Karl hjó á hnút- inn í gærkvöldi. Talið er að hann hafi boðið Díönu 15-20 milljónir punda, jafnvirði 1.560-2.080 millj- óna króna. Enginn ágreiningur er milli þeirra um forræði yfir sonunum tveimur. Verður umgengnisréttur þeirra jafn. Þá fær Díana að halda konunglegum titli og býr áfram í Kensingtonhöllinni. Karl er og sagður samþykkur því að hún gegni hlutverki nokkurs konar farand- sendiherra en málið hefur þó mætt andstöðu í stjórnkerfinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.