Morgunblaðið - 05.07.1996, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Sljórn Fóðurverksmiðjunnar Laxár
Ekkí lengur áhugi á
hlutabréfum bæjarins
STJÓRN Fóðurverksmiðjunnar
Laxár hefur sent bæjarstjóranum
á Akureyri bréf þar sem því er
lýst yfir að ekki sé lengur áhugi á
að kaupa hlutabréf bæjarins í fé-
laginu, en fyrirtækið gerði tilboð
í bréf bæjarins í Laxá síðasta
haust.
Árni V. Friðriksson stjórnarfor-
maður sagði að stjórnin hefði gert
tilboð í bréfin í nóvember síðast-
liðnum, en aldrei fengið nein við-
brögð. Frá þeim tíma að boðið var
/iSíaiiriijr^C
íslenskur efniviður
SÝNING á verkum Claudiu Heiner-
mann og Rob Von Piekartz verður
opnuð í Deiglunni, Kaupvangsstræti
á morgun, laugardaginn 6.' júlí kl.
16. Þau hafa frá því í byrjun júní
dvalið í gestavinnustofu í Listagili.
Þau ferðuðust um menningar-
svæði Maya-indíána á síðasta ári og
eru á sýningunni verk sem unnin
eru undir áhrifum frá þeirri dvöl í
bland við þau áhrif sem íslensk nátt-
úra hefur haft á þau, en efnivið
hennar telja þau stórkostlegan.
Verkin á sýningunni eru unnin úr
íslensku efni, rekavið, beinum og
ryðguðu járni svo eitthvað sé nefnt.
Pálína í Ketilhúsi
Sýning á málverkum Pálínu Guð-
mundsdóttur verður opnuð í Ketil-
húsinu í Kaupvangsstræti á morgun,
6. júlí kl. 16. Flest verkanna eru
unnin í Hollandi á árunum 1987-
1990 en hafa ekki verið sýnd hér
áður þar sém sýningarsalur sem þeim
hæfir hefur ekki verið til staðar.
Verkin eru allt að 3 métrar á hæð
og 5 metrar á breidd. Sýningin ér
opin frá kl. 14 til 18 og stendur til
16. júlí næstkomandi.
Leikhús í Deiglunni
Einþáttungurinn „Frátekið borð“
eftir Jónínu Leósdóttur verður sýndur
í Deiglunni í dag, föstudag og á morg-
un, laugardag. Leikarar eru Saga
Jónsdóttir, Soffía Jakobsdóttir og
Bryndís Petra Bragadóttir. Verkið var
frumsýnt í höfundarsmiðju Leikfélags
Reykjavíkur í mars síðastliðnum.
Leikstjóri er Ásdís Skúladóttir.
í bréfin og þar til nú hefðu aðstæð-
ur breyst sem gerðu að verkum
að stjórnin hefði ekki lengur áhuga
á bréfum bæjarins í fyrirtækinu.
Hlutafé aukið
Laxá hefur ítrekað erindi sitt
til bæjarins þar sem þess er farið
á leit að eigendur svonefndra B-
hlutabréfa í Laxá fallist á að
breyta þeim í A-hlutabréf, sem
verði að nafnverði 1/10 af nafn-
verði B-bréfa. Akureyrarbær og
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur
samþykkt að veita Kirkjugörðum
Akureyrar einfalda bæjarábyrð að
því tilskildu að fullnægjandi bak-
trygging verði sett fyrir henni.
Kirkjugarðar Akureyrar óskuðu
nýlega eftir bæjarábyrð til trygg-
ingar láni að upphæð 15 milljónir
króna vegna lokafrágangs á lík-
húsi og kapellu sem staðsett er á
höfðanum norðaustan við kirkju-
garðinn.
Gestur Jónsson sem sæti á í
stjórn Kirkjugarða Akureyrar
sagði að afgreiðsla bæjarráðs
þýddi að hægt yrði að taka húsið
í notkun á haustdögum eða í síð-
asta lagi úm áramót. Með tilkomu
þess yrði mikil breyting til batnað-
ar.
Kaupfélag Eyfirðinga eru eigend-
ur B-bréfanna. Bæjarráð frestaði
afgreiðslu þessa máls á fundi sín-
um í gær.
Árni sagði Laxá vera á uppboðs-
markaði og því væri verra að hafa
tvær gerðir hlutabréfa í gangi.
Hlutafé Laxár er uppselt, en frá
því í haust hefur eftirspurn eftir
hlutabréfum í félaginu verið nokk-
ur. Árni taldi því líklegt að á næsta
aðalfundi yrði stjórn heimilað að
auka hlutafé fyrirtækisins.
Til skammar
Líkhús hefur um áratugaskeið
verið í umsjá Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri, en Gestur sagði að
í raun bæri engum bein lagaleg
skylda til að sjá um slíkan rekst-
ur. Engin kapella hefur verið til
staðar á Akureyri í tengslum við
líkhús. „Aðstaðan hvað þessi mál
varðar hefur í raun verið til hábor-
innar skammar en munu batna til
mikilla muna með tilkomu þessa
nýja húss,“ sagði Gestur.
Líkhúsið og kapellan sem nú hill-
ir undir að komist í gagnið er um
450 fermetrar að gólffleti. Kapellan
tekur 40-45 manns í sæti og er
gert ráð fyrir að þaðan fari fram
útfarir sem gerðar eru í kyrrþey.
Jón Ingí í Gamla-Lundi
JÓN Ingi Sigurmundsson frá Sel-
fossi opnar málverkasýningu í
Gamia-Lundi við Eiðsvallagötu 14,
Akureyri á morgun, laugardaginn
6. júlí kl. 14.
Á sýningunni eru olíu-, pastel-
og vatnslitamyndir. Þetta er 11.
einkasýning Jóns Inga, en hann
hefur einnig tekið þátt í mörgum
samsýningum. Sýningin er opin
frá kl. 14 til 19 vikra daga, en
14 til 22 um helgar. Sýningunni
lýkur 14. júlí næstkomandi.
Kirkjugarðar Akureyrar
Lokið við líkhús
og kapellu
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Veiðin skipt-
ir engu máli
BRJÁNN Guðjónsson var að
dytta að bát sínum í Sandgerðis-
bót I gær. Báturinn heitir ekki
neitt og hefur aldrei heitið neitt
í þau fimmtán ár sem hann hef-
ur verið í eigu Brjáns. „Það er
ekkert atriði,“ sagði hann. „Ég
hef notað bátinn til að fara á
fram á Poll á góðum fögrum
kvöldstundum og slappa af frá
argaþrasi dagsins." Brjánn
sagðist iðulega hafa færið með,
stundum veiðist ekkert „en
stundum reitir maður eitthvað
í matinn, það skiptir í sjálfu sér
engu máli hvort eitthvað veiðist
eða ekki.“ Brjánn ætlar að koma
bátnum í sæmilegt horf á næstu
vikum og stefnir að því að kom-
ast að minnsta kosti tvisvar út
á Poll fyrir haustið.
Sumarsýning Lista-
safnsins á Akureyri g
Sjór og sveit
SUMARSÝNING Listasafnsins á
Akureyri verður opnuð á morgun,
laugardag.
„Sjór og sveit“ er yfirskrift sýning-
arinnar í austur- og miðsal safnsins,
en þar eru málverk eftir Gunnlaug ™
Scheving, olíumálverk, vatnslitir og 6J
litkrít. I austursal eru myndir sem M
segja frá sjómanninum, en myndir
úr sveitinni eru í miðsal safnsins.
í vestursal Listasafnsins á Akur-
eyri er sýningin Úr líkhúsi, stórar
skarpar myndir úr seríu sem Andres
Serrano tók fyrir fjórum árum í lík-
húsi New York-borgar.
Andres Serrano er ættaður frá
Hondúras og Kúbu, fæddur árið 1950
og er sagt að myndlistin hafi frelsað (|
hann frá götunni. g
Sýningarnar standa til 1. ágúst “
næstkomandi. ^
Afgreiddu þín mál á öruggan hátt
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram 1. til 19. júlí. Komdu í Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa og tryggðu þér áfram góð kjör með nýjum spariskírteinum eða
öðrum ríkisverðbréfum.
• Öruggustu verðbréf þjóðarinnar.
• Varsia spariskírteina.
• Yfirlit yfir eign og verðmæti skírteinanna.
• Tilkynning þegar líður að lokagjalddaga.
• Föst og örugg ávöxtun út lánstímann.
• Aðstoð við sölu skírteina fyrir gjalddaga.
• Kaup og sala eldri flokka spariskírteina.
• Ráðgjöf gegnum síma.
• Upplýsingar um verðmæti skírteina
á hverjum tíma.
• Kaup á skírteinum í reglulegri áskrift.
• Aðstoð við endurfjármögnun
á spariskírteinum.
• Sérfræðingar í ríkisverðbréfum.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar :
í ríkisverðbréfum og tryggðu þér ný j
spariskírteini í stað þeirra sem nú eru “
til innlausnar.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6,2. hæð, sími 562 6040, fax 562 6068.
!
|
I
Spariskírteini ríkissjóðs - framtíð byggð á öryggi