Morgunblaðið - 05.07.1996, Síða 34

Morgunblaðið - 05.07.1996, Síða 34
34 FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Sigurður R. Bjarnason var fæddur á Bæjar- skeijum í Miðnes- hreppi 28. mars 1932. Hann lést á Sjúkrahúsi Kefla- víkur hinn 30. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Bjarni Jónsson, f. 7. sept. 1893, d. 3. okt. 1972 og Guð- rún Benediktsdótt- ir, f. 6.6. 1893, d. 11.12. 1934. Hanná eina systur, Jónu, búsetta í Vestmannaeyjum. Sig- urður bjó í Sandgerði alla sína tíð. Eftirlifandi kona hans er Rósa Dagmar Björnsdóttir, f. 2.12. 1929. Börn þeirra eru Guðrún, f. 22.11. 1952, hún á 3 börn og 3 barnabörn; Sigrún Ragna, f. 15.2. 1954, maki Jón Pétursson, þau eiga 3 börn; Ástþór Bjarni, f. 20.6. 1956, maki Margrét Haraldsdóttir, þau eiga 4 börn; Heiga, f. 20.12. Elsku pabbi minn. Nú er komið að kveðjustund hjá okkur, þú varst hetjan mín og stoltið mitt. Allt sem þú tókst þér fyrir hendur var gert með miklum dugnaði og samvisku- semi. Ég minnist æskuáranna minna, þegar ég beið við gluggann heima og horfði út á hafið og beið eftir því að sjá þig koma að landi. Þú varst keppnismaður mikill og oftast með þeim síðustu að landi. Þegar ég sá þig sigla inn innsigling- una var litlu hjarta mikið létt. Ofá- ar voru kirkjuferðirnar sem við fór- um saman fjölskyldan, því ávallt þegar þú komst í land, var siður hjá ykkur mömmu að þakka Guði fyrir heilbrigða fjölskyldu og feng- sælan afla. Þegar þú tókst þá ákvörðun að hætta á sjónum til að vera í landi hjá mömmu sem var þér allt, þá urðu straumhvörf í lífi þínu. Nokkru eftir að þú komst í land tókst þú við hafnarstjórastöð- unni í Sandgerði. Þar fékkstu tæki- færi til að taka þátt í bæjarlífinu 1957, maki Halldór Ragnarsson, þau eiga 3 börn; Sigurð- ur Oddur, f. 14.3. 1962, sambýliskona Sólrún Jónsdóttir, þau eiga 1 son. Sigurður var sjó- maður fram til árs- ins 1978 að hann gerðist hafnarvörð- ur í Sandgerðis- höfn. Síðar varð hann hafnarstjóri. Sigurður gegndi mörgum trúnaðar- störfum bæði fyrir sjómenn og eins fyrir bæjarfé- lag sitt. Hann var fyrsti forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar en síðustu árin var hann full- trúi Sjálfstæðisflokksins í bæj- arsljórn. Síðustu árin var hann einnig meðhjálpari í Hvalsnes- kirkju. Utför Sigurðar verður gerð frá Hvalsneskirkju í dag, 5. júlí, og hefst athöfnin klukkan 14. og virkja og nota þann mikla eld- móð sem í þér bjó. I hvert skipti sem ég hitti þig voru ávallt ný við- fangsefni hjá þér sem þurfti að klára fyrir þitt bæjarfélag. Ég gerði mér ekki alveg grein fyrir því fyrr en þú varst orðinn veikur, því ófáar eru hringingarnar sem við erum búin að fá um þakklæti til þín fyrir ýmislegt sem þú vannst og hjálpað- ir án þess að nefna það við okkur. Pabbi minn, fjölskyldan var þér allt, þú fylgdist með öllu sem barna- börnin og langafabörnin þín voru að gera, og laumaðir einhveiju að þeim og baðst þau að geyma það. Mömmu barstu á gullstól alla ævi. Þú vildir allt fyrir hana gera, þú hafðir gaman af að vera með kind- ur á Bæjarskerjum, þar sem þú ólst upp, og tók mamma fullan þátt í því með þér. Mamma hafði gaman af því að fara í golf og þú tókst þátt í því með henni. Hún söng í kirkju- kórnum og þú varst meðhjálpari. Allt sem þið tókuð ykkur fyrir hend- ur gerðuð þið saman, og er missir mömmu mikill. Hún stóð eins og klettur við hlið þér allan tímann og var alltaf jákvæð og glöð við þig. Hún fékk þig ávallt til að brosa. Betri lífsförunaut gast þú ekki val- ið þér, pabbi minn, og við skulum passa hana fyrir þig og láta henni líða vel hjá okkur. Pabbi minn, nú er stríði þínu lok- ið, þú barðist fram á síðasta dag fyrir því að fá að lifa. Nú hefur Guð tekið þig til sín og gefið þér frið. Ég er sannfærð um það að fyrir handan bíði þín ótal verkefni sem þú átt eftir að leysa með þínum mikla myndarbrag. Elsku pabbi. Hvíl þú í friði. Helga Sigurðardóttir. Yndislegi, elskulegi pabbi minn, mig langar til að skrifa þér nokkrar línur. Það er svo undarlegt að hugsa sér lífið án þín. í öllum mínum erfið- leikum hefur þú alltaf verið til stað- ar fyrir mig og börnin mín. Síðan allt í einu ertu farinn frá okkur, þú hefur alltaf verið mín fyrirmynd í lífinu og okkar allra sem vorum svo heppin að fá að kynnast þér, elsku pabbi minn. Þú varst einstak- ur maður, harður og ákveðinn, þú vissir alltaf hvað þú vildir og varst ekkert að leyna því, en þú varst líka svo yndislega blíður og góður. Það er svo einkennilegt að hugsa til þess að eiga aldrei eftir að sjá þig aftur og að geta aldrei aftur skriðið upp í fangið á þér á erfiðum stundum eða að geta glaðst með þér á góðum stundum. Elsku pabbi minn, mig langar sérstaklega til að þakka þér fyrir hana Döggu mína sem þú gekkst í föðurstað, missir hennar er mikill. Þegar þú vissir hvert stefndi varst þú alltaf að hugsa um mömmu, þú kvartaðir aldrei þó að þú værir fársjúkur, eina áhyggju- efnið þitt var að mamma yrði ein eftir og þú eyddir þínum síðustu kröftum í að búa allt sem best í haginn fyrir hana, elsku pabbi minn. Guð geymi þig. Ég veit að Guð tekur vel á móti þér, þú yndislegi, góði maður. Eitt- hvert hlutverk ætlar hann þér og þá verður þú aftur glaður. Þín, Guðrún Sigurbjörg. Mig langar til að minnast í nokkr- um orðum elsku afa míns sem nú hefur yfirgefið okkur eftir erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm. Elsku afi, þú varst og verður alltaf stóra hetjan mín, stoltið mitt, þú varst engum líkur, alltaf studdir þú mig í öliu sem ég tók mér fyrir hendur, alltaf varstu tilbúinn að styðja mig og varst mér ómetanlegur í öllu. Þú varst engum líkur, það eru sjálfsagt fáir sem myndu treysta sér í öll þau verk sem þú tókst þér fyrir hendur, og skila þeim svona vel frá sér. Það verður voða erfitt að sætta sig við að þú sért búinn að yfirgefa mig, þú sem tókst mér sem yngsta bam- inu þínu og um leið elsta barnabarn- inu þínu þegar ég flyst alveg til ykkar elsku ömmu 11 ára gömul. Ég veit að þú átt eftir að fylgjast með mér í mínu lífi og styðja mig, elsku afi, þakka þér innilega fyrir að fá að eiga síðustu stundirnar með þér, þær voru erfiðar en samt yndis- legar. Núna er þér ætlað annað hlut- verk hjá okkar Guði og hann geymi þig ávallt. Drottinn blessi þig. Drottinn vakir, Drottinn vakir, daga og nætur yfir þér blíðlynd eins og besta móðir ber hann þig í faðmi sér. (S.Kr. Pétursson.) Dagmar (Dagga). Elsku afí minn. Mig langar að minnast þín með þessum orðum. Það er svo ótrúlegt að þú skulir vera farinn svona fljótt frá okkur. Þín á eftir að verða sárt saknað. Þú munt alltaf eiga stóran hlut í hjarta mínu, og ég mun ávallt muna þig brosandi og hamingju- saman sem þú ávallt varst. Það varst þú sem sagðir alltaf að fjöl- skyldan væri mestu auðæfi heims. Ég veit að þér líður betur núna í Guðs höndum, afi minn. Guð geymi þig og varðveiti þig. Sigurrós Hrólfsdóttir. Elsku, yndislegi afi minn, mig langar að kveðja þig í síðasta sinn og segja þér fáein orð áður en þú ferð á þinn hvíldarstað. Ég minnist þín eins og við skildum þann 17. júní þegar ég, Rakel og Lóa fórum utan. Við vorum saman í mat hjá Döggu á laugardeginum þann 15. júní og átum yfir okkur af humri en svo kvöddumst við þá því við ætluðum að vera á Spáni í 2 vikur. Svo var eitthvað sem sagði mér að ég þyrfti að sjá þig aftur áður en við færum og var ákveðið að koma við hjá ömmu og afa í leiðinni á flugvöllinn. Svo hringir þú á sunnu- dagskvöld og vildir endilega bjóða okkur í kaffi fyrir brottför og auð- vitað þáðum við það, svo kom að kveðjustund, þá varð ég að halda aðeins lengur utan um þig og kyssa meir en vanalega. Jú, maður hugsar nú alltaf „ef“ þegar maður fer í burtu í einhvern tíma. Svo því mið- ur tóku á móti mér þessi hræðilegu tíðindi þann 1. júlí að afí væri lát- inn og ég gjörsamlega lamaðist en ég veit þú ert á góðum stað og líð- ur vel en sárast er góðs manns saknað. Þína persónutöfra ætla ég ekki að telja upp hér því sá maður, sem þú hafðir að geyma, sem við elskuðum öll, verður ávallt í minn- ingu okkar en hana elsku ömmu styðjum við og styrkjum, ég votta henni, börnunum ykkar og Döggu mína dýpstu samúð í þessum mikla söknuði. Guð geymi ykkur og þig, elsku afi minn. Jón Bjarni Hrólfsson. Svo allt of, allt of fljótt þurfum við að kveðja Sigga Bjarna. Siggi hefur alltaf verið stór og sterkur. Síðastliðið haust sáum við sem í kringum hann vorum að honum var nokkuð brugðið. Karlmennið sem hann var bar sig þó vel. Hann leit- aði samt læknis. Sérfræðingunum reyndist erfitt að greina sjúkdóminn en að lokum kom niðurstaðan. Þetta var krabbamein. Auðvitað var reið- arslagið þungt en Siggi var ákveðinn að beijast gegn sjúkdómnum. Hann ætlaði að sigra. Baráttuvilji hans var svo mikill að ekki var annað hægt en hrífast með. Hann hafði svo margt að hlakka til. í sumar voru fimmtíu ár frá því að hann fermdist og ætluðu fermingarsystkinin að koma saman af því tilefni. Sem bet- ur fer auðnaðist honum að taka þátt í þeirri samkomu. Hvalsneskirkja átti stóran sess í huga Sigga en þar var hann með- hjálpari til margra ára. Hann hafði mikinn áhuga á að niðjar Jóns Odds- sonar og Þuríðar Jónsdóttur afa hans og ömmu tækju sig saman um að færa kirkjunni hátíðarhökul. Sá átti að vera til minningar um föður hans, föðursystkin og maka þeirra sem öll eru látin. Árið í ár var valið vegna þess að nú hefðu öll þessi systkin verið orðin 100 ára hefðu þau lifað. Hökullinn er þegar keypt- ur og verður hann afhentur við guðs- þjónustu í Hvalsneskirkju þann 14. júlí nk. Siggi var alinn upp á Bæjar- skeijum hjá föðursystkinum sínum því hann hafði ungur misst móður sína. Þar var hann sem bróðir föður míns sem var systkinabarn við hann. Samband þeirra var náið og áttu þeir og gerðu út um tíma fiskibáta. Fyrst var það Jón Oddsson og síðar Jón Oddur. Samband milli fjöl- skyldnanna var einnig náið. T.d. kom Siggi alltaf á aðfangadagskvöld með fjölskyldu sína heim að Bæjarskeij- um eftir messu í Hvalsneskirkju og var þar fram eftir kvöldi. Á jóladag fórum við svo í kaffi til þeirra. Allnokkur síðustu ár hafði Siggi kindur heima á Bæjarskeijum. Hann eignaði Bjarna syni mínum eina kind og var hann heldur stoltur af því. Hann sagðist líka eiga hrútinn með Sigga. Bjarni hefur oft farið með pabba sínum til að hjálpa til við að hreinsa fjárhúsin og snúast í kring um Sigga og höfðu báðir gaman af. Eftir að faðir minn andaðist gekk + , Bróðir okkar, LÁRUS FJELDSTED JAKOBSSON, Austurgötu 14, Hofsósi, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 6. júlí kl. 14.00. Systkini hins látna. Útför JÓNS ÁRNASONAR fyrrv. bónda, Vestur-Samstöðum í Fljótshlíð, sem lést 28. júní, verður gerð frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljóts- hlíð laugardaginn 6. júlí kl. 14.00. Börn hins iátna og fjölskyldur. + Útför vinar okkar og frænda, JÚLÍUSAR KRISTJÁNSSONAR fyrrum bónda, Slitandastöðum, Staðarsveit, sem lést í St. Fransiskussjúkrahúsinu, Stykkiskhólmi, 30. júní, fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 6. júlí kl. 16.00. Jarðsett veröur að Staðarstað sama dag. Fyrir hönd systkina hins látna, Árný M. Guðmundsdóttir, Kristmann H. Jónsson, Edda Sóley Kristmannsdóttir, Jón Ingi Hjaltalín, Kristján V. Auðunsson, Hildur Kristín Vésteinsdóttir, Þröstur Ingi Auðunsson. SIGURÐUR RAGNAR BJARNASON Siggi sonum mínum í afa stað. Þeg- ar hann varð sextugur fékk hann rútu og bauð baranbörnum sínum í ferðalag austur í Hveragerði. En hann bauð ekki aðeins sínum heldur líka sonum mínum og systkinabörn- um mínum með. Enda hefur Siggi ætíð verið i miklu uppáhaldi hjá þeim. Bjarni sonur minn sagði þegar hann hafði grátið nokkra stund eftir að hafa fengið vitneskju um andlát Sigga að það væri ekki skrítið þó hann gréti þegar uppáhalds frændi hans væri dáinn. Þú sem ferð ferð aldrei allur Hveiju sinni skilur þú eitthvað eftir Hluta af þér - í mér . (Sverrir Páll Erlendsson.) Fyrir hálfum mánuði hélt Ástþór sonur Sigga upp á fertugsafmæli sitt og bauð ættingjum og vinum. Þarna hitti ég Sigga í síðasta sinn. Hann var þá hress og kátur og naut þess greinilega að vera innan um fólk. Þannig var hann reyndar alltaf og þannig vil ég muna hann. Að leiðarlokum eru Sigga Bjarna færðar þakkir fyrir samfylgdina. „Drottinn minn gef þú dánum ró, hinum Iíkn sem lifa.“ Þóranna Jónasdóttir frá Bæjarskerjum og fjölskylda. í dag er til moldar borinn frá Hvalsneskirkju Sigurður R. Bjarna- son hafnarstjóri í Sandgerði, eftir stutta en hetjulega baráttu við sjúk- dóm þann sem að lokum dró hann yfir móðuna miklu. Fyrstu kynni mín af Sigga Bjarna, en það var hann kallaður hér í Sandgerði, hóf- ust fyrir 30 árum er ég fór á fram- boðsfund sem haldinn var í Sam- komuhúsinu vegna hreppsnefndar- kosninga, þá var Siggi Bjarna skip- stjóri og fór í pontu og flutti þrum- andi skammarræðu yfir hrepps- nefndinni vegna hafnarinnar í Sand- gerði, ekki grunaði mig þá að við Siggi Bjarna ættum síðar eftir að hafa náið samstarf í sveitar- og hafnarmálum hér í Sandgerði. Siggi Bjarna var til margra ára farsæll skipstjóri og aflakló. Eftir að hann hætti sjómennsku og hóf störf í landi hóf hann einnig af- skipti af sveitarstjórnarmálum, enda hafði hann mikinn áhuga fyrir sveit- arstjórnarmálum í Sandgerði. Siggi Bjarna var varamaður í hreppsnefnd Miðneshrepps 1982-1986. Aðal- maður í hreppsnefnd tjl 1990. En þá fékk Sandgerði kaupstaðarrétt- indi og var Siggi Bjarna kosinn fyrsti forseti bæjarstjórnar 1990 og hefur setið í bæjarstjórn Sandgerðis til dauðadags. Það hefur verið lær- dómsrikt og ánægjulegt að starfa mað Sigga Bjarna að hagsmunum bæjarins og hafnarinnar, en Siggi Bjarna varð hafnarstjóri 1988 til dauðadags. Höfnin var ætíð hans hjartans mál, og barátta hans fyrir endurbótum og stórfelldum fram- kvæmdum á hafnarsvæðinu undan- farin ár, þar á Sigurður Bjarnason sérstakar þakkir skildar fyrir vel unnin störf sem munu nýtast Sand- gerðingum og sjófarendum um ókomin ár. Siggi Bjarna var mikill sjálfstæð- ismaður og hélt uppi merki Sjálf- stæðisflokksins, enda var Siggi Bjarna vel mælskur og gat látið menn heyra það óþvegið ef svo bar undir. Fyrir hönd Sjálfstæðisfélags Sandgerðis vil ég færa Sigga Bjarna þakkir fyrir störf hans. Siggi Bjarna var meðhjálpari við Hvalsneskirkju í um 10 ár og sinnti því starfi með prýði, hann bar hag kirkjunnar mjög fyrir brjósti alla tíð. Fyrir hönd Sóknarnefndar Hvalsnes- kirkju vil ég þakka Sigga Bjarna hans fórnfúsa starf fyrir Hvalsnes- kirkju. Það er margs að minnast eftir að hafa starfað með Sigga Bjarna í bæjarpólitík og kirkjumálum síðast- iðin 10 ár. Margar ánægjustundir höfum við átt saman á undanförnum árum með eiginkonum okkar en þær hafa sungið saman í Kvennakór Suðurnesja og Kirkjukór Hvalsnes- kirkju til margra ára. Með þessum fáu línum vil ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.