Morgunblaðið - 26.07.1996, Side 44

Morgunblaðið - 26.07.1996, Side 44
HEIMILISLÍNAN - Heildarláusn ájjármálum einslalilinga (^) BÚNAOARBANKI ISIANDS JimJM -setur brag á sérhvern dag! MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SlMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FOSTUDAGUR 26. JULI1996 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK Fjórir björguðust en tveggja er saknað eftir að Æsa ÍS-87 sökk í Arnarfirði Kafaði undir Æsu og ley sti bj örgunarbátinn TVEGGJA manna er saknað eftir að kúfískveiðiskipið Æsa ÍS-87 frá Flateyri sökk í Arnarfirði um hádegisbilið í gær. Fjórir úr sex manna áhöfn skipsins komust um borð í gúmbjörgunarbát og var þeim bjargað um borð í Vigdísi BA-377, sem var nærstödd og sá neyðarljós frá Æsu. Kom Vigdís með mennina til Bíldudals um kl. 14.30. Ágætt veður var þegar Æsa sökk og sléttur sjór. Æsa IS sökk um 1,5 km út af suðurströnd Arnarfjarðar sér á floti á kili Jón Gunnar Kristinsson, einn skipbrots- mannanna fjög- urra á Æsu ÍS, drýgði mikla hétjudáð þegar hann kafaði undir Æsu þar sem hún maraði í kafi á hvolfi og leysti gúm- björgunarbát- inn frá með handafli. Sjálf- virkur sleppi- búnaður er í bátnum en svo virðist sem hann hafi ekki skotið gúmbátnum frá. A. meðan héldu þrír félagar hans Æsu. Gerðu sér ekki grein fyrir því hvað hefði gerst „Þeir gerðu sér ekki grein fyrir því hvað hefði skeð, en þeir sögðu að þetta hefði allt gerst svo rosa- lega snöggt. Einn af þeim var niðri í lúkar og ég held að hann skilji það ekki ennþá hvernig hann komst upp,“ sagði Símon Viggós- son, skipstjóri á Vigdísi BA frá Patreksfírði, í samtali við Morgun- blaðið, en áhöfnin á Vigdísi bjarg- aði fjórum af sex skipveijum Æsu eftir að skipið sökk. Símon hafði fylgst með Æsu við veiðar í gær- morgun en síðan hvarf skipið sjón- um hans. „Síðan sá ég bara þúst í sjónum og hélt ég fyrst að þetta væri hvalur. Ég keyrði samt að þessu og eftir tíu mínútur eða kortér sá ég neyðarblysið frá þeim. Stuttu 10 km seinna hvarf svo báturinn af yfír- borðinu en hann var á hvolfí þeg- ar ég sá hann fyrst. Mennirnir voru komnir í gúmmíbátinn þegar ég kom að, en þeir höfðu verið á kilinum. Það hafði flotið upp björgunar- bátur í hylki hjá þeim, en hann var samt á kafi og þurfti einn þeirra að kafa eftir honum. Hann stakk sér af kili eftir bátn- um og náði að sprengja hann upp. Síðan fóru hinir í hann,“ sagði Símon. Gengnar fjörur í dag Víðtæk en árangurslaus leit var í gær gerð að mönnunum sem saknað er. Alls tóku 32 bátar og tveir togarar þátt í leitinni auk TF-SIF, þyrlu Landhelgisgæsl- unnar, og björgunarsveitarmenn gengu fjörur beggja vegna Arnar- fjarðar. Formlegri leit var hætt á miðnætti, en fjörur verða áfram gengnar í dag og björgunarbátur björgunarsveitar Slysavarnafé- lagsins á Patreksfírði mun leita á sjó. Olíubrák kom fljótlega upp frá Æsu eftir að skipið sökk og fann Sæborg BA-77 flakið á um 70-80 metra dýpi kl. 13.34. Ekki er unnt að svo stöddu að birta nöfn mannanna tveggja sem saknað er. ■ Víðtæk leit/22-23 . Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Ógnað með hnífi LÁGVAXINN karlmaður réðist inn í söluturn í Mjóddinni í gærkvöldi og gerði tilraun til ráns. Maðurinn ógnaði af- greiðslustúlku, sem var ein á vakt, með hnífí, en gerði henni þó ekkert mein. Þegar afgreiðslustúlkan náði að gera lögreglu viðvart var ódæðismaðurinn á brott. Lögreglan í Reykjavík gat seint í gærkvöldi ekki gefíð upp hvort ódæðismaðurinn hafí haft eitthvað upp úr krafsinu. Pjöl- mennt lið lögreglu hóf fljótt leit að manninum sem var ófundinn þegar síðast fréttist. Tillögur stjórnar Sjúkrahúss Reykjavíkur um niðurskurð samþykktar STÖÐUGILDUM á Sjúkrahúsi Reykjavíkur verður fækkað um 104 og samtals 83 legurúm lögð niður, samkvæmt tillögum, sem stjórn sjúkrahússins samþykkti í gær- morgun. Um það bil 250 milljónir króna vantar til þess að endar nái saman í rekstri þessa árs og því var ljóst að grípa þyrfti til róttækra sparnaðaraðgerða. Þær aðgerðir, sem grípa á til, munu bitna harðast á öldruðum, geðsjúkum og þeim sem þurfa á endurhæfíngu að halda. Kristín Á. Ólafsdóttir, stjórnarformaður, seg- ist telja að aðgerðirnar muni hafa mjög alvarlegar afleiðingar fyrir heilbrigðisþjónustuna í för með sér. Aftur á móti hafí þetta verið ill- 104 stöðugildi og 83 rúm lögð niður skásta neyðarúrræðið. Ekki væri þorandi að höggva skörð í slysa- og bráðaþjónustu spítalans frekar en orðið væri og loka þannig dyrum á þá, sem þyrftu á umsvifalausri heilbrigðisþjónustu að halda. Skilar engum raunverulegum árangri Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð- isráðherra, segir engan raunveru- legan sparnað felast í því að minnka þjónustu við aldraða og geðsjúka. „Ég tel hins vegar að tillögurnar muni opna augu manna fyrir því í hvers konar úlfakreppu sjúkrahúsin á Reykjavíkursvæðinu eru, en grundvallaratriði er að horfa á málið heildstætt." Sagði hún að vandinn yrði ekki leystur með tillög- um, sem hefðu ekki raunverulegan sparnað í för með sér, heldur aðeins tilfærslu á fjármunum. Hún segir að aukin samvinna stóru sjúkrahús- anna tvegga, Ríkisspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur, væri væn- legri leið til árangurs. „Áður en farið er í svo róttækar aðgerðir, sem tillögurnar bera með sér, hljóta menn að spyija sig hvort ekki sé rétt að færa saman t.d. yfírstjórnir stóru sjúkrahúsanna, skrifstofu- hald, rannsóknarþáttinn og há- tæknina svo eitthvað sé nefnt. Slík- ar aðgerðir kæmu ekki niður á sjúklingum og þær myndu spara peninga," segir ráðherrann. ■ Aðgerðirnar bitna/6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.