Morgunblaðið - 26.07.1996, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B/C
168. TBL. 84.ÁRG.
FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rannsókn á orsökum þess að þota TWA fórst
Torkennilegt hljóð
greinist á hljóðrita
New York. Reuter.
ROBERT Francis, varaformaður
bandarísku öryggis- og samgöngu-
nefndarinnar, sagði í gær að á hljóð-
ritanum úr þotu flugfélagsins TWA,
sem fórst skömmu eftir flugtak í New
York fyrir rúmri viku, heyrðist fjórð-
ung úr sekúndu óútskýrt hljóð, sem
rannsóknarmenn væru að reyna að
átta sig á til að komast að því hvað
grandaði vélinni. Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti tilkynnti í gær að tafar-
laust yrði gripið til aðgerða til að
auka öryggi í farþegaflugi banda-
rískra flugfélaga.
Francis sagði að allt virtist með
felldu á upptökunum að öðru leyti.
Hann vildi ekkert segja um mikil-
vægi þessa hljóðs eða merkingu og
Clinton boðar
hert öryggis-
eftirlit
bætti við að það væri sérfræðing-
anna að skera úr um það.
„Allar fjórar rásir upptökutækis-
ins í flugklefanum námu [óvenju-
legt] hljóð í sekúndubrot rétt áður
en bandinu lýkur," sagði Francis.
Hann sagði að fram að því hefði
allt virst eðliiegt á upptökunum.
Áhöfnin hefði aðeins rætt hefð-
bundin mál og ekki minnst á bilun.
í fréttum bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar CBS í gærkvöldi sagði
að upptakan bæri því vitni að
sprengja hefði sprungið í vélinni.
Francis kvað kafara nú hafa náð
líkum 126 manna af þeim 230, sem
fórust, af hafsbotni.
Clinton var að koma ásamt Hill-
ary, konu sinni, af þriggja klukku-
stunda fundi með aðstandendum
nokkurra af þeim 230 sem fórust
með flugi 800 frá New York til
Parísar 17. júlí.
Clinton kvaðst vona að brátt
mætti taka í notkun háþróuð tæki
til að leita að sprengjum á öllum
flugvöllum í Bandaríkjunum. Þennan
búnað væri nú verið að prófa.
Einnig fyrirskipaði hann nánari
IVCUUCI
ROBERT Francis, varaformaður bandarísku öryggis- og sam-
göngunefndarinnar, og Bill Clinton Bandaríkjaforseti á blaða-
mannafundi í gær.
leit og gegnumlýsingu farangurs.
Auk þess yrði skylda að skoða hverja
flugvél, sem fljúga ætti til eða frá
Bandaríkjunum.
Clinton skipaði A1 Gore varafor-
seta til að endurskoða öryggi í far-
þegaflugi og einnig hversu hratt
ætti að endurbæta ieitartækni. Gore
á að skila áliti um fullkomnari leitar-
tæki innan 45 daga. Clinton sagði
að þessar aðgerðir gætu leitt til þess
að kostnaður og óþægindi af því að
ferðast með flugi í Bandaríkjunum
myndu aukast.
■ Svörtu kassarnir/16
Reuter
HOPUR ungmenna, mörg vopnuð kylfum og öðrum bareflum, sést hér hlaupa um götur Bujumb-
ura, höfuðborgar Búrúndí, í gær. Að baki sjást hermenn standa á bilpalli.
Herinn hrifsar öll
völd í Búrúndí
Arafat hitt-
ir Assad
Damaskus. Reuter.
YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, kvaðst í gær hafa átt „mik-
ilvægar" viðræður við Hafez al-
Assad, forseta Sýrlands, um að taka
sameiginlega afstöðu í friðarviðræð-
unum við nýja stjórn Benjamins
Netanyahus, forsætisráðherra ísra-
els.
Sýrlendingar hafa verið meðal
hörðustu gagnrýnenda Netanyahus
og hafa líkt honum við Adolf Hitl-
er. Nú virðast þeir hins vegar vera
að draga úr, að sögn Dennis Ross,
friðarerindreka Bandaríkjamanna.
Ross átti fund með Assad í gær
og sagði að honum loknum að for-
seti Sýrlands virtist reiðubúinn að
gefa Netanyahu kost á því að sýna
að hann vildi frið fyrir botni Mið-
jarðarhafs eins og Egyptar og
Palestínumenn.
Irak
Hussein
sýnt til-
ræði?
Jerúsalem. Reuter.
RÍKISSJÓNVARPIÐ í ísrael
greindi frá því í gær að Saddam
Hussein, forset.i íraks, hefði
sloppið naumlega þegar
sprengja sprakk í einni af höll-
um hans fyrir nokkrum dögum.
Rás eitt í ísrael greindi ekki
frá heimildum, en kvað herinn í
írak hafa handtekið flölda manns
eftir tilræðið. Sagt var að „sum-
ir“ héldu fram að allt að 300
manns hefðu verið tekin af lífi.
Samkvæmt fréttinni yfirgaf
Hussein höllina fimm mínútum
áður en sprengjan sprakk. Þetta
væri alvarlegasta banatilræðið,
sem Hussein hefði verið sýnt,
en reynt hefði verið að myrða
hann í sex eða sjö skipti.
Bujumbura, Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
STJÓRNARHER Búrúndí tók í gær
völdin í landinu, bannaði alla póli-
tíska starfsemi og lokaði landamær-
um. Tútsar eru í meirihluta í stjórnar-
hernum sem átt hefur í baráttu við
skæruliða af þjóðflokki hútúa, sem
eru í meirihluta íbúa landsins.
Herinn gerði Pierre Buyoya að
leiðtoga herrráðsins. Hann hefur
áður verið í forystu herforingja-
stjórnar. Buyoya sagði í útvarps-
ávarpi í gærkvöldi að helsta mark-
mið hans væri að afstýra blóðbaði.
Utvarpið sagði að þing landsins
hefði verið leyst upp og forseti lands-
ins, Sylvestre Ntibantunganya, leyst-
ur frá völdum.
Bandaríkjamenn kváðust áfram
Iíta á Ntibantunganya sem lögmætan
leiðtoga Búrúndí. Hann leitaði skjóls
á heimili bandaríska sendiherrans í
Bujumbura í fyrradag. Utanríkisráð-
herra Búrúndí, þingforseti og nokkr-
ir háttsettir embættismenn hafa leit-
að skjóls í þýska sendiráðinu.
Að sögn vitna mátti heyra skot-
bardaga víða í höfuðborginni eftir
tilkynninguna um valdaránið.
Óttast blóðbað
Starfsmenn hjálparstofnana lýstu
áhyggjum yfir því að yfir vofði blóð-
bað líkt og í nágrannaríkinu Rúanda
á síðasta ári.
Fulltrúar uppreisnarsveita hútúa
segjast staðráðnir í að vinna sigur í
baráttunni gegn stjórn tútsa.
Samtök Afríkuríkja lýstu því yfir
í gær, áður en tilkynningin barst um
valdaránið, að til greina kæmi að
Afríkuríki, með stuðningi Vest-
urlanda, myndu hnekkja valdaráns-
tilraun og senda her til Búrúndí.
Boutros Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
sagði í gær að umheimurinn myndi
ekki sætta sig við valdaránið.
Herstjórnin kvaðst ekki ætla að
láta undan alþjóðlegum þrýstingi.
■ Enn einn kaflinn/17
Tyrkir gagnrýndir
Sex látnir
í hungnr-
verkfalli
Ankara. Reuter.
ÞRÍR fangar til viðbót.ar létust í
fangelsi í Tyrklandi í gær og hafa
þá alls sex af þeim rúmlega 300 sem
verið hafa í hungurverkfalli frá því
í maí, látist af þeim sökum. Þetta
mál er farið að beina athygli um-
heimsins að stöðu mannréttinda-
mála í Tyrklandi og víða á megin-
landi Evrópu eru tyrknesk stjórn-
völd nú harðlega gagnrýnd.
Fangarnir eru félagar í samtök-
um vinstri manna í Tyrklandi. Með
hungurverkfallinu hafa þeir viljað
mótmæla slæmum aðbúnaði í fang-
elsum í landinu og krafist þess að
einu þeirra, sem þeir kalla „kist-
una“, verði lokað.
Fangarnir eru í um 30 fangelsum
víðsvegar í Tyrklandi, og hefur
fréttastofa Reuters eftir lögfræðingi
að í öllum fangelsunum séu fangar
í lífshættu vegna sveltis.
Dómsmálaráðherra Tyrklands,
Sevket Kazan, sagði á miðvikudag,
að hann hefði ekki í hyggju að verða
við kröfu fanganna um að loka
„kistunni", en í gærkvöldi virtust
stjórnvöld vera að gefa sig. Örygg-
isráð landsins kom saman og lýsti
yfir því að gripið yrði til aðgerða
„hið fyrsta“.
Fangarnir eru einnig að mótmæla
því, að lögregla hafi dreift róttækum
föngum milli fangelsa og leyfi ekki
að þeir fái heimsóknir skyldmenna
og lögfræðinga.
Gagnrýni í Evrópu
Ríkisstjórnir í Evrópu hafa farið
sér hægt, en fjölmiðlar og stjórnar-
andstöðuflokkar hafa lýst yfir
stuðningi við fangana. Hörðust hafa
viðbrögðin verið í Þýskalandi.
Sósíalistar á Evrópuþinginu sögðu
að Evrópusambandið ætti að hóta
að stöðva fjárframlög til Tyrkja í
Qárlagagerð síðar á árinu.