Morgunblaðið - 28.07.1996, Qupperneq 30
30 SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1996
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Ástkœr móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GYÐA JÓHANNSDÓTTIR,
Engihjalla 1,
Kópavogi
andaðist í Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn 26. júlf.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Eysteinn S. Torfason, Lilja S. Haraldsdóttir,
Halla G. Torfadóttir, Hjörtur M. Jónsson
og barnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSTA FRÍMANNSDÓTTIR,
Baughóli 11,
Húsavík,
lést í Sjúkrahúsi Húsavíkur 23. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Húsavíkurkirkju mánudaginn 29. júlí
kl. 14.00.
Valborg Aðalgeirsdóttir, Gretar Berg Hallsson,
Þorgrfmur Aðalgeirsson, Dagmar Erlingsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
SIGURBJÖRG
INGIMUNDARDÓTTIR,
Laugarnesvegi 118,
Reykjavik,
sem lést í Landspítalanum laugar-
daginn 20. júlf sl., verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju mánudaginn 29. júlf
kl. 13.30.
Ingimundur Sigurpálsson, Hallveig Hilmarsdóttir
og barnabörn.
t
Móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR,
Hrafnistu í Reykjavík,
áður Barmahlið 23,
lést 12. júlí sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
og sérstakar þakkir færum við starfs-
fólki deildar G2 á Hrafnistu.
Þórður Rúnar Jónsson, Kristín Þorsteinsdóttir,
Anna Þórðardóttir, Kári Grétarsson,
Elín Þórðardóttir,
Jón Þórðarson, Linda Björk Hilmarsdóttir
og barnabarnabörn.
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÁRNI GUÐMUNDSSON,
Skriðustekk 1,
Reykjavík,
lést í Landsspítalanum að morgni
fimmtudagsins 25. júlí.
Laufey Ólafsdóttir,
Ólafur Rúnar Árnason, Ása Ásgrímsdóttir,
Guðmundur Árnason, Guðrún Samúelsdóttir,
Sigurður Árnason, Guðbjörg Skjaldardóttir,
Þráinn Árnason, Unnur Vilhjálmsdóttir,
Már Árnason, Valdís Snorradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
JÓNJÚLÍUS
FERDINANDSSON
+ Jón Júlíus Ferd-
inandsson var
fæddur 1. mars
1929. Hann lést á
heimili sínu í Kópa-
vogi 20. júlí siðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá Hall-
grímskirkju 26. júlí.
Skjótt hefur sól
brugðið sumri, hugsaði
ég þegar Ferdinand,
sonur Jóns Ferdinands-
sonar, hringdi um há-
degisbil sl. laugardag
og sagði okkur Ragn-
heiði lát föður síns. Ekki svo að
skilja að þessi harmafregn kæmi á
óvart því að Jón hafði síðan um jól
glímt við illvígan sjúkdóm. En ein-
hvem veginn var sú hugsun fjarri
- þegar allt kemur til alls - að
þessi ágæti maður félli svo fljótt í
valinn. Kannski er jafn óhugsandi,
að foreldrar æskuvinar og manns
eigin, kveðji þennan heim.
Ein bjartasta minning mín um
Jón er frá því í útskriftarveislu
Ferdinands fyrir tveimur árum.
Helga og Ingibjörg dóttir þeirra
höfðu útbúið miklar kræsingar fyrir
stóran vinahóp Fedda, sem var sam-
an kominn til að fagna þessum
áfanga með fjölskyldunni. Jón hafði
sig lítið í frammi, bar á borð og
ræddi við gesti, eins og hann átti
vanda til. Hann forvitnaðist um
hagi vinanna, hvar þeir væm stadd-
ir í lífinu, hvað þeir væru að fást
við, enda hef ég fáum kynnst sem
hafa haft jafn einlægan áhuga á
því sem vinir bama þeirra hafa tek-
ið sér fyrir hendur. Þegar komið
var til Fedda á Álfhólsveginn fór
maður ekki án þess að
ræða aðeins við
„gamla“ manninn.
Segja honum undan og
ofan af því sem væri á
döfinni og ræða við
hann um þjóðmál.
Hann fýsti að vita
skoðanir manns á því
sem var efst á baugi
og gilti þá einu þótt
hugmyndir manns
væm ékki alltaf gáfu-
legar. Þannig fannst
glöggt að hann lét sig
líf manns og skoðanir
einhveiju varða. Slíkt
er ungu fólki ómetanlegt.
Þegar leið á kvöldið í útskriftar-
veislu Fedda brast skyndilega á
skemmtiprógramm þar sem kenndi
ýmissa grasa. Meðal annars spratt
þar fram konsertpíanisti frá Ástral-
íu sem hamraði hljóðfærið svo það
hefur líklega ekki kynnst öðm eins.
Gestir tóku að nýta sér þennan
óvænta liðsstyrk, sungu einsöng
eða gripu í önnur hljóðfæri.
Einhveijir skomðu á Jón og
Helgu að sýna hinum yngri hvemig
ætti að dansa. í fýrstu voru þau
treg en loks tók Jón af skarið, að
mig minnir, og bauð konu sinni
upp. Snillingurinn við slaghörpuna
lék tangó og þessi hægláti maður
skipti um ham. Skyndilega var hlé-
drægnin horfin, augun voru ein-
beitt, fasið eins og hjá ungum kav-
alér frá Argentínu. Síðan sveiflaði
hann konu sinni um gólfið einbeitt-
ur á svip.
Þama sýndi Jón á sér óvænta
hlið. Engu var líkara en hann bryt-
ist út úr sjálfum sér, hógværðin vék
fýrir ákefð ungs manns sem lagði
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR HANNAH,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 30. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent ó Krabbameinsfélagið.
Georg V. Hannah, Eygló Geirdal,
Bryndís Þ. Hannah, Gísli Thoroddsen,
Guðmundur B. Hannah, Svandís Rögnvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, sonur og faðir,
ÞÓRÐURGRÖNDAL
verkfræðingur,
Látraströnd 13,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 30. júlí
kl. 13.30.
Erna Jónsdóttir,
Halldóra Gröndal,
Sigríður Gröndal,
Halldóra Gröndal,
Benedikt Gröndal
og aðrir aðstandendur.
sig fram um að sjarmera stúlkuna
sem hann elskaði.
Ég var ekki vanur því að hann
léti ljós sitt skína í fjölmenni. Slíkt
virtist svo fjarri honum. Heima
undi hann sér við að mála eða rækta
garðinn sinn. Hvort tveggja gerði
hann af alúð. Garðurinn ber meist-
ara sínum fagurt vitni og myndum
hans, sem prýtt hafa veggina á
Álfhólsveginum, gleymir maður
ekki. Það var eins og þar væri stöð-
ugt í gangi myndlistarsýning.
Myndirnar komu og fóru, hann
dustaði rykið af gömlum verkum
eða málaði ný: stofan var aldrei söm
og síðast þegar maður kom í heim-
sókn. Þótt verkin á veggjunum
breyttust þekktist stíll Jóns og lita-
meðferð alltaf og skiptir þá ekki
máli hvort myndefnið var óhlut-
bundið eða hús í miðbæ Reykjavík-
ur. Málverk hans munu fylgja
manni um ókomin ár og minna á
skapara sinn.
Þegar við Ragnheiður heimsótt-
um Helgu og Jón nú í byijun júlí
fundum við að af honum var dreg-
ið. Hann var kominn heim af spítal-
anum til ástkærrar eiginkonu, í
húsið sem hann byggði. Líklega var
öllum ljóst hvert stefndi, ekki síst
honum, sem þó virtist taka örlögum
sínum af æðruleysi. Hann hafði lagt
af, var fölur á vanga en þó á fótum
og kvaddi ásamt Helgu úti á hlaði
eins og svo oft áður. Einhvem veg-
inn hvarflaði ekki að manni að þetta
væri okkar hinsta kveðja. En skjótt
hefur sól brugðið sumri.
Við Ragnheiður vottum Helgu,
Fedda og öðrum ástvinum innilega
samúð okkar. Genginn er góður
drengur.
Pétur Már Ólafsson.
Kæri vinur og frændi, nokkrar
línur í kveðjuskyni.
Sumt af því fyrsta, sem ég man
frá bernsku minni, snýst um krakk-
ana á Grettisgötunni. í þeim ógn-
vekjandi fans var þó traustur kjarni,
sem ég gat reitt mig á. Það varst
þú og systkinahópur þinn á númer
1. Þú varst næstyngstur í þeim 7
systkina hópi — en verður nú fyrst-
ur til að kveðja. Á þínu heimili
dundu afmælin yfir ótt og títt og
ég kom oft á Grettisgötu. En hópur-
inn óx úr grasi og afmæli urðu
ekki þeir viðburðir, sem áður var.
Fundir urðu stijálli og að lokum
helzt við jarðarfarir — eins og geng-
ur.
Þó varst þú einn okkar frænda,
sem frekar en margur annar reyndi
að styðja við fjölskyldutengslin og
ég veit, að foreldrum mínum liðnum
þætti vænt um, að ég flytti þér
þakklæti þeirra í þessum línum fyr-
ir umhyggju þína og vináttu í þeirra
garð. Hugur þinn hneigðist að list-
um og helgaði sig þó sérstaklega
myndlistinni. Næm tilfinning, góður
smekkur og sköpunarþrá gerðu þig
að myndlistarmanni. Þegar nú
starfsdegi þínum er lokið stendur
list þín eftir og mun nú milda harm
okkar þó sjáfur sért þú allur.
Ég samhryggist innilega konu
þinni, Helgu, börnum og fjölskyldu
allri, sem nú verður að kveðja þig
allt of fljótt og sjá þér á bak.
Erlingur Gíslason.
t
Bróðir okkar og vinur,
EYJÓLFUR INGJALDSSON
fyrrverandi vélstjóri,
Hrafnistu,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 30. júli kl. 15.00.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Magnús Ingjaldsson,
Fanney Ingjaldsdóttir,
Ólöf Ingjaldsdóttir,
Sigríður Ingjaldsdóttir,
Guðmundur Ingjaldsson,
Ingiríður Ingjaldsdóttir,
Garðar Ingjaldsson,
Hilmar Ingjaldsson,
Svandís Ingjaldsdóttir,
vinir og vandamenn.
GARÐS
APÓTEK
Sogavegi 108
REYKJAVÍKUR
APÓTEK
Austurstræti 16
eru opin til kl. 22
Næturafgreiðslu
eftir kl. 22 annast
Garðs Apótek