Morgunblaðið - 14.08.1996, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Þriggja ára framkvæmdaáætlun skólanefndar Akureyrar
Framkvæmdir við Gilja-
skóla hefjast á næsta ári
Morgunblaðið/Kristján
GILJASKOLI er starfræktur í húsnæði leikskólans Kiðagils í Giljahverfi og
er leiksvæði skólanna sanieiginlegt.
Ekið á árs-
gamla kvígu
Eyjafjarðarsveit
EKIÐ var á ársgamla kvígu
fyrir neðan bæinn Teig í Eyja-
fjarðarsveit aðfararnótt
sunnudags. Kvígan mun hafa
skorist illa og var þannig skil-
in eftir í blóði sínu á þjóðveg-
inum.
Annar ökumaður sem átti
leið þar um ók fram á kvíguna
og lét heimilisfólkið í Teigi
vita. Þaðan var hringt til lög-
reglunnar á Akureyri sem kom
og aflífaði kvíguna sem var frá
Kristnesi. Þar var hún í hólfi
en slapp úr því vegna þess að
hlið var skilið eftir opið.
Tónleikar í
Deiglunni
NÚ í ágúst munu Tristan og
Kristín Cardew þverflautuleik-
arar halda námskeið fyrir
flautunemendur í Tónlistarskóla
Akureyrar. Þau eru búsett í
París þar sem þau starfa sem
tónlistarmenn og við kennslu.
Þrátt fyrir annir við nám-
skeiðið ætla þau að gefa sér tíma
til að halda tónleika og verða
þeir í Deiglunni á Akureyri í
kvöld kl. 21.00. Á efniskránni
verða verk eftir Locatelli, Bricc-
ialdi, Hadyn ög de Lorenzo.
Þátttakendur á námskeiðinu
munu svo halda tónleika í Deigl-
unni næsta sunnudag kl. 13.00.
EIGNAMIÐLJJNIN .■«
SKÓLANEFND Akureyrar hefur
lagt fram endurskoðaða fram-
kvæmdaáætlun til þriggja ára, þ.e.
fyrir 1997-1999. Þar er lagt til að
á næsta ári verði kostnaður við
framkvæmdir og gjaldfærða fjár-
festingu samtals 126 milljónir
króna, árið 1998 samtals 165 millj-
ónir króna og árið 1999 samtals
105 milljónir króna.
I framkvæmdaáætluninni er lagt
til að á næsta ári verði hafist handa
við 1. áfanga Giljaskóla og fram-
kvæmt fyrir 95 milljónir króna.
Jafnframt er lagt til að á árinu
verði 10 milljónum króna varið til
hönnunar nýbyggingar við Síðu-
skóla og 6 milljónum króna í búnað
og frágang jarðhæðar nýbyggingar
við Glerárskóla.
Nýbygging við
Síðuskóla 1998
Skólanefnd leggur til að á árinu
1998 verði framkvæmdum við 1.
áfanga Giljaskóla lokið og hafist
handa við hönnun 2. áfanga og að
til þessara verkefna verði varið 90
milljónum króna. Þá er lagt til að
hafist verði handa við nýbyggingu
Síðuskóla og framkvæmt fýrir 60
milljónir króna á árinu.
A árinu 1999 er í tillögum skóla-
nefndar lagt til að 70 milljónum
króna verði varið til framkvæmda
við fyrri hluta 2. áfanga Giljaskóla.
Jafnframt að 15 milljónum króna
verði varið í lokafrágang nýbygg-
ingar og fleira við Síðuskóla.
Giljaskóli
í leikskólanum
Giljaskóli er yngsti grunnskólinn
á Akureyri og tók til starfa sl.
haust. Síðastliðinn vetur fór þar
fram kennsla í 1. og 2. bekk. í
vetur bætist við kennsla í 3. bekk,
lausri kennslustofu komið fyrir og
verða nemendur um 80 talsins.
Giljaskóli er nú í húsnæði leikskól-
ans Kiðagils, er þar með þrjár
kennslustofur, skrifstofu og vinnu-
aðstöðu fyrir kennara. Þá eru skól-
arnir með sameiginlega starfs-
mannaaðstöðu, sal og útileiksvæði.
Halldóra Haraldsdóttir, skóla-
stjóri Giljaskóla, segir að samstarf-
ið við leikskólann hafi gengið vel
og hún á ekki von á öðru en að svo
verði áfram. Hún segir þó að stefnt
sé að því að taka fyrri hluta 1.
áfanga Giljaskóla í notkun haustið
1997. Fyrsti áfangi er um 1850
fermetra bygging með 10 kennslu-
stofum auk sérdeildar og skal fram-
kvæmdum við hann lokið árið 1998.
Giljaskóli verður fullbúinn,
grunnskóli nemenda í 1.-10. bekk,
með tvær bekkjadeildir í hveijum
árgangi og alls um 500 remendur
þegar mest er. Skólinn verður full-
búinn um 4.500 fermetrar að stærð
og er heildarkostnaður áætlaður
yfir 500 milljónir króna.
Ábyrp |ijómLsta í áratii”i
Sími 588 9090 - Fax 588 9095
Síðumúli 21.
Sverrir Kristinsson, löggittur fasteignasali.
Vesturgata/
Framnesvegur
Vorum að fá í sölu sérlega fallega
72 fm 2ja herb. ib. í nýlegu litlu
fjölbhúsi á góðum stað. Parket.
Tvennar stórar svalir. íbúðinni fylgir
merkt stæði í bílgeymslu. Áhv. 5
millj. byggsj. Verð 7,5 millj. 6535.
Blönduhlíð
Vorum að fá í sölu góða 4ra-5
herb. risíb. í fjórbhúsi. Ibúðin hefur
öll verið standsett á smekklegan
hátt. Nýtt þak og nýir gluggar. Ahv.
3,2 millj húsbréf. Verð 6,5 millj.
6538.
Arnarhraun — Hf. — sérh. m/bílsk.
Til sölu mjög falleg ca 95 fm 3ja-4ra herb. miöhæö I góöu þríbýli
auk 28 fm bílsk. Eldhús og bað. Nýlega innr. Nýtt gler og póstar.
Góö staðsetning og góöur garður. Verð 7,9 millj.
Nánari upplýsingar gefur:
Hraunhamar fasteignasala
sími 565-4511.
t>rjú glæsileg fyrirtæki
1. Ein glæsilegasta ti'skuverslunin við Lauga-
veginn til sölu. Frábærar innréttingar. Góð
sambönd. Tölvuská yfir 2000 viðskiptavini.
Laus strax. Mjög sanngjarnt verð.
2. Ein stærsta gjafa- og blómaverslun borgar-
innar er til sölu. Staðsett við mikla umferðar-
götu. Mikið um fasta viðskiptavini. Verslun
sem gefur mikla möguleika.
3. ísbúð. Til sölu glæsileg ísverslun sem einn-
ig er með mikla sælgætissölu. Mjög góð
staðsetning. Kom best út í síðustu verð-
könnun. Góð tæki. Vaxandi fyrirtæki. Skipti
möguleg.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
llirTTTTTTTT^Ty^ITvrnn
SUÐURVERI
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Morgunblaðið/Kristján
Risaþota á
Akureyrarflugvelli
RISAÞOTA Air Atlanta, TF ABD
Úlfar Þórðarson, lenti á Akur-
eyrarflugvelli í gærdag. Vélin
sem er þriggja hreyfla af gerð-
inni Tristar og tekur 360 far-
þega, er lang stærsta þota sem
lent hefur á Akureyrarflugvelli
til þessa.
Arngrímur Jóhannsson, flug-
stjóri og eigandi Air Atlanta og
menn hans flugu án farþega í
þetta skiptið og stoppuðu aðeins
í hálfa aðra klukkustund á Akur-
eyri. Þeir voru að kanna aðstæð-
ur, flugbraut og annan aðbúnað
en Air Atlanta hefur hug á að
fljúga frá Akureyri beint til Du-
blinar í haust á vegum Samvinnu-
ferðar Landsýnar.
Á myndinni sést stærðarmun-
ur á þotu Air Atlanta og Fokker
flugvél Flugleiða.
Vatnafræðingar bera
saman bækur sínar
NORRÆNA Vatnafræðifélagið
stendur fyrir ráðstefnu ý. Akur-
eyri þessa dagana. í Verk-
menntaskólanum eru saman-
komnir um 200 vatnafræðingar
frá Norðurlöndunum og balt-
nesku löndunum þremur. Slík
ráðstefna er haldin annað hvert
ár og er þetta í fjórða sinn sem
ráðstefnan er haldin á íslandi
en í fyrsta sinn sem hún er hald-
in utan Reykjavíkur.
Ráðstefnan var sett í gær-
morgun og til stóð að Finnur
Ingólfsson iðnaðarráðherra
flytti ávarp. Finnur forfallaðist
hins vegar og það kom því í
hlut Þórarins E. Sveinssonar,
forseta bæjarstjórnar Akur-
eyrar, að flytja ávarp við setn-
inguna. Þórarinn er vel að sér
í vatninu, enda stendur fyrirtæki
hans Akva einmitt í útflutningi
á vatni.
Slippstöðin hf.
Pólskir
járniðn-
aðarmenn
til starfa
SLIPPSTÖÐIN HF. hefur ráðið 12
pólska járniðnaðarmenn til starfa
og mættu þeir til vinnu í stöðinni
sl. mánudag. Að sögn Inga Björns-
sonar, framkvæmdastjóra er ráð-
gert að Pólvetjarnir starfi hjá stöð-
inni í 5-8 vikur. Slippstöðin réði 10
Pólveija til tímabundinna starfa sl.
vor og eru þeir farnir til síns heima.
Slippstöðin auglýsti nýverið eftir
járniðnaðarmönnum hér innanlands
en fékk engin viðbrögð og því var
gripið til þess ráðs að leita út fyrir
landsteinana. Ingi segir að reynslan
af Pólverjunum sé góð og að þeir
falli vel að þeirri vinnu sem fram
fer í stöðinni. Vel gekk að fá at-
vinnuleyfi fýrir hina nýju starfs-
menn, enda eru þeir ráðnir í fullu
samráði við Félag málmiðnaðar-
manna á Akureyri og fulltrúa
starfsmanna, að sögn Inga.
Verkefnastaða góð
Verkefnastaða Slippstöðvarinnar
er mjög góð um þessar mundir en
fyrirtækið er m.a. að vinna við stór
verk í þremur togurum, Árbaki EA,
Sunnu SI og Eyborgu EA.
Þá var í vikunni skrifað undir
samning við Meklenburger Hochse-
efischerei, MHF, dótturfyrirtæki
ÚA um smíði og uppsetningu á
vinnslubúnaði í Eridanus, einn tog-
ara fyrirtækisins og verður unnið.
við það verk í nóvember og desem-
ber. Þá er að sögn Inga í burðarliðn-
um samningur við MHF um frekari
vinnu við Eridanus. „Við erum farn-
ir að bóka verkefni fyrir veturinn
og útlitið er því nokkuð bjart fram
að áramótum," sagði Ingi.