Morgunblaðið - 14.08.1996, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Andófsmenn handteknir vegna óeirða í Indónesíu
Verða ákærðir fyrir
byltingartilraun
Jakarta. Reuter.
HER Indónesíu skýrði frá því í
gær að nokkrir af tíu andófsmönn-
um, sem hafa verið handteknir
vegna óeirða í Jakarta í síðasta
mánuði, yrðu ákærðir fyrir tilraun
til að bylta stjórn landsins.
Budiman Sudjatmiko, ieiðtogi
Lýðræðislega þjóðarflokksins
(PRD), og níu aðrir félagar í
flokknum voru handteknir á
mánudag og sakaðir um að hafa
skipulagt óeirðimar 27. júlí, hinar
mestu í Indónesíu í 24 ár. Þeir
eiga yfir höfði sér dauðadóm verði
þeir sakfelldir.
Stjórn Indónesíu hefur bannað
starfsemi Lýðræðislega þjóðar-
flokksins, sem var stofnaður form-
lega 22. júlí. Suharto forseti hefur
sakað flokkinn um að tengjast
Kommúnistaflokki Indónesíu, sem
hefur einnig verið bannaður, og
segir að markmið hans sé ekki að
koma á lýðræði, heldur aðeins að
bylta stjórninni.
Fréttaskýrendur segja stjórn-
ina gera allt of mikið úr þætti
Lýðræðislega þjóðarflokksins í
óeirðunum, sem blossuðu upp
þegar lögreglan réðst inn í höfuð-
stöðvar Lýðræðisflokksins (PDI),
eins af þremur flokkum sem eru
löglegir í landinu. Lýðræðislegi
þjóðarflokkurinn sé aðeins með
um 200 félaga, aðallega náms-
menn, og í raun engin ógnun við
stjórnina.
„Þetta er aðeins kænskubragð
af hálfu stjórnarinnar, að gera
úlfalda úr mýflugu," segir stjórn-
málaskýrandinn Arief Budiman.
Hann telur að þannig vilji stjórnin
draga athyglina frá undirrót óeirð-
anna, óánægju verkamanna og
millistéttarfólks með misskiptingu
auðsins og auðsöfnun barna og
bandamanna Suhartos forseta.
Líkt við McCarthy
Saksóknari yfirheyrði á mánu-
dag þekktasta rithöfund landsins,
Pramoedya Anata Toer, vegna
þess að hann þáði verðlaun frá
Lýðræðislega þjóðarflokknum í
síðasta mánuði.
Pramoedya er 71 árs og hefur
setið í fangelsi í alls 17 ár þótt
hann hafi aldrei verið ákærður
eða dæmdur. Hann hefur skrifað
rúmlega 30 bækur, sem sumir
telja verðskulda Nóbelsverðlaun,
og flestar þeirra hafa verið bann-
aðar.
Pramoedya var haldið í fangelsi
í 14 ár tii ársins 1979 vegna gruns
um að hann væri kommúnisti.
Reuter
Pramoedya Anata Toer
Hann segir ekkert hæft í ásökun-
um stjórnarinnar um að Lýðræðis-
legi þjóðarflokkurinn eigi rætur
að rekja til kommúnisma. „Þeir
nota alltaf orðið kommúnisma til
að geta ráðist á fólk sem þeim er
í nöp við,“ segir hann. „I kalda
stríðinu var aðeins einn McCarthy
í Bandaríkjunum sem elti meinta
kommúnista. Nú þegar kalda
stríðinu er lokið þar er háð kalt
stríð hér í Indónesíu og hver ein-
asti embættismaður landsins er
orðinn að McCarthy.“
Erbakan
segir við-
^ skipti við
Irani eðlileg
NECMETTIN Erbakan forsætis-
ráðherra Tyrklands kom í gær
í þriggja daga opinbera heim-
sókn til Pakistans og var mynd-
in tekin er Farooq Leghari for-
seti (t.v.) o g Benazir Bhutto for-
sætisráðherra tóku á móti hon-
um í forsetahöllinni í Islamabad.
Erbakan kom þangað frá Teher-
an í Iran þar sem hann undirrit-
aði samninga um kaup á gasi
fyrir 23 milljarða dollara, jafn-
virði 1.518 milljarða króna.
Bandaríkjamenn hafa lagt að
Tyrkjum að hætta við kaupin en
Erbakan sagði í gær að ekkert
væri eðlilegra fyrir Tyrki en
eiga viðskipti við bræðraþjóð
sína írani.
Reuter
Hæstiréttur Danmerkur úrskurðar Evrópusambandsandstæðingum í hag
Fá að höfða mál
vegna Maastricht
KaupmannahÖfn. Morgunblaðið.
HÆSTIRÉTTUR Dana hefur úr-
skurðað að hópur ESB-andstæð-
inga eigi kröfu á að mál þeirra, um
að forsætisráðherrann hafi brotið
stjórnarskrána með því að skrifa
undir Maastricht-sáttmálann, verði
tekið fyrir dóm. Ólíklegt þykir að
forsætisráðherra verði dæmdur fyr-
ir stjórnarskrárbrot, en úrskurður-
inn þykir marka tímamót í dönsku
réttarkerfí, því að hingað til hafa
dómstólar ekki vefengt lagasetn-
ingu. Nú þykir sýnt að óbreyttir
borgarar geti höfðað mál, ef þeir
álíta að danska þingið hafi sett lög
er bijóti í bága við stjórnarskrána.
Á sínum tíma var bent á að lögin
um skil handritanna væru einmitt
trygg, því ekki væri venja að Hæsti-
réttur úrskurðaði lög ógild.
Hæstiréttur hefur aldrei
úrskurðað gegn þinginu
Ýmsir ESB-andstæðingar hafa
lengi haldið því fram að við undirrit-
un Maastricht-sáttmálans hafi Poul
Nyrup Rasmussen forsætisráðherra
brotið stjórnarskrárákvæði, þar sem
í sáttmálanum felist að Danir láti
ESB eftir meira af fullveldi sínu
en stjórnarskráin heimili. Árið 1993
stefndu ellefu ESB-andstæðingar
forsætisráðherra fyrir stjórnar-
skrárbrot, en ári síðar vísaði Eystri
landsréttur málinu frá með þeim
rökum að enginn stefnanda hefði
orðið að þola persónulegt tjón. Með
öðrum orðum hafnaði dómstóllinn
því að borgarar gætu á almennum
forsendum látið reyna á hvort um
stjórnarskrárbrot væri að ræða.
Málinu var skotið til Hæstaréttar,
sem í fyrradag úrskurðaði að málið
mætti taka fyrir og verður það þá
gert fyrir landsrétti.
Hæstiréttur hefur því ekki fallist
á rök stefnenda, heldur einungis
fallist á að rétt sé að láta reyna á
hvort undirskrift Maastricht-sátt-
málans stangist á við stjórnar-
skrána. Þar með hefur Hæstiréttur
viðurkennt að almennir borgarar
geti látið reyna á hvort stjómar-
skráin sé brotin, jafnvel þó málið
snerti ekki hagsmuni þeirra í
þrengsta skilningi. Hingað til hefur
Hæstiréttur aldrei úrskurðað að
dönsk lög stangist á við stjórnar-
skrána og þá heldur ekki þegar
andstæðingar handritaafhendingar
létu reyna á fyrir dómi hvort lögin
1965 um handritaskil stönguðust á
við stjórnarskrána.
Seinkar staðfestingu nýs
ESB-sáttmála?
Danskir lögspekingar benda á
að þessi breytta afstaða Hæstarétt-
ar nú sé samhliða evrópskri þróun
almennt, þar sem dómstólar taki
sér sjálfstæðara hlutverk í lagatúlk-
un. Þeir samþykki ekki lengur sjálf-
krafa að lög, sem þjóðþingin setji,
standist, heldur leggi á þau sjálf-
stætt mat.
Hinu almenna gildi dómsins hef-
ur verið fagnað bæði af stuðnings-
mönnumg og andstæðingum ESB.
Bent er á að með honum fái stjórn-
málamenn og löggjafarvaldið verð-
ugan og óháðan mótleikara. Það
geti einfaldað meðferð ýmissa
deiluefna að skjóta þeim til Hæsta-
réttar, í stað þess að setja upp til-
viljanakenndar rannsóknarnefndir
og -dóma með óljósum ákvæðum.
Hins vegar gæti dómurinn nú
seinkað staðfestingu nýs ESB-
sáttmála, sem væntanlega verður
niðurstaða yfirstandandi ríkjaráð-
stefnu. Henni lýkur ekki fyrr en í
fyrsta lagi á næsta ári, en bara
dómsmeðferð væntanlegrar máls-
höfðunar tekur varla skemri tíma
en tvö ár og síðan mun væntanlega
reyna á niðurstöðuna fyrir ESB-
dómstólnum.
í samtali við danska útvarpið í
gær sagði Ove Fich, formaður
Evrópunefndar danska þingsins,
að tími væri kominn til að aðlaga
dönsku stjórnarskrána að breytt-
um aðstæðum, en hún er frá 1953.
Taka þyrfti tillit til þess að vegna
alþjóðlegrar samvinnu, til dæmis á
sviði umhverfis- og mannréttinda-
mála, hefðu Danir skuldbundið sig
til samstarfs og létu þar með af
hendi fullveldi á einstökum svið-
um.
Spinola
látinn
ANTONIO de Spinola mar-
skálkur, fyrsti forseti Portúgals
eftir byltinguna 1974, lézt á
sjúkrahúsi í
Lissabon í
gær, 86 ára
að aldri.
Spinola var
vinsæl stríðs-
hetja úr lang-
vinnum ný-
lendustríðum
Portúgals í
Afríku. Þeg-
ar arftökum
einræðisherrans Salazars,
Americo Thomaz forseta og
Marcelo Caetano var bolað frá
völdum af ungum liðsforingjum
þann 25. apríl 1974 og bundu
þannig enda á nærri hálfrar
aldar hægrisinnaða valdstjórn
í landinu, tók Spinola við for-
setastólnum. Hann sat reyndar
ekki nema 5 mánuði á honum
vegna óánægju með róttæka
vinstristefnu herforingjanna
sem þá stjórnuðu og áætlana
þeirra um að leysa upp ný-
lenduveldi Portúgala. Hann
flúði til Brasilíu en sneri aftur
heim 1976 og tók þá sæti í
sérstöku ríkisráði sem veitti
forseta lýðveldisins ráðgjöf.
Nóbelstofnun
kærð
ALÞJÓÐLEGA tölvufyrirtækið
Eurodex stefndi í gær hinni
virtu sænsku stofnun Karol-
inska Institutet, sem hefur
umsjón með veitingu Nóbels-
verðlaunanna í læknisfræði,
fyrir að nota stolinn hugbúnað.
Lögmenn Eurodex, sem hefur
einkarétt á dreifingu umrædds
hugbúnaðar á Norðurlöndum,
halda því fram, að stofnunin
noti ólögleg afrit af tölfræðifor-
ritinu StatView við rannsóknar-
störf sín. Talsmenn stofnunar-
innar tjáðu sig ekki um málið
í gær.
Gegn spill-
ingu í Kína
KÍNVERSKIR ráðamenn til-
kynntu í gær, að hleypt hafi
verið af stokkunum nýrri her-
ferð gegn spillingu í röðum
háttsettra kínverskra embætt-
ismanna. Herferðin beinist fyrst
og fremst að rannsókn á mis-
beitingu valds yfir eignum og
mútuþægni. Herferðin nær til
10 héraða og 15 ráðuneyta,
sagði í tilkynningu Xinhua-
fréttastofunnar.
Læknir vill
ógilda götu-
blaðssamning
KYPROS Nicolaides, kvensjúk-
dómalæknirinn sem hefur um-
sjón með Mandy Alwood,
brezku konunni sem gengur
með áttbura og hyggst reyna
að fæða þá, mæltist til þess í
gær, að samningurinn sem
Alwood hefur gert við götublað
eitt verði ógiltur. Að sögn hljóð-
ar samningurinn sem Alwood
gerði við The News of The
World upp á greiðslu einnar
milljónar punda, um 104 millj-
óna króna, fyrir einkarétt á
sögunni af meðgöngunni og
fæðingunni, sem er mikið
hættuspil. Samningurinn hefur
verið fordæmdur m.a. af þing-
mönnum, sem kalla hann
„verstu sort af ávísanaheftis-
blaðamennsku".
Antonio de
Spinola