Morgunblaðið - 06.09.1996, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nokkrar sveitarstjórnir hafa boðið heilsugæslulæknum sérkjör
Tilboðunum hafnað í sam-
ráði við Læknafélag Islands
Sáttafundi frestað í gærkvöldi
RÍKISSÁTTASEMJARI frestaði í
gærkvöldi boðuðum samningafundi
í kjaradeilu heimilislækna og ríkis-
ins, til dagsins í dag í því skyni _að
samninganefnd Læknafélags ís-
lands gæfíst tími til að undirbúa
fundinn. Gunnar Ingi Gunnarsson,
formaður samninganefndar LÍ, sagði
að viðræður í þeirra hópi hafi þróast
þannig að ástæða hafi þótt til að fá
meiri tíma til undirbúnings.
„Það er verið að finna flöt til þess
að ýta viðræðum af stað og iögð er
vinna í þetta af mikilli alvöru. Síðan
reynir á hvort takist að finna flöt í
málinu," sagði Gunnar Ingi. Hann
kvaðst ekki geta greint efnislega frá
ástæðu frestunarinnar en segist vera
hóflega bjartsýnn um framhaldið.
„Við höfum ekki verið hóflega bjart-
sýn lengi,“ bætti hann við.
Sveitarfélög semji ekki
Að minnsta kosti tvö dæmi eru
um að sveitarstjórnir hafi boðið
heilsugæslulæknum sérkjör, en þeir
hafnað slíkum tilboðum, að sögn
Gunnars Inga. Þannig hafi heilsu-
gæslulæknir fyrir skömmu hafnað
tilboði Snæfellsbæjar um að sinna
heilsugæslu þar á öðrum kjörum og
betri en verið hafa í boði í samninga-
viðræðum lækna og ríkis.
Neitunin á sér forsögu
Gunnar Ingi kveðst vita um annað
dæmi um samsvarandi tilboð sem
læknir á Austfjörðum hafí fengið og
verið hafnað. Neitunin hafi ákveðna
forsögu.
Áður hafi stjórn Læknafélags ís-
lands afgreitt beiðni heilbrigðisráðu-
neytisins um ákveðna tilhögun neyð-
arvakta með því að mælast til þess
við lækna að þeir taki að sér vaktir.
í lokaorðum ályktunar stjórnar segi
hins vegar að fyrst skuli semja við
lækna um þessa þætti.
í kjölfarið hafi birst yfirlýsing frá
fjármáiaráðuneyti þar sem fram
hafi komið að ekki yrði samið við
lækna á þeirra vegum um sérstök
kjör á þessum vöktum.
„í framhaldi af því kom fram yfir-
lýsing frá heilbrigðisráðuneyti um
að það hefði ekki umboð til að semja
um laun fyrir þessar vaktir. Þar af
leiðandi var afgreiðsla þessara mála
skotin í kaf.
Það var með hliðsjón af þessu sem
læknirinn í Snæfellsbæ hafnaði til-
boði bæjarstjórnar eftir að hafa
kannað hvernig félagið hefur tekið
í tilboð sem þessi. Það á ekki að
semja um þessi mál á vegum sveit-
arfélaga, heldur af hálfu þeirra sem
þessu ráða,“ segir Gunnar Ingi.
Veruleikanum breytt
í nóvember taka gildi reglur í
samræmi við EES-samninginn um
bann við mikilli yfirvinnu ákveðinna
starfstétta. Gunnar Ingi neitar því
að kjarabarátta lækna sé angi af
fyrirsjáanlegun. afleiðingum þessara
breytinga, í því skyni að hækka
grunnlaun áður en laun skerðist
vegna minni yfirvinnu.
„Samninganefnd ríkisins hefur
velt því upp að EES-samningurinn
bannaði mönnum að vinna jafn mik-
ið og heilsugæslulæknar gera, en
ég held að því hafi verið mætt með
því bragði að segja að maður sem
er á vakt, sé ekki í vinnu.
Þarna stangast samþykktir EES
á við veruleikann og þá er veruleik-
anum breytt. Þetta hefur hins vegar
ekki komið til tals í okkar hópi en
stöðvi reglur EES lækni á vakt á
Þórshöfn eða annars staðar ein-
hvern tímann í nóvember er það
hins vegar ekki vandi læknisins,"
segir Gunnar Ingi.
■ Læknum boðnar/6.
Framsal staðfest
í Hæstarétti
Maðurinn
handtek-
inn strax |
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm undirréttar um að framselja
skuii mann frá Sierra Leóne tii Finn-
lands en þar hefur hann verið
dæmdur fyrir nauðgun. Að sögn
Tómasar Jónssonar, réttargæslu-
manns mannsins, hefur dómsmála-
ráðuneytinu verið sent erindi þar
sem óskað er eftir að tekið verði |
tillit til mannréttinda- og mannúðar-
sjónarmiða og að hann verði ekki I
framseldur. i
Maðurinn, sem búið hefur á
ísafirði frá árinu 1993 og á þar ís-
lenska unnustUj situr nú í vörslu
lögreglunnar á Isafirði en hann var
sóttur til síns heima um leið og
dómurinn um framsal hafði verið
kveðinn upp síðdegis í gær. „Þetta
er alltof harkaleg aðgerð," sagði
Tómas. „Hann hefur margsýnt fram j
á að hann er ekki að fara neitt og á
í raun ekki í nein hús að venda.“
Maðurinn var dæmdur í undir- I
rétti í Finnlandi árið 1992. Að sögn
Tómasar byggðist dómurinn á fram-
burði meints fórnarlambs sem var
undir verulegum áfengisáhrifum.
Engin sakbending eða læknisrann-
sókn hafi farið fram sem tengir
saman aðila málsins. Maðurinn
áfrýjaði dóminum en áfrýjunarrétt-
ur í Finnlandi þyngdi refsinguna og |
dæmdi hann í eins árs og tíu mán-
aða fangelsi að honum fjarstöddum.
í vor var maðurinn bendlaður við I
kynferðisafbrot á ísafirði en var
hreinsaður af öllum sakargiftum og
var ekki ákærður en finnska lög-
reglan hafði þá spurnir .af honum
og krafðist framsals. „Við viljum
meina að í þessari framsalsbeiðni
felist mannréttindabrot ef orðið
verður við henni,“ sagði Tómas. „Þá
erum við að framselja mann til lands
þar sem hann hefur ekki fengið
réttláta máismeðferð."
Réttardagar
breytast í
Árnessýslu
Syðra-Langholti. Morgunblaðið.
RÉTTARDAGAR hafa nú verið
færðir til í uppsveitum Árnessýslu
frá því sem verið hefur frá alda
öðli. Var breytingin gerð til að
koma til móts við fólk í atvinnulíf-
inu og einnig skólafólk.
Skaftafellsrétt og Hrunarétt
verða föstudaginn 13. september
í stað fimmtudags áður og Reykja-
réttir og Tungnaréttir verða laug-
ardaginn 14. september í stað
föstudags og miðvikudags.
Þessir sjö fjallmenn lögðu af
stað sl. miðvikudag í lengstu leitir
landsins, en þeir eru úr Gnúp-
verjahreppi, Skeiðum og Flóa.
------» ♦ ♦----
Bjargað úr
eldsvoða
KONU um fimmtugt var bjargað
eftir að eldur kom upp í íbúð á jarð-
hæð við Skólavörðustíg 22 í gær.
Samkvæmt upplýsingum slökkviliðs-
ins í Reykjavík urðu miklar skemmd-
ir á íbúðinni.
Tiikynning um að eldur væri í
húsinu barst slökkviliðinu um kl. 14
og var talið að fólk væri þar inni.
Þegar slökkviliðið kom á staðinn fóru
reykkafarar inn í íbúðina baka til en
fundu engan. Þeir slökktu eldinn sem
var mestur í stofunni. Rúða var brot-
in í útihurð að framan og þar fyrir
innan lá konan sem hafði verið í íbúð-
inríí. Konan, sem var með meðvit-
und, var flutt á slysadeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Kristinn
VIGDÍS Finnbogadóttir sat í gærkvöldi kvöldverðarboð
japönsku kvennanna á Grand Hótel.
Japanskar konur
kynna sér jafn-
réttismál hér
VIGDÍS Finnbogadóttir, fv. for-
seti íslands, hitti í gsérkvöldi
sendinefnd tuttugu japanskra
kvenna frá Saitama-fylki, sem
eru í heimsókn hér á landi til að
kynna sér jafnréttismál og stöðu
kvenna í íslensku samfélagi.
Vigdís er japönsku konunum
að góðu kunn, en í apríl síðastliðn-
um flutti hún fyrirlestur á alþjóð-
legri kvennaráðstefnu í Saitama-
fylki, en hún fór þangað í boði
fylkisstjórnarinnar.
Sendinefndin er á ferðalagi um
Vesturlönd og hún kom hingað frá
Finnlandi. í hópnum eru m.a.
starfsmenn fylkisins og fulltrúar
ýmissa félagasamtaka og kvenna-
samtaka.
Kvenréttindafélag íslands tók
á móti japönsku konunum í gær
að Hallveigarstöðum en í dag
munu þær meðal annars heim-
sækja Alþingi og menntamála-
ráðuneytið og umhverfisráðu-
neytið.
Dansk-íslenskar viðræður um miðlínu
Ekki tímabært að
skjóta deilunni til |
Haag-dómstólsins
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
EMBÆTTISMENN Islendinga og
Dana héldu áfram í gær viðræðum
um afmörkun hafsvæðanna milli
íslands og Grænlands annars vegar
og íslands og Grænlands hins veg-
ar. Viðræðunum verður haldið
áfram í Reykjavík á næstunni.
Tyge Lehmann sendiherra og
formaður dönsku viðræðunefndar-
innar segir dansk-íslensku grunn-
línuviðræðurnar í gær hafa verið
gagnlegar, en vildi ekki tjá sig um
einstök atriði þeirra. í samtali við
Morgunblaðið sagði Lehmann að
ekki væri tímabært að velta fyrir
sér hvort deilunni yrði vísað til
Haag-dómstólsins, en Danir hefðu
áður vísað málum þangað og viður-
kenndu lögsögu dómstólsins, en það
hefðu íslendingar hins vegar aldrei
gert.
Farið vandlega yfir sjónarmið
beggja landanna
Lehmann sagði að samkvæmt
áætlun hefði í viðræðunum verið
farið vandlega yfir sjónarmið
beggja landanna og að bæði löndin
sæju grundvöll til að halda viðræð-
unum áfram. Ekki væri búið að
ákveða dagsetninguna, en nefndirn-
ar myndu væntanlega hittast aftur
innan mánaðar. Hann sagðist meta
það sem góðan árangur að grund-
völlur væri til að halda áfram, en
sagði að á þessu stigi málsins væri |
ekki hægt að leggja einstök efnisat-
riði umræðnanna fyrir fjölmiðla.
Um þann möguleika, að deil- |
unni yrði skotið til Haag-dómstóls-
ins, sagði Lehmann Danina hafa
undirstrikað að þeir hefðu ekkert á
móti því að af því yrði. Það væri
þó ekki hægt að gera fyrr en málið
hefði verið krufið til mergjar með
góðum vilja og svo langt væru þeir
ekki komnir enn. Dómstóllinn tæk'
ekki annað en mái, sem hefðu verið j
rædd í þaula og þá árangurslaust. j
Ef svo færi væri það engum vand- s
kvæðum bundið, því Danir hefðu '
þegar skotið málum til dómstólsins,
en Islendingar hefðu hins vegar aldr-
ei viðurkennt lögsögu dómstólsins.
Þess má geta að Lehmann var
tekinn tali í anddyri funda- og ráð-
stefnuhúss utanríkisráðneytisins að
loknum fundunum síðdegis í gær,
áður en hann brá sér upp á hjól-
hest sinn og hjólaði að venju þá níu I
kílómetra sem eru að heimili hans j
í úthverfí Kaupmannahafnar. j
Ekki náðist í samningamenn ís-
lands. i