Morgunblaðið - 06.09.1996, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1996 17
ERLENT
Könnun á viðhorfum ungra íhaldsmanna í Bretlandi
Áköf frjálsliyg'gja
og vilja leyfa vændi
usqoqn
Þegar húsgögnin
skipta máli
Vönduö gaeöahúsgögn
ágóðuveröi!
London. The Daily Telegraph.
NÝ könnun á viðhorfum ungra
íhaldsmanna í Bretlandi bendir til
þess að þeir hafi í mörgum efnum
allt aðrar skoðanir en sjðustu valda-
kynslóðir í flokknum. í bókaskápn-
um er „Leiðin til ánauðar" eftir
Hayek, þeir hylla hefðbundnar
fijálslyndishugmyndir sem mótaðar
voru á 19. öld og hafa ímugust á
öflugu ríkisvaldi, vilja helst að það
visni og hverfi. Sumir þeirra eru
fullir efasemda gagnvart Evrópu-
sambandinu, ekki af ótta um að
missa þjóðlegt sjálfstæði og vegna
þess að Evrópa sé „útlönd“ heldur
vegna þess að framkvæmdastjórnin
í Brussel sé enn eitt dæmið um allt
of mikil opinber afskipti.
Könnunina gerði dr. Tim Evans
og voru þátttakendur 300 ungir
háskólanemar sem eru virkir í
flokknum og ungliðasamtökum
hans. Evans segir niðurstöðurnar
gefa til kynna að unga íhaldsfólkið
sé hlynnt því að neysla fíkniefna
verði ekki lengur lögbrot, þau vilji
að ríkisútvarpið BBC og heilbrigðis-
þjónustan verði einkavædd og láti
sér vel líka að samkynhneigðir njóti
réttinda á borð við gagnkynhneigða.
Unga fólkið vill róttæka upp-
stokkun í velferðarmálum. Það er
ekki andvígt stéttarfélögunum og
lýsir stuðningi við að þau snúi sér
að helsta verkefni sínu í árdaga
félaganna, þ. e. að styðja við bakið
á fátækum félagsmönnum.
Evans segir að unga íhaldsfólkið
sé mikiir einstaklingshyggjumenn
en jafnframt himinlifandi yfir al-
þjóðavæðingu viðskiptalífsins. „Þau
eru ekki með jafn djúpar rætur í
menningu þjóðríkisins og eldri
íhaidsmenn eru oft,“ segir hann.
Hann telur að ungir íhaldsmenn
árið 1996 séu ekki snobbaðir frama-
gosar eins og á áttunda áratugnum
eða laumu-fasistar eins og áróðurs-
meistarar Verkamannaflokksins
lýstu þeim á niunda áratugnum.
„Nýir hægrimenn eru sagðir trúa á
endurreisn gamalla og hefðbund-
inna gilda. Ekkert er fjær sanni“.
Andúð á trúarbrögðum og
hernaðarhyggju
Evans segir að ráðamenn í há-
skólafélögum ungra íhaldsmanna
séu merkisberar nýrra hugmynda
og taki ekki tillit til hefðbundinnar
skiptingar í hægri- og vinstristefnu.
„Þeir hneigjast til andúðar á trúar-
brögðum, þjóðernisstefnu, karl-
rembu og hernaðarhyggju, einnig
KRAFTGANGA í ÖSKJUHLÍÐ
• Friskt loft eykur ferskleika!
• Útivera eykur þol!
Við þjálfum í fersku loff í Öskjuhlíðinni. Hver tími inniheldur upphitun,
göngu, æfingar og teygjur, sem við gefum góðan tíma.
Boðið verður upp á þrenns konar tíma:
A — tími fyrir byrjendur og lítt þjálfaða.
B — tími fyrir þá sem komnir eru af stað í þjálfun.
C — tími fyrr þá sem vanir eru líkamsþjálfun.
Leiðbeinandi Árný Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur og íþróttaþjálfari.
Skráning og upplýsingar í síma 554-3499 mánudaginn 9. september
og þriðjudaginn 10. september kl. 9—12.
Þjálfunin ferfram þrisvar í viku, mánudaga, miðvikudaga
og laugardaga.
Þeir sem hafa verið áður, mæti göngubúnir kl. 11.00 á morgun,
laugardaginn 7. september í anddyri Þerlunnar.
eru þeir mjög í vafa um gildi ríkis-
styrkts konungdæmis, pólitískrar
og rígbundinnar skilgreiningu á
fjölskyldunni, lögreglu á vegum rík-
isins og allrar skattheimtu og opin-
berra reglugerða“.
Ríflega 50% af ungum íhalds-
mönnum vilja einkavæða heilbrigð-
isþjónustuna og háskólana, aðeins
20% eldri íhaldsmanna eru sömu
skoðunar. Um 60% unga fólksins
vildu leyfa vændi.
Full búð af nýjum vörum
frá heimsþekktum
framleiðendum.
Hjá okkur eru
Visa- og
Euroraðsamningar
ávísun á staðgreislu
Sími 581-2275
usgogn
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Þetta er ekki vaskur!
Villeroy&Boch
HEFST EFTIR
n
DAGA
HEIMSVIÐBURÐUR
í LAUGARDALSHÖLL 'sMgg
Alþjóðlega sjávarútvegssýningin 18.-21. sept.